Morgunblaðið - 06.06.1990, Blaðsíða 3
C 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROmtt MIÐVKUDAGUR 6. JÚNÍ 1990
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 1. DEILD
íslandsmeistaram-
ir einir á botninum
SKAGAMENN unnu afar mikil-
vægan sigurgegn íslands-
meisturum KA hér á Akranesi
á laugardag. Fyrir þennan leik
voru bæði liðin stigalaus á
botni deildarinnar. Með sigri
sínum komust Skagamenn loks
á blað, en norðanmenn sitja
enn stigalausir á botni deildar-
innar.
Leikur liðanna var frekar slakur,
einkenndist af miðjuþófi, eink-
um í fyrri hálfleik og framan af
þeim seinni. Bæði lið eiga örugglega
eftir að gera braga-
Sigþór bót á leik sínu, er
Eiríksson líða tekur á mót og
skrifar vorbragurinn fer af
þeim. Skagamenn
hófu leikinn af miklum krafti og
Haraldur Ingólfsson og Sigursteinn
Gíslason áttu skot og skalla sem
fóru naumlega framhjá á upp-
hafsmínútunum eftir vel útfærðar
sóknir. Eftir þessa fjörlegu byijun
Skagamanna komst KA meira inn
í leikinn og náði forystu á 33.
mínútu. Þá kom stungusendingjnn
fyrir vörn Skagamanna og Árni
Hermannsson komst á auðan sjó,
lék á Gísla Sigurðsson, markvörð,
sem kom út á móti, og skoraði
auðveldlega í autt markið.
í dauflegum fyrri hluta síðari
hálfleiks fengu liðin sitt marktæki-
færið hvort. Fyrst bjargaði Gísli,
markvörður Skagamanna, glæsi-
legu skoti frá Ormari Örlygssyni,
með því að slá knöttinn yfir þverslá,
og hinumegin rétt missti Karl Þórð-
arson af knettinum fyrir opnu marki
eftir góða fyrirgjöf Haraldar Ing-
ólfssonar. En á 67. mínútu tókst
Skagasmönnum að jafna leikinn.
Þá tók hinn stórefnilegi Arnar
Gunnlaugsson homspymu, knöttur-
inn skrúfaðist inn að marki KA og
virtist vera kominn inn fyrir
marklínuna, þegar vamarmanni
tókst að hreinsa frá. En Bjarki
Pétursson var mættur á réttan stað,
skallaði knöttinn rakleiðis í netið
aftur og skoraði þar með fyrsta
mark Skagamanna eftir 247
mínútna baráttu.
Við þetta mark efldust Skaga-
menn mjög og sjálfstraustið jókst
og gerðu þeir harða hríð að marki
KA. Það kom því ekki á óvart, þeg-
ar þeir skoruðu sigurmarkið á 76.
mínútu. Maðurinn á bak við það
mark vár bakvörðurinn Heimir Guð-
mundsson. Braust hann af miklu
harðfylgi inn í vítateig KA og sendi
síðan knöttinn á Arnar Gunnlaugs-
son, sem afgreiddi hann viðstöðu-
laust í netið.
KA-menn voru reyndar aðeins
hársbreidd frá því að jafna leikinn
örfáum mínútum fyrir leikslok, þeg-
ar Bjarni Jónsson skallaði naumlega
framhjá fjærstöng eftir hornspyrnu
Ormars.
Heimir Guðmundsson var besti
maður Skagamanna í leiknum auk
þess sem Karl Þórðarson átti góða
spretti. Endurkoma Guðbjörns
Tryggvasonar í vörn Skagamanna
gerði hana mun öruggari en í fyrri
leikjum.
Hjá KA var fyrirliðinn Erlingur
Kristjánsson mjög traustur og
Heimir Guðjónsson var mjög dug-
legur á miðjunni og barðist vel.
Allt of stór sigur FH
Stjarnan sterkari aðilinn ef eitthvað var, en tapaði þó 1:5 í Hafnarfirði!
„ÉG er auðvitað mjög ánægður
með sigurinn, sem er að vísu
fullstór því Stjörnumenn voru
mjög óheppnir," sagði Viðar
Halldórsson, annar þjálfari FH
eftir stórsigur á Stjörnunni á
laugardag. „Við komumst bet-
ur inn í leikinn er líða tók á og
strákarnir útfærðu sóknirnar
mjög vel,“ bætti hann við.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Það kann að hljóma undarlega
að segja að Stjarnan hafi veric)
sterkari aðilinn, ef eitthvað var,
þegar haft er í huga að FH vann
5:1, en það er engu
að síður satt. Garð-
bæingar léku ágæt-
lega lengst af og
virtust heldur
sprækari en heimamenn. Þeir sköp-
uðu sér ágætis marktækifæri í
þrígang á fyrstu mínútum leiksins
áður en þeir skoruðu fyrsta mark
leiksins á 9. mínútu.
Árni Sveinsson átti þá góða send-
ingu inn fyrir vöm FH og þar kom
Sveinbjörn Hákonarson. Hann hefði
getað reynt skot sjálfur en kaus
að renna boltanum fyrir markið á
félaga sinn sem var í betra færi.
Bjöm Jónsson, fyrirliði FH, fékk
knöttinn í sig og af honum fór bolt-
inn í netið.
