Morgunblaðið - 22.05.1990, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAI 1990
C 19
HVERAGEROI
KJÓSENDUR á kjörskrárstofni í Hveragerði eru 1.044 og hefiir Qölg-
að um 7% frá kosningunum 1986. 7 fulltrúar eru kjörnir í
bæjarstjórn og eru tveir listar í framboði eins og síðast.
I sveitarstjórnarkosningunum 1986 voru 946 kjósendur á kjörskrá. 758
greiddu atkvæði og var kjörsókn 80,1%. Auðir og ógildir seðlar voru 37,
en úrslit urðu þessi:
Listi Atkvæði % fulltrúar
D - Sjálfstæðisflokkur 403 55,9 4
H - Félagshyggjufólk 318 44,1 3
Kosningu hlutu: Af D-lista: Hafsteinn Kristinsson, Alda Andrésdóttir,
Hans Gústafsson og Marteinn Jóhannesson. Af H-lista: Gísli Garðarsson,
Ingibjörg Sigmundsdóttir og Valdimar Ingi Guðmundsson. Bæjarstjóri er
Hilmar Baldursson.
FRAMBOÐSLISTAR
D-listi, Sjálfstæðisfél. Ingólfúr:
1. Hans Gústavsson garðyrkjubóndi.
2. Alda Andrésdóttir bankafulltrúi.
3. Marteinn Jóhannesson húsasm.meistari.
4. Ólafur Óskarsson húsasm.meistari.
5. Erla Alexandersdóttir sölumaður.
6. Ævar Axelsson ketil- og plötusmiður.
7. Inga Lóa Hannesdóttir garðyrkjufr.
H-listi, Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur,
Framsóknarflokkur og óflokksbundnir
kjósendur:
1. Ingibjörg Sigmundsdóttir garðyrkjubóndi.
2. Gísli Garðarsson kjötiðnaðarmaður.
3. Hjörtur Már Benediktsson garðyrkjufr.
4. Magnea Ámadóttir húsmóðir.
5. Stefán Þórisson vélfræðingur.
6. Björn Pálsson skrifstofustjóri.
7. Gísli Rúnar Sveinsson vélfræðingur.
D-listinn
H-listinn
Hans
Gústavsson
Ing’ibjörg Sig-
mundsdóttir
„Staða bæjarsjóðs býður
ekki upp á miklar fram-
kvæmdir vegna mikillar
gatnagerðar á síðasta
kjörtímabili og þá var heill
grunnskóli byggður upp.
Vegna mikilla framkvæmda
hefur bæjarsjóður ekki stað-
ið vel, en er á uppleið. Við
leggjum áherslu á dagvist-
unarmál, sem þarf verulega
að taka á.
Síðan er það gróðurátak og umhverfisvernd
sem þarf að sinna. Hér er vaxandi ferða-
mannabær og við viljum taka allar hliðar
umhverfismála föstum tökum á næsta
kjörtímabili. Hreinlæti á götum og lóðum og
varðveislu á upprunalegri náttúru bæjarsvæð-
isins þar sem við verður komið fellur undir
þetta. Það þarf að stefna að því að friða
næsta nágrenni Varmár fyrir byggingum og
framkvæmdum og opna þar gönguleiðir.
Hreinsun á Varmá hefur forgang umfram
flest önnur mál. Hún er ein af helstu perlum
í bæjarlandinu og áríðandi er að varðveita
hana.
Landamerkjabreytingar skapa möguleika á
framtíðarstækkun bæjarins. Samningar við
Ölfushrepp gera það að verkum að töluvert
landsvæði fellur til Hveragerðis. Þegar við
vorum landlausir var talað um að nýta Vorsa-
bæjarvelli undir iðnaðarsvæði og iðnaðarlóðir,
en við þessa breytingu munum við endur-
skoða svæðið fyrir innan Hveragerði og viljum
nota það til útivistar og íþrótta. Knattspymu-
völlur er kominn, en við erum einnig að tala
um hestaíþróttir, golfvelli, skokkbrautir og
þar fram eftir götunum. Þetta er það sem
við leggjum áherslu á næstu tvö árin.“
„Höfuðmálið er að koma
ijármálum bæjarins í gott
horf, ná niður fjármagns-
kostnaði. Á þessu verður að
byija og eftir það er hægt
að fara að huga að ein-
hveiju öðra. Við leggjum
höfuðáherslu á umhverfis-
mál og félagslega þjónustu.
Við viljum gæta fyllsta að-
halds á öllum sviðum og
endurskoða rekstur bæjar-
stofnana með það að markmiði að ná sem
mestri hagkvæmni og betri þjónustu.
