Morgunblaðið - 30.05.1990, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1990
51
21 ARS
KNATTSPYR
TENNIS
Landsliðsmaðurinn fyrsti íslendingurinn, sem verður Evrópumeistari í flokkaíþrótt
KRISTÁN Arason bætti
enn einni rós í hnappaga-
tið í gærkvöldi, er hann
varð Evrópubikarmeistari í
handknattleik ásamt félög-
um sínum í spænska liðinu
Teka Santander. Teka tap-
aði fyrri úrslitaleiknum
gegn Drott, sem fram fór
í Svíþjóð, 24:22, en vann
23:18 á heimavelli ígær-
kvöldi og titillinn var í höfn.
ÚRSUT
Knattspyrna
Ísland-Albanía 0:0
Kópavogsvöllur, Evrópukeppni 21-árs
liða/ÓIympíukeppni, þriðjudaginn 29. maf
1990.
Gul Spjöld:Dema, Kola, Milori og Daiu, Al-
banfu.
Áhorfendur: 350.
Dómari: A. Ritlchie frá Norður-írlandi.
ísland: Ólafur Pétursson, Bjami Beneditks-
son, Kristján Halldórsson, Helgi Björgvinsson,
Þormóður Egilsson, Steinar Adólfsson, Har-
aldur lngólfsson, Rúnar Kristinsson, lngólfur
Ingólfsson, (Grétar Steindórsson vm. á 83.
mín.), Valdimar Kristófersson, Ríkharður
Daðason, (Bjarki Pétursson vm. 71. mín.).
Albanía: Nallbani, Dema, Mehilli, (Ciruna vm.
á 87. mín.), Stroni, (Kalllco vm. á 67. mín.),
Kola, Milori, Shllaku, Noga, Bilali og Daiu.
BIKARKEPPNI KSÍ
1. umferð:
ÍR—Víkvetji...................6:0
Snorri Már Skúlason 3, Stefán Ólafs-
son, Bragi Bjömsson, Njáll Eiðsson.
Reynir S.—Arvakur.............5:1
Anthony Stissy 2, Sigurður Haralds-
son 2, Þórður Þorkelsson — Sæbjörn
Guðmundsson.
Hafnir—Víðir..................0:4
—Vilberg Þorvaldsson, Hlynur Jó-
hannsson, Steinar Ingimundarson,
Klemenz Sæmundsson.
Skallagrímur—Leiknir R........2:1
Valdimar Sigurðsson, Haraldur Hin-
riksson—Atli Guðmundsson.
Njarð vík—Ármann..............0:1
—Ólafur Jósefsson.
Þróttur R.—Ægir...............3:0
Sigurður Hallvarðsson, ívar Jósafats-
son, Benedikt Sigurðsson.
UBK—Snæfell..............fr.til 8/6
Hveragerði—BÍ.................0:2
Víkingur Ól.—Afturelding......1:0
Selfoss—TBR...................5:0
Guðjón Þorvarðarson 2, Heimir Karls-
son 2, Dervic, Gísli Björnsson.
Umf. Langnesinga—Reynir Á.....2:5
Leiftur—Völsungur.............3:1
Sigurbjöm Jakobsson 2, Hörður Ben-
ónýsson—Ásmundur Arnarson.
TBA—Magni................... 0:2
— Reimar Helgason, Heimir Ásgeirs-
son.
Valur Rf.—Þróttur Nes.........1:2
Guðgeir Sigutjónsson — Þráinn Har-
aldsson, Ámi Þór Freysteinsson.
Dalvík—KS.....................1:8
Ingólfur Kristjánsson — Hlynur
Eiríksson, Hafþór Kolbeinsson.
Höttur—Einherji...............0:1
—Gísli Davíðsson.
Leiknir F.—Austri E...........4:2
Sigurður Einarsson, Albert Hansson,
Jakob Atlason, Árni Gíslason — Sig-
urður Magnússon, Hilmir Ásbjörns-
son.