Markakóngur deildarinnar frá
því í fyrra, Hörður Magnússon,
jafnaði fyrir heimamenn á 23.
mínútu og var þetta fyrsta mark
hans í ár. Eftir hornspyrnu frá
vinstri barst knötturinn til Harðar
sem stóð á markteigshorninu hægra
megin. Hann skaut viðstöðulausu
þrumuskoti efst í markhornið
vinstra megin, algjöriega óvetjandi
fyrir Sigurð markvörð Stjörnunnar.
Garðbæingar vom mun ákveðn-
ari í fyrri hálfleik, en nýliðunum
gekk erfiðlega að koma knettinum
í netið og var Þorsteinn markvörður
sá þröskuldur sem þeir náðu ekki
að yfirstíga.
Pálmi Jónsson kom FH yfir á 58.
mínútu. Ólafur Kristjánsson átti
gott skot úr miðjum teig sem Sig-
urður varði. Hann hélt ekki knettin-
um og Þórhallur átti gott skot, en
Sigurður varði aftur. Pálmi fylgdi
vel eflir og skoraði úr þröngu færi.
Tíu mínútum síðar skoraði Ólafur
Morgunblaðið/RAX
Ólafur Kristjánsson gerir þriðja mark FH á sérlega glæsilegan hátt. Varnarmenn Stjörnunnar koma engum vömum
við.
sérlega glæsilegt mark. Hann fékk
knöttinn rétt innan vítateigs eftir
hornspyrnu og skoraði með glæsi-
legri og fastri bakfallsspyrnu.
Pálmi skoraði síðan annað mark
sitt, og fjórða mark FH, á 80.
mínútu eftir að hafa fengið góða
sendingu frá Andra inn fyrir vörn
Stjömunnar. Hörður gerði síðasta
mark leiksins, og annað mark sitt,
er tvær mínútur voru eftir.
FH-ingar fengu sex góð færi í
leiknum og skoruðu fimm sinnum.
Stjömumenn fengu jafn mörg færi
en þeim tókst aðeins að skora eitt
mark. Framlínumenn þeirra vom
greinilega ekki eins vel upplagðir
og sóknarmenn FH.
Þorsteinn Bjarnason var án efa
besti maður FH. Hann varði oft vel
auk þess sem hann greip vel inn í
leikinn. Hörður og Pálmi unnu vel
frammi og uppskáru ríkulega. Björn
átti einnig góðan dag í vöminni.
Aðrir leikmenn léku ágætlega en
gerðu sig seka um mikil mistök
þess á milli.
Hjá Stjömunni var Birgir Sigfús-
son traustur í vörninni, Ragnar
Gíslason barðist vel á miðjunni og
þeir Sveinbjörn Hákonarson og Ing-
ólfur Ingólfsson áttu góðan dag.
Árni Sveinsson lék einnig vel, sér-
staklega framan af leiknum.
■ Staðan / B6
KARFA / NBA
Bill Laimbeer fyrirliði Detroit.
„Jordan
besturen
viðmeð
liðið“
- sagði Laimbeer, fyr-
irliði Detroit, eftir sigur-
inn gegn Chicago
„JORDAN er örugglega bestur,
en við erum með besta liðið,“
sagði Bill Laimbeer, fyrirliði
Detroit, eftir 93:74 sigur gegn
Chicago í sjöunda leik liðanna
í undanúrslitum NBA-deildar-
innar. Detroit sigraði í fjórum
af sjö leikjum og mætir Port-
land í keppni um meistaratitil-
inn.
Frá
Gunnari
Vatgeirssynii
Bandaríkjunum
H eimamenn gerðu nánast út um
leikinn í öðram leikhluta. Þá
skoruðu þeir úr 14 af 17 skotum
og nýttu m.a. fimm hraðaupphlaup
í röð, skoruðu 31
stig gegn 14 og vom
yfir í hálfleik, 48:33.
Michael Jordan,
sem var ávallt með
tvo eða þtjá menn á sér, var stiga-
hæstur í leiknum með 31 stig og í
sérflokki. Að auki átti hann stoð-
sendingar í öllum körfum samhetja
sinna nema sex. Hann var með um
50% skotnýtingu, en nýting félaga
hans var samtals um 24%. „Ég er
sáttur við framgang liðsins í vetur,
en ef það á að eiga möguleika á
meistaratitlinum, er ljóst að það
þarf að styrkja hópinn,“ sagði snill-
ingurinn.
Heimamenn unnu verðskuldaðan
sigur og vörnin gaf hvergi eftir
frekar en fyrr. Isiah Thomas var
bestur í jöfnu liði, skoraði 21 stig
og átti 11 stoðsendingar, en fimm
leikmenn skoruðu 10 stigeða fleiri.
Detroit, sem hefur titil að vetja,
leikur til úrslita þriðja árið í röð.
Fréttamenn eru almennt á því að
Portland eigi lítið í meistarana að
gera, en þess ber að geta að Detro-
it hefur ekki sigrað í síðustu 20
leikjum í Portland. Fyrstu tveir leik-
irnir fara fram í Detroid, síðan þrír,
ef með þarf, í Portland og loks
tveir, ef með þarf, í Detroit. Fyrsti
leikurinn var í nótt.
TENNIS
NIKE-DUNLOP-MÓTIÐ í
tennis fer fram viö Kópavogs-
skólann dagana
13. til I6.júní.
Keppt verður í einliða- og
tvíliðaleik karla og kvenna og
tvenndarleik.
Skráning fyrir 10. júní.
Upplýsingar og skráning á
mótið f simum 40219
Guðríður, 45389 Ásdis og
623945 Einar.
TÍK