Morgunblaðið - 22.04.1990, Page 28

Morgunblaðið - 22.04.1990, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MINIMIIMGAR SUNNUDAGUR 22. APRÍL 1990 Systir okkar, + GUÐRÚN ÞORSTEINSDÓTTIR fyrrverandi söngkennari, verður jarðsungín frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 24. apríl kl. 3 síðdegis. Hiidur Þorsteinsdóttir, Valgerður Þorsteinsdóttir og fjölskylda. t Elskulegi eiginmaður minn og faðir okkar, GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON frá Tjörn, Akranesi, síðar búsettur Vallarbraut 1, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju þriðjudaginn 24. apríl kl. 14. Ólöf Guðjónsdóttir og börn. t Ástkær eiginkona mín, ELÍSABET LÚÐVÍKSDÓTTIR SIGURÐSSON, fædd WITKOWSKA, Suðurgötu 68, Hafnarfirði, verður jarðsungin mánudaginn 23. apríl kl. 13.30 frá Kristkirkju Landakoti. Jarðsett verður í Hafnarfjarðarkirkjugarði. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Sverrir Sigurðsson. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, DAGBJÖRT ÍVARSDÓTTIR, Hrafnistu Hafnarfirði, verður jarðsungin frá nýju Fossvogskapellunni þriðjudaginn 24. apríl kl. 10.30. Þeir, sem vildu minnast hennar, látið Krabbameinsfélagið njóta þess. Valgerður B. Hassing, Jón Hassing, ívar Arnar Bjarnason, Erla Maria Hólm og barnabörn. t PÉTUR SIGURÐSSON, Bergstaðastræti 77, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 24. apríl kl. 13.30. Soffia S. Ó. Axelsdóttir, Pétur Axel Pétursson, Stephanie Scobie, Pétur Jökull Pétursson, Stefán Björn Pétursson, María Pétursdóttir, Ásta Soffía Pétursdóttir. Þuríður Elísabet Pétursdóttir, Guðmundur Ketill Guðfinnss., Védis Guðjónsdóttir, Auður Alfífa Ketilsdóttir, t Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, HÖGNI HELGASON, Kópavogsbraut 97, lést í gjörgæsludeild Borgarspítalans laugardaginn 14. apríl. Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 23. apríl kl. 13.30. Kristín Halldórsdóttir, Ketill Högnason, Hildur Högnadóttir, Haukur Högnason. t Elskulegur eiginmaður mínn, sonur okkar, faðir, tengdafaðir og afi, ÞÓRARINN ANDREWSSON kennari, Miðvangi 37, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði þriðjudaginn 24. apríl kl. 15.00. Hulda Hjálmarsdóttir, Dagbjört Þórarinsdóttir, Andrew Þorvaldsson, Helga S. Þórarinsdóttir, Snorri Páli Snorrason, Andrés Þórarinsson, Margrét E. Harðardóttir, Kristín Þórarinsdóttir og barnabörn. Asbjörn Magnús- son - Kveðjuorð Ég tel mér skylt að minnast hins ágæta manns, sem Ásbjörn var. Ég er ekki af sömu kynslóð, en Ásbjörn var bara þannig að hann var jafningi og jafnaldri allra kyrr- slóða. Fundum okkar bar fyrst saman fyrir tuttugu og ijórum árum á skrifstofu Þorleifs heitins Þórðar- sonar, þá forstjóra Ferðaskrifstofu ríkisins, sem þá var til húsa í Gimli við Lækjargötu. Gimli er sögufrægt hús í miðborg Reykjavíkur og má segja að þar hafi einnig gerst sögulegir atburðir í sögu íslenzkra ferðamála. Ég átti því láni að fagna að starfa þar nokkur sumur og var það fróðlegur miðdepill og uppspretta. Dag einn var ég að fara yfir stafla af gömlum bæklingum frá ferðaskrifstofunni Orlofi, sem eflaust margir eldri íslendingar muna eftir. _ Þá kom aðvífandi sá hinn sami Ásbjörn, sém ég hafði hitt fáeinum dögum áður inni hjá Þorleifi, og bað mig um að gefa ser nokkur eintök af bæklingunum. Ég gerði það