Morgunblaðið - 24.04.1990, Blaðsíða 1
fHiwgimfMtattto
1990
KNATTSPYRNA
ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL
BLAD
B
Arie Haan vill fá
Amór til Numberg
„Ekki mjög spennturfyrir Þýskalandi," segir Arnór Guðjohnsen
ARIE Haan, fyrrum þjálfari
Stuttgart sem tekið hefur við
þjálfarastöðunni hjá Niirnberg,
hefur mikinn hug á að fá Arnór
Guðjohnsen til liðsins. Samn-
ingur Arnórs við Anderlecht
rennur út í vor og segist hann
ekki mjög hrifinn af þvf að vera
áfram í Belgíu. Verði hann
áfram komi hinsvegar aðeins
Anderlecht til greina.
ÆT
Eg hef heyrt af þessu en ég hef
ekki fengið neitt tilboð og þess
háttar. Arie Haan hefur haft sam-
band reglulega en það gerði hann
líka þegar hann var hjá Stuttgart
svo það segir ekki mikið,“ sagði
Arnór. Hann sagðist líklega ræða
við forráðamenn Anderlecht í næstu
viku en sagði óvíst að hann yrði
áfram hjá liðinu.
„Það koma nokkur lið til greina,
öll utan Belgíu, og ég velti þessu
fyrir mér næstu daga. Ég get þó
ekki sagt að ég sé mjög spenntur
fyrir Þýskalandi," sagði Arnór.
Anderlecht tapaði fyrir Briigge
um helgina, 0:3. Briigge hefur fjög-
urra stiga forskot en þijár um-
ferðir eru eftir að deildinni. Arnór.
sagðist ekki gera sér lengur vonir
um meistaratitilinn heldur væri
stefnan sett á Evrópukeppni bikar-
hafa þar sem Anderlecht mætir
Sampdoria í úrslitum.
78. SKJALDARGLIMA ARMANNS
Ólafur H. Ólafs-
son skjaldarhaf i
í sjöunda sinn
ÓLAFUR Haukur Ólafsson úr KR sigr-
aði varð hlutskarpastur f 78. Skjald-
arglímu Ármanns, sem fór í íþrótta-
húsi Kennarahásksólans á laugardag.
Þetta er í sjöunda sinn sem Ólafur
hreppir skjöldinn.
Olafur glímdi af miklu öryggi og sigraði
alla andstæðinga sína á glæsilegum
úrslitabrögðum. Jón Birgir Valsson, KR,
stóð vel að glímunni eins og svo oft áður.
Heigi Bjarnason, gamla kempan úr KR,
varð að láta sér lynda þriðja sætið en hann
tapaði fyrir Jóni Birgi á mjög glæsilegri
sniðglímu á lofti.
Olafur Haukur fékk 5 vinninga, Joni Birg-
ir 4, Helgi 2, Ásgeir Víglundsson KR og
Ingibergur Sigurðsson Víkveija 1 vinning
hvor og Óskar Gíslason, KR, hlaut vinning.
Rúnar Guðmundsson, fyrrum glímukóng-
ur og skjaldarhafi setti og sleit mótinu.
Hann afhenti einnig verðlaun. Glímustjóri
var Guðmundur Freyr Halldórsson og sá
hann einnig um fánakveðju. Yfirdómari var
Hörður Gunnarsson en meðdómendur Sigur-
Ólafur H. Ólafsson jón Leifsson og Þorvaldur Þorsteinsson.
HANDBOLTI / 1.DEILD
Fjögur lið
í fallhættu
FH tryggði sér íslandsmeistaratitilinn í hand-
knattleik um helgina og HKféll í 2. deild,
en botnbaráttan er að öðru leyti f algleym-
ingi — fyrir síðustu umferð eru fjögur lið í
fallhættu; Víkingur, Grótta, ÍRog IBV.
