Morgunblaðið - 28.04.1990, Síða 8

Morgunblaðið - 28.04.1990, Síða 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1990 „Hann er íslendingurinn í dag, þ.e.a.s. sú ímynd sem hann hefur sjálfur af sjálfum sér. Það má segja að þessi sýning fáist við stað- bundna íslenska menningu. Það sem mér fínnst vera kjölfestan í íslenskri menningu, er þetta stutta bil milli fagurfræði og notagildis; fegurðin í notagildinu, sem íslend- ingar hafa varðveitt, öðrum þjóð- um fremur — kannski vegna stöð- ugs návígis við lífsbaráttuna. Það hefur verið talað um að ég noti vissar vísanir í norræna forn- menningu. Það er bæði rétt og rangt, því það sem ég geri, er að nota viss tákn og mýtur, umbreyti þeim og hef sem leiðarminni. Þau koma fyrir aftur og aftur, sérstak- lega grunnminni, eins og teinung- urinn norræni, sem koma fram í línum, fléttum og laufum, eða þá í öldugangi, stílfærðum augum, brosandi munni o.s.frv. Ég nota ekki teinunginn sem slíkan, heldur formið í mismunandi samhengi; umbreyti því,-svo það fær mismun- og tálbeitan í Galierí 11 við Skólavörðustíg er allsérstæð sýning þessa dagana. Þar sýnir Hannes Lárusson myndlistamaður tréverk og gæti sýningin heitið eftir einu verkanna á henni: „ Villiand- inn“. Uppistaðan í sýningunni eru 35 ausur, útfærðar á mismun- andi hátt og í mismunandi stærðum. Hver og ein ausa hefúr tilvísun út fyrir notagildi sitt og eru þær tilvísanir ýmist sóttar í fornan norrænan arf, íslenska lifhaðarhætti eða myndlistar- hefðina — sem takmarkast ekki af landamærum. Ein hvaðan kemur ausan inn í kallar á tímann. í þeim er sama , myndmál Hannesar? myndmál og í öðrum verkum sem „Ég er ættaður úr Flóanum," ég geri. Þeir eru mjög misviðamikl- i svarar hann, „þar ólst ég upp til tíu ára aldurs í gömlum torfbæ og við fremur gamla búskapar- hætti og hugsunarhátt. Þar bjó afi minn, sem varð ævagamall. Hann dó í fyrra, 96 ára gamall. Hann hafði þennan fomeskjulega hugs- unarhátt um notagildi og fagur- fræði; ef hluturinn var ekki sterkur og gerði gagn, var hann ekki fall- egur. Þó var ekki til í honum nein nostalgía gagnvart gömlum hlut- um. Ef nýr hlutur hafði notagildi' og styrk umfram gamlan hlut, valdi hann nýja hlutinn. Frá þessum bakgrunni flutti ég svo til Reykjavíkur, þar sem ég hlaut hefðbundna menntun; fór í Myndlista- og handíðaskólann hér og síðan í framhaldsnám til Kanada; Vancouver og Halifax, og til New York í Bandaríkjunum. Ég lauk mastersgráðu frá Halifax, en ég tók myndlistamámið ekki í einni striklotu, því inn á milli var ég hér heima og stundaði þá nám í heimspeki við Háskóla íslands og lauk BA-gráðu. Ég held mér sér óhætt að segja að heimspekin hafi verið einhver mikilvægasti þátturinn í mínu námi.“ Hannes hefur haldið fjölda einkasýninga, á íslandi, í Banda- ríkjunum, Kanada og Danmörku, auk þess sem hann hefur takið þátt í mörgum samsýningum í þessum löndum, auk Noregs, Svíþjóðar og Finnlands. Hann á langan feril í því sem kallað er „performans“; hefur haldið 23 slíka frá árinu 1977. „Performans er sá miðill sem ég hef notað hvað mest — ýmist í tengsluni við önnur verk, eða sjálfstætt. í myndlistinni er tíminn mjög mikilvægur þáttur og í per- formans vinnur hann með manni. í seinni tíð eru performansarnir mínir gjarnan í mjög nánum tengslum við verkin sem ég er að vinna. Það má segja að þeir séu sá hluti sem ég er að fást við, sem ir og þegar ég nota þá við opnun sýninga, eru þeir til að undirstrika ákveðnar tiifinningar. Verkin sem ég er með á þessari sýningu eru líka tengd tilhugsun- inni um tíma; öll þessi yfirlega. Þau eru líka tengd þeirri hugsun, að afleiðingarnar af því sem maður gerir eru óumbreytanlegar. Það má kannski segja að þessi verk séu langur performans. Ég hélt ég gæti unnið verkin mjög hratt, með spotjárnum og öðrum tækjum, en svo var ekki, því þau brotnuðu eða sprungu. Ég varð að vinna þau mjög hægt og fínna rétt tempó,^ vegna þess að í áferðinni má mað- ur hvergi skilja eftir mistök. Þegar maður málar, er endalaust hægt að breyta verkum, en þegar maður vinnur í tré, líkt og þegar maður framkvæmir gerning, er niðurstað- an óumbreytanleg. nainicð Loiuaíun Þessvegna verður það, að maður bytjar með einhveija grundvallar- hugmynd, en hún er aðeins 30% af verkinu. Síðan eru það aðferðin, efnið og tilviljanir sem ráða fram- haldinu. Oft ráða tilviljanir mestu um það hvernig verkið verður á Wmmm Viðtal við Hannes Lárusson sem sýnir tréverk i Gallen 11 við Skólavörðustig endanum. í trénu geta verið sprungur, eða kvistir sem detta út, og svo framvegis og maður þarf að leiðrétta. Hugsunin um orsök og afleiðingu er því mjög ríkjandi í þessari vinnu.