Morgunblaðið - 22.05.1990, Side 18

Morgunblaðið - 22.05.1990, Side 18
18 C MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAI 1990 FRAMBOÐSLISTAR VESTMANNAEYJAR KJÓSENDUR á kjörskrárstofhi í Vestmannaeyjum eru 3.285 og hef- ur fjölgaö um 1% frá kosningnnum 1986. 9 fulltrúar eru kjörnir í bæjarstjórn og eru Qórir listar í framboði, en voru fímm 1986. I sveitarstjórnarkosningunum 1986 voru 3.194 kjósendur á kjörskrá. 2.720 greiddu atkvæði og var kjörsókn 85,2%. Auðir og ógildir seðlar voru 85, en úrslit urðu þessi: Listi Atkvæði % fulltrúar A - Alþýðuflokkur 479 18,2 2 B - Framsóknarflokkur 368 14,0 1 D - Sjálfstæðisflokkur 1.158 43,9 4 G - Alþýðubandalag 581 22,0 2 V - Óháðir 49 1,9 0 Kosningu hlutu: Af A-lista: Guðmundur Þ. B. Ólafsson og Þorbjörn Pálsson. Af B-lista: Andrés Sigmundsson. Af D-lista: Sigurður Einarsson, Sigurður Jónsson, Bragi I. Ólafsson og Heiga Jónsdóttir. Af G-lista: Ragn- ar Óskarsson og Guðmunda Steingrímsdóttir. A-, B- og G-listi mynduðu meirihlutasamstarf. Bæjarstjóri er Arnaldur Bjarnason. A-listi, Alþýðuflokkur: 1. Guðmundur Þ. B. Ólafsson, tómstunda- og íþr.fulltrúi. 2. Kristjana Þorfinns- dóttir, húsmóðir. 3. Guðný Bjarnadóttir, Ijósmóðir. 4. Ágúst Bergsson, skipstjóri. 5. Þuríður Guðjónsdótt- ir, tryggingarfulltrúi. 6. Lárus Gunnólfsson, stýrimaður. 7. Ævar Þórisson, framkvæmdastjóri. 8. Magnea Bergvins- dóttir, skrifstofustjóri. 9. Höskuldur Kárason, vinnueftirlitsfulltrúi. B-listi, Framsóknar- flokkur: 1. Andrés Sigmundsson. 2. Svanhildur Guðlaugs- dóttir. 3. Skæringur Georgs- son. 4. Oddný Garðarsdóttir. 5. Þuríður Bemódus- dóttir. 6. Karl Haraldsson. 7. Jón R. Eyjólfsson. 8. Hafdís Eggertsdóttir. 9. Agnar Guðnason. D-listi, Sjálfetæðis- flokkur: 1. Sigurður Jónsson, kennari. 2. Sigurður Einarsson, útgerðarmaður. 3. Bragi I. Ólafsson, umdæmis8tjóri. 4. Georg Þór Kristjáns- son, verkstjóri. 5. Sveinn R. Valgeirs- son, sjómaður. 6. Ólafur Lárusson, kennari. 7. Októvía Andersen, húsmóðir. 8. Guðrún Jóhannsdótt- ir, húsmóðir. 9. Grímur Gíslason, blaðamaður. G-listi, Alþýðubanda- lag: 1. Ragnar Óskarsson, kennarí. 2. Guðmunda Stein- grímsdóttir, sjúkraliði. 3. Hörður Þórðarson, verkamaður. 4. Katrín Freysdóttir, læknaritari. 5. Drífa Gunnarsdóttir, ritari. 6. Bjartmar Jónsson, nemi. 7. Hulda Samúelsdóttir, húsmóðir. 8. Jón S. Traustason, verkamaður. 9. Svava Hafsteinsdótt- ir, starfsstúlka. A-listi: Guðmundur Þ.B. Olafsson „Efst á blaði er að unnið yerði áfram að lækkun skulda bæjarfélagsins. Skólaframkvæmdir standa yfir og stækkun Hraunbúða. I framhaldi verður unnið að því að stækka vistrými við dvalarheimilið og við mun- um áfram beita okkur fyrir uppbyggingu íbúða á fé- lagslega sviðinu eins og byggingu verkamannabú- staða. Það er Ijóst að sorpeyðingarmál verða ofarlega á blaði. Bygging sorpeyðingarstöðv- ar er dýr kostur og við hyggjum að skynsam- Jegi-a sé að koma frá fjárfrekum framkvæmd- um, sem við erum nú í, áður en farið verður í nýjar stórframkvæmdir." B-listi: Andrés Sigmundsson „Við leggjum áherslu á að halda áfram að lækka skuldir. Við leggjum áherslu á að reisa nýja sor- peyðingarstöð, að haldið verði áfram hafnarfram- kvæmdum. Við leggjum áherslu á mál varðandi ungt fólk eins og bætta íþrótta- og félagsaðstöðu. Við verðum að taka mynd- arlega á málefnum kvenna og atvinnumálum á