Ernir—ÍBK.....................2:3
Gústaf Bjarnason, Helgi Ketilsson —
Óli Þór Magnússon 2/1, Gestur Gylfa-
son.
Fylkir—Grindavík..............2:1
Fjölnir og Haukar áttu einnig að leika
en I'jölnismenn drógu lið sitt úr
keppni.
Terni, Ítalíu.
Úrvalslið Úmbríu—Brasilía.....1:0
Artistico (6.).
Kovtoúm afþakkaði
sæti í landsliðinu
Sovétmaðurinn í liði íslands-
meistara KR, Anatólíj Kovto-
úm, afþakkaði sæti í 18-manna
hóp sovéska landsliðsins í körfu-
knattleik fyrir heimsmeistara-
keppnina í Argentínu sem hefst í
ágúst. Kovtoúm sagðist ekki vera
tilbúinn fyrir undirbúning lands-
liðsins og vildi frekar einbeita sér
að leikjum með KR á íslandi.
Laszló Nemeth, fyrrum þjálfari
KR, sagði að afþökkun Kovtoúms
hefði komið sovéska landsliðs-
þjálfaranum nokkuð á óvart. „Þeir
vildu fá hann í hópinn og voru
undrandi þegar hann hafnaði. En
það varð að samkomulagi að hann
fengi frí og gæti leikið með KR
næsta vetur,“ sagði Nemeth.
Aðstoðarþjálfari sovéska lands-
liðsins, Khromipav Zurab, er
staddur hér á landi sem kennari
á þjálfaranámskeiði KKl. Hann
ræddi einnig við Nemeth um að
fá Kovtoúm í liðið. „Ég sagði þeim
að Kovtoúm vildi einbeita sér að
KR og teldi ekki rétt að gefa
kost á sér í landsliðið,“ sagði
Nemeth.
Fjórír KR-ingar til Sovétríkj-
anna
Pjórir KR-ingar, Axel Nikulás-
son, Matthías Einarsson, Guðni
Guðnason og Ólafur Guðmunds-
son eru á leið til Sovétríkjanna.
Þar ætla þeir að heilsa uppá
Kovtoúm í heimaborg hans Sim-
ferapol. Aðstoðarþjálfari sovéska
landsliðsins, Zurab, hefur einnig
boðið þeim að heimsækja æfínga-
búðir Sovétmanna við Svartahaf
og fylgjast með æfíngum í 2-3
daga.
Boris Becker og
Edberg úr leik
Tveir sterkustu tennisleikarar
heims, Bóris Becker og Stefan
Edberg, féllu mjög óvænt úr keppni
í fyrstu umferð á opna franska
meistaramótinu á Roland Garros
vellinum í gær. Þeir voru efstir á
styrkleikalista mótsins og er þetta
í fyrsta sinn í sögu stórmótanna í
tennis að tveir efstu menn falla úr
keppni í 1. umferð.
Edberg, sem var efstur á styrk-
leikalistanum, tapaði fyrir Spán-
veijanum Sergi Bruguera, 4:6, 2:6
og 1:6 og er þetta í fyrsta sinn sem
efsti maður fellur úr keppni í fyrstu
umferð.
Becker gekk litlu betur gegn
Júgóslavanum Ivaniseviz og tapaði
7:5, 4:6, 5:7 og 2:6.
Heimamenn, vel studdir af
4.000 áhorfendum, tóku leik-
inn strax í sínar hendur, léku árang-
ursríkan sóknarleik og Mats Olsson,
markvörður Teka og
Frá heimsmeistaraliðs
Atla Svía, varði nánast
Hilmarssyni allt, sem á markið
aSpánl kom. Það gerði
gæfumuninn og Teka var með ör-
ugga forystu í hálfleik, 15:9.
Viðureignin var jafnari eftir hlé
og virtist um tíma sem heimamenn
væru að missa undirtökin, en Olsson
gaf þeim byr undir báðá vængi og
þeir héldu fengnum hlut.
