Morgunblaðið - 06.06.1990, Page 5
4 C
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
MIÐVIKUDAGUR 6. JUNI 1990
+
MORGUNBLAÐH)
IÞROTTIR
MIÐVIKUDAGUR 6. JUNI 1990
C 6
HEIMSMEISTARAKEPPNÍN l KNATTSPYRNU
Beint í sjónvarpinu
Leikirnir í HM fara fram 8. júní til 8. júlí 1990 kl. 15, 16, 18 eða 19
að íslenskum tíma. Feitletruðu leikirnir á listanum hér að neðan í
riðlakeppninni verða sýndir í beinni útsendingu Sjónvarpsins, nema
leikirnir tveir, sem merktir eru með svörtum punkti. Þeir verða
ekki sýndir beint eins og ráða má af útsendingartímanum — heldur
er upptaka frá þeim sýnd að kvöldi leikdags. Sjónvarpið sýnir alla
leiki beint eftir að riðlakeppninni líkur.
Riðlakeppnin
Föstudagur 8. júní, Opnunarhátíð..................kl. 15.10
Föstudagur 8. júní, Argentína-Kamerún.........................kl. 16
Laugardagur 9.júní, Sovétríkin-Rúmenía.................kl. 15
Laugardagur 9. júní, Ítalía-Austurríki.................kl. 19
Laugardagur 9. júní, Sameinuðu ar. furstadæmin-Kólumbía ......kl. 19
Sunnudagur 10. júní, Bandaríkin-Tékkóslóvakía.................kl. 15
Sunnudagur 10. júní, Brasilía-Svíþjóð.........................kl. 19
Sunnudagur 10. júní, V-Þýskaland-Júgóslavía...........kl. 19
Mánudagur ll.júní, Kosta Ríka-Skotland........................kl. 15
Mánudagur 11. júní, England-írland.....................kl. 19
Þriðjudagur 12. júní, Belgía-Suður-Kórea...............kl. 15
Þriðjudagur 12. júní, Holland-Egyptaland...............kl. 19
Miðvikudagur 13. júní, Uruguay-Spánn...................kl. 15
Miðvikudagur 13.júní, Argentína-Sovétríkin.............kl. 19
Fimmtudagur 14. júní, Júgóslavía-Kólumbía..............kl. 15
Fimmtudagur 14. júní, Italía-Bandaríkin.........:..........kl. 19
Fimmtudagur 14. júní, Kamerún-Rúmenía......................kl. 19
Föstudagur 15. júní, Austurríki-Tékkóslóvakía........kl. 15
Föstudagur 15. júní, V-Þýskaland-Sameinuðu ar. furstadæmin .kl. 19
Laugardagur 16. júní, Brasilía-Kosta Ríka............kl. 15
Laugardagur 16. júní, Svíþjóð'-Skotland......:.............kl. 19
Laugardagur 16. júní, England-Holland................kl. 19
Sunnudagur 17. júní, Írland-Egyptaland.....................kl. 15
Sunnudagur 17. júní, Belgía-Uruguay..................kl. 19
Sunnudagur 17. júní, Suður-Kórea-Spánn...............kl. 19
•Mánudagur 18. júní, Argentína-Rúmenía............kl. 22.10
Mánudagur 18. júní, Kamerún-Sovétríkin..............kl. 19
Þriðjudagur 19.júní, Vestur-Þýskaland-Kólumbía......kl. 15
Þriðjudagur 19. júní, Júgóslavía-Sameinuðu ar. furstadæmin.kl. 15
• Þriðjudagur 19. júní, Ítalía-Tékkóslóvakía......kl. 23.10
Þriðjudagur 19. júní, Austurríki-Bandaríkin.........kl. 19
Miðvikudagur 20.júní, Brasilía-Skotland.............kl. 19
Miðvikudagur 20. júní, Svíþjóð-Kosta Ríka...........kl. 19
Fimmtudagur 21.júní, Belgía-Spánn...................kl. 15
Fimmtudagur21.júní, Suður-Kórea-Uruguay........... kl. 15
Fimmtudagur 21. júní, England-Egyptaland............kl. 19
Fimmtudagur 21. júní, Írland-Holland................kl. 19
16liðaúrslit
Tvö efstu liðin í hverjum riðli fara áfram í 16 liða úrslit og fjögur
þeirra sex, sem ná bestum árangri í þriðja sæti riðlanna.
