Morgunblaðið - 22.05.1990, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 22.05.1990, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1990 C 5 FRAMBOÐSLISTAR HAFNARFJOROUR KJÓSENDUR á kjörskrárstofiii í Hafriarfirði eru 10.022 og hefur flölgað um 9% frá kosningunum 1986.11 fiilltrú- ar eru kjörnir í bæjarstjórn og eru fjórir listar í fram- boði, en voru átta 1986. í sveitarstjórnarkosningunum 1986 voru 8.972 kjósendur á kjörskrá. 7.479 greiddu atkvæði og var kjörsókn 83,4%. Auðir og ógildir seðlar voru 152 en úrslit urðu þessi: Listi Atkvæði % fulltrúar A - Alþýðuflokkur 2.583 35,3 5 B - Framsóknarflokkur 363 5,0 0 D - Sjálfstæðisflokkur 2.355 32,1 4 G - Alþýðubandalag 783 10,7 1 H - Félag óháðra borgara 281 3,8 0 M - Flokkur mannsins 112 1,5 0 V - Kvennalisti 331 4,5 0 Kosningu hlutu: Af A-lista: Guðmundur Árni Stefánsson, Jóna Ósk Guðjónsdóttir, Ingvar Viktorsson, Tryggvi Harðar- son og Valgerður Guðmundsdóttir. Af D-lista: Árni Grétar Finnsson, Sólveig Ágústsdóttir, Hjördís Guðbjörnsdóttir og Jóhann G. Bergþórsson._ Af F -lista: Einar Th. Mathiesen. Af G -lista: Magnús Jón Árnason. A- og G-listi mynda meiri- hluta. Bæjarstjóri er Guðmundur Árni Stefánsson. A-listi, Alþýðuflokkur: B-listi, Framsókuarflokk- 1. Guðmundur Ámi Stef- ur: ánsson bæjarstjóri. L Níels Ami Lund 2. Jóna ósk Guðjónsdóttir deildarstjóri. forseti bæjarst. 2. Magnús Bjamason 3. Ingvar Viktorsson aðst.framkvæmdast. bæjarfulltrúi. 3. Malen Sveinsdóttir upp- 4. Valgerður Guðmunds- eldisfræðingur. dóttir bæjarfulltr. 4. Agúst B. Karlsson aðst. 5. Tryggvi Harðarson skólameistari. bæjarfulltrúi. 5. Jómnn Jömndsdóttir 6. Ámi Hjörleifsson raf- launafulltrúi. virki. 6. Jóngeir Hlinason hag- 7. Anna Kristín Jóhannes- fræðingur. dóttir kennari. 7. Guðmundur Þórarins- 8. Ómar Smári Armanns- son rafSnrkjam. son aðstyfirlögr. 8. Elsa Anna Bessadóttir 9. Eyjólfur Sæmundsson húsmóðir. verkfræðingur. 9. Ingvar Kristinsson 10. Guðjón Sveinsson versl- verkfiæðingur. unaiTnaður. 10. Sámúel V. Jónsson 11. Brynhildur Skarphéð- pípulagningam. insdóttir bankast. 11 • Björg Jóna Sveinsdóttir ritari. D-listi, Sjálfstæðis- flokkur: 1. Jóhann Bergþórsson verkfræðingur. 2. Ellert Borgar Þor- valdsson skólastjóri. 3. Þorgils Óttar Mathi- esen viðsk.fr. 4. Hjördís Guðbjöms- dóttir skólastjóri. 5. Magnús Gunnarsson fulltrúi. 6. Ása María Valdi- marsdóttir ferðaráðgj. 7. Stefanía S. Vig- lundsdóttir húsmóðir. 8. Hermann Þórðarson flugumfei’ðarst. 9. Valgerður Sigurðar- dóttir fiskverkandi. 10. Sigurður Þorvarðar- son byggingarfr. 11. Jóhann Guðmunds- son verkstjóri. G-listi, Alþýðubandalag: 1. Magnús Jón Ámason yfirkennari. 2. Ingibjörg Jónsdóttir fé- lagsfræðingur. 3. Lúðvík Geirsson biaða- maður. 4. Guðrún Ámadóttir for- stöðumaður. 5. Hólmfríður Ámadóttir talkennari. 6. Svavar Geirsson tré- smiður. 7. Þórelfur Jónsdóttirdag- vistarfulltrúi. 8. Sólveig Brynja Grétars- dóttir bankastm. 9. Bergþór Halldórsson yfirverkfræðingur. 10. Símon Jón Jóhannsson fi-h.sk.kennari. 