Morgunblaðið - 22.05.1990, Page 9

Morgunblaðið - 22.05.1990, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAI 1990 C 9 BQRGARNES \ KJÓSENDUR á kjörskrárstofhi í Borgarnesi eru 1.175 og hefur Qölg- að um 2% frá kosningunum 1986. 7 fiilltrúar eru kjörair í bæjarstjórn og eru fimm listar í framboði eins og 1986. í sveitarstjórnarkosningunum 1986 voru 1.122 kjósendur á kjörskrá í Borgarneshreppi. 969 greiddu atkvæði og var kjörsókn 86,4%. Auðir og ógildir seðlar voru 22, en úrslit urðu þessi: Listi Atkvæði % fulltrúar A - Alþýðuflokkur 229 24,2 '2 B - Framsóknarflokkur 237 25,0 2 D - Sjálfstæðisflokkur 196 20,7 1 G - Alþýðubandalag 123 13,0 1 H - Óháðir 162 17,1 1 Kosningu hlutu: Af A-lista: Eyjólfur Torfi Geirsson og Eva Eðvarðsdótt- ir. Af B-lista: Indriði Albertsson og Ragnheiður Jóhannsdóttir. Af D-lista: Gísli Kjartansson. Af G-lista: Margrét Tryggvadóttir. Af H-lista. Jakob Skúlason. Meirihluta mynda Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag og Óháðir. Bæjarstjóri er Óli Jón Gunnarsson. FRAMBOÐSLISTAR A-listi, Alþýðuflokkur:. 1. Eyjólfur Torfi Geirsson bókari. 2. Sigurður Már Einarsson fiski- fræðingur. 3. Vaigeir Ingóifsson vélamaður. 4. Jóhanna Lára Óttarsdóttir skrifstofum. 5. Bjarni Steinarsson málara- meistari. 6. Sæunn Jónsdóttir versiunar- maður. B-listi, Pramsóknarflokkur: 1. Guðmundur Guðmarsson kenn- ari. 2. Kristín Halldórsdóttir húsmóð- ir. 3. Sigrún Ólafsdóttir banka- starfsm. 4. Ingimundur Ingimundars. kenn., frkv.stj. 5. Guðrún Samúelsdóttir deildar- stjóri. 6. Sædís Guðlaug8dóttir garðp- löntufr. 7. Eiríkur Ingólfsson framkv.stj. D-iisti, Sjálfstaeðisflokkur 1. Sigrún Símonardóttir trygg- ingafulltrúi. 2. Skúli Bjarnason heilsugæslu- læknir. 3. Guðlaugur Þór Þórðarson há- skólanemi. 4. Ósk Bergþói’sdóttir húsmóðir. 5. Guðmundur I. Waage trésmíða- meistari. - 6. íns Grönfeldt íþróttafræðingur. 7. Óskar Þór Óskarsson verktaki. G-listi, Alþýðubandalag: 1. Margrét Tryggvadóttir kennari. 2. Þorvaldur Heiðarsson húsasmiður. 3. María Jóna Einarsdóttir skrifstofumaður. 4. Bergþóra Gísladóttir sérkennslufulltrúi. 5. Egill Pálsson bifreiðastjóri. . 6. Vigdís Kristjánsdóttir skrifstofumaður. 7. Ingvi Árnason tæknifræðingur. H-listi: 1. Jakob Skúlason rafveitustjóri. 2. Helgi Helgason heilbrigðisfulltrúi. 3. Dóra Axelsdóttir deildarstjóri. 4. Guðmundur Jónsson húsasmíðameistari. 5. Ámundi Sigurðsson starfsmaður K.B. 6. Sigurgeir Erlendsson bakarameistari. 7. Ólöf Oskaradóttir skrifstofumaður. A-listinn mmm Eyjólfur Torfi Geirsson B-listinn mm Guðmundur Guðmarsson D-listinn wmmm Sigrún Símon- ardóttir G-listinn ■■■■ Margrét Tryggvadóttir H-listinn Jakob Skúlason „Atvinnumálin brenna á okkur eins og sjálfsagt öllum öðrum bæj- arfélögum úti á landsbyggðinni. Hvað varðar stöð- una heima fyrir þá þarf að ljúka þeim framkvæmdum sem eru hafnar og búið er að ákveða. Þar má nefna við- byggingu grunnskólans og uppbygg- ingu á íþróttasvæði, sem er hafin; uppbyggingu fyrir aldraða, bæði þjónustuíbúðir og þjónusturými. Þá eru holræsin stórmál hjá okkur. I Borgarnesi eins og annars staðar skiptir öllu að hafa fjármálin í góðu lagi. Við erum að komast út úr er- fíðri stöðu sem má að verulegu leyti þakka breyttri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og hefur gjörbreytt stöðunni fyrir Borgarnes. Á næstu árum erum við því vel undirbúnir að takast á við ný verkefni." „Eins og víða snýst allt byggðar- lagið um atvinnu- málin, að næg vinna sé fyrir alla. Nauðsynlegt er að koma á laggimar nýjum atvinnu- rekstri. Við stefn- um að því að ljúka viðbyggingum við grunnskóla og leik- skóla. Síðan eru skipulagsmál ofarlega á lista hjá okkur.og umhverfismál. Allt mál, sem unnið hefur verið í, en ekki nægilega á síðustu