“ Villiandinn — hver er hann? andi merkingu. Annað minni sem ég nota er bókin — ekki endilega sem bók, vegna þess að þegar maður lætur hana standa opna á spjöldunum með kjölinn upp öðlast hún yfirtóna sem vísa til fjaliskeil- unnar, burstabæjarins og jafnvel enn annað. Það er mjög viðkvæmt að nota svona minni, því það er ekki bara minnið sem skiptir máli, heldur líka samhengið og efnið. En þetta eru ekki bara þjóðlegir gripir, heldur verk sem eiga erindi inn í almennan myndlistarhugsun- arhátt. í myndlistinni eru menn alltaf að leita að einhverri fótfestu til að grundvalla merkingu mynd- listarinnar á. Þá er nærtækast að leita í þjóðlegan arf; það að hafa lifað á einhveijum sérstökum stað. Það getur enginn útlendingur komið til íslands og farið að lifa íslenska menningu." Af hveiju? Er það spurning um hugsunarhátt, fremur en athafnir? „Nei, það er spuming um að vera staðbundinn. Það er spuming um samþættingu á staðháttum, arfleifð, hugsun, tungu og samfé- laginu sem við lifum í á hveijum tfma. Þegar maður skoðar fólk eins og hann afa minn, sem var alltaf í Flóanum; hann kom ekki til út- landa fyrr en um sjötugt, þá sér maður hvað staðhættir móta menn; atgervi þeirra og hugsun. Enda hefði ég mikla vantrú á öllum hug- myndum um tilvist svokallaðrar alþjóðamenninar. Hún getur ekki orðið til, nema í afar yfirborðsleg- um myndum. Annað, sem tengist handverkinu og notagildi, er erótíkin. Hin stað- bundna menning hefur einhverja erótíska þungamiðju. Ef við tökum þessa önd, sem égkalla„Decoy“ eða Tálbeitan, þá er hún gerviönd, sem er notuð til að draga að lifandi fugla, vegna erótískra viðbragða. Handverk og allt, sem dregur að sér athygli, er tálbeita. En ég er þegar búinn að láta öndina veiða sjálfa sig, þannig að hún hefur ekki þetta notagildi lengur, að geta dregið að sér dýrin. Hún er læst inni í sjálfri sér, en það gerist þegar handverkið nær yfirhendinni í listaverki — þó það sé unnið und- ir erótísku yfirskini. Ég er ekki að segja að erótík sé upphaf og endir allra listaverka, vegna þess að listaverk er sam- ræming margra, ólíkra þátta. Erótík er þessi snertipunktur sem tryggir vissan grundavallar skiln- ing. Ef hér væri til dæmis verk sem enginn nema Islendingur skildi ekki, þætti mér það ónýtt. Merkingin sem slík er ekki stað- bundin, en tilburð hennar er það. Og allar þessar ausur eru hér, því magnið skiptir máli. Með því að gera fjörutíu ausur, tekst mér að tæma vissa möguleika og þá næst ef til vill út nothæf niðurstaða. Ef þetta væru 2-3 ausur, væri þetta sýndarmennska að hand- verki." ssv Listasafn Sigurjóns: Vetrardagskra senn að Ijúka Vetrardagskrá Listasaftis Sigurjóns Ólafssonar lýkur 6. maí næstkomandi og er það jafhframt lokadagur sýningarinnar á málmverkum Sigurjóns, sem hann vann á Reykjalundi 1960-1962. í safhinu getur einnig að líta listaverk eftir Sigurjón, sem saíninu hafa verið færð að gjöf undanfarin ár. H uk sýningarstarfsemi og skrán- Hingar- og rannsóknarvinnu sem henni fylgir, hefur safnið staðið fyrir menningarsamkomum. Bók- menntakynningar hafa verið haldn- ár fyrsta sunnudag hvers mánaðar í vetur og á þeirri síðustu fjölluðu valinkunnir menn um fjögur Ijóða Jónasar Hallgrímssonar, náttúru- fræðings og skálds. Síðan um ára- mót hefur í hveijum mánuði tón- skáld verið hvatt til að kynna verk sín í tali og tónum með aðstoð hljóð- færaleikara, söngvara og hljóm- flutningstækja. í vetur hefur safnið verið opið á laugardögum og sunnu- dögum frá klukkan 14-17 og á þriðjudagskvöldum frá 20-22. Listasafn Siguijóns Ólafssonar verður lokað frá 7. maí til 3. júní, en þá verður opnuð sýning með andlitsmyndum eftir Siguijón og er það í fyrsta sinn sem slík sýning er haldin, en hann var þekktur fyr- ir meistaraleg portrett sín og mót- aði um það bil tvö hundruð andlits- myndir um ævina. Sýningin er liður í Listahátíð í Reykjavík. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.