Morgunblaðið - 24.04.1990, Page 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR ÞREÐJUDAGUR
24. APRIL 199
L
MORGUNBLAÐIÐ
IÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL 199
B 5
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Fjórtándi íslandsmeistaratitill FH-inga:
Bikarinn best
geymdur í
Hafnarfirði
FH-INGARtryggðu sér íslandsmeistaratitilinn íhandknattleik í
14. sinn meðfjögurra marka sigri gegnÍRá laugardag, 25:21.
„Það var kominn tími til,“ sagði Óskar Ármannsson við Morgun-
blaðið, en hann gaf tóninn, gerði þrjú fyrstu mörk FH og sex af
11 fyrir hlé. Gestirnir gerðu út um leikinn á fimm mínútum um
miðjan seinni hálfleik, en fram að því var mjótt á mununum og
jafnt á flestum tölum.
Þegar spumingin er um meist-
aratitil annars vegar og björg-
unaraðgerðir vegna hugsanlegs
falls hins vegar, má gera ráð fyrir
að mætist stálin
stinn. Sú varð á
raunin og einkum
voru heimamenn,
vel studdir af há-
værum stuðningsmönnum undir
ærandi trumbuslætti, sem var ör-
ugglega vel yfir leyfilegum hávaða-
mörkum, aðgangsharðir. „Það var
erfitt að eiga við ÍR-ingana,“ sagði
Steinþór
Guöbjartsson
skrifar
Gunnar Beinteinsson, en tvö mörk
hans í röð, þegar um 10 mínútur
voru til leiksloka, gerðu vonir
heimamanna að engu. „Auk þess
heyrðist ekki mannsins mál og því
áttum við oft í vandræðum með að
gera það sem til stóð að gera —
heyrðum ekki hver í öðrum,“ bætti
línumaðurinn við.
ÍR-ingar léku vörnina skynsam-
lega, höfðu góðar gætur á Héðni
og Guðjóni og gáfu þeim ekkert
svigrúm lengst af. „Það er ekki
gott að athafna sig við slíkar að-
stæður," sagði Héðinn, sem tvíefld-
ist eftir tveggja mínútna kælingu
undir lokin og gerði þá þijú mörk
á tæpum þremur mínútum.
Sóknaraðgerðir heimamanna
voru hvassar og árangursríkar.
Gestirnir áttu í mestu erfiðleikum
með Olaf Gylfason og samvinna
hans og Matthíasar í horninu gerði
FH-ingum oft lífið leitt. En herslu-
muninn vantaði og eftir góða bar-
áttu seig á ógæfuhliðina síðasta
stundarljórðunginn. Liðið er hins
vegar of gott til að vera í fall-
hættu, á heima í 1. deild og hlýtur
að sýna það á morgun.
Eins og svo oft áður gerðu FH-
ingar það sem þeir þurftu til að ná
settu marki. Það er einkennandi
fyrir meistara og Hafnfirðingar eru
best að titlinum komnir.
„Viggó á stóran
þátt í sigrinum“
Morgunblaðið/RAX
Nítjánda marki FH, og þar með þriggja marka forskoti, fagnað með tilþrifum. Jón
Erling Ragnarsson og Gunnar Beinteinsson (6), sem skoraði markið.
Grótta held-
ur í vonina
Vann KA naumlega á Seltjarnarnesi
Grótta heldur í vonina um
áframhaldandi sæti í 1. deild
eftir nauman sigur á KA á laugar-
daginn, 25:23. Grótta var yfir nær
allan leikinn en afar
slæmur kafli í síðari
hálfleik hafði næst-
um því fært gestun-
um sigurinn.
Logi Bergmann
Eiösson
skrifar
Leikurinn var afar slakur og
bæði lið gerðu mörg mistök. Gróttu-
menn voru þó ákveðnari enda þarf
iiðið nauðsynlega á stigunum að
halda.
Páll Björnsson var besti maður
Gróttu, opnaði vel fyrir félögum
sínum og gerði góð mörk. Hjá KA
var Erlingur bestur, en bæði lið
geta mun betur.