næsta kjörtímabili. Við höldum áfram með ýmsar framkvæmdir eins og gatnagerðina, farið verður í að klæða flugbrautina í sumar, við þurfum að ná samningum við vegagerðina til að ljúka framkvæmdum hér við þjóðvegina í Eyjum, þannig að allt verði bundið slitlagi." D-listi: Sigurður Jónsson „Eitt brýnasta mál næstu bæjarstjórnar verður að laga fjárhag bæjarins. Framkvæmdir á vegum bæjarfélagsins á næsta kjörtímabili munu ráðast af því hvemig tekst að lagfæra stöðuna. Segja má að stærstu hagsmunamál okk- ar séu að reyna að þoka áfram þeim skólamannvirkj- um, sem eru í byggingu, einnig að byggja upp dvalarheimili aldraðra, sem þegar er byijað á. Huga þarf að úrbótum í sorpbrennslu. Þá höfum við mikinn áhuga á að reyna að hressa upp á miðbæinn, byggja hann upp með því til dæmis að koma þar fyrir íbúðum fyrir aldraða. Við munum leggja áherslu á að bæta samgöngurnar og knýja á að nýr Herjólfur komi til okkar.“ G-listi: Ragnar Óskarsson „Við viljum gera stjóm bæjarins lýðræðislegri. Við viljum auka dagvistarþjón- ustu. Við erum með áherslu á málefni aldraðra, á félags- legt íbúðarhúsnæði og á uppbyggingu þjónustu fyrir fatlaða. Við leggjum áherslu á úrbætur í sorpbrennslu og almenna umhverfisvernd, jafna stöðu verknáms og bóknáms, uppbyggingu grunnskólanna, viðbyggingu við framhalds- skólann, efla stýrimannaskólann. Við leggjum áherslu á fullorðinsfræðslu. Við leggjum áherslu á gott samstarf við íþróttahreyfing- una og viljum efla félagsstarf eldri unglinga. Við erum með sérstaklega áherslu á málefni kvenna." SELFOSS KJÓSENDUR á lyörskrárstofni á Selfossi eru 2.699 og hefúr fjölgað um 5% frá kosningunum 1986. 9 fulltrúar eru kjörnir í bæjarstjórn og eru fjórir listar í framboði, en voru sex 1986. Í sveitarstjórnarkosningunum 1986 voru 2.527 kjósendur á kjörskrá. 2.187 greiddu atkvæði og var kjörsókn 86,5%. Auðir og ógildir seðlar voru 54, en úrslit urðu þessi: Listi Atkvæði % fulltrúar A - Alþýðuflokkur 341 16,0 1 B - Framsóknarflokkur 588 27,6 3 D - Sjálfstæðisflokkur 571 26,8 3 G - Alþýðubandalag 371 17,4 1 M - Flokkur mannsins 30 1,4 0 V - Kvennalisti 232 10,9 1 Kosningu hlutu: Af A-lista: Steingrímur Ingvarsson. Af B-lista: Guð- mundur Kr. Jónsson, Grétar Jónsson og Ingibjörg Guðmundsdóttir. Af D-lista: Brynleifur Steingrímsson, Bryndís Brynjólfsdóttir og Haukur Gísla- son. Af G-lista: Þorvarður Hjaltason. Af V-lista: Sigríður Jensdóttir. A-, D- og G-listi mynduðu meirihlutasamstarf. Bæjarstjóri er Karl Bjömsson. FRAMBOÐSLISTAR B-listi, Framsóknar- flokkur: 1. Guðmundur Kr. Jónsson framkvstj. 2. Kristján Einarsson húsasmíðameistari. 3. Ása Lineý Sigurðar- dóttir húsm. og nemi. 4. Guðmundur Buason íjármálastjóri. 5. Kristín R.B. Fjól- mundsd. húsm. og skrifstm. 6. Sólrún Guðjónsdótt- ir fulltrúi. 7. Vilborg Helgadóttjr framhaldsskólak. 8. Gylfí Guðmundsson húsasmiður. 9. Páll Guðmundsson landpóstur. D-listi, Sjálfetæðis- flokkur: 1. Bryndís Brynjólfs- dóttir framkvæmdastj. 2. Sigurður Jónsson kennari. 3. Björn Gíslason hár- skerameistari. 4. Ingunn Guðmunds- dóttir bankastm. 5. Þorgeir Ingi Njáls- son settur héraðsd. 6. óskar G. Jónsson byggingariðnfr. 7. Svavar Valdimars- son byggingarvtaki. 8. Guðný Gunnarsdótt- ir bankagjaldkeri. 9. Sigurður Þór Sig- urðsson framkvstj. F-listi, Óháðir kjós- endun 1. Már Ingólfsson símaverkstjóri. 