Morgunblaðið - 22.05.1990, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 22.05.1990, Blaðsíða 10
10 c MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAI 1990 ÓLAFSVfK KJÓSENDUR á kjörskrárstofni í Ólafsvík eru 809 og hefur fækkað um 2% frá kosning'unum 1986. 7 fulltrúar eru kjörnir í bæjarstjórn og eru fimm list- ar í framboði eins og 1986. í sveitarstjómarkosningunum 1986 voru 788 kjósend- ur á kjörskrá. 712 greiddu atkvæði og var kjörsókn 90,4%. Auðir og ógildir seðlar voru 18, en úrslit urðu þessi: Listi Atkvæði % fulltrúar A - Alþýðuflokkur 164 23,6 2 B - Framsóknarflokkur 158 22,8 1 D - Sjálfstæðisflokkur 184 26,5 2 G - Alþýðubandalag 98 14,1 1 L - Lýðræðissinnar 90 13,0 1 Kosningu hlutu: Af A-lista: Sveinn Þór Elínbergsson og Trausti Magnússon. Af B-lista: Stefán Jóhann Sig- urðsson. Af D-lista: Kristófer Þorleifsson og Björn Arn- aldsson. Af G-lista: Haraldur Guðmundsson. Af L-lista: Kristján Pálsson. Meirihlutasamstarf mynda nú Lýðræð- issinnar, Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag og Framsókn- arflokkur og er það fjórði meirihlutinn á kjörtímabilinu. Bæjarstjóri er Kristján Pálsson. FRAMBOÐSLISTAR A-listi, Alþýðuflokkur og óháðir: 1. Sveinn Þór Elinbergsson forseti bæjarst. 2. Guðm. Karl Snæbjömsson heil.g. læknir. 3. Gústaf Geir Egilsson pípulagningam. 4. Ágúst Sigurðsson kaupmaður. 5. Kristín Guðmundsdóttir húsmóðír. 6. Þorbjörg Gísladóttir læknaritari. 7. Trausti Magnússon rafmagnseftir- litsm. G-listi, Alþýðubandalag: 1. Ámi E. Albertsson skrifstofumaður. 2. Heiðar Elvar Friðriksson fiskimats- maður. 3. Margrét S. Birgisdóttir verkakona. 4. Herbert Hjelm veitingamaður. 5» Sigríður Þóra Eggertsdóttir kaup- kona. 6. Jóhannes Ragnarsson hafnarvörður. 7. Margrét Jónasdóttir húsmóðir. B-listi, Framsóknarfélag Ólafsvíkur: 1. Atli Alexandersson kennari. 2. Stefán Jóh. Sigurðsson svæðisstjóri. 3. Kristján Guðmundsson form. vfj. Jökuls. 4. Kristín Vigfúsdóttir útgerðarmaður. 5. Sigtryggur S. Þráinsson stýrimaður. 6. Maggý Hröhn Hermannsdóttir kenn- ari. 7. Pétur Steinar Jóhannsson verkstjóri. L-listi, Lýðræðisinnar: 1. Kristján Pálsson bæjarstjóri. 2. Emanúel Ragnarsson bankamaður. 3. Sigurlaug Jónsdóttir kennari. 4. Ragnheiður S. Helgadóttir kennari. 5. Kristján Helgason hafnarvörður. 6. Arndís Þórðardóttir verkakona. 7. Björg Bára Halldórsdóttir skrifstof- um. D-listi, Sjálfstæðisflokkur: 1. Björn Amaldsson vitavörður. 2. Margrét Vigfúsdóttir póstafgreiðsl- um. 3. Páll Ingólfsson forstjóri. 4. Helgi Kristjánsson verkstjóri. 5. Sjöfn Sölvadóttir skrifstoufm. 6. Jónas Kristófersson húsasmíða- meistari. 7. Birgir Yngvason bifreiðastjóri. A-listinn B-listinn D-listinn G-listinn L-listinn Sveinn Þór Elínbergsson „Styrkja þarf at- vinnumálin og standa vörð um það jafnvægi, sem verið hefur. Við viljum auka jafnvægi í fjármálastöðu bæj- arsjóðs með áfram- haldandi aðhaidi og sparnaði í rekstri og halda fram- kvæmdum í lág- marki þar til jafnvægi er náð. Við viljum standa vörð um og efla þá fjölmörgu nýju þjónustuþætti, sem áunnist hafa. Við viljum ljúka við hafnargerðina. Samvinna varðandi sorpeyðingu yrði til hagsbóta fyrir alla aðila og forsenda farsællar lausnar er aukin samvinna ná- grannasveitarfélaga. Við viljum halda áfram þeirri upp- byggingu sem við höfum markað á þessu kjörtímabili, að varanlegar