en sagði honum jafnframt að ferðaskrifstofan væri ekki lengur tjl. „Ég veit það, vinur minn,“ sagði Ásbjörn og brosti kankvíslega. Þorleifur sagði mér síðar að Ás- björn hefði stjómað ferðaskrifstof- unni Orlofi af miklum dugnaði á meðan hún var og hét. Ásbjörn var áfram ávallt innan ferðamála, vann til dæmis hjá Loft- leiðum og nú síðast starfaði hann hjá ferðaskrifstofu í varnarstöðinni á Keflavíkurflugvelli og reif hana upp úr algjörri ládeyðu á stuttum tíma í blómlegt fyrirtæki. Það er sárt að sjá á bak jafn fróðum og skemmtilegum mönnum og Ásbjörn var. Hann var alltaf brosandi og tilbúinn í að taka upp skemmtilegt tal og var jafnvígur á mörgum sviðum. Ásbjörn hefur lagt mikið til flug- sögu Islands, bæði ljósmyndir og annað efni auk þess sem hann sjálf- ur var snar þáttur hennar m.a. með starfi sínu við svifflug. Sonur Ásbjörns, Örn, starfar og innan flugmálanna og munum við í honum áfram kynnast hinu blíða fasi og viðmóti Ásbjarnarmanna um ókomin ár. Ég votta eiginkonu og fjölskyld- unni mína dýpstu samúð. Friðrik Ásmundsson Brekkan Með_ óvæntu og ótímabæru frá- falli Ásbjörns Magnússonar 23. mars sl. hafa svifflugmenn misst góðan vin og velvildarmann. Félag- ar Svifflugfélags íslands minnast Ásbjamar með þakklæti fyrir fórn- fúst starf hans að uppbyggingu og framþróun hinnar göfugu íþróttar, svifflugsins, á íslandi, en Ásbjörn var heiðursfélagi félagsins. Ásbjörn var eftirminnilegur per- sónuleiki þeim er honum kynntust, en fyrstu kynni mín af honum voru á skrifstofu Loftleiða hf. í Kaup- mannahöfn sumarið 1948. Þáþurfti ég, sem ungur drengur, ásamt for- eldrum mínum að komast heim, eftir ferðalag um Norðurlönd. Var þá flogið með DC-4, „Skymaster“, sem þóttu glæsilegar vélar í þá daga. Á tilteknum degi var mætt á Kastrup-flugvöll til heimferðar, með farseðil í hendi, en vélin reynd- ist þá vera fullbókuð. Var þá haldið á fund Ásbjarnar, sem leysti málið á farsælan hatt, svo heim komumst við á réttum tíma. Þetta eina dæmi er eitt af mörgum, sem komu til kasta Ásbjarnar, er hann var yfir skrifstofu Loftleiða í Kaupmanna- höfn á fyrstu árum millilandaflugs- ins, sem hann átti stóran þátt í að byggja upp, ásamt fleiri góðum mönnum. Ékki grunaði mig þá, að leiðir okkar ættu eftir að liggja saman. Vorið 1953 sá ég auglýst eftir nemendum á Svifflugnámskeið á Sandskeiði, og áttu þátttakendur að láta skrá sig á Ferðaskrifstof- unni Orlofi í Hafnarstræti, en þá ferðaskrifstofu hafði Ásbjörn stofn- að nokkrum árum áður. Er ég mætti á staðinn, var þar fyrir hópur ungra manna og inni í miðjum hópnum stóð Ásbjörn, önn- um kafínn við að lýsa fyrir hinum ungu mönnum leyndardómum svif- flugsins, og hve mikilvægt það væri ungum mönnum að læra og stunda þá göfugu íþrótt. Hrifumst við „hinir ungu menn“ svo af lýsingum Ásbjarnar á þeim ævintýraheimi, sem svifflugið hefði upp á að bjóða, að við létum skrá okkur til þátttöku í eitt af fyrstu svifflugnámskeiðunum sem haldin voru á Sandskeiði. Nokkrum dögum síðar hélt eftir- væntingarfullur hópur af stað frá ferðaskrifstofu Ásbjamar til hálfs t Útför elsku sonar okkar og bróður, EINARS ATLA JÓNSSONAR, fer fram frá kirkjugarðskapellu Hafnarfjarðar þriðjudaginn 24. apríl kl. 10.30. Eiín Markan, Jón Ólafsson, Páll Þorgeir Pálsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarð- arför