Þetta er mikill ferðamannabær og við vilj-
um gera bæinn aðlaðandi, laga andlit hans
út á við. Innkeyrslan inn í bæinn er leiðinleg
og við viljum fégra hana. Það þarf að vinna
að skipulagsmálum, vinna nýtt skipulag og
ljúka við að byggja upp hverfi sem fyrir eru
svo hægt sé að fara í varanlega gatnagerð
þar.
Það þarf að huga að dagheimilisbyggingu.
Við erum með einn leikskóla og langan bið-
lista og ekkert dagheimili, þannig að nauðsyn
er að hér rísi dagheimili. Eins leggjum við
áherslu á að bæta þjónustu við aldraða, að
þeir geti búið í sínum húsum eins lengi og
þeir vilja. Við viljum byggja félagslegt hús-
næði á sem hagstæðastan hátt. Skolpmálum
þarf að koma í gott horf og eins þarf að
ákveða hvaða stefnu á að taka í húshitunar-
málum, hvort eigi að gufuvæða eða vera með
heitt vatn til húshitunar. Það þarf að móta
ákveðna framtíðarstefnu tiþað þurfa ekki að
taka upp vatnslagnir. Við þurfum að geta
lagt hér strax framtíðarlagnir, en ekki vera
með bráðabirgðaúrlausnir.
Töluvert af ónýttu iðnaðarhúsnæði er hér.
Það þarf að kynna það sem Hveragerði hefur
upp á að bjóða og laða hér að fyrirtæki til
að efla atvinnuna.“
Htem /»íí rfli
Álftanes
Kjósendur á kjörskrárstofni í
Bessastaðahreppi eru 615 og hefur
Qölgað um 26% frá 1986. 5 fulltrú-
ar eru kjörnir í hreppsnefnd. 2 list-
ar eru í framboði; D-listi Sjálfstæð-
isfélags Bessastaðahrepps og
H-listi Hagsmunasamtaka Bessa-
staðahrepps. 1986 voru 473 á kjör-
skrá. Kjörsókn var 90,5%. Auðir og
ógildir seðlar voru 4. 3 listar voru
í framboði. D-listi fékk 141 at-
kvæði (33,3%) og 2 fulltrúa, F-listi
fékk 136 atkvæði (32,1%) og 1 full-
trúa og H-listi fékk 147 (34,7%)
og 2 fulltrúa. D-listi og F-Iisti
mynduðu meirihluta. Oddviti er
Einar Óiafsson (F).
Kjalarneshreppur
Kjósendur á kjörskrárstofni í
Kjalarneshreppi eru 284 og hefur
Ijölgað um 19% frá 1986. 5 fulltrú-
ar eru kjörnir í hreppsnefnd. 2 list-
ar eru í framboði; D-listi sjálfstæð-
ismanna og F-listi Blöndu. 1986
voru 230 á kjörskrá. Kjörsókn var
97,8%. Auðir og ógildir seðlar voru
5. 4 listar voru í framboði. D-listi
fékk 101 atkvaeði (45,9%) og 2 full-
trúa, H-listi óháðra fékk 40 at-
kvæði (18,2%) og 1 fulltrúa, N-listi
Nýs fólks fékk 45 (20,5%) og S-listi
Samstöðu fékk 34 atkvæði (15,5%).
D-listi og S-listi skipuðu meirihluta
þar til sl. haust, en þá varð S-listi
einn í minnihluta. Oddviti er Jón
Ólafsson (D).
Neshreppur
Kjósendur á kjörskrárstofni í
Neshreppi eru 367 og hefur fækkað
um 8% frá 1986. 5 fulltrúar eru
kjörnir í hreppsnefnd. 2 listar eru
í framboði; F-listi Almennra hrepps-
búa og N-listi Framboðs og betri
byggðar. 1986 voru 3 listar í fram-
boði og 391 á kjörskrá. Kjörsókn
var 91,8%. Auðir og ógildir seðlar
voru 7. F-listi fékk 218 atkvæði
(61,9%) og 4 fulltrúa, G-listi 100
(28,4%) og 1 fulltrúa og V-listi 34
(9,7%) og engan mann kjörinn. F-
listi er í meirihluta. Oddviti er Ólaf-
ur Rögnvaldsson (F).
Grundar§ örður
Kjósendur á kjörskrárstofni í
Eyrarsveit eru 532 og hefur fækkað
um 2%. 5 fulltrúar eru kjörnir í
hreppsnefnd. 3 listar eru í fram-
boði; B-listi Framsóknarflokks,
D-listi Sjálfstæðisflokks og G-listi
Alþýðubandalags. 1986 voru 4 list-
ar í framboði og 534 á kjörskrá.