úrbætur verði gerðar á Fróðárheiði og haldið áfram með áætlun sem fyrir liggur um lagningu bundins slit- lags á stofnbrautina milli Ólafsvíkur og Reykjavíkur." Atli Alexand- ersson „Við munum ieggjum meginá- herslu á að komið verði á traustri fjármálastjóm. Bæta þarf stöðu bæjarsjóðs og greiða niður skuldir hans. Það er for- senda þess að hægt verði að ráðast í ýmsar aðkallandi framkvæmdir. Leggja ber áherslu á fjölbreyttari úrvinnslu sjávaraflans og að menn séu vakandi fyrir nýung- um þar. Við þurfum að nýta okkur það aðdráttarafl sem fegurð Snæ- fellsness er og auka markvisst ferða- mannaþjónustu. Við teljum brýnt að ná meiri samvinnu við nágranna- sveitarfélögin um ýmis sameiginleg hagsmunamál svo sem fræðslumál, ferðamannaþjónustu, sorpeyðingu og fleira. Vonandi verður unnt að ná meiri festu í stjóm bæjarins á kom- andi kjörtímabili en verið hefur. Að því munum við framsóknarmenn vinna.“ Björn Arnaldsson Árni E. Albertsson Krislján Pálsson „Við leggjum áherslu á fjármál bæjarins. Við höf- um lýst því yfir að við förum ekki út í neinar nýjar fram- kvæmdir, nema brýna nauðsyn beri til. Það er algjört forgangsverkefni að koma skulda- stöðu bæjarsjóðs í viðunandi horf. Ef fjárhagur bæjar- ins leyfir viljum við ljúka við lagn- ingu gangstétta. Við viljum stuðla að öflugu atvinnulífi á staðnum. Ut- gerð og fiskvinnsla er og verður for- senda byggðar í Ólafsvík. Við leggj- um áherslu á samstarf við nágranna- sveitarfélög okkar um sorpmál. Hér þyrfti að gera átak í ferðamannaiðn- aðinum. Sífellt er verið að vinna að hafnarmálum og verður væntanlega áfram. Eins þarf að huga að land- brotsvörnum og slíkum málum. Við höfum verið stöðugt afl í bæj- arstjóm og ætlum að styrkja okkur enn frekar í komandi kosningum." „Við leggjum áherslu á aðhald og sparnað í rekstri í þeim tilgangi að greiða niður skuld- ir. Ekki verði farið út í kostnaðarsam- ar framkvæmdir nema brýna nauð- syn beri til. Huga verður að fisk- vinnslunni og leggja rækt við hana. Áfram verði hugað að markvissri uppbyggingu hafnarinnar. Við krefjumst jöfnunar húshitunar á landinu og krafa er um bætt vegakerfi á Snæfellsnesi. Hér er opin sorpbrennsluþró, sem er mjög viðkvæm og þessu þarf að breyta. Einnig þarf betur að huga að úr- gangi frá fiskvinnslum. Við viljum reyna að koma upp framhaldsnámi, Á sama tíma og innheimta hefur batnað hefur mannlegi þátturinn í samskiptum yfirvalda og bæjarbúa týnst. Þann þátt viljum við finna með til dæmis rýmkun regina um leikskóla. Þá viljum við hlúa að íþrótta- og æskulýðsmálum." „Við viljum halda áfram að laga fjárhagsstöðu bæjarins. Baráttu- mál okkar verður að tryggja undir- stöðu útgerðar á staðnum og fisk- vinnslu. Við mun- um halda áfram að snyrta og fegra' bæinn og koma holræsimálum í lag. Við viljum að börn geti nýtt sér Fjölbrautaskóla Vesturlands sem mest í.heimabyggð í samstarfi við Hellissand. Við mun- um beijast fyrir því að byggðir á Snæfellsnesi vinni betur saman en hingað til. Við verðum að tryggja að Ólafsvík verði ekki lögð í rúst með einu hamarshöggi. Það verður best tryggt með góðum og öflugum fyrirtækjum eða með því að tryggja að afli og aflaréttur geti ekki farið á sjálfvirkan hátt í burtu án þess að menn geti hönd við reist. Við munum vinna að því með öðrum flokkum eftir kosningar að efla byggðina í Ólafsvík með jákvæðum hætti.