2. Drífa Eysteinsdóttir hjúkrunarfr. 3. Heiðar Bjamdal Jónsson lögregluþjónn. 4. Grétar Páll ólafsson verktaki. 5. Helga Snorradóttir verslunarmaður. 6. Haukur Ó. Ársæls- son bókari. 7. Valgerður Una Sig- urvinsdóttir verslm. 8. Sigurvin Þórkelsson verkamaður. 9. María Kjartansdótt- ir gangavörður. K-listi, Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag og Kvennalisti: 1. Sigríður Jensdóttir bæjarfulltrúi. 2. Steingrímur Ing- varsson bæjarfulltrúi. 3. Þorvarður Hjaltason bæjarfulltrúi. _ 4. Sigríður Ólafsdóttir skrifstofumaður. 5. Eygló Lilja Gránz bankamaður. 6. Sigríður Matthías- dóttir bókav.. 7. Sveinn Helgason háskólanemi. 8. Lilja Hannibalsdótt- ir hjúkrfr. 9. Siguijón Bergsson rafeindavirki. ‘ B-listi: Guðmundur Kr. Jónsson „Aðalmarkmiðið er að skuldir bæjarins hækki ekki, heldur verði stefnt að lækk- un þeirra. Við viljum leggja áherslu á að auka viðskipti við heimaaðila í sambandi við rekstur bæjarins og fyr- irtækja. Við viljum ná niður raforkuverðinu. Þá þarf að leita nýrra svæða vegna heitavatnsöflunar. Við vilj- um gera framtíðaráætlun í sambandi við grunnskólann. Eins í sambandi við dagvistarmálin. Við viljum leggja áherslu á að koma viðbyggingu við sjúkrahúsið inn á fjárlög, halda áfram framkvæmdum við að _ koma upp hreinsistöðvum við skolplagnir út í Ölfusá og finna ruslahaugunum nýjan og betri stað. Við viljum fá göngubrú yfír Ölf- usá.“ D-listi: Bryndís Bry nj ólfsdóttir „Helsta málið er að reyna að koma sjúkrahúsi Suður- lands aftur inn á fjárlög og bygging íbúða aldraðra við þjónustukjama er með biýnni verkefnum. Við ætl- um að koma sorphaugunum í burtu frá Selfossi. Við setj- um góða og raunhæfa stjórn mjög ofarlega á blað. Við viljum stuðla að frekari upp- byggingu bæjarins. Það er mikil ásókn í íóðir og leggja verður götur í ný hverfi. Við leggjum áherslu á að leikvellir og önnur þjónusta verði uppbyggt samhliða. Við erum að endurbyggja gamla kaupfélags- húsið fyrir Eiríkssafn. Þar viljum við koma upp gestaíbúð." F-listi: Már In g- ólfsson „Við leggjum höfuðá- herslu á atvinnumálin. Við leggjum mikla áherslu á að fá vinnslu á landbúnað- arafurðum aftur og að orka til iðnaðar lækki líka. Þá er brýnt að bæjarfélagið komi til móts við iðnaðar- fyrirtæki, sem hefja hér rekstur. Við viljum áfram- haldandi uppbyggingú skóla, ljúka við fjölbrauta- skólann og stuðla að fjölbreytni í verklegu námi. Bæjarstjórn móti stefnu í málefnum aldraðra, byggð verði langlegudeild við Sjúkrahús Suðurlands og hugað verði að byggingu dvalarheimilis alijraðra. Nú þegar verði farið að finna framtíðarstað fyrir sorp- liauga og við viljum gera alla sjónmengun burtræka úr bænum.“ K-listi: Sigríður Jensdóttir „Helstu baráttumálin hjá okkur eru áframhaldandi uppbygging grunnskólans og að koma bókasafninu fyrir á nýjum stað. Við vilj- um byggja félagsaðstöðu og íbúðir við Grænumörk fyrir aldraða. Við viljum ganga betur frá skolpinu og- koma sorphaugunum á annan stað. Ætlunin er að halda áfram með byggingu seinni áfanga fjölbrautaskólans og í samvinnu við skólann að koma upp íþróttahúsi. Við stefnum að áframhaldandi góðri fjárhagsstöðu bæjar- ins og að fara ekki í framkvæmdir fram yfir getu. Við erum með áætlun um fjárfestingar næstu fjögur árin, afmörkuð verkefni fyrir hvert ár.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.