Morgunblaðið - 29.05.1990, Qupperneq 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAI 1990
Hvað segja þau um úrslit kosninganna?
Steingrímur Hermannsson
formaður Framsóknar-
flokksins:
Bjóst við
meiri hægri
sveiflu um
landið
„ÞVÍ verður að sjálfsögðu ekki
neitað að í þessum kosningum
varð töluverð hægri sveifla, sér-
staklega hér á höfuðborgarsvæð-
inu,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra og
formaður Framsóknarflokksins,
er Morgunblaðið leitaði álits
hans á niðurstöðum kosninganna
nú á laugardag.
„Sjálfstæðisflokkurinn er þannig
sigurvegari kosninganna. A hinn
bóginn er það athyglisvert að þess-
arar hægri sveiflu gætir lítið sem
ekki á landsbyggðinni, nema þá á
einstaka stað eins og Stykkis-
hólmi,“ sagði Steingrímur. Hann
sagðist hafa búist við að hægri
sveiflan um landið yrði meiri en
orðið hefði, með hliðsjón af þeirri
erfiðu stóðu sem ríkisstjómin hefði
verið í um nokkum tíma.
Steingrímur kvaðst telja það at-
hyglisvert hversu lítið landsmálin
hefðu blandast inn í þessar kosning-
ar og kosningabaráttuna. „Eg tek
það sem vísbendingu um að menn
telji að við séum að komast fyrir
vind með þetta. Hvað varðar út-
komu Framsóknarflokksins sér-
staklega, þá er ég á heildina litið
prýðilega ánægður. Víða varð út-
koman mjög góð, bæði í kaupstöð-
um og kauptúnum. En ég varð fyr-
ir vonbrigðum með útkomu flokks-
ins í mínu kjördæmi, bæði í Keflavík
og Kópavogi," sagði Steingrímur.
Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins:
Mikill per-
sónulegur
sigur Davíðs
Oddssonar
„ÞAÐ SEM gnæíír upp úr er að
sjálfsögðu inikill persónulegur
sigur Davíðs Oddssonar í
Reykjavík. Úr mínum herbúðum
gnæfir upp úr mikill persónuleg-
ur sigur Guðmundar Árna Stef-
ánssonar í Hafnarfirði," sagði
Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins í samtali
við Morgunblaðið um kosninga-
úrslitin á laugardag.
Jón Baldvin sagði að þessi sigur
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
styrkti tvímælalaust stöðu Davíðs
innan flokksins, þótt ekki mætti
gleyma „vel smurðri kosninga-
maskínu Sjálfstæðisflokksins og
hennar hlut í þessum sigri."
„í Reykjavík telst það helst til
tíðinda að Alþýðubandalagið hrundi
í fyrsta sinn og forystuhlutverki
þess og forvera þess, Sósíalista-
flokksins, meðal andstöðuafla Sjálf-
stæðisflokksins er Iokið. í annan
stað vekur það athygli að Kvenna-
listinn er á niðurleið, kannski á
útgönguleið úr íslenskri pólitík,"
sagði Jón Baldvin.
Um Nýjan vettvang sagði Jón
Baldvin að hann hefði fengið minna
kjörfylgi, en gert hefði verið ráð
fyrir. „Það tókst ekki að tryggja
þijá borgarfulltrúa, sem var lág-
markskeppikefli. Það breytir hins
vegar ekki því að Nýr vettvangur
getur orðið vísir að öðru og meira.
Það tókst að hnekkja forystuhlut-
verki Alþýðubandalagsins og Nýr
vettvangur hefur sterkasta stöðu
andstöðuaflanna með um 15% og
hefur því tekið við forystuhlutverk-
inu. I þeim skilningi getur Alþýðu-
flokkurinn sæmilega við unað í
Reykjavík. Hann átti frumkvæði að
þessu framboði og hefur þar með
tryggt áhrif sín í borgarstjórn
Reykjavíkur. Svo geta menn velt
vöngum yfir því hvort þau hefðu
verið betur tryggð með einlitu
flokksframboði," sagði Jón Baldvin.
Aðspurður hvort Alþýðuflokkur-
inn teldi sig eiga fulltrúa í borgar-
stjórn Reykjavíkur, sagði Jón Bald-
vin: „Alþýðuflokkurinn telur sig
eiga það, með aðild sinni að þessum
lista og þar með að borgarmálaráði
listans. Síðan verður þeirri spurn-
ingu betur svarað á næstu vikum
og við skulum láta tímann leiða það
í ljós.“
Jón Baldvin sagði að Alþýðu-
flokkurinn hefði fengið á hreinum
flokkslistum utan Reykjavíkur 18%
atkvæða og væri næststærsti flokk-
urinn utan Reykjavíkur. 1986 hefði
flokkurinn unnið sinn stærsta sigur
í sveitarstjómarkosningum og feng-
ið 20,1%. Hann hefði því í stómm
dráttum haldið stöðu sinni og því
væri rangt að halda því fram að
Alþýðuflokkurinn hefði beðið
hnekki af núverandi stjómarsam-
starfi.