ijórum árum. Fjármálin eru alltaf stór liður og þau ráða getu sveitarfélagsins. Það er slæmt ástand hjá bæjarsjóði. Það er mjög brýnt að endurskoða aðal- skipulag þannig að hægt sé að ákveða og deiliskipuleggja nánar ákveðin svæði í bæjarlandinu svo hægt sé að hefja framkvæmdir svo sem varðandi útivistarsvæði, aðstöðu fyrir ferðamenn, íbúðarbyggingar og iðnaðarhúsnæði. í umhverfísmálum liggur fyrir stórt verkefni, sem er samtenging holræsa. Það er verk- efni, sem liggur fyrir áætlun um en lítið verið unnið í. Umhverfismál verða töluvert ofar á baugi og brýnna er að sinna þeim en gert hefur verið.“ „Bæjarfélagið er allt of skuldugt, en nettóskuldir bæjar- ins hafa tvöfaldast að verðgildi á yfir- standandi kjör- tímabili og fjár- magnskostnaður er því mjög mikill. Pjórða hver króna af tekjum bæjarins hefur farið í fjár- magnskostnað. Þessu þarf að koma í betra horf og á næsta kjörtímabili verður að vera strangt aðhald í fjármálum. Staðan leyfir ekki stór kosningaloforð og hendur næstu bæjarstjómar eru mik- ið til bundnar við þessi verkefni. Við viljum takast á við atvinnu- leysið með markvissri stefnu í sam- vinnu við atvinnurekendur og öflugri stefnu í ferðamálum, en þar teljum við að Borgarnes eigi mikla mögu- leika. Þegar.fer að rofa til í fjármál- unum hafa umhverfismálin forgang, því til dæmis holræsamálin eru í ólestri hér sem víðar. Ljúka viðbygg- ingu grunnskólans. Hér þarf að koma á deild frá Fjölbrautaskóla. Það má kannski orða það svo að við léggjum áherslu á atvinnu-, um- hverfís- og skólamál og ekki síst að koma fjármálum bæjarins í rétt horf.“ „Við ætlum að reyna að fjölga hér atvinnutækifær- um. Við viljum að lokaframkvæmd- um við grunnskóla og leikskóla fari að Ijúka. Við leggjum áherslu á að upp- bygging skólanna heima í héraði sé í beinum tengslum við atvinnulífíð. Hér vantar störf, sem gefa meira en lágmarkslaunín, störf, sem eru byggð á góðri menntun. Holræsamálin eru í frekar bágu ástandi, en þó hefur töluvert áunn- ist, en þetta er meira mál en það að því verði bjargað á einu kjörtíma- bili. Okkar hugmynd er að mynda forgangsröð, sem yrði byggð á mengunarrannsóknum. Hér er skipulag innan bæjarins. Því er ekki hægt að ljúka því ekki er búið að ganga frá brúargerðinni, tengingu brúarinnar við land er ekki lokið. Bráðabirgðavegur liggur í gegnum bæinn og það er geysilegt viðhald á þeim spotta innan bæjar- ins, þar sem öll þessi þunga umferð fer um. Hugmyndin er að knýja á ríkisvaldið að ganga frá brúnni. r „Atvinnumálin eru númer eitt, tvö og þijú. Síðan eru það umhverfismál. Við stefnum að því að ljúka viðbygg- ingu við grunnskól- ann, ljúka við dag- heimilisdeild við leikskólann á næsta ári. Við vilj- um styðja við bakið á þeim fyrirtækjum sem hér eru og koma nýrri atvinnu- starfsemi af stað ef mögulegt er. Ein hugmyndin er að koma upp ferð- amannamiðstöð. Við viljum snúa bökum saman í héraði, nýta það sem við höfum upp á að bjóða, og láta óunna vöru fara sem minnst úr hérð- aði. Halda þarf áfram með byggingu félagslegra íbúða. Við viljum halda krökkunum að minnsta kosti tveimur árum lengur í framhaldsskólanámi á staðnum og stefnum að fleiri bekkj- um næsta haust. Við viljum engin ný lán. Við erum að komast út úr úlfakreppu, en fyrirtæki almennt hér í Borgarnesi hafa ekki þurft að fara mikið í sjóði landsmanna eins og annars staðar. Fjárhagurinn er til- tölulega góður. STYKMSHOLMUR KJÓSENDUR á lyörskrárstofni í Stykkishólmi eru 846 og hefur fækkað um 3% frá kosningunum 1986. 7 fiilltrúar eru kjörnir í bæjarstjórn og eru tveir listar í framboði, en voru fjórir 1986. í sveitarstjómarkosningunum 1986 var 851 kjósandi á kjörskrá í Stykkishólmshreppi. 