Kjörsókn var 96,3%. Auðir og ógild-
ir seðlar voru 11. B-listi fékk 117
atkvæði (23,3%) og 1 fulltrúa,
D-listi 205 (40,8%) og 3 fulltrúa,
F-listi óháðra 59 11,7%) og engan
mann kjörinn og G-listi 122 at-
kvæði (24,3%) og einn fulltrúa.
D-listi er í meirihluta. Oddviti er
Kristján Guðmundsson (D).
Búðardalur
Kjósendur á kjörskrárstofni í
Laxárdalshreppi ^ru 282 og hefur
fjölgað um 5% frá 1986. 5 fulltrúar
eru kjörnir í hreppsnefnd. 2 listar
eru í framboði; D-listi sjálfstæðis-
manna og óháðra og K-listi Samt-
íðar. 1986 var 261 á kjörskrá. Kjör-
sókn var 89,7%. Auðir og ógildir
seðlar voru 8. B-listi fékk 75 at-
kvæði (33,2%) og 2 fulltrúa, D-listi
fékk 100 (44,2%) og tvo fulltrúa
og G-listi 51 atkvæði (22,6%) og 1
fulltrúa. Enginn ákveðinn meirihluti
var myndaður. Oddviti er Sigurður
Rúnar Friðjónsson.
Reykhólahreppur
Kjósendur á kjörskrárstofni í
Reykhólahreppi eru 250 og hefur
fækkað um 6% frá 1986 miðað við
161 kjósanda samanlagt á kjör-
skrárstofni í öllum fimm hreppum
Austur-Barðastrandarsýslu, sem þá
voru, en þeir voru sameinaðir í einn
hrepp 4. júíí 1987. 7 fulltrúar eru
kjörnir í hreppsnefnd. 2 listar eru
í framboði; F-listi Framtíðarinnar
og L-listi dreifbýlissinna. Fyrir sam-
eininguna 1987 voru 2 listar í fram-
boði. U-listi uppstillingarnefndar
fékk 172 atkvæði og 6 fulltrúa, en
R-listi Samtaka um eflingu byggðar
32 atkvæði og 1 fulltrúa. U-listi
skipar meirihluta. Oddviti er Guð-
mundur Ólafsson.
Patreksflörður
Kjósendur á kjörskrárstofni í
Patrekshreppi eru 617 og hefur
fækkað um 5% frá 1986. 7 fulltrú-
ar eru kjömir í hreppsnefnd. 3 list-
ar eru í framboði; A-listi Alþýðu-
flokks, B-listi Framsóknarflokks og
D-listi Sjálfstæðisflokks. 1986 voru
sömu listar í framboði og 634 á
kjörskrá. Kjörsókn var 87,9%. Auð-
ir og ógildir seðlar voru 36. A-listi
fékk 164 atkvæði (31,5%) og 2 full-
trúa, B-listi fékk 166 atkvæði
(31,9%) og 2 fulltrúa og D-listi 191
atkvæði (36,7%) og 3 fulltrúa. B-
og D-listi mynda meirihluta. Odd-
viti er Sigurður Viggósson (B).
Tálknafjörður
Kjósendur á kjörskrárstofni í
Tálknafjarðarhreppi eru 225 og
hefur fjölgað um 5% frá 1986. 5
fulltrúar eru kjörnir í hreppsnefnd.
2 listar eru í framboði; D-listi Sjálf-
stæðisflokks og H-listi óháðra.
1986 voru 213 á kjörskrá. Kjörsókn
var 85,4%. Auðir og ógildir seðlar
voru 11. D-listi fékk 96 atkvæði
(56,1%) og 3 fulltrúa og O-listi 75
atkvæði (43,9%) og 2 fulltrúa.
D-listi skipaði meirihluta fram að
síðustu áramótum, en þá myndaði
oddviti nýjan meirihluta með
O-lista. Oddviti er Guðjón Indriða-
son (D).
Þingeyri
Kjósendur á kjörskrárstofni í
Þingeyrarhreppi eru 324 og hefur
fækkað um 8%. 5 fulltrúar eru
300 m
kjörnir í hreppsnefnd. 4 listar eru
í framboði; B-listi Framsóknar-
flokks, D-listi Sjálfstæðisflokks,
F-listi fijálslyndra sveitamanna,
verkamanna og sjómanna og H-listi
óháðra. 1986 voru 3 listar í fram-
boði og 346 á kjörskrá. Kjörsókn
var 90,9%. Auðir og ógildir seðlar
voru 15. B-listi fékk 117 atkvæði
(41,3%) og 2 fulltrúa, D-listi 79
(27,9%) og 1 fulltrúa og H-listi 87
(30,7%) og 2 fulltrúa. B-listi og
D-listi eru í meirihluta. Oddviti er
Guðmundur Ingvarsson (B).
