Morgunblaðið - 22.05.1990, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAI 1990
C 17
ESKIFJÖRBUR
KJÓSENDUR á kjörskrárstofni á Eskifirði eru 762. 7 fiilltrúar eru
kjörnir í bæjarsljórn og eru fjórir listar í framboði, en voru sex 1986.
I sveitarstjórnarkosningunum 1986 voru 730 kjósendur á kjörskrá. 626
greiddu atkvæði og var kjörsókn 85,8%. Auðir og ógildir seðlar voru 15,
en úrslit urðu þessi:
Listi Atkvæði % fulltrúar
A - Alþýðuflokkur 75 12,3 1
B - Framsóknarflokkur 128 20,9 2
D - Sjálfstæðisflokkur 117 19,1 1
E - Óháðir 170 27,8 2
G - Alþýðubandalag 100 16,4 1
M - Flokkur mannsins 21 3,4 0
Kosningu hlutu: Af A-lista: Guðmundur Þ. Svavarsson. Af B-lista: Jón
Ingi Einarsson og Gísli Benediktsson. Af D-lista: Skúli Sigurðsson. Af
E-lista: Hrafnkell A. Jón.sson og Þórhallur Þorvaldsson. Af G-lista: Hjalti
Sigurðsson. Alþýðuflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Óháðir mynduðu meiri-
hluta. Bæjarstjóri er Bjarni Stefánsson.
FRAMBOÐSLISTAR
A-Iisti, Alþýðuflokkur:
1. Guðmundur Þ. Sva-
varsson málaram.
2. Ásbjörn Guðjónsson
bifvélavirki.
3. Bjarnrún K. Har-
aldsdóttir dómritari.
4. Benedikt J. Hilmars-
son smiður.
5. Jón Trausti Guðjóns-
son sjómaður.
6. Aðalheiður D. Sig-
urðardóttir húsmóðir.
7. Grétar Rögnvalds-
son skipstjóri.
B-listi, Framsóknar-
flokkur:
1. Gísli Benediktsson
skrifst.stjóri.
2. Sigurður Hólm
Freysson stálskipasm.
3. Jón Ingi Einarsson
skólastjóri.
4. Friðgerður Marías-
dóttir sjúkraliði.
5. Þorbergur N.
Hauksson slökkviliðsstj.
6. Guðni Þór Elísson
yfirvélstj.
7. Magnús Pétursson
rafveitustjóri.
D-listi, Sjálfstæðis-
flokkur:
1. Skúii Sigurðsson
verkstjóri.
2. Hansína Halldórs-
dóttir ritari.
3. Hrafnkell A. Jónsson
skrifst.maður.
4. Andrés Elísson raf-
iðnfræðingur.
5. Úlfar Sigurðsson
vörubifrstj.
6. Guðrún Karlsdóttir
húsmóðir.
7. Svanur Pálsson véla-
maður.
G-listi, Alþýðubanda-
lag:
1. Hjalti Sigurðsson
rafvirki.
2. Guðrún M. Óiadóttir
starfsstúlka.
3. Elís Andrésson vél-
stjóri.
4. Ásgeir Hilmar Jóns-
son verkamaður.
5. Jórunn Bjarnadóttir
verkamaður.
6. Bragi Þórhallsson
verkamaður.
7. Hildur Metúsalems-
dóttir húsmóðir.
A-listinn
B-listinn
D-listinn
G-listinn
Guðmundur
Svavarsson
„Alþýðuflokkurinn legg-
ur áherslu á góða fjármála-
stjórn og sparnað. Einnig á
á gatnagerð í eldri bænum
og bundið slitlag þar sem
fyrst, áframhaidandi upp-
byggingu skíðamiðstöðvar í
Oddsskarði og uppbyggingu
íþróttasvæðis neðan Dal-
brautar. Reynt verði að
koma upp vernduðum
vinnustað fyrir eldra fólk,
þar sem það geti fengið störf við sitt hæfi.
Einnig leggjum við áherslu á að unnið verði
að því að reisa iðngarða. Áfram verði haldið
byggingu íbúða í félagslega kerfinu. Haldið
verði áfram á þeirri braut sem mótuð hefur
verið í tómstundastarfi eldri borgara og stefnt
verði að því að byggja þjónustuíbúðir fyrir
aldraða í samræmi við þá skipulagstillögu sem
liggur fyrir. í hafnarmálum leggjum við
áherslu á stækkun viðlegu. Komið verði í veg
fyrir að frárennsli frá byggð haldi áfram að
menga sjó og fjörur og við styðjum það skóg-
ræktarátak, sem hafið er.“
Gísli Benediktsson
„Við leggjum áherslu á
að kippa ijárhagnum í lag.