755 greiddu atkvæði og var kjörsókn 88,7%. Auðir og ógildir seðlar vom 16, en úrslit urðu þessi: Listi Atkvæði % fulltrúar A - Alþýðuflokkur 117 15,8 1 D - Sjálfstæðisflokkur 394 53,3 4 G - Alþýðubandalag 114 15,4 1 S - Féíagshyggjumenn 114 15,4 1 V - Kvennalisti 4.265 8,1 1 Kosningu hlutu: Af A-lista: Guðmundur Lámsson. Af D-lista: Ellert Kristinsson, Kristín Björnsdóttir, Pétur Ágústsson og Gunnar Svanlaugsson. Af G-lista: Einar Karlsson. Af S-lista: Magndís Alexandersdóttir. Bæjarstjóri er Sturla F R A M B O D-listi, Sjáifstæðisflokkur: 1. Sturla Böðvarsson bæjarstjóri. 2. Bæring J. Guðmundsson verkstjóri. 3. Auður B. Stefnisdóttir skrifstofumaður. 4. Ellert Kristinsson framkvæmdastjóri. 5. Gunnar Svanlaugsson yfírkennari. 6. Rikharður Hrafnkelsson skrifstofustjóri. 7. Helga Sigutjónsdóttir skrifstofumaður. H-listi, Vettvangur: 1. Davíð Sveinsson skrifstofumaður. 2. Inga Jónasdóttir verkakona. 3. Ásgeir Ólafsson rafVeitustjóri. 4. Bryndís Guðbjartsdóttir skrifstofumaður. 6. Elín Sigurðardóttir ljósmóðir. 7. María Davíðsdóttir hjúkmnarkona. Böðvarsson. D-listinn mmmmam Sturla Böðvarsson „Við leggjum áherslu á að halda áfram á sömu braut og síðustu árin. Á næsta kjör- tímabili leggjum við áfram ríka áherslu á að virkja íbú- ana til starfa að bæjarmálun- um og teljum nauðsynlegt að halda góðu upplýsinga- streymi um bæjarmálin og fá sem flesta til starfa. Nú blas- ir við að treysta atvinnulífið. Við höfum átt undir högg að sækja og mörg atvinnufyrirtæki hafa staðið höllum fæti. Því teljum við að það verði að byggja nýjan grundvöll í kringum sjávarút- vegsfyrirtækin hjá okkur með því að auka hráefnisöflun fyrir vinnslustöðvarnar og við munum leggja mjög ríka áherslu á að sjávarút- vegs- og þjónustufyrirtækin taki höndum sam- an um að byggja upp eitt fyrirtæki sameigin- lega í kringum öflugt togskip. Af beinum verkefnum bæjarsjóðs munum við leggja allt kapp á að ná rétti okkar gagn- vart ríkisvaldinu um uppgjör skulda ríkisins við bæjarsjóð, bæði vegna hafnarframkvæmda og samninga um byggingu íþróttahúss. Við leggjum áherslu á að ljúka þessum mannvirkj- um sem og sjúkrahúsinu og heilsugæslustöð- inni. Til viðbótar munum við leggja kapp á að efla enn frekar skólamálin. Við leggjum áfram áherslu á tónlistarskólann og munum vinna að fjögurra ára fjölbrautanámi við framhalds- skólann. Áfram verður lögð áhersla á æsku- lýðs- og íþróttamál og síðast en ekki síst um- hverfismálin. Við viljum byggja hér upp sem fegurst umhverfi. Þannig löðum við ferða- mennina að og sameinum þar með bæði um- hverfissjónarmiðin og hagkvæmnissjónarmið.“ H-listinn wmmmmm Davíð Sveinsson „Við tökum á öllum málum í stefnuskránni, en skulda- staða bæjarins er slæm að okkar mati og við leggjum mikla áherslu á að laga hana. Það viljum við gera með því að leggja í aukna útgerð og auka atvinnu í bænum. Það þarf að koma íþróttahúsinu í notkun í haust og bíða síðan átekta. Við leggjum áherslu á að bæta samgöngumál á norðanverðu nesinu á milli staða, þannig að atvinnutækin samnýtist betur. Halda þarf áfram uppbyggingu ferða- málaþjónustunnar, sem er mikið verkefni, sérs- taklega eftir að nýi Baldur kom. Samstarfið við nunnurnar, sem reka barnaheimilið, hefur alltaf verið viðkvæmt mál, en við viljum endur- skoða samninginn við þær í sambandi við barnaheimilið og kippa því í lag sem hægt er. Sjúkrahúsið hefur verið hálfmannað og við viljum athuga hvað liggur þar að baki, því það er nóg af fólki í bænum sem gæti unnið þar. Við viljum efla félagsstarf og reyna að halda úti unglingavinnu eins og fjárhagurinn leyfír. Þá leggjum við mikla áherslu á jöfnun orku- kostnaðar á landinu. Þingmennirnir á Vesturl- andi hafa lagt fram þingsályktunartillögu um það mál, sem við styðjum heilshugar."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.