Villaldea var markahæstur hjá
Teka með 9 mörk. Melo skoraði 7,
Kristján 4 og Puig 3. Þeir áttu all-
ir mjög góðan leik, en að öðrum
ólöstuðum var Mats Olsson maður
leiksins.
Tomas Gustavsson, markvörður
Drott, lék vel og eins voru Magnus
Andersson og Ola Lindgren góðir.
Kristján er fyrsti íslendingurinn,
sem verður Evrópumeistari í flokka-
íþrótt.
Morgunblafiið/Bjarni
Bjarni Beneditsson skallar hér að marki Albana eftir aukaspyrnu Ingólfs
Ingólfssonar, en knötturinn fór yfír markið. Þetta reyndist jafnframt besta
marktækifæri íslendinga í leiknum.
„Óánægður
með úrslrtin“
- sagði Marteinn Geirsson, þjálfari 21
árs landsliðsins, eftir jafntefli gegn Albaníu
ÍSLAND og Albanía gerðu
markalaust jafntefli í fyrsta leik
liðanna í Evrópukeppni lands-
liða og Ólympíukeppni 21 árs
landsliða í Kópavogi í gær-
kvöldi. Leikurinn var slakur og
fátt um marktækifæri.
Íslenska liðið var meira með bolt-
ann og lék oft vel úti á vellinum,
lét boltann ganga manna á milli.
Það vantaði þó allan sóknarkraft í
Hðið og runnu flest-
ValurB. ar sóknarlotur liðs-
Jónatansson ins út í sandinn áður
skrifar en Romið var að
vítateig andstæð-
inganna. Völlurinn var mjög blautur
og setti það svip sinn á leikinn.
„Ég er mjög óánægður með þessi
úrslit," sagði Marteinn Geirsson,
sem stjórnaði U-21 árs landsliði
íslands í fyrsta sinn. „Fyrri hálfleik-
ur var betri og áttum við þá mjög
góðan kafla. í síðari hálfleik lék lið-
ið ekki sem ein heild og leikmenn
hjálpuðu ekki hvor öðrum nægilega
mikið. Ég þorði ekki að taka áhætt-
una á að setja meiri sóknarþunga
því Albanir eru með mjög fljóta
menn og það hefði komið niður á
varnarleiknum," sagði Marteinn.
Besta marktækifæri íslands fékk
Bjami Benediktsson um miðjan
fyrri hálfleik er hann átti skalla
rétt yfir eftir aukaspyrnu Ingólfs
Ingólfssonar í fyrri hálfleik. Albanir
fengu þó enn betra færi er Milori
átti hörkuskot úr góðu færi sem
Ólafur, markvörður, varði meistara-
lega í hom. Síðari hálfleikur var
rryög daufur og fengu liðin ekki
eitt einasta hættulegt marktæki-
færi.
Bestu leikmenn íslands vom
vamarmennimir Bjarni og Þormóð-
ur. Steinar og Rúnar vom sterkir
á miðjunni, en Rúnar hefði mátt
reyna meira sjálfur. Eins var Valdi-
mar ógnandi í sókninni, en mátti
sín lítils gegn margnum. Ólafur var
öryggið uppmálað í markinu og
gerði engin mistök.
Albanska liðið var ekki sannfær-
andi. Leikmenn liðsins ráða yfir
miklum hraða en ætluðu sér oft um
of.
Kristján Arason gefur Puig, félaga
sínum, góð ráð í leiknum í gærkvöldi.
Puig gerði þrjú mörk í leiknum, en
íslenski landsliðsmaðurinn fjögur
mörk. Á myndinni til hliðar hleypur
Kristján til baka eftir að hafa gert
eitt marka sinna í leiknum.
HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNI BIKARHAFA
KORFUKNATTLEIKUR
Kristján Evrópu
meistari meðTeka