Ólafur Ragnar Grímsson,
formaður Alþýðubanda-
lagsins:
Hið mikla tap
i Reykjavík
setur mestan
svip á út-
komuna
ÓLAFUR Ragnar Grímsson for-
maður Alþýðubandalagsins segir
að ' það sé margbreytileg mynd
sem kosningaúrslitin um síðustu
helgi birti. „Sjálfstæðisflokkur-
inn vinnur mikinn sigur á höfúð-
borgarsvæðinu, en fylgisbreyt-
ing hans út um land er mjög
lítil," sagði Ólafúr Ragnar í sam-
tali við Morgunblaðið. Hann
sagði að það sem setti mestan
svip á útkomu Alþýðubandalags-
ins væri hið mikla tap í
Reykjavík.
Ólafur Ragnar sagði að hinn stjóm-
arandstöðuflokkurinn, Kvennalist-
inn, tapaði í fyrsta sinn allverulega
í kosningum. Ólafur Ragnar benti
á að víða hefðu stjómarflokkamir
bætt stöðu sína vemlega úti á landi.
Hann nefndi sérstaklega sigur Al-
þýðuflokksins í Hafnarfírði og á
Akranesi, góða útkomu Framsókn-
arfiokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra og kosningasigur hinnar
nýju forystu Alþýðubandalagsins á
Neskaupstað og Egilsstöðum.
„Annars staðar var útkoman lak-
ari, sem nemur fylgistapi 1% til 3%
að jafnaði. Hvað útkomu Alþýðu-
bandalagsins snertir þá var hún
nokkuð breytileg. í Reykjaneskjör-
dæmi fékk flokkurinn nokkuð
þokkalega útkomu miðað við
síðustu kosningar og í mörgum
kaupstöðum hélt hann í grófum
dráttum sínu fylgi þótt hann tapaði
mest á nokkrum stöðum 4% til
7%,“ sagði Ólafur Ragnar.
Aðspurður um skýringar á tapi
Alþýðubandalagsins í Reykjavík,
sagði formaður flokksins: „Það sem
setur mestan svip á útkomu flokks-
ins er hið mikla tap í Reykjavík,
sem á sér margbreytilegar skýring-
ar. I fyrsta lagi, þá náðist ekki ein-
ing um framboð flokksins í
Reykjavík og stór hluti flokks-
manna kaus að styðja annað fram-
boð, Nýjan vettvang. Á það var
einnig Iögð rík áhersla af þeim sem
að G-Iistanum í Reykjavík stóðu.
En auðvitað er það alvarleg staða
fyrir Alþýðubandalagið í Reykjavík
að hafa glatað þeirri forystu sem
flokkurinn hafði í stjórnarandstöð-
unni gegn Sjálfstæðisflokknum og
fá jafnframt lægsta hlutfall allra
G-lista á landinu,“ sagði Ólafur
Ragnar.
Ölafur Ragnar sagði að það væri
einnig einkenni þessara kosninga
að þær tilraunir sem gerðar hefðu
verið til sameiginlegra framboða
hefðu víðast hvar ekki skilað þeim
árangri sem vænst hefði verið.
Slíkir listar, sem boðnir hefðu verið
fram gegn meirihluta sjálfstæðis-
manna á höfuðborgarsvæðinu,
hefðu leitt til þess að styrkja Sjálf-
stæðisflokkinn í sessi á viðkomandi
stöðum.
„Heildamiðurstaðan er sú að
Sjálfstæðisflokkurinn, að mínum
•dómi, fékk utan höfuðborgarsvæð-
isins á engan hátt þann sigur sem
hann hafði búist við og náði auk
þess ekki þeim árangri sem hann
hafði búist við í kaupstöðum eins
og Kópavogi og Hafnarfirði. Út-
koma stjómarflokkanna í heild sinni
er þannig að hún þarf ekki að hafa
neikvæð áhrif á stjómarsamstarf-
ið,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson.
Þorsteinn Pálsson formaður
Sj álfstæðisflokksins:
Algjör
pólitísk um-
skipti frá
síðustu al-
þingiskosn-
ingum
„VIÐ sjálfstæðismenn erum mjög
ánægðir með þessi úrslit. Þetta
var mikill og góður sigur. Sér-
staklega stendur upp úr sigurinn
í Reykjavík og bæjunum hér
umhverfís, en við fáum góða
kosningu um allt land. Það er
ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn
hefúr gert heldui- meir en að ná
fyrri styrk,“ sagði Þorsteinn
Pálsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, er Morgunblaðið leit-
aði álits hans á kosningaúrslitun-
um nú um helgina.