11. Hersir Gíslason nemi. A-listinim ■■■■m Guðmundur Arni Stefánsson „Valkostir í þessari kosningabaráttu eru ákaflega skýrir. Kosningamar snúast um það hvort Alþýðuflokkurinn fari áfram með stjóm bæjarmála og þar með einkenni stjóm bæjarins sami krafturinn og sama bjartsýnin og á undanfömum íjóram áram. Það deilir eng- inn um það í Hafnarfirði að á því kjörtímabili, sem er að ljúka, hefur tekist að lyfta Grettistaki í íjölmörgum mál- aflokkum, hvort heldur litið er til æskulýðs- eða öldrana- nnála, íþróttamála, umhverf- is- og fegranarframkvæmda, skólamála, menningarála, heilbrigðismála. I öllum þessum og öðram málaflokkum hefur orðið gjörbreyting til hins betra og Alþýðuflokk- urinn segir einfaldlega við bæjarbúa: Verkin sýha merkin. Metið gjörðir okkar á yfirstand- andi kjörtímabili. Við lýsum því einfaldlega yfir að við ætlum að gera enn betur á því næsta. Að halda með öðram orðum áfram á sömu braut og mörkuð hefur verið. Það er alveg ljóst að þó veralega hafi áunn- ist er verk að vinna í vaxandi bæ sem Hafnar- fírði. Hafnarfjarðarbær er vel í stakk búinn til að takast á við þessi framtíðarverkefni. Fjár- hagur bæjarins er ákaflega traustur og ég hygg að allar forsendur séu til að Hafnar- fjarðarbær verði áfram fyrirmyndarbæjarfélag á fjölmörgum sviðum. Lykill að velmegun í bænum er að atvinnu- mál séu í góðu lagi. Við jafnaðarmann munum áfram halda vel utan um þau mál. Þar vegur þungt nýtt álver og hér eftir sem hingað til munum við halda Straumsvíkinni statt og stöð- ugt fram í þeirri umræðu. Við finnum að það er byr í segl okkar jafnað- armanna. Fólk kann vel að meta verk okkar og framboðsiista og ég er bjartsýnn á það að Alþýðuflokkurinn fái góða útkomu í þessum kosningum Hafnarfirði til heilla.“ B-listinn wmmm^mmm Níels Arni Lund „Helstu baráttumál Framsóknarmanna í Hafnarfirði að þessu sinni verða umhverfismál- in í víðum skilningi. Við viljum meðal annars leggja áherslu á hreinsun hafnarinnar og að frárennsli bæjarins verði lengt í sjó fram þannig að mávar og meindýr eigi ekki greiðan aðgang að úrgangi frá bæn- um. Við viljum líka leggja áherslu á að iðnaðarsvæðið í Kapelluhrauni fari ekki lengra upp á_skagann vegna meng- unarhættu á grannvatni. Þá viljum við að svæðið við Hvaleyrarvatn verði skipulagt með tilliti til heils árs útivistarsvæðis fyrir Hafnarijarðarbæ. Þama yrði strax farið að skipuleggja og afmarka svæði með áningar- stöðum og planta og græða þannig að eftir nokkur ár yrði þama hinn fallegasti reitur. Við viljum einnig að Krísuvíkurland Hafnar- fjarðarbæjar verði skipulagt með það fyrir aug- um að almenningur í Hafnarfirði fái þar svæði til úthlutunar og geti tekið þar land í fóstur, hálfan hektara til dæmis. Það gæti ræktað þessar spildur og fengið leyfi til að reisa þar sumarbústaði. Þá viljum við leggja áherslu á að víða hér í bænum era blettir sem þyrfti að laga verulega svo sem ómalbikuð bflastæði hjá fyrirtækjum í grónum hverfum og Fjarðargata, sem þyrfti að taka betri tökum, gera hana fallega eins og skipulag segir til um. Vatnsveitumálum verður að koma í lag. Það verður að koma vatnsveitunni í það ástand að bæjarbúar eigi kost á nógu og góðu vatni allt árið. Við viljum líka leggja áherslu á uppbygg- ingu heimilis fyrir aldraða og halda áfram við Sólvang. Byggja upp þá álmu sem fyrirhugað er að þar rísi sem dvalarheimili fyrir aldraða og þjónustuíbúðir og þjónustukjama. Þarna