Napólí
Laugardagur 23.júní, 1. riðli B-3. riðli A/C/D.......kl. 15
Barí
Laugardagur 23. júní, 2. riðli A-2. riðli C..........kl. 19
Tórínó
Sunnudagur 24. júní, 1. riðli C-3. riðli A/B/F.......kl. 15
Mílanó
Sunnudagur 24.júní, 1. riðli D-3. riðli B/E/F......:..kl. 19
Genúa
Mánudagur 25.júní, 2. riðli F-2. riðli B.............kl. 15
Róm
Mánudagur 25. júní, 1. riðli A-3. riðli C/D/E........kl. 19
Veróna
Þriðjudagur 26.júní, l.riðli E-2. riðli D..................kl. 15
Bologna
Þriðjudagur 26.júní, 1. riðliF-2. riðli E............kl. 19
8 liða úrslit
Laugardagur 30. júní
Flórens, Sigurvegari C1-A3/B3/F3 — Sigurvegari E1-D2.......kl. 15
Laugardagur 30. júní
Róm, Sigurvegari F2-B2 — Sigurvegari Al- C3/D3/E3..........kl. 19
Sunnudagur 1. júlí
Mílanó, Sigurvegari A2-C2 — Sigurvegari D1-B3/E3/F3.,....kl. 15
Sunnudagur 1. júlí
Napólí, Sigurvegari B1-A3/C3/D3 — Sigurvegari F1-E2..kl. 19
Undanúrslit
Þriðjudagur 3. júlí í Napólí
Sigurvegari í Flórens — Sigurvegari í Róm..................kl. 18
Miðvikudagur 4. júlí í Tórínó
Sigurvegari í Napólí — Sigurvegari í Mílanó................kl. 18
Leikur um 3. sætið
Laugardagur 7. júlí í Barí
Taplið í Napólí — Taplið í Tórínó..........................kl. 18
Úrslitaleikur
Sunnudagur 8. júlí í Róm
Sigurvegari í Napólí — Sigurvegari í Tórínó................kl. 18
Tékkinn eldri en Shilton...?
PETER Shilton markvörður enska landsliðsins, verður elsti leikmaður
HM-keppninnar að þessu sinni. Hann er fertugur og ef vel gengur setur
hann met með því að leika 120. landsleik sinn. Samkvæmt lista frá FIFA,
alþjóða knattspyrnusambandinu, var Tékkinn Peter Paluch þó elstur eða
392 ára! Augljóslega prentvilla, sem síðar var leiðrétt og er hann aðeins
32 ára. Bandaríkjamaðurinn Chris Henderson er yngstur; 19 ára.
■ ALLIR 90.000 áhorfendurnir á opnunarleik HM fá blómvönd við
innganginn og eiga að veifa honum við opnunarhátíðina. Þar verða einn-
ig fluttir kaflar úr tveimur óperum Verdis og þegar þær ná hámarki
eiga áhorfendur að mynda blómabreiðu.
Mo Johnston er klár í slaginn með
Skotum.
■ SKOSKIR knattspyrnu-
áhugamenn fengu góðar fréttir á
mánudag, en þá kom í ljós að sókn-
arleikmaðurinn Mo Johnston hafði
staðist læknisskoðun fyrir átökin á
Italíu. Johnston, sem er lykilleik-
maður skoska landsliðsins, reif
magavöðva í síðustu viku og voru
læknar svartsýnir á að hann næði
bata nógu snemma. Góð hvíld um
helgina gerði kraftaverk og
Johnston er því tilbúinn í slaginn.