Umhverfismál eru ofarlega
hjá okkur. Við munum
stefna að því að ganga frá
sorpeyðingarmálunum, sem
eru í slæmu ástandi. Hér
vantar okkur heiisugæslu-
stöð og við munum leggja
áherslu á að hafist verði
handa við að byggja hana.
í íélags- og fþróttamálum
er brýnast að byggja upp íþróttaaðstöðu fyr-
ir útiíþróttir. Við munum leitast við að auka
samstarfið við Reyðarfjörð og leitast við að
hafa samstarf við sveitarfélög hér í grennd-
inni í eins góðu lagi og hægt er um þau mál
sem sveitarfélögin geta sameinast um. Hér
þarf að gera markvissa áætlun um að leggja
bundið slitlag á götur bæjarins, en ekki hefur
verið mikið gert í þeim málum á síðasta
kjörtímabili. í atvinnumálum munum við beita
okkur fyrir því að bærinn gerí það sem í
valdi hans stendur til að styðja við atvinnulíf-
ið á staðnum."
Skúli Sigurðsson
„Helsta baráttumálið er
áframhaldandi uppbygging-
arstarf a svipuðum nótum
og við höfum verið að vinna
að. Við ætlum að stefna að
stækkun hafnarinnar, setja
bundið siitlag á götur. Það
verður að taka til hendinni
í sorpmálum á næsta
kjörtímabili og vinna að
endanlegri lausn. Vinna
þarf að því að koma frá-
rennslislögnum út í sjó eins langt út og eins
fljótt og hægt er í viðunandi ástand. Við erum
að byggja smábátahöfn sem er langt komin
og ætlum að halda því áfram. Síðan erum
við að byggja upp elliheimili og stefnt að því
að opna þar líka hjúkrunardeild fljótlega.
Gífurlega mikil þörf er á uppbyggingu heilsu-
gæslustöðvar, sem þarf að sjá fyrir endann
á. Viðhald á grunnskóla, leikskóla og íþrótta-
húsi er aðkallandi og koma þarf upp íþróttað-
stöðu fyrir knattspyrnu og fijálsíþróttir og
stækka lyfturnar í Oddskarði.“
Hjalti Sigurðsson
„Við leggjum fyrst og
fremst áherslu á að koma
ijármálunum í lag.
Síðan eru það umhverf-
ismálin. Það er mikil meng-
un í bænum og koma verð-
ur sorpinu fyrir kattarnef
með aðferðum, sem duga.
Við viljum koma upp
eignaríbúðum fyrir aldr-
aða.
Við viljum halda áfram
að halda atvinnulífinu í bænum gangandi
og vera vakandi fyrir nýsköpun atvinnu-
tækifæra.
Síðast en ekki síst viljum við bæta við
okkur manni."
FRAMBOÐSLISTAR
KJÓSENDUR á kjörskrárstofni á Höfn eru 1.094 og hefur Qölgað
um 9% frá kosningunum 1986. 7 fúlltrúar eru kjörnir í bæjarstjórn
og eru þrír listar í framboði, en voru fjórir 1986.
í sveitarstjórnarkosningunum 1986 voru 979 kjósendur á kjörskrá. 829
greiddu atkvæði og var kjörsókn 84,7%. Auðir og ógildir seðlar voru 30,
en úrslit urðu þessi: Listi Atkvæði % fulltrúar
B - Framsóknarflokkur 196 24,5 2
D - Sjálfstæðisflokkur 246 30,8 2
F - Fjórða framboðið 71 8,9 0
H - Oháðir 286 35,8 3
Kosningu hlutu: Af B-lista: Guðbjartur Össurarson og Guðrún Jónsdótt-
ir. Af D-lista: Sturlaugur Þorsteinsson og Eiríkur Jónsson. Af H-lista:
Stefán Óiafsson, Svava Kristbjörjg Guðmundsdóttir og Guðjón Þorbjörns-
son. Meirihlutasamstarf mynda Oháðir og Sjálfstæðisflokkur. Bæjarstjóri
er Hallgrímur Guðmundsson.