KA-menn voru utan vallar í 16
mínútur en Gróta en tæplega fjór-
ar. Þetta hafði skiljanlega mikil
áhrif á leikinn en ekki var gott að
sjá ástæðu fyrir sífelldum brott-
rekstrum gestanna.
Kraflaverk leit
ekki dagsins Ijós
VALSMENN tóku það hlutverk
að sér á laugardaginn að senda
HK endanlega niður í 2. deild.
Sigurinn var tiltölulega auð-
veldur eins og lokatölur gefa
til kynna, 31:20. Leikurinn
skipti í raun litlu máli; Vals-
menn búnir að missa af titlin-
um og aðeins kraftaverk gat
bjargað HK frá falli. Það krafta-
verk leit ekki dagsins Ijós og
eftir ársdvöl á meðal þeirra
bestu er HK aftur í 2. deild.
HK-menn gerðu tvö fyrstu
mörkin og héldu í við Vals-
menn framan af. Svofór getumunur
liðanna að segja til sín og Valsmenn
höfðu 15:10 yfir í
hléi. HK byijaði
seinni hálfleik eiris
og þann fyrri, gerði
þijú fyrstu mörkin,
Hörður
Magnússon
skrifar
en síðan var aftur komið að Vals-
mönnum, sem juku forskot sitt jafnt
og þétt.
Það var einstaklingsframtakið
sem skóp þennan Valssigur. Liðið
í heild spilaði frekar illa, enda erf-
itt að ná fram einbeitingu í leik sem
þessum. Boltinn gekk illa í sókninni
og lítil barátta var í vörn. Valdimar
Grímsson fór þó á kostum, spilaði
óeigingjarnt og skoraði falleg mörk.
Þá Iék Jakob Sigurðsson ágætlega
og Einar Þorvarðarson var traustur
í markinu.
Eins og svo oft áður var Bjami
Frostason, markmaður, bestur í liði
HK, sem var áberandi slakast í
deildinni í vetur. Það barðist vel í
vörninni og eins og svo oft áður
jaðraði leikurinn við ruddaskap. Til
marks um það var engum Vals-
manni vikið útaf en HK-menn voru
utan vallar í samtals 14 mínútur.
r sagði Þorgils
Óttar Mathiesen,
þjálfari FH
ÞORGILS Óttar Mathiesen lék
lítið í sínum síðasta útileik.
„Þétta er mitt síðasta tímabil
sem leikmaður," sagði þjálfar-
inn, sem gerði eitt mark gegn
ÍR og það braut ísinn. FH náði
þar með tveggja marka forystu
á mikilvægum tíma og tvö mörk
gestanna fylgdu í kjölfarið —
fyrsti íslandsmeistaratitillinn í
fimmár var íhöfn.
Þjálfari FH sagði: „Við spiluðum
ekki almennilega fyrr en
síðustu 15 mínútumar. Eftir sigur-
inn gegn Val vorum við orðnir
meistarar í augum flestra, en ein-
mitt í slíkri stöðu er erfiðast að fá
rétta keppisskapið fram, koma
nauðsynlegri hvatningu til skila.
Að flestra mati áttum við að sigra
IR, en það er alltaf erfitt að vinna,
þegar það fer saman að menn telja
það auðvelt og um leið nauðsyn-
Iegt.“
Óttar sagði að þrátt fyrir stöðug-
leika liðsins í vetur, væri breiddin
almennt meiri en áður og enginn
leikur öruggur. „Það er ekki mikill
munur á Iiðunum, þó segja megi
að FH og Valur hafi sýnt mesta
stöðugleikann. Við höfum æft vel
í vetur, en því má ekki gleyma að
undirbúningurinn hefur staðið leng-
ur yfir og Viggó Sigurðsson, sem
þjálfaði liðið síðustu þijú ár, á stór-
an þátt í sigrinum."
Nýbakaðir Islandsmeistarar FH sigri hrósandi í búningsklefa liðsins eftir sigurinn á IR.
Morgunblaðið/RAX
Vonir Vðdnga glæðast
Víkingar eiga enn möguleika á
að halda sæti sínu í 1. deild
eftir 27:23 sigur á ÍBV um helgina.