■ DÓMARAR á Ítalíu hafa feng-
ið ströng fyrirmæli frá FIFA um
að taka hart á grófum brotum í
keppninni. „Þeir vita hvaða brot
verðskulda rauða spjaldið og við
höfum sagt þeim að þeir eigi á
hættu að vera sendir heim ef þeir
framfylgja því ekki,“ sagði Bletter.
Hann sagðist ekki eiga von á að
þetta leiddi af sér að rauðu spjöld-
unum yrði veifað um of. „Fyrir-
mæli okkar til dómaranna eru skýr
og forráðamenn liðanna hafa líka
fengið viðvaranir“.
■ LEO Beenhakker, þjálfari hol-
lenska landsliðsins, var ánægður
með sína menn. „Með svona leik á
Ítalíu verðum við örugglega með í
baráttunni um efsta sætið,“ sagði
Beenhakker. Þetta var fyrsti sigur
Hollendinga síðan þeir tryggðu sér
þátttökurétt í úrslitunum.
■ VESTUR þýski varnarleik-
máðurinn Jiirgen Kohler, hlaut
hnémeiðsli á æfingu landsliðsins
síðastliðinn mánudag. Eftir því sem
talsmaður vestur-þýska landsliðsins
segir er líklegt að Kohler missi af
fyrsta leik Þjóðverja gegn Jú-
góslövum á sunnudag.
■ MIKIL viðbúnaður verður
meðal lögreglu í Cagliari á Sard-
iníu, þar sem Englendingar og
Hollendingar leika, en viðbúið er
að stuðningsmenn þessara liða verði
til vandræða. Sérstakar varúðar-
ráðstafanir verða viðhafðar og til
dæmis hefur verið ákveðið að á öll-
um Ieikjum Englands muni 2000
miðum vera haldið eftir til þess að
hægt verði að halda stuðnings-
mönnum Englands frá andstæð-
ingunum á áhorfendapöllunum.
■ FYRSTU þrír óeirðaseggirn-
ir hafa þegar verið handteknir á
Sardiníu fyrir skemmdarverk og
þjófnað. Þremenningarnir sem eru
enskir, verða að láta sér lynda að
fylgjast með framgangi keppninnar
úr fangelsi a.m.k. framan af, því
þeir voru dæmdir í tuttugu daga
fangelsi auk peningarsektar. Það
er þó óvíst hvor knattspyrnuáhugi
eingöngu orsaki veru mannanna á
Italíu því enginn þeirra hafði útveg-
að sér miða á leiki.
Litlar breytingar hjá
Evrópumeisturunum
Nánast sama lið og í EM ef marka má númerin. Maradona á undan-
þágu hjá Argentínu
FYRIR helgina rann út frestur sem
þátttökuþjóðirnar höfðu til að til-
kynna 22 manna hóp sinn fyrir
heimsmeistarakeppnina sem
hefst á föstudaginn. Hver leik-
maður fær fast númer sem hann
heldur út alla keppnina og má
ráða í líkleg lið með þvf að fara
yfir númerin.
Hollendingar urðu Evrópumeistarar
fyrir tveimur árum og ef marka
má númerin gera þeir litlar breytingar
á liði sínu. Tíu af ellefu leikmönnum
liðsins sem léku úrslitaleikinn í EM,
eru í peysum með númerum frá einum
uppí ellefu. Einn leikmann vantar, Arn-
old Muhren, en hann er hættur. Núm-
er hans fær Richard Witschge frá Ajax
og það hafði reyndar verið talið líklegt
að hann kæmi í liðið. Ruud Gullit, sem
margir efuðust um að yrði með, er
númer tíu og verður því með sam-
kvæmt þessu.
Carios Bilardo, þjálfari heimsmeist-
ara Argentínu, notar hinsvegar stafróf-
ið. Einn leikmaður fær þó undanþágu,
Diego Maradona, er er í peysu númer
tíu og markverðirnir fá að halda núm-
erum sínum.