Þorsteinn sagði jafnframt: „Það
er ljóst að það hafa orðið algjör
pólitísk umskipti frá því að síðustu
alþingiskosningar fóru fram. Það
er alveg ljóst hvaða óskir kjósenda
búa þar að baki.“
Þorsteinn sagði að það færi ekki
á milli mála að þessi úrslit kosning-
anna staðfestu að sameiningartil-
raunir formanna A-flokkanna hefðu
runnið út i sandinn. „Þar sem þess-
ir fiokkar bjóða fram sameiginlega,
tapa þeir greinilega miklu fylgi. Það
er mjög áberandi hér í Reykjavík
og á Seltjarnarnesi, þar sem þrír
ráðherrar stóðu að sameiginlegu
framboði, og það er áberandi i
Garðabæ, þar sem forsætisráðherr-
ann stóð að sameiginlegu fram-
boði. Sömu sögu er áð segja af
Selfossi, þar sem Kvennalistinn tók
þátt í slíku sameiginlegu framboði
og tapaði líka fylgi,“ sagði Þor-
steinn.
Þorsteinn kvaðst telja það at-
hyglivert að formenn A-flokkanna
hefðu lýst því yfir, eftir að niður-
stöður lágu fyrir, að þrátt fyrir þær
ætluðu þeir að halda áfram með
sameiningartilraunirnar. „Sjálf-
stæðismenn hljóta auðvitað að
gleðjast yfir því. Slíkar tilraunir
formannanna auka líkumar á því
áð við munum enn styrkja stöðu
okkar í næstu þingkosningum,"
sagði Þorsteinn.
Svavar Gestsson:
Óhjákvæmi-
legt aðræða
stöðu Ólafs
Ragnars
„Ég tel að komið hafi í ljós að
þar sem menn gátu einbeitt sér
að framboði Alþýðubandalagsins,
G-listanna, með heilsteyptum
hætti hafi flokkurinn yfirleitt
komið allsæmilega út en ég tel
að kosningarnar sýni að það er
ekki eftirspurn eftir þessum
bræðslusamlögum ólíkra afla,“
sagði Svavar Gestsson mennta-
málaráðherra og fyrrum formað-
ur Alþýðubandalagsins.
„Égtel að í Reykjavík hafi G-list-
inn sloppið með skrekkinn. Það var
auðvitað vegið mjög hart að okkur
en við náðum þrátt fyrir allt þeirri
stöðu að vera með samstæða sveit,
sem er örugglega nægilega öflug
til að byggja Alþýðubandalagið upp
til nýrrar sóknar með öðrum alþýðu-
bandalagsmönnum allt í kringum
landið. Aðspurður kvaðst hann telja
óhjákvæmilegt að ræða rækilega
innan flokksins stöðu Ólafs Ragn-
ars Grímssonar, formanns Alþýðu-
bandalagsins. „Sú umræða hefst
væntanlega á framkvæmdastjóm-
arfundi [í dagj, þar sem kosnin-
gaúrslitin verða rædd. Þar verður
tekin ákvörðun um hvenær haidinn
verður miðstjómarfundur og ég
reikna með að það verði í júní eða
byijun júlí.“ Svavar kvaðst ekki
vilja láta uppi hvort hann teldi nauð-
synlegt að boða til landsfundar fyrr
en þau mál hefðu verið rædd innan
flokksins.
Kristín Á. Ólafsdóttir,
Nýjum vettvangi:
Mikil von-
brigði með
úrslit kosn-
inganna
„ÉG varð fyrir miklum vonbrigð-
um með úrslit kosninganna. Þeir
sem stóðu að Nýjum vettvangi
höfðu hugsað sér að ná þremur
mönnum inn, jafhvel fjórum. Ég
er jafnframt hissa á því að yfir
60% Reykvíkinga skuli kjósa
Sjálfstæðisflokkinn. Fyrir hvað
er verið að verðlauna Sjálfstæðis-
flokkinn? Aðbúnað barna? Or-
yggi gamla fólksins? Húsnæðis-
mál? Ég undrast mjög hið mikla
fylgi Sjálfstæðisflokksins," sagði
Kristín Á. Ólafsdóttir, borgarfúll-
trúi Nýs vettvangs."
„Nýr vettvangur var stofnaður
til þess að ná fólki saman, fólki sem
hefur svipaðar hugmyndir um
hverju þarf að breyta í borginni.
Ég lít á Nýjan vettvang sem mikil-
vægt skref til þess að styrkja eitt
afl gegn Sjálfstæðisflokknum.