“ FRAMBOÐSLISTAR B0LUH6ARVÍK KJÓSENDUR á kjörskrárstofiii í Bolungarvík eru 727 og hefúr fækkað um 6% frá kosningunum 1986. 7 fulltrúar eru kjörnir í bæjarstjórn og eru þrír listar í framboði, en voru fimm 1986. í sveitarstjórnarkosningunum 1986 voru 816 kjósend- ur á kjörskrá. 706 greiddu atkvæði og var kjörsókn 86,5%. Auðir og ógildir seðlar voru 13, en úrslit urðu þessi: Listi Atkvæði % fulltrúar A - Alþýðuflokkur 95 13,7 1 B - Framsóknarflokkur 50 7,2 0 D - Sjálfstæðisflokkur 224 32,3 3 G - Alþýðubandalag 217 31,3 2 H - Óháðir 107 15,4 1 Kosningu hlutu: Af A-lista: Valdimar L. Gíslason. Af D-lista: Ólafur Kristjánsson, Einar Jónatansson og Björgvin Bjarnason. Af G-lista: Kristinn H. Gunnarsson og Þóra Hansdóttir. Af H-iista: Jón Guðbjartsson. Meiri- hlutasamstarf mynda Alþýðuflokkur og Sjálfstæðis- flokkur. Bæjarstjóri er Ólafur Kristjánsson. A-listi, Jafnaðarmenn og frjálslyndir: 1. Ólafur Þór Benediktsson verkstjóri. 2. Magnús Ólafs Hanson verslunarmaður. 3. Martha Sveinbjömsdóttir húsmóðir. 4. Sigríður L. Gestsdóttir húsmóðir. 5. Svavar Geir Ævarsson sjómaður. 6. Kristín Sæmundsdóttir húsmóðir. 7. Hlíðar Kjartansson matsveinn. D-listi, Sjálfstæðisflokkur: 1. Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri. 2. Anna G. Eldvardsdóttir kennari. 3. Ágúst Oddsson heilsugæslulæknir. 4. Þóra Hallsdóttir. 5. Sölvi Rúnar Sólbergsson véltæknifr. 6. Hálfdán Óskarsson sjómaður. 7. Jón S. Ásgeirsson verkstjóri. F-listi, Samstöðu, samtaka um bæj- armál: 1. Kristinn H. Gunnarsson bæjarfull- trúi. 2. Jón Guðbjartsson bæjarfulltrúi. 3. Valdemar Guðmundsson lögreglu- þjónn. 4. Helga Jónsdóttir kennari. 5. Anna Björgmundsdóttir sjúkraliði. 6. Ketill Elíasson vélvirki. 7. Ágúst Sverrir Sigurðsson bifreiða- stjóri. A-listinn ■■■■■■■ Ólafur Þór Benediktsson „Bæjarstjórn þarf að stuðla að íjölgun at- vinnutækifæra í bænum. Mjög áríðandi er að haldið verði áfram með uppbyggingu hafn- arinnar. Tveimur stórverkefnum, viðbyggingu grunnskólans og þjónustuíbúðum fyrir aldr- aða, sem eru í gangi þarf að ljúka. Vinna þarf áfram að fegrun og snyrtingu bæjarins. Betrumbæta þarf leiksvæði. Æskulýðsstarf þarf að efla og við leggjum sérstaka áherslu á að áfram verði gætt að hagsmunum aldr- aðra og fatlaðra og að þeim hlúð sem best.“ D-LISTINN ■■■^HHBi Ólafiir Kristjánsson „Ljúka þarf við grunnskólann og byggingu þjónustuíbúða fyrir aldraða. Við munum leggja áherslu á að hafnaáætlun standist. Sérstaklega munum við beita okkur fyrir því að öryggisaðgerðir um Óshlíð verði bættar. Rík áhersla verður lögð á að gatnakerfi bæjar- ins, opin svæði og umhverfismál verði í háveg- um höfð. Við viljum eiga samvinnu við sveitar- félögin á norðanverðum Vestfjörðum um sorp- hirðumál. Ná þarf niður rekstrargjöldum. Engin loforð verða gefin.“ F-listinn Kristinn H. Gunnarsson „AUka þarf atvinnu í sjávarútvegi. Við verðum að standa vörð um þau þjónustu- störf, sem eru hér. Við viljum skapa fleiri störf í úrvinnslugreinum sjávarútvegs og reyna að koma hér upp fiskmarkaði. Á fjár- málum bæjarins þarf að taka strax og eins málefnum hafnarsjóðs. Standa verður við áætlun í hafnarmálum. Skipulagsmál eru mjög knýjandi. Ljúka þarf við deiliskipulag og endurskoða aðalskipulag. Síðan þarf að endurskipuleggja stjóm bæjarkerfisins."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.