Azeglio Vicini, þjálfari ítala, hefur
þann hátt á láta varnarmenn fá lágu
númerin en framherja þau háu.
Gianluca Vialli er t.a.m. númer 21.
Sebastiao Lazaroni, þjálfari Brasilíu-
manna, gefur vísbendingar með núm-
eraveli sínu. Samkvæmt því verður
Romario helsti framheiji hans, númer
11, og Careca, númer 9. Bebeto, sem
barist hefur um sæti við Romario, verð-
ur samkvæmt þessu ekki í byijunarlið-
inu, en hann fær peysu númer 16.
Þessar vangaveltur duga ekki á lið
Belga. Samkvæmt þeim verður
Philippe Albert í markinu, í peysu núm-
er eitt, en hann hefur hingað til verið
talinn einn sterkasti varnarmaður
Belga. Belgarnir nota stafrófið á alla
leikmenn sína og Albert verður eini
útileikmaðurinn sem klæðist peysu með
markmannsnúmerinu.
IMuddpottar og marmari
Landslið Sameinuðu arabísku fur-
stadæmanna þykir ekki líklegt til
mikilla afreka á Ítalíu þar sem það
mætir Vestur-Þýskalandi, Júgóslavíu
og Kólumbíu í riðlakeppninni. Knatt-
spyrnusamband arabísku furstadæ-
manna er aðeins 19 ára gamalt og
skráðir knattspyrnuiðkendur rúmlega
þijú þúsund. Þess má geta að á Is-
landi eru um 19 þúsund skráðir iðkend-
ur.
Þjálfari landsliðsins, Carlos Alberto
Pereira, er svartsýnn fyrir hönd liðsins
og segir sex marka tap fyrir Vestur-
Þjóðveijum ekki vera ólíklegt. „Við
höfum ekkert í þessar þjóðir að gera.
Við það bætist að undirbúningur liðs-
ins hefur verið mjög slakur og leik-
menn liðsins eru veikburða eftir lang-
varandi föstu af trúarástæðum,“ sagði
Pereira við komuna til Ítalíu.
Hið unga knattspyrnusamband
arabísku furstadæmanna gerir þó hlut-
ina með reisn. Leikmenn liðsins dvelja
í Imola á meðan á keppninni stendur
og þar hefur undanfarna daga verið
unnið hörðum höndum við að undirbúa
herbergin fyrir komu kappanna. Nudd-
pottum hefur verið komið fyrir í hveiju
herbergi og þau öll lögð marmara.
Allt umstangið er til þess að fá leik-
menn til þess að líða eins og heima
hjá sér.
Ruud Gullit leikur fyrsta leik Hollendinga ef marka má númerið á peysu hans.
Alexej Míkhaítsjenkó leikur ekki með Sovét-
Sovétmenn verða án lykilmanna:
Mikhaíltsjenkó og
Bdanov hvorugur með
SOVÉTMENN mæta til leiks í
heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu án teggja lykii-
manna. Igor Belanov, sem leik-
ur með Gladbach í Vestur-
Þýskalandi, gefur ekki kost á
sér og Alexej Míkhaítsjenkó,
sem var af mörgum talinn besti
leikmaður liðsins í Evrópu-
keppninni, meiddist ílandsleik
gegn ísrael fyrir skömmu.
Valeríj Lobanovskíj, þjálfari sov-
éska landsliðsins, er einnig
þjálfari Dynamo Kiev og hefur val-
ið tíu leikmenn úr eigin liði. Hann
hefur rendar verið gagnrýndur fyr-
ir að velja leikmenn sem fengið
hafa litla sem enga reynslu með
landsliðinu.
Meðal nýliða eru Valeríj Broshin
og Sergej Fokín, en þeir leika báðir
með CSKA Moskva sem nýlega
vann sér sæti í 1. deild. Að auki
eru tveir lítt þekktir leikmenn hjá
Schalke 04; Vladímír Ljúti og Alex-
ander Borodjúk.
