Morgunblaðið - 22.05.1990, Page 4

Morgunblaðið - 22.05.1990, Page 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAI 1990 KÓPAVOGUR KJÓSENDUR á kjörskrárstofni í Kópavogi eru 11.353 og hefur Ijölgað um 9% frá kosningunum 1986. 11 fulltrúar eru kjörnir í bæjarstjórn og eru fimm listar í framboði, eða jafnmargir og 1986. í sveitarstjórnarkosningunum 1986 voru 10.213 kjós- endur á kjörskrá. 7.984 greiddu atkvæði og var kjör- sókn 78,2%. Auðir og ógildir seðlar voru 238, en úrslit urðu þessi: Listi Atkvæði % fulltrúar A - Alþýðuflokkur 1.900 24,5 3 B - Framsóknarflokkur 1.053 13,6 1 D - Sjálfstæðisflokkur 2.483 32,1 4 G - Alþýðubandalag 2.161 27,9 3 M - Flokkur mannsins 149 1,9 0 Kosningu hlutu: Af A-lista: Guðmundur Oddsson, Rannveig Guðmundsdóttir og Hulda Finnbogadóttir. Af B-lista: Skúli Sigurgrímsson.^ Af D-lista: Richard Björgvinsson, Bragi Mikaelsson, Ásthildur Pétursdóttir og Guðni Stefánsson. Af G-lista: Heimir Pálsson, Heiðr- ún Sverrisdóttir og Valþór Hlöðversson. Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag skipa meirihluta bæjarstjórnar og bæjarstjóri er Kristján Guðmundsson. FRAMBOÐSLISTAR A-listi, Alþýðuflokkur: 1. Guðmundur Odds- son bæjarfulltrúi. 2. Sigríður Einarsdótt- ir bæjarfulltrúi. 3. Helga E. Jónasdótt- ir. 4. Þórður St. Guð- mundsson kennari. 5. Ólafur Bjömsson Ijármálafulltrúi. 6. Gunnar Magnússon kerfisfræðingur. 7. Margrét B. Eiríks- dóttir deildarfulltrúi. 8. Gréta Guðmunds- dóttir húsmóðir. 9. Þorgerður Gylfa- dóttir skrifstofumaður. 10. Þráinn Hallgríms- son skrifotofustjóri. 11. Alda Möller mat- vælafræðingur. B-listi, Framsóknar- flokkur: 1. Sigurður Geirdal framkvæmdastjóri. 2. Inga Þyrí Kjartans- dóttir sölustjóri. 3. Páll Magnússon menntaskólanemi., 4. Stefán Amgríms- son deildarstjóri. 5. Martha Jensdóttir kennari. 6. Ómar Stefánsson búfræðingur. 7. Vilhjálmur Einars- son fasteignasali. 8. Eiríkur Vaisson skrifstofmaður. 9. Sigurbjörg Björg- vinsdóttir laganemi. 10, Guðrún Alda Harðardóttir fóstra. 11. Ragnar M. Sveins- son menntaskólanemi. D-listi, Sjálfetæðis- flokkur. 1. Gunnarl. Birgisson verkfræðingur. 2. Guðni Stefánsson jámsmíðameistari. 3. Bima G. Friðriks- dóttir fulltrúi. 4. Amór L. Pálsson framkvæmdastjóri. 5. Bragi‘Michaelsson ffamkvæmdastjóri. 6. Sigurður Helgason lögfræðingur. 7. Jón Kristinn Snæ- hólm nemi. 8. Kristín Lindal kenn- ari. 9. Kristinn Kristinsson húsasmíðameistari. 10. Steinunn H. Sigurð- ardóttir verslunarm. 11. Siguijón Sigurðs- son læknir. G-listi, Alþýðubanda- lag: 1. Valþór Hlöðversson blaðamaður. 2. Elsa S. Þorkelsdótt- ir framkvstjóri. 3. Ólafur Hjálmarsson verkfrseðingur. 4. Bima Bjamadóttir húsmóðir. 5. Þórunn Bjömsdóttir tónmenntakennari. 6. Ásgeir Matthíasson verkfræðingur. 7. Unnur Bjömsdóttir framkvæmdastjóri. 8. Kristján Svein- bjömsson rafvirkjam. 9. Sigríður Hagalíns- dóttir kennari. 10. Flosi Eiríksson. 