Víkingar höfðu undirtökin svo til
allan leikinn. Þrátt
fyrir jafna viðureign
voru þeir alltaf fyrri
til að skora og höfðu
tveggja marka for-
skot í leikhléi. ÍBV náði aldrei að
Katrín
Friönksen
skrifar
jafna leikinn í síðari hálfleik, mun-
urinn varð minnstur eitt mark.
Undir lokin kom góður sprettur hjá
Víkingum og þeir tryggðu sér ör-
uggan sigur.
Bjarki Sigurðsson, Víkingur, var
langbesti maður vallarins, skoraði
níu mörk hvert öðru glæsilégra. Þá
var Birgir Sigurðsson sterkur á
línunni og Dagur Jónasson var góð-
síðari hálfleik.
ur
Sigurður Gunnarsson átti erfitt
uppdráttar hjá ÍBV, en hann var í
strangri gæslu allan leikinn. Hilmar
Sigurgíslason átti góðan leik á
línunni og hornamennirnir Sigurður
Friðriksson og Óskar Brynjarsson
stóðu vel fýrir sínu.
„Höfum beðið
efftir titlinum
í allan vetur“
- sagði Guðmundur Hrafnkelsson
GUÐMUNDUR Hrafnkelsson var
í fallliði UBK í fyrra, en stendur
nú með pálmann í höndunum.
„Þetta er allt annað. Ég hef ver-
ið meistari með UBK í 2. deild
og Fylki í 3. deild, en er nú loks
íslandsmeistari. Við FH-ingar
stefndum að þessu, höfum beð-
ið eftir titlinum í allan vetur og
það var ánægjulegt að ná tak-
markinu fyrir síðasta leik.“
Guðmundur átti stóran þátt í sigr-
inum, varði vel og gaf sam-
hetjunum aukinn kraft, þegar mest
lá við. „Við vorum hræddir og áttum
von á erfiðum leik. ÍR-ingar þurftu
stig til að tryggja sætið í deildinni,
en álagið var meira á okkur, því
hungrið í titilinn var mikið og til að
ná settu marki var nauðsynlegt að
fá stig.“
Landsliðsmarkvörðurinn sagði að
eftir sigurinn gegn Val hefði draum-
urinn um titil nær ræst, en hugsunin
um að mistakast á lokasprettinum
hefði verið óþægileg. „Við vorum í
þægilegri stöðu eftir síðasta leik, en
jafnframt mátti ekkert út af bregða.
Guðmundur Hrafnkelsson.
Því vorum við taugaóstyrkir gegn
ÍR-ingum enda mikið í húfi, en það
losnaði um spennuna áður en það var
um seinan.
Þar kom styrkleiki okkar í ljós —
mótspyman var mikil, en við brotnuð-
um ekki, heldur sýndum nauðsynleg-
an stöðugleika. En við tökum á móti
bikarnum á heimavelli á miðviku-
dagskvöld og megum ekki skemma
stemmninguna. Því verðum við að
spila vel gegn Vestmannaeyingum
og ljúka mótinu með sigri."
SkúliUnnar
Sveinsson
skrifar
SKIÐI / ANDRESAR ANDAR LEIKARNIR
r/orgunblaðið/Runar Pór
Elísabet Kristjánsdóttir frá Grundarfirði á fleygiferð í stórsvigskeppninni á fimmtudaginn. Hún keppti í 12 ára
flokki og lenti í 7. sæti.
Siglf irðingar hlutu flest gullverðlaun
fyrir að nokkuð hafi kólnað og vind-
ar blásið á föstudag og laugardag
tókst að ljúka keppni á réttum tíma.*
Mótið gekk sérlega vel, enda vel
skipulagt, og fóru greinilega allir
ánægðir til síns heima.
Nánari umfjöllun um Andrésar
andar leikana verður að bíða þar
til síðar í vikunni.