Sálarheill Skota og heims-
niMQtiiralrMiniiin í IrnattQnwrii i
KÖNNUN á innlögnum á geð-
sjúkrahús í Edinborg, höfuðborg
Skotlands, hefur leitt í Ijós, að
þeim fækkar mjög verulega
meðan heimsmeistarakeppnin í
knattspyrnu stendur yfir, sam-
kvæmt f rétt brezka sunnudags-
blaðsins The Observer.
Skotar eiga nú lið í fimmta sinn
í lokakeppni heimsmeistara-
keppninnar í röð. Skozka landsliðið
hefur aldrei komiz.t upp úr riðla-
keppninni og hefur
lengi haft þann hæfi-
leika að sigra sterk
lið, þegar engu máli
skipti, en tapa fyrir
FráGuðmundi
Heiöari
Frjmannssyni
íSkotlandi
veikum liðum, þegar mikið lá við.
Þar að auki hafa markverðir liðsins
lengi verið mistækir og varnarmenn
átt til að skora sjálfsmörk á ólíkle-
gustu stundum.
Það kemur því nokkuð á óvart, að
þessi frammistaða leiði til þess, að
Skotar þurfi síður inn á geðdeildir
en á öðrum tímum. En þetta er niður-
staða á könnun tveggja geðlækna í
Edinborg.
Þeir könnuðu innlagnir á geð-
sjúkrahús borgarinnar fyrir, um og
eftir lokakeppni heimsmeistara-
keppninnar 1974, 1978, 1982 og
1986. Tölurnar úr þeirri könnun voru
síðan bomar saman við tölur frá sama
tima árs þau ár, sem ekki var heims-
meistarakeppni.
Niðurstaðan var sú, að innlögnum
tók að fjölga síðustu átta vikur fyrir
keppnina, en á meðan á keppninni
stóð og í átta vikur eftir hana dró
marktækt úr þeim miðað við önnur
ár. Læknarnir athuguðu innlagnir á
geðklofa sjúklingum, þunglyndum,
drykkjusjúklingum og þeim, sem
höfðu reynt að sálga sér.
Læknarnir segja eftirvæntinguna,
áður en keppnin byijar, vera aðal-
skýringuna á auknum innlögnum vik-
urnar þann tíma. En þegar ófarirnar
hefjast í keppninni verki það eins og
segir í málshættinum, að sælt sé sam-
eiginlegt skipbrot. Það sé til að
mynda vel þekkt í styijöldum, að
sjálfsmorðum fækki þá verulega.
Tii samanburðar má geta þess, að
í lokakeppni heimsmeistarakeppninn-
ar árið 1974, sem lialdin var í Vest-
ur-Þýzkalandi, kom í þós, að hjartaá-
föll vestur-þýzkra áhorfenda jukust
verulega og blóðþrýstingur hækkaði,
en vestur-þýzka landsliðið var líka
að vinna keppnina.
Allt bendir til, að sálarheill Skota
sé vel borgið þetta sumarið. í síðustu
átta leikjum skozka landsliðsins hefur
liðið tapað fjórum leikjum og fengið
á sig 13 mörk og 5 af þeim hafa
verið sjálfsmörk.
■ RUUD GuIIit, fyrirliði hol-
lensku Evrópumeistaranna, sýndi
á sunnudag að hann er á góðri leið
með að ná fyrri styrk eftir langvar-
andi hnémeiðsli. Hollendingar léku
þá gegn Júgóslavíu og sigruðu
sannfærandi 2:0 með Gullit sem
besta mann. Gullit lagði upp fyrra
markið sem félagi hans hjá AC
Milan, Frank Rijkaard skoraði.
Síðari markið gerði þriðji Milan-
leikniaðurinn, Marco van Basten.