11. Elísabet Sveinsd. starfsm. Snælandssk. V-listi, Kvennalisti: 1. Hulda Harðardóttir þroskaþjálfí. 2. Guðbjörg Emils- dóttir sérkennari. 3. Þóranna Pálsdóttir veðurfræðingur. 4. Bima Siguijóns- dóttir yfírkennari. 5. Hafdís Benedikts- dóttir húsmóðir. 6. Sigrún Jónsd. starfsk. þingfl. Kvenn- al. 7. Helga Siguijóns- dóttir námsráðgjafí. 8. Þórunn ísfeld Þor- steinsdóttir. 9. Hallveig Thordar- son kennari. 10. Sigríður Hulda Sveinsdóttir kennari. 11. Unnur Ólafsdóttir byggingatæknifr. A-listinn Guðmundur Oddsson „Alþýðuflokkurinn í Kópavogi hef- ur nú um 12 ára skeið átt aðild að meirihlutasamstarfí í bæjarstjóm Kópavogs. Á þess- um árum hafa Al- þýðuflokkurinn og bæjarfulltrúar hans öðmm fremur mót- að bæjarmálastefn- una og aðlagað hana grundvallar- stefnumiðum jafn- aðarmanna. Nægir ' það að benda á fé- lagsmálaþáttinn, en Alþýðuflokk- urinn heftir haft formennsku í félags- málaráði síðustu átta árin og þannig átt virkan þátt í því að gera Kópavog að þekktasta félagsmálabæ á landinu. Þá hefur flokkurinn haft mikil áhrif í öðmm stómm málaflokkum svo sem skólamálum og umhverfís- málum og nú síðustu fjögur árin í skipulagsmálum, þar sem hann hefur fonnennsku á hendi og þannig leitt aðalskipulag bæjarins í höfn. Síðast en ekki síst hefur Alþýðuflokkurinn haft mikil áhrif í mótun þeirrar stefnu, sem segja má að Kópavogur sé brautryðjandi í, en það er að út- hluta íþróttafélögunum ákveðnum svæðum og gera síðan við félögin sérstaka samninga um uppbyggingu þeirra íþróttamannvirkja, sem reist verða á hveiju svæði. Þannig má segja í fáum orðum að sjónarmið jafnaðarmanna hafí umfram allt sett svip sinn á stóra og þýðingarmikla málaflokka, sem snerta hvert heimili í bænum og hvem bæjarbúa. Þegar svo er spurt hvað Alþýðu- flokkurinn í Kópavogi leggi áherslu á í komandi kosningum, þá getur svar hans í rauninni verið stutt: Hann vill í fyrsta lagi slá skjaldborg um félagsmálabæinn Kópavog, og veija það sem áunnist hefur fyrir hvers konar tilraunum til að gera Kópavog að skálkaskjóli fyrir sérhyggju og eiginhagsmuni. Hann ætlar síðan að halda ótrauð- ur áfram á sömu braut og áður — þá braut sem Kópavogsbúar þekkja — að gera góðan bæ betri, þar sem maðurinn, ungur og aidinn, situr í fyrirrúmi.“ B-listinn Signrður Geirdal „Framsóknarflokkurinn í Kópa- vogi hefur birt bæjarbúum ýtarlega stefnuskrá þar sem dregin eru fram helstu áhersluatriði í málflutningi þeirra. Meðal þess, sem þeir leggja áherslu á, má nefna: 1. Bæjarstjóm beiti sér fyrir aðgerðum til að laða atvinnu- fyrirtæki inn í bæj- arfélagið. 2. Gert verði átak í umhverfísmálum og fegmn bæjarins. 3. Unga fólkið verði hvatt til starfa og ábyrgðar við mótun framtíðar sinnar innan bæjarfélagsins. 4. Gert verði átak í gatnamálum, einkum gömlu götunum, og munu þeir setja slíkt átak sem skilyrði fyr- ir þátttöku í myndun meirihluta. 