Síðasta umferð 1. deildar karla í handknattleik
hefst í kvöld með leik Vikings og KA í Laugar-
dalshöll. Á morgun leika Stjarnan og Grótta í
Garðabæ, HK og lR í Digranesi, FH og ÍBV í
Kaplakrika og Valur og KR að Hlíðarenda. Allir
leikirnir hefjast kl. 20.
Verði lið jöfn að stigum gilda fyrst stig úr inn-
byrðis leikjum viðkomandi liða, síðan markamunur
úr innbyrðis leikjum, þá markamunur úr öllum
leikjum, fleiri mörk skoruð og loks hlutkesti.
I innbyrðis leikjunum stendur Víkingur ver að
vígi gegn Gróttu og ÍR, en er með pálmann í hönd-
unum gegn ÍBV. Grótta hefur vinninginn gegn
Víkingi og ÍBV, en ekki gegn ÍR, sem stendur illa
gegn IBV.
Þetta þýðir að verði Víkingur og Grótta jöfn
að stigum í næst neðsta sæti fellur Víkingur. Sama
gerist ef Grótta, Víkingur og ÍR verða með sama
stigafjölda og eins ef ÍBV bætist í hópinn. Nái
Grótta og Víkingur hins vegar ÍBV að stigum og
verði fyrir neðan ÍR fellur IBV.
■ íslandsmótið / B4, B5, B6
KORFUKNATTLEIKUR
Guðjón til
Bandaríkjanna
Guðjón Skúlason, bakvörður ÍBK, mun að öllum
líkindum leika með Aubum háskólanum í Alab-
ama í Bandaríkjunum næsta vetur. Þjálfari skóla-
liðsins hefur haft sam-
band við Guðjón og
boðið honum að leika
með liðinu í sumar, og
ef vel tekst til, einnig
í vetur. Sandy Ander-
son, hinn bandaríski
miðvörður Keflvík-
inga, var í skólanum
og hefur verið Guðjóni
hjálplegur.
„Þetta er nokkuð
ömggt og ég bíð bara
eftir dagsetningu. Þeir
vilja fá mig út og mér
líst vel á skólann og er nokkuð ákveðinn í að fara
út,“ sagði Guðjón. Hann sagði að skólinn, sem leik-
ur í 2. deild, væri þekktur fyrir körfubolta en Char-
les Barkley, stjarna Philadelphia 76ers, lék einmitt
með liði skólans 1981-84.
Líkur eru á því að þrír leikmenn ÍBK leiki í Banda-
ríkjunum en Nökkvi Már Jónsson og Magnús Guð-
finnsson hafa einnig áhuga á skólavist í Banda-
ríkjunum.
Arnór Guðjohnsen í leik með íslenska landsliðinu.
Arie Haan hefur nú áhuga á að fá landsliðsmanninn til
Núrnberg, en Haan þjálfaði Arnór um skeið hjá And-
erlecht.
HANDKNATTLEIKUR
Stjaman og
Fram í úrslit
Fram og Stjarnan leika til úrslita í kvennaflokki Bikar-
keppni HSÍ. Liðin sigruðu í undanúrslitaleikjum sínum
í gærkvöldi, Fram í Vestmannaeyjum og Stjarnan á Sel-
fossi.
Fram sigraði ÍBV nokkuð örugglega, 21:16, og Stjarn-
an vann mjög ömggan sigur á Selfossi, 37:20, eftir að
staðan hafði verið 21:6 í Ieikhléi. Ragnheiður Stephensen
gerði 12 mörk fyrir Stjörnuna, Erla Rafnsdóttir 7 og
Guðný Gunnsteinsdóttir 5. Auður Hermannsdóttir var
markahæst í liði Selfyssinga með 6 mörk og Hulda
Bjarnadóttir og Kristjana Aradóttir gerðu fjögur mörk
hvor.
Liðin mætast í úrslitaieik um næstu helgi en í karla-
flokki leika Valur og Víkingur.
SKÍÐI: AKUREYRINGAR SIGURSÆLIR Á SKÍÐAMÓTIÍSLANDS / B2