■ ÞAÐ eru sex lið sem væntan-
lega mæta til leiks á Ítalíu með
talsvert aðrar væntingar en önnur
lið. Þessi sex lið eru þau sem hvorki
koma frá Evrópu né Suður-
Ameríku, þ.e. Suður Kórea, Kam-
erún, Kosta Ríka, Egyptaland,
Sameinuðu arabísku fúrstadæm-
in og Bandaríkin. Draumur þess-
ara liða er að vinna einn leik, en
þau kvíða niðurlægjandi úrslitum.
■ KNATTSPYRNUMENN
verða ekki þeir einu í góðu líkam-
legu formi á Italíu næsta mánuð-
inn. Væntanlegir dómarar í keppn-
inni gengust í mars undir strangt
próf til að kanna líkamlegt ástand
þeirra. 23 dómarar af 36 stóðust
ekki prófið og fengu annað tæki-
færi síðastliðinn mánudag. Þá kom-
ust allir í gegn, enda hafði þeim
verið hótað því að verða sendir heim
ef þeir féllu öðru sinni. „Þetta er
atvinnumannaíþrótt og það h§fur
neikvæð áhrif að sjá alvöru íþrótta-
menn leika á vellinum á meðan
dómararnir hlaupa um með ístru,“
sagði Sepp Blatter, ritari alþjóða
knattspyrnusambandsins.
KNATTSPYRNA / NOREGUR
Stórleikur Ólafs
BRANN vann Viking, 2:1, í
norsku 1. deildinni í knatt-
spyrnu í Stavanger um helgina.
Þetta var þriðji sigur Brann á
keppnistímabilinu og án efa
besti leikur liðsins til þessa.
Óiafur Þórðarson átti stórleik
fyrir Brann.
Viking var efst í norsku deild-
inni fyrir þennan leik og bjugg-
ust flestir við að Brann væri þeim
auðveld bráð, ekki hvað síst vegna
þess að Brann liðinu
hefur gengið illa að
undanförnu. En nú
var komið að Brann
að sýna hvað í liðinu
býr. Að undanskildum fyrstu tíu
mínútum leiksins er Viking átti
nokkur góð marktækifæri voru það
liðsmenn Brann sem réðu ferðinni.
Fyrri hálfleikur var skemmtileg-
ur á að horfa, en það var ekki fyrr
en 17 mínútur voru liðnar af síðari
hálfleik sem Einar Roth skoraði
Eriingur
lóhannsson
skrifar
frá Noregi
fyrir Brann. Fimmtán mínútum
síðar bætti Pólvetjinn Filipczak
öðru marki við fyrir Brann. Viking
náði að minnka muninn er átta
mínútur voru til leiksloka, en það
hafði lítð að segja því Brann var
nær því að bæta við mörkum en
Viking að jafna.
Miðvallarleikmenn Brann, Atle
Torvanger og Ólafur Þórðarson
voru bestu leikmenn vallarins. Þeir
réðu lögum og lofum á miðjunni
og áttu fjölmargar sendingar,
hveija annarri betri fram til sóknar-
manna Brann. Það er enginn vafi
á því að það lið sem hefur slíkum
mönnum á að skipa hefur alla burði
til að ná langt.
Næsti leikur Brann er gegn
Moss, sem vann fyrsta leik sinn um
helgina gegn Kongsvingar. Að
loknum sjö umferðum er Tromsö
og Molde efst með 14 stig, Viking
kernur næst með 13, Rosenborg er
með 12 og Brann í fimmta sæti
með 11 stig.
HANDBOLTI / SPANN
Barcelona meist-
arí þriðja árið í röð
Alfreð gerði alls 184 mörk og var
þriðji markahæsti leikmaðurSpánar
BARCELONA varð um helgina spænskur meistari í handknatt-
leik þriðja árið í röð. Barcelona sigraði San Antonio, 35:13, í
síðustu umferð á laugardaginn. Teka, lið Kristjáns Arasonar,
hafnði í öðru sæti, einu stigi á eftir Barcelona.
Atli
Hilmarsson
skrifarfrá
Spáni
Kristján Arason og Cabanas lék
ekki með Teka er liðið sigraði
Naranco, 26:31,- á útivelli. Villaldea
var markahæstur í liði Teka með
10 mörk, Melo kom
næstur með 7 mörk.