5.. Fjármálastjóm bæjarins verði tek- in til ýtarlegrar endurskoðunar, skuldasöfnun stöðvuð og fram- kvæmdaáætlanir endurekipulagðar. 6. Fjölmörg önnur atriði em í stefnu- skránni svo sem varðandi félagslega þjónustu, skólamál, listir, menningar- mál, Kópavogshöfn, húsnæðismál, skipulagsmál, íþrótta- og tómstunda- mál og margt fleira." D-listinn Gunnar I. Birgisson „Efst á lista hjá Sjálfstæðis- mönnum í Kópavogi er að fella núverandi meirihluta, en síðan þarf að koma fjármál- um bæjarins í lag. í fyrsta lagi með því að stöðva þessa hrikalegu skuldasöfnun, sem hefur verið látlaus síðasta kjörtíma- bil. I öðru lagi að lækka Ijármagns- kostnað. Síðan viljum við Ijúka við hálfkaraðar framkvæmdir, sem eru úti um allan bæ og má þar nefna sundlaugina og listasafnið. Við viljum bæta rekstur bæjarins. Við viljum halda sama þjónustustigi, en minnka kostnaðinn með algjörum uppskurði á rekstrinum og fá utanaðkomandi aðila til að fara í gegnum það. Við viljum fjölga atvinnutækifærum í • bænum með því meðal annars að styrkja hafnarsvæðið og laða að ný fyrirtæki í Kópavog. Þá mætti hugsa sér til dæmis tímabundinn greiðslufrest á aðstöðu- eða gatna- gerðargjöldum. Síðast en ekki síst munum við leggja fram áætlun um að ljúka endurbyggingu gömlu gatnanna á næstu fjórum árum. Þetta hefur alltaf verið látið sitja á hakanum hjá vinstri flokkunum, en á síðasta kjörtímabili endurbyggðu þeir götur upp á þijá kílómetra eða 750 metra á ári. Það er ekki hægt að bjóða fólki upp á að búa ekki við götur með bundnu slitlagi og að hafa ekki gangstéttir. Þetta eru miklar slysagildrur og orðið mikið umhverfislegt vandamál. Eins eru vatnslagnirnar í götunum ónýtar og eftir sex ár þurfum við að dæla öllu skolpi úr Kópavogi til Reykjavíkur, sem dælir því á haf út, og þá verður að vera búið að skilja að regnvatn og skolp. Þá leggur Sjálfotæðisflokkurinn mikla áherslu á að fjárframlag ríkisins til íþróttahallar verði aukið verulega og stefnir að því að fá samninginn endurskoðaðan, sem er nauðsynlegt fyrir Kópavog, þar sem núverandi meirihluti lék stórlega af sér. Samkvæmt okkar útreikn- ingum vantar um 400 milljónir til viðbótar við þessar 300 vegna fjár- magnskostnaðar og tengdra fram- kvæmda, sem ávallt á að taka með í reikninginn.“ G-listinn Valþór Hlöð- versson „Að mínu viti snúast þessar kosn- ingar fyrst og fremst um það hvort félagshyggjuöflin eigi áfram að fá að stjóma þessum kaupstað eins og þau hafa gert síð- ustu 12 árin undir forystu Alþýðu- bandalagsins eða hvort Sjálfstæðis- flokkurinn á að fá hreinan meirhluta og hrinda í fram- kvæmd ýmsum nið- urskurðarhugmyndum varðandi fé- iagslega þjónustu og framkvæmdir, sem hann er með. Helstu baráttumál G-listans eru að -efla og styrkja félagslega þjón- ustu af ýmsu tagi í bænum. Þar má nefna málefni aldraðra, þar sem við viljum gera enn betur, og áframhald- andi uppbyggingu leikskólakerfísins fyrir yngstu borgarana. Við höfum haft forystu í umhverfismálum