Skrefið var minna en ég bjóst við,
en það verða fleiri skref stigin á
þessari braut. Nú er það verkefni
okkar að styrkja grunninn undir
Nýjan vettvang. Það komu fram
margar góðar hugmyndir í undir-
búningsvinnu okkar fyrir. kosning-
arnar sem munu smátt og smátt
birtast í borgarstjóm í formi til-
lagna. Ég trúi því að margir Reyk-
víkingar séu sammála okkur um að
í borgarstjóm þarf að vera þetta
sterka afl til mótvægis við Sjálf-
stæðisflokkínn. Tregðulögmálin eru
auðvitað sterk þannig að nýsköpun
í pólitík eins og annars staðar tekur
sinn tíma,“ sagði Kristín.
Aðspurð um ummæli Ólafs Ragn-
ar Grímssonar, formanns Alþýðu-
bandalagsins, í útvarpsþætti síðast-
liðinn sunnudag um að hann hefði
HMBRMM
lagst gegn því að Alþýðubandalags-
menn stæðu að baki stofnun Nýs
vettvangs á sínum tíma, sagði
Kristín: „Ég hef sjálf bent á þetta
í aðdraganda kosninganna, meðal
annars í útvarpsumræðum. En við
látum toppana ekki segja okkur
fyrir verkum. Ef mikill þrýstingur
er meðal okkar stuðningsmanna og
innan okkar raða þá hlustum við á
þær raddir og tökum ekki síður
mark á þeim en flokksforystunni.
Formaður Alþýðubandalagsins nýt-
ur engu að síður trausts. Margir
þeirra sem áttu þátt í að stofna
Nýjan vettvang kusu Ólaf Ragnar
formann Alþýðubandalagsins á
sínum tíma. Ég veit ekki til þess
að neitt okkar sjái eftir því. Við
búum hins vegar ekki við einræði
í Alþýðubandalaginu."
Ólafur Helgi Kjartansson,
oddviti Sjálfstæðisflokksins
á ísafírði:
ur miðað við
aðstæður
„Ég tel að menn hafi staðið
mjög þéttan vörð um D-listann í
kosningunum á laugardaginn og
tel að miðað við aðstæður hafi
árangur verið mjög góður,“
sagði Ólafúr Helgi Kjartansson,
fyrsti maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins á ísafirði. „Atkvæða-
hlutfall okkar er nú svipað og
það var fyrir átta árum og miðað
við að í gangi var sérstakur fram-
boðslisti sem réri á sömu mið,
verður árangurinn að teljast góð-
ur. Mér er efst í huga þakklæti
til þeirra sem störfúðu fyrir D-
listann í þessum kosningum."
Ólafí Helga fannst athyglistverð-
ast tap Alþýðuflokksins, sem verið
hefur leiðandi afl í meirihlutasam-
starfi A, B, og G-lista síðustu fjög-
ur ár. Þá benti hann á að fylgi
Alþýðubandalags og Framsóknar-
flokks virtist mjög tryggt. „Kvenna-
listinn sem nú bauð fram í fyrsta
sinn, fékk ekki mikinn byr. Fylgi
í-listans er mikið en til þess ber
að taka að ný framboð sem bera
keim af uppreisn vekja ætíð at-
hygli. Mér þykir ánægjulegast hvað
fylgi Sjálfstæðisflokksins um allt
land hefur aukist mikið.“
Haraldur Líndal Haralds-
son, bæjarstjóri á ísafirði:
Viðurkenning
á stefnunni
„ÚRSLIT kosninganna eru viður-
kenning á þeirri stefiiu okkar,
að taka beri á fjármálum bæjar-
ins af ábyrgð og festu,“ sagði
Haraldur Líndal Haraldsson,
bæjarstjóri á ísafirði, sem skipaði
efsta sætið á í-lista Sjálfstæðs
framboðs við bæjarstjómarkosn-
ingaraar.
Sjálfstætt framboð, sem varð til
við klofning i röðum sjálfstæðis-
manna á ísafírði, fékk 18,75% at-
kvæða í kosningunum og tvo bæjar-
fulltrúa kjöma. Haraldur Líndal
Haraldsson segir, að þessi úrslit séu
viðurkenning á þeirri stefnu Sjálf-
stæðs framboðs, að taka beri á íjár-
málum bæjarins af ábyrgð og festu
og Sjálfstætt framboð sé tilbúið til
viðræðna um meirihlutasamstarf
við hvern þann flokk sem vilji vinna
að því marki.
„Ég tel úrslitin vera ákveðin
skilaboð til sveitarstjómarmanna
um land alít um að almenningur
vilji festu í fjármálum og að ekki
sé ráðist í framkvæmdir nema til
þess sé nægt fjármagn," sagði
Haraldur.