Alfreð Gíslason
var markahæstur
með sex mörk í liði
Bidasoa er lið hans sigraði Cuenca
26:21 á heimavelli. Alfreð skoraði
alls 184 mörk í deildinni og varð í
þriðja sæti yfir markahæstu leik-
menn. Daninn, Kim Jacobsen frá
Cuenca, var markahæstur annað
árið í röð, gerði alls 220 mörk.
Rúmeninn, Stinga, varð í öðru sæti
með 191 mark.
Granollers átti ekki í erfiðleikum
með Alicante á útivelli, sigraði
faám
FOLK
■ SOVETMAÐURINN LIov,
sem lék með San Antonio í
spænska handboltanum, mun að
öllum líkindum leika með Caja
Madrid næsta vet-
ur. Llov kom til San
Antonio í febrúar
og stóð sig mjög vel
og var ávallt marka-
hæsti leikmaður liðsins, gerði 11
mörk í síðustu umferð.
■ KIM Jacobsen, danski hand-
knattleiksmaðurinn sem lék með
Cuenca og var markahæsti leik-
maður spænsku deildarinnar, hefur
ákveðið að leika í Danmörku næsta
vetur.
■ VLADENOVIC, júgóslavneski
leikmaðurinn hjá vestur-þýska lið-
inu Lemgo, hefur ákveðið að leika
með San Antonio næsta vetur.
Hann lék með Teka á Spáni áður
en haim fór til Vestur-Þýskalands
í fyrra.
Atli
Hiimarsson
skrifarfrá
Spáni
21:32. Geir Sveinsson gerði þijú
mörk og Atli Hilmarsson 2.
Önnur úrslit:
A.tletico Madrid — Arrate....38:18
Caja Mardrid — Palautordera .36:23
Malaga — Michelin............23:26
Pontevedra — Valencia........22:28
Lokastaðan: Barcelona 52, Teka
51, Atletico Mardrid 46, Granollers
44, Valencia 41, Bidasoa 40, Caja
Mardrid 40, Arrate 27, San An-
tonio 26, Michelin 22, Alicante 20,
Pontevedra 18, Naranco 16, Malaga
15, Cuenca 15, Palautordera 5. »
Bikarkeppnin hefst 15. júní í
Pontevedra ogverður leikin á þrem-
ur dögum. I fyrstu umferð leika
Barcelona og Arrate, Teka og Caja
Madrid, Atletico Madrid og Bidasoa
og loks Granollers og Valencia.
Kynningarfund-
uráíþróttum
kvenna á morgun
Á morgun, fimmtudag, efnir ÍSÍ
til kynningarfundar í íþróttamið-
stöðinni í Laugardal, þar sem fjalla^
verður um íþróttir kvenna frá ýms-
um sjónarhornum.
Greint verður frá norrænum
kvennafundi, sem haldinn var hér-
lendis á sl. vetri og í framhaldi af
því, frá námskeiði sem efnt verður
til í Svíþjóð 23. til 26. ágúst fyrir
þjálfara í afreksíþróttum kvenna.
Norræni menningarmálasjóðurinn
veitir ijárstuðning tii þátttöku í
námskeiðinu.
Tvær konur segja frá reynslu
sinni af störfum í stjórnum sérsam-
banda, kynnt verður kvennahlaup
í Garðabæ 30. júní nk. og sýnt stutt
myndband frá samskonar hlaupi í
Finnnlandi. Loks verður kosin nefnd
til að gera tillögur til framkvæmda-
stjórnar ÍSÍ um stefnumótun í
kvennaíþróttum, er leggist fyrir
íþróttaþing ÍSÍ á komandi hausti.
Sérsamböndum og 'héraðssam-
böndum ÍSÍ hefur verið boðið íjð
senda fulltrúa til fundarins annað
kvöld, sem hefst kl. 18.00.