Bíldudalur
Kjósendur á kjörskrárstofni í
Bíldudalshreppi eru 243 og hefur
fækkað um 4% frá 1986, en Ketil-
dala- og Suðurfjarðarhreppar voru
sameinaðir 1. júlí 1987 í einn hrepp,
Bíldudalshrepp. 5 fulltrúar eru
kjörnir í hreppsnefnd. 3 listar eru
í framboði; H-listi fijálslyndra,
K-listi óháðra og N-listi nýs fólks.
1986 voru 3 listar í framboðí í Suð-
urfjarðarhreppi (Bíldudal) og 232 á
kjörskrá. Kjörsókn var 89,7%. Auð-
ir og ógildir seðlar voru 5. B-listi
fékk 72 atkvæði (35,5%) og 2 full-
trúa, D-listi fékk 78 atkvæði
(38,4%) og 2 fulltrúa og F-listi 53
atkvæði (26,1%) og 1 fulltrúa.
Hreppsnefnd starfar sem einn
meirihluti. Oddviti er Magnús
Björnsson (B).
Flateyri
Kjósendur á kjörskrárstofni í
Flateyrarhreppi eru 271 og hefur
fækkað um 11% frá 1986. 5 fulltrú-
ar eru kjörnir í hreppsnefnd. 3 list-
ar eru í framboði; D-listi Sjálfstæð-
isflokks, F-listi Framsóknarflokks
og fijálslyndra og L-listi Alþýðu-
flokks og óháðra. 1986 voru sömu
listar í framboði og 296 á kjörskrá.
Kjörsókn var 92,2%. Auðir ogógild-
ir seðlar voru 5. D-listi fékk 108
atkvæði (40,3%) og 2 fulltrúa,
F-listi fékk 73 atkvæði (27,2%) og
1 fulltrúa og L-listi 87 atkvæði
(32,5%) og 2 fulltrúa. F-listi og
L-listi skipa mejrihluta. Oddviti er
Ægir E. Hafberg (L).
Suðureyri
Kjósendur á kjörskrárstofni í
Suðureyrarhreppi eru 255 og hefui
fækkað um 10% frá 1986. 5 fulltrlí
ar eru kjörnir í hreppsnefnd. 5 iist-
ar eru í framboði; B-listi Framsókn-
arflokks og lýðræðissinnaðra kjós-
enda, E-listi Alþýðuflokks og ann-
arra félagshyggjumanna, G-listi
Alþýðubandalags, H-listi óháðra og
Z-Íisti Nýs vettlings. 1986 voru 2
listar í framboði og 275 á kjörskrá.
Kjörsókn var 92,7%. Auðir og ógild-
ir seðlar voru 9. B-listi fékk 107
atkvæði (43,5%) og 2 fulltrúa og
L-listi 139 (56,5%) og 3 fulltrúa.
L-listi er í meirihiuta. Oddviti er
Sveinbjörn Jónsson (L).
Hólmavík
Kjósendur á kjörskrárstofni ,í
Hólmavíkurhreppi eru 303 og hefur
fjölgað um 1% frá 1986. 5 fulltrúar
eru kjörnir í hreppsnefnd. 2 listar
eru í framboði; H-listi almennra
borgara og I-listi sameinaðra borg-
ara. 1986 voru 278 á kjörskrá. og
4 listar í framboði. Kjörsókn var
86,7%. Auðir og ógildir seðlar voru
5. H-listi fékk 25 atkvæði (10,6%)
og engan fulltrúa, I-listi fékk 41
(17,4%) og einn fulltrúa, J-listi 98
atkvæði (41,5%) og 2 fulltrúa og
K-listi 72 atkvæði (30,5%) og 2
fulltrúa. Enginn formlegur meiri-
hluti var myndaður. Oddviti er
Brynjólfur Sæmundsson (K).
Hvammstangi
Kjósendur á kjörskrárstofni í
Hvammstangahreppi eru 453 og
hefur fækkað um 1% frá 1986. 5
fulltrúar eru kjörnir í hreppsnefnd.
3 listar eru í framboði; G-listi Al-
þýðubandalags og óháðra, H-listi
félagshyggjufólks og L-listi frjáls-