Morgunblaðið - 28.04.1990, Side 3

Morgunblaðið - 28.04.1990, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1990 B 3 of augljós. Ég lít á smámyndagerð sem sjálf- stætt form innan myndlistarinnar. Höndin er lausari þegar hún vinnur í svona smáu formi og skilgreining- arhvötin er ekki eins sterk og þegar maður vinnur í stóru formi. Þá þarf maður að skipuleggja myndflötinn miklu betur. Maður stendur alltaf frammi fyrir tímanum — þessu hverfula. Grunnþættir mannsins eru nátengdir dauðanum, hann vinnur undir verkstjórn tímans. Maðurinn hefur engin áhrif á tímann — nema í hugsun sinni. Það er í grunneðli mannsins að kortleggja sjálfan sig og ná einhveiju vitsmunalegu taki á sjálfum sér þann tíma sem honum er úthlutað milli fæðingar og dauða. Leikræni þátturinn er mjög sterk- ur í hverjum og einum og þessvegna er listsköpun mikilvæg. Ég hef oft heyrt listamenn tala um að maður þurfi að vera einlægur — og þá er eins og átt sé við „barns- legur“. En ég vil líta á einlægni sem upphafið ástand, sem kallar á tæm- ingu og það er ekki öllum gefið að tæma sig. En þegar þú nærð þess- ari tæmingu, ertu að vinna með þennan upphafna kraft — einlægn- ina. Ef þú getur ekki unnið með þennan kraft, geturðu ekki skapað — en ert orðinn einhver mælinga- maður. Þetta er ekki spurning um að nálgast sjálftan sig og tjá hið persónulega, heldur að tjá hið ein- staklingsbundna í hinu algilda. í sambandi við myndlist er ég að verða svo gamaldags. Mér finnst orðið langmest gaman að skoða stóru og miklu sögumálverkin frá 17. og 18. öld. Ég held að við stönd- um frammi fyrir eins konar uppgjöri við myndlistina í dag. 20. öldin hef- Morgunblaðið/Sverrir ur verið eilíf katastrófa allan tímann, en nú er eins og menn séu að draga sig saman og vinna úr þessum mögu- leikum sem formsprengjan skildi eftir. Á 20 til 30 árum skrapp heim- urinn saman með tilkomu ljósmynd- arinnar, kvikmynda og annarrar tækni — og það hafði gríðarleg áhrif á alla listsköpun. Sá myndlistarmað- ur sem ekki hefur orðið var við þetta, er eitthvað undarlegur. Það segir sig sjálft, að þegar maðurinn er orðinn uppfullur af áróðri, fyllist hafa þörf fyrir að nálg- ast uppruna sinn. Og þá er ég ekki að tala um uppruna okkar í æsku, eða uppeldi, heldur frumþáttinn." — Er það ekki óvinnandi vegur? „Kannski, en mér finnst alltaf ákaflega fallegt þegar maðurinn þarf að standa frammi fyrir tak- mörkunum sínum. Þá er hann svo mannlegur." — Héyrðu Kjartan, hvenær byij- aðirðu að fást við myndlist? „Það er langt síðan. Ég fór að mála afþví mér leiddist svo í þessu almenna skólakerfi — svo ég grúfði mig niður og fór að teikna til að lifa af. Svo er í mér pínulítili lestrarfák- ur. Stundum fæ ég samviskubit yfir því að vera að lesa, því mér finnst ég alltaf eiga að vera að mála, en svo afsaka ég mig með því að lestur- inn þjóni myndlistinni og myndlistin lestrinum.“ — Þegar þú ert að tjá þessa frum- þætti í fígúrunum í myndum þinum, er dálítið áberandi að þær eru mik- ill vöðvamassi. Hvar eru tengslin? „Já, þetta eru miklir skrokkar. Það er kannski vegna þess að ég er að hugsa um átakið. Ég hef gert miklu meira af því að mála hesta en karlmenn. í myndum mínum er ég ekki að skoða karlmanninn sem kynveru, heldur sem veru sem orku. Karlmennirnir í þessum myndum hafa engin persónueinkenni; ekkert hár og engin andlit, heldur eru þetta svona „anatómíutröll“. Þetta eru sterkar týpur, sem eins og við vorum að tala um, hafa ákaf- lega takmarkað svið. Ég mála ekki karlmenn, heldur frumverur. Þegar ég mála konur, eru þær eins og þessir karlmenn, nema með ofurlítil btjóst. Þetta eru mannverur sem eiginlega er búið að fletta af húð- inni, eða ytri einkennum. Með því að afhjúpa líkamann, gerir maður hann almennari. Þannig verður mál- verkið hlutlausara.“ -»■ Er það til að komast hjá hinum falska persónuleika, eða þeirri ímynd sem hver og einn gefur af sér út á við? „Maðurinn er mjög bundinn um- hverfi sínu og hinum sífellda áróðri sem býr til ákveðnar manngerðir sem henta samfélaginu. Það er að- ferð samfélagsins við að skapa sér „ídentítet". Eftir því sem þjóðfélagið verður tæknivæddara er meiri þörf fyrir að ná utan um einstaklinginn með massahugsun. Þar með er verið að fletja út öll persónueinkenni. Síðan má segja að listamaðurinn sé einhver formgalli, vegna þess að tæknivædda samfélagið gerir í æ minna mæli ráð fyrir hlutverki hans. Þessvegna fær hann stundum leyfi til að halda persónueinkennum sínum.“ — Er hann þá ekki utanveltu við samfélagið? „Jú, hann er þessi einfari — sem jafnvel kýs ekki.“ Listvinafélag Hallgrímskirkju TKOMPETTEKÍH Listvinafélag Hallgrímskirkju gengst fyrir tónleikum sunnudaginn 29. apríl nk. klukkan 17.00, seni bera yfirskriftina Trompettería. Flutt verður hátíðatónlist fyrir trompeta, fagott og orgel. Flytj- endur eru Asgeir H. Steingrímsson, trompet, Eiríkur Örn Pálsson, tromp- et, Lárus Sveinsson, trompet, Rúnar Vilbergsson, fagott og pákur og Hörður Áskelsson, orgel. Efnisskráin er mjög fjölbreytt og spannar tímabilið frá endurreisnar- tímanum til 20. aldar. Hljóðfæraskip- anin er einnig fjölbreytileg. Trompet- ar af ýmsum gerðum, í þríleik eða einleik, með eða án undirleiks orgels og fagotts. Auk þess er eitt verk fyrir fagott og orgel. Höfundur ver- kanna sem flutt verða eru m.a. Andrea og Giovanni Gabrieli, Marc- ello, Viviani, Bach og Britten. Þetta er í fyrsta sinn sem þessir hljóðfæra- leikarar halda tónleika saman. Þeir eru allir kunnir úr íslensku tónlist- arlífi. Tónleikarnir á sunnudaginn eru áskriftartónleikar hjá Listvinafé- lagi Hallgrímskirkju, en aðgöngu- miðar verða seldir við innganginn og kosta kr. 600.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.