fóstru okkar, RÖGNU GUÐMUNDSDÓTTUR, Hátúni 12. Hlín Gunnarsdóttir, Málfríður Gunnarsdóttir, Björn Gunnarsson. t Þökkum innilega veitta samúð og hlý- hug vegna fráfalls elskulega drengsins okkar, GRÉTARS ÞÓRS SIGURÐSSONAR frá Nesjavöllum, Grafningi. Sigurður Jónsson, Ester Hannesdóttir, Jón Matthías Sigurðsson, Hanna Björk Sigurðardóttir, Guðbjörg Guðsteinsdóttir og aðrir vandamenn. > mánaðar dvalar á Sandskeiði á vit nýrra ævintýra. Farkosturinn var gamall Ford-vörubíll, í eigu Svif- flugfélags íslands. Var okkur öilum komið fyrir á palli bílsins, sem ekið var af hinum þekkta svifflugkappa Þórhalli Filippussyni. Er við komum 'upp í Ártúnsbrekku, sem var bratt- ari en sú brekka er við þekkjum í dag, bilaði Fordinn, og varð ekki í gang komið. Þórhallur náði fljótlega sambandi við Ásbjörn, sem þegar sendi annan bíl til að flytja okkur upp á Sandskeið þar sem Helgi Filippusson skólastjóri Svifflugskól- ans tók á móti okkur. Ásbjörn birtist fljótlega til að fylgjast með „drengjunum sínum“ og gefa góð ráð. Var hann mjög áhugasamur fyrir starfsemi Svif- flugskólans og gladdist yfir árangri hvers og eins er námskeiðið sótti, svo og þeim árangri er náðist á öðrum námskeiðum. Nemendur Svifflugskólans báru mikla virðingu fyrir Ásbirni. Vinahópur hans stækkaði með hveiju námskeiðinu sem haldið var, og urðu margir „drengjanna hans“ Ásbjarnar virkir félagar í Svifflugfélagi íslands, og stunda svifflug enn í dag. Margir hinna ungu manna er hófu svif- flugnám á þessum árum, urðu síðan flugmenn og flugstjórar hjá íslensku flugfélögunum. Var Ás- bjöm ætíð boðinn og búinn að gefa „drengjunum sínum“ meðmæli til að svo mætti verða og standa því margir í þakkarskuld við hann. Hinn mikli áhugi Ásbjamar á sviffluginu leiddi til þess, að kona hans, Margrét Matthíasdóttir, hóf að læra svifflug, og var hún ein af fyrstu konunum hér á landi til að læra það. Var það Ásbirni mikið gleðiefni, er kona hans tók „sóló“- prófið og sveif ein í fyrsta sinn. Mátti oft sjá þau hjón svífa hlið við hlið hvort á sinni svifflugunni á góðviðrisdögum yfirtoppi Vífilfells. Ásbirni var falin formennska í Svifflugfélaginu af „drengjunum sínum“ og var kona hans þá kosin varaformaður félagsins. Gegndu þau embættum sínum af stakri prýði. Ásbjörn var hugsjónamaður. Hann dreymdi stóra drauma um uppbyggingu á Sandskeiði, sem margir hafa ræst. Vegna starfa sinna að ferðamálum, ferðaðist Ásbjörn víða erlendis og heimsótti svifflugklúbba, þar sem hann flaug og flutti erindi um svifflug á ís- landi. Ásbjörn hvatti íslenska svif- flugmenn, „drengina sína“, til þátt- töku í svifflugmótum eriendis. Var hann þá jafnan fararstjóri. Þá var Ásbjörn hvatamaður að því að hefja íslandsmeistaramót í svifflugi. Varð Helluflugvöllur fyrir valinu og þar hafa íslandsmeistaramót í svifflugi verið haldin annað hvert sumar síðan árið 1956. Var Ásbjörn þá oft mótsstjóri, og mun hans án efa verða saknað á því móti sem fram- undan er á Hellu í júlí í sumar. Svifflugmenn þakka Ásbirni samfylgdina og tryggðina í gegnum árin. Hans er nú sárt saknað, en söknuðurinn er þó mestur hjá Margréti konu hans, sem hefur misst mikið. Svifflugmenn votta Margréti innilega samúð, svo og öðrum ættingjum. Guð blessi minn- ingu Ásbjarnar Magnússonar. Magnús Svérrisson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.