B-listi, Framsóknarflokkur:
1. Guðmundur Ingi Sigbjörnsson
skólastjóri.
2. Aðalsteinn Aðalsteinsson
skrifst.maður.
3. Hannes Halldórsson fiskmats-
maður.
4. Jóna Ingólfsdóttir bank.amaður.
5. Guðrún Jónsdóttir skrifstofu-
maður.
6. Ingólfur Ásgrímsson skipstjóri.
7. Sigríður Lárusdóttir húsmóðir.
D-listi, Sjálfetæðisflokkur:
1. Albert Eymundsson skólastjóri.
2. Magnús Jónasson garðyrkju-
maður.
3. Einar Karlsson sláturhússtjóri.
4. Anna Marteinsdóttir húsmóðir.
5. Ólafur Bjöm Þorbjörnsson
skipstjóri.
6. Bragi Ársælsson rafverktaki.
7. Ragnar Gísli Kristjánsson nemi.
H-listi, listi Kríunnar:
1. Gísli Sverrir Ámason safnvörð- • ■
ur.
2. Svava Kristbjörg Guðmundsd.
umboðsm.
3. Stefán Ólafsson kennari.
4. Björn Grétar Sveinss. form.
verkalýðsfél.
5. Ragnhildur Jónsdóttir kennari.
6. Guðjón Þorbjömsson frkv.
stjóri.
7. Hrönn Pálsdóttir húsmóðir.
B-listinn
Guðmundur I Sigbjörnsson
„Hafnar- og innsiglingarmál ber hæst hjá
okkur. Skipulags- og byggingarmál eru alitaf
í brennidepli og það er mikilvægt að til sé
nóg af lóðum. Núverandi bæjarstjórn hefur
ákv.eðið að hér verði ráðist í skólabyggingar
þannig að komandi bæjarstjórn hlýtur að
halda því áfram. Við setjum heilbrigðis- og
öldrunarmál á oddinn. Teljum brýnt að byggja
legudeild við heilsugæslustöðina og þá í kjöl-
far þess að endurskipuleggja öldrunarmál.
Við teljum að bæjarstjórn eigi að hafa sam-
skipti við bæjarbúa, að bæjarstjórn eigi í stór-
um hagsmunamálum að viðra mál og láta hinn almenna borg-
ara hafa upplýsingar áður en stórar ákvarðanir eru teknar."
D-listinn
Albert Eymundsson
„Við verðum að beita öllu okkar afli til að
fá bestu hugsanlegu úrlausnir í málum varð-
andi innsiglinguna og hafnarsvæðið. Við
leggjum áherslu á að áfram verði unnið á
sömu braut og síðasta kjörtímabil í fjármálum
bæjarins. Við teljum það eitt af forgangsverk-
efnum næstu bæjarstjómar að vinna að úr-
lausn fráveitumála ásamt umhverfis- og feg-
runarmálum almennt. Nú þegar er búið að
_ taka ákvörðun um stækkun skólahúsnæðis.
Við leggjum íþrótta- og æskulýðsstarfi gott
. lið. Tímabært er að endurskoða samning fjar-
varmaveitunnar og Rarik með því markmiði að reksturinn sé
á einni hendi. Á kjörtímabilinu verður væntanlega farið að
huga að nýju aðalskipulagi.“
H-listinn
Gísli Sverrir Árnason
„Markmið þessa framboðs er að tryggja
áframhaldandi góðan rekstur bæjarsjóðs. Inn-
siglingin til Hafnar hvílir þungt á öllum bæj-
arbúum. Við ætlum að reyna að tryggja
áframhaldandi góðæri á Höfn. Höfn er eitt
af fáum sveitarfélögum í sínum stærðar-
flokki, þar sem afkoma fólks, fyrirtækja og
bæjarsjóðs er í blóma, og við ætlum að stuðla
að því að þetta gangi einnig eftir á næstu
fjórum árum með því meðal annars að auka
þjónustu, styðja við atvinnufyrirtæki. Fyrir-
hugað er að fara út í miklar framkvæmdir í
skólamálum, byggja nýtt skólahúsnæði þannig að allur grunn-
skólinn verði undir sama þaki eftir 4-6 ár. Það verður stærsta
framkvæmd bæjarfélagsins á næsta kjörtímabili.“