vantar nauðsynlegt millistig." D-listinn Jóhann G. Bergþórsson „Númer eitt tvö og þijú er að koma íjármál- unum í lag. Staðan er vægast sagt slæm þann- ig að við teljum að þar þurfi að taka til hend- inni, að stærsti hluti tekna fari ekki í að borga vexti og verðbætur. Það hefur verið þannig á kjörtímabilinuu að ijóram sinnum meira hefur farið í vexti og verðbætur en áætlað hefur verið samkvæmt ijárhagsáætlun. Á síðasta ári fóra röskar 180 milljónir í þennan þátt. Nú er áætlaðar 94 milljónir og ef það gengur eftir þá fara 380 milljónir í þetta á árinu 1990, sem er _ helmingur útsvareteknanna. I öðra lagi þarf að taka á rekstri bæjarins, sem tengist fjármál- unum, í þriðja lagi að reyna að efla atvinnulfið, sem hefur verið látið sitja á hakan- um og í fjórða lagi að halda áfram uppbygg- ingai’starfi í félagsstarfsemi og þessum al- mennu þjónustugreinum, sem bæjarfélagið hefur tekist á hendur; þjónustu við unga og aldraða. Við leggjum áherslu á að uppfylla þarfir allra varðandi húsnæði. Ekki bara eins og hefur verið gömul stefna Sjálfstæðisflokksins að menn ættu að eignast eigið húsnæði heldur teljum við að þjóðfélagsbreytingar leiði til þess að til þurfí að vera leiguhúsnæði, kaupleigu- og verkamannahúsnæði og svo framvegis. Það þarf að taka á vatnsveitumálum. Sum- staðar er hálfgert vatnsleysi, samanber nýja iðnaðarhverfíð, þar sem þarf að bora eftir vatni. Það þarf að taka á skolpveitumálum. Það má segja að þessi mál, sem unnið hefur verið að á líðandi kjörtímabili, hafa flest öll verið í takt við okkar stefnuskrá frá því fyrir síðustu kosningar en ekki hefur verið staðið að þeim á þann hátt sem við höfum verið sáttir við. Peningum skattborgaranna hefur ekki verið varið á réttan hátt. Verði farið eftir okkar stefnu teljum' við að hægt verði að létta álögumar — við viljum halda öllum álögum í lágmarki.“ G-LISTINNHHHHIHHHi Magnús Jón Araa- son „Við viljum halda áfram þeirri uppbyggingu, sem hér hefur átt sér stað. Stærstu verkefnin á næsta kjörtímabili verða að ljúka við Set- bergsskóla og Hvaleyrarskóla og halda áfram frekari uppbyggingu atvinnu- lífs. Ljóst er að mjög þarf að auka byggingar félagslegra íbúða og umhvefísmálin munu setja sitt mark á fram- kvæmdir. Við hljótum að ljúka því að koma holræsum út fyrir stórstraumsfjöru og út á eðlilegt dýpi. Við viljum halda áfram þein-i uppbyggingu, sem hefur verið á félags- lega sviðinu og í dagvistarmálum. Við munum að sjálfsögðu leggja áherslu á frekari uppbygg- ingu fyrir aldraða að Sólvangi. í hafnarmálum viljum við ljúka við Hafnarfjarðarhöfn og snúa okkur síðan að nýjum verkefnum suður í Straumsvík. Á yfirstandandi kjörtímabili tókst okkur að ná samningum á milli sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu um rekstur almenningsvagna. Við munum leggja ofurkapp á að staðið verði við þá samninga og þannig tiyggt að almenn- ingssamgöngur komist í viðunandi horf í júní 1992. Við erum tiltölulega ánægðir með hvemig hefur til tekist á síðasta kjörtímabili. Við tryggðum myndun þessa meirihluta og setjum á oddinn að þessi meirihluti haldi og haldi áfram þeirri uppbyggingu, sem hefur átt sér hér stað. “

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.