á síð- ustu fjómm árum. Þar eru mjög stór verkefni eins og skipulag og upp- græðsla Fossvogsdals, sem við höfum nú fengið full yfírráð yfir, og ekki síður Kópavogsdals, sem við vorum að samþykkja nýtt deiliskipulag af, en þar er um 60 hektara útivistar- svæði að ræða í næsta nágrenni byggðarinnar. Af einstökum málum þá leggjum við mikla áherslu á að staðið verði við fyrirheit um byggingu skóla og íþróttamannvirkja í Kópa- vogsdal á næstu fjórum árum. Við lítum svo á að það sé fyrst og fremst félagslegt verkefni fyrir okk- ur, það er að segja bygging grunn- skóla og íþróttaaðstöðu fyrir almenn- ing og Breiðablik, stærsta íþróttafé- lagið í bænum. Við leggjum mikla áherslu á að það hús rísi og að fram- kvæmdir gangi samkvæmt áætlun. Við höfum Iagt fram mjög skýra og nákvæma áætlun um uppbyggingu gömlu gatnanna í bænum og teljum að unnt sé að gera það án þess að reisa bæjarfélaginu hurðarás um öxl, að ljúka því verkefni á næstu sex árum.“ V-LISTINN Hulda Harðar- dóttir „Við Kvennalistakonur teljum að í bæjarstjóm Kópavogs eins og ann- ars staðar þar sem ákvarðanir eru teknar hafí áhrifa- leysis kvenna gætt og reynsla þeirra og menning ekki fengið að njóta sín sem stefnumótandi afl. Undjrstaða bæj- arins er fólkið sem í bænum býr. Til að fólkinu líði vel þarf mannsæmandi aðstæður til að byggja upp traust ijölskyldubönd. Fjölskyldan þarf þau skilyrði að geta haft atvinnu, örugga gæslu fyrir börnin sín og haft þak yfír höfuðið án þess að kollvarpa Ijárhagsafkomu sinni. í mörg undanfarin ár hefur menn- ing íslendinga þróast leynt og ljóst til aldursskiptingar. Við viljum að mótuð verði stefna sem breytir þess- ari þróun og leitað verði allra ieiða til að allir aldurshópar geti verið sam- an í leik og starfi. Því leggjum við áherslu á fjölbreyttar lausnir í þjón- ustu við aldraða og þeir fái tækifæri til að nýta starfskrafta sína eins lengi og þeir vilja. Við ætlum að leggja sérstaka áherslu á atvinnuuppbyggingu í bæn- um og þá með sérstöku tilliti til at- vinnutækifæra fyrir konur. Við vilj- um byggja upp smáiðnað og viljum að Kópavogsbær veiti konum aðstoð við að stofna lítil fyrirtæki í iðnaði, verslun og ferðaþjónustu. Alltof víða í bænum eru sorgleg dæmi um fyrirhyggjuleysi í umhverf- is- og skipulagsmálum og slæman frágang. Við leggjum áherslu á að heildaráætlun verði gerð varðandi frágang gatna í bænum, lokið verði við hafín verk og að gerð verði útivist- arsvæði fyrir alla aldurshópa í öllum hverfum. Það skiptir máli með hvaða hætti og hvaða ákvarðanir eru teknar í bænum okkar. Því leggjum við áherslu á að stofnuð verði hverfasam- tök og að valddreifing og lýðræði verði aukið. Til að mannlífið í bænum verði gott þarf frjótt menningarlíf og við viljum að bærinn komi sér upp menn- ingarmiðstöð þar sem íbúar geti kom- ið saman og ræktað andleg verð- mæti.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.