Alþýðublaðið - 10.01.1959, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 10.01.1959, Blaðsíða 6
KLÚBBAR eru eitt af þessum nútúnafyrirbrigð- urn, sem ekki aðeins herja Ameríku (þar sem allt getur gerzt) heldur einnig flest önnur lönd jarðkringlunn- ar. Markmið þessara klúbba eru eins mörg og þeir sjálf- ir og geta oft verið næsta furðuleg'. Á Ítalíu er til dæm is til klúbbur fyrir feður, sem eiga eina eða fleiri ó- giftar dætur. Klúbbarnir munu upprunalega hafa ver i5 stofnaðir í Suður-Ítalíu, þar sem konur voru í mikl- um meirihluta fyrir nokkr- . um árum. Markmið feðr- anna er að forða dætrum sínum frá því að pipra. 'Blaðamaður frá UPI átti fyrir skömmu viðtal við fé- laga úr einum af klúbbum þessum. Hann bar slcrautleg an hnapp í jakkalafi sínu og átti það að tákna, að hann ætti tvær ógiftar dætur. „Klúbbur okkar er ekkert leynifélag“, sagði hann, — „bvert á móti vinnum við opinberlega að mannúðar- störfum. Við hjálpum dætr- um okkar að komast í sam- band við heiðarlega menn, svo að þær lendi ekki á glapstigum af ótta við að pipra. Sömuleiðis höfum við lijálpað mörgum fei-mnum karlmönnum til þess að njóta sælu hjónabandsins“. Klúbbar þessir eru nú orðnir 50 í Ítalíu og hafa stofnað með sér samband, sem hefur opna skrifstofu daglega. í hverjum klúbb eru frá 40 upp í 100 félagar, sem eins og áður er getið verða allir að eiga^minnst eina ógifta dóttur, í einum klúbb kvað vera félagi, sem á 7 ógiftar dætur, og mun það vera metið. ★ NUNNA nokkur í Þýzka- landi, sem „lézt“ seytján ára að áldri, dó í annað sinn fyrir skömmu 99 ára og 9 mánaða gömul. Hún hafði legið skamma hríð á kaþólsku sjúkrahúsi, þegar hún lézt á óvæntan og und- arlegan hátt. Líkið var kistulagt og beið greftrun- ar. Þá fékk systir hennar allt í einu löngun til þess að sjá hana einu sinni enn, áð- ur en hún hyrfi niður í jörð ina. Meðan hún stóð yfir kistunni opnuðust augu hinn ar látnu, og eftir fáa daga var hún orðin alheil. Hún gerðist nunna til þess að launa lífgjöfina. brAit mm reyk- INGAR ÓSKAÐLEGAR — segir Svílnn SÆNSKUR efnafræðing- ur Erik Ceimertz að nafni hefur að eigin sögn frmdið upp sigti á vindlinga, sem á að gera vindlingareyking- ar algjörlega óskaðlegar. — Sigti þetta er svo einfalt, að hver og einn á að geta út- búið það sjálfur heima hjá sér. Reynist þetta vel er eng- inn vafi á því, að tóbaks- framleiðendur hvarvetna urn heim munu færa sér það í nyt. Þar til þetta er orðið fullreynt verður samt öllum útbúnaði haldið stranglega leyndum. En efnafræðingurinn hef- ur þegar framleitt mikið magn sigta, sem notuð hafa v'erið hjá stóru ensku tób- aksfyrirtæki með góðum ár- angri. Þrír blaðamenn hjá Stock holms-Tidningen, segjast hafa reynt vindlinga útbún- að með þessum nýju sigtum og þeir hefðu ekki fundið nokkurn mun, nema ef til vill væri vindlingurinn mild ari. Margir munu efast í lengstu lög og þora ekki að trúa svo góðu, að þeir megi sleppa óttanum við að l’á lungnakrabba eða krabba í báíka, sem talið er stafa af reykingum. En Ceimerts segist skulii yfirvinna allar efasemdir. ÞEGAR bók Erskine Cald wells, „Dagslátta drottins", kom út í Bandaríkjunum árið 1933, voru allir á einu máli um að söguna væri aldrei hægt að kvikmynda. Til þess væri hún ailtof raunsæ og ástríður persón- anna frumstæðar og þá nátt úrlega dónalegar. Aðalsögu- hetjan, gamli bóndinn Ty Ty Walden, sem grefur eft- ir gulli í akri sínum í stað þess að rækta hann, prédik- ar heiðin lífsviðhorf, og dæt ur hans, synir og tengda- dætur eru sveipuð taumlaus um ástríðum. Bókin er íulí af köttum á heitu tinþaki. Caldwell þekkir mjög vel til þessa fólks í Suðurríkj- unum frá æskuárum sínum. Þá kynntist hann fátækt þeirri og fáfræði sem fólk í vissum