Siglfirðingar hlutu flest gull-
verðlaun, 14, á Andrésar andar
leikunum, sem lauk á Akureyri á
laugardaginn. Þar af fengu þeir 13
gull í norrænu
greinunum. Akur-
eyringar komu
næstir með 9 gull-
verðlaun, Dalvíking-
ar fengu 5, Ólafsfirðingar 4, Reyk-
víkingar 3, Húsvíkingar 3, Seyð-
firðingar 2 og ísfirðingar 1. En það
voru ekki gullverðlaunin sem skiptu
Skapti
Hallgrímsson
skrifar
þátttakendur mestu á þessu
skemmtilega móti frekar en fyrri
daginn. Keppnisgleðin sat í fyrir-
rúmi hjá krökkunum, og slegið var
á létta strengi. Áhugi fararstjó-
ranna virtist ekki minni — einn sem
hefur mætt á leikana í mörg ár
sagðist örugglega eiga eftir að
koma í 10-15 ár í viðbót; þegar
leikarnir stæðu yfir kæmist ekkert
annað að!
Veður var frábært fyrsta keppn-
isdaginn, á fimmtudag, en þrátt
Urslit / B6.
KORFUKNATTLEIKUR / LOKAHOF KKI
Slakur
leikur í
Garðabæ
Stjarnan tryggði sér
þriðja sætið með
sigri á KR
STJARNAN vannKRíaf-
skaplega slökum leik í
Garðabæ á laugardaginn.
Þar með hafa Garðbæing-
ar tryggt sér þriðja sæti
deildarinnar.
Heimamenn höfðu forystuna svo
til allan leikinn og þó svo KR
næði stundum að minka munin þá
tókst þeim aldrei að ná undirtökun-
um, nema um tíma
í fyrri hálfleik. Leik-
urinn var slakur og
virtist kominn sum-
arfiðringur í leik-
menn því handboltinn sem liðin léku
var ekki upp á marga fiska.
Markverðir beggja liða léku
ágætlega og þeir Hafsteinn. og
Hilmar áttu góðan dag hjá Stjörn-
unni. Hjá KR skoraði Sigurður fal-
leg mörk úr hægra horninu en fátt
annað gladdi augað i leik liðsins.
Morgunblaðið/Einar Falur
Þau bestu
Björg Hafsteinsdóttir, besti leikmaður 1. deild kvenna, og Páll Kolbeinsson, besti leikmaður úrvalsdeildarinnar, með
verðlaunagripi sína á lokahófinu.
Páll og Björg best
Urslit / B6
Staðan / B6
Páll Kolbeinsson, bakvörður KR,
var kjörinn besti leikmaður
úi’valsdeildarinnar á lokahófi KKÍ
sem haldið var á laugardaginn.
Björg Hafsteinsdóttir úr ÍBK var
valinn best í 1. deild kvenna.
í úrvalsliði úrvalsdeildarinnar,
Nike-liðið, voru Páll Kolbeinsson,
KR, Guðjón Skúlason, ÍBK, Valur
Ingimundarson, UMFT, Teitur Ör-
lygsson, UMFN, og Guðmundur
Bragason, UMFG.
Úrvalslið 1. deildar kvenna skipa:
Björg Hafsteinsdóttir og Anna
María Sveinsdóttir, ÍBK, Lilja
Björnsdóttir, KR, Herdís Gunnars-
dóttir, Haukum, og Linda Stefáns-
dóttir, ÍR.
Chris Behrends var stigahæstur
í úrvalsdeildinni og Anna María
Sveinsdóttir í 1. deild kvenna. Anna
María hitti einnig best úr vítum og
Guðjón Skúlason fékk sama titil í
úrvalsdeild. Hann gerði þar einnig
flestar þriggja stiga körfur en Björg
Hafsteinsdóttir hitti best í 1. deild'
kvenna. Dan Kennard tók flest frá-
köst í úrvalsdeild og Friðrik Rúnars-
son var kjörinn prúðasti leikmaður
deildarinnar.
Þjálfari ársins var kjörinn Laszló
Nemeth og Jón Otti Ólafsson besti
dómarinn. Kristján Möller var talinn
sá dómari er mestum framförum,
hafði tekið og Marel Guðlaugsson,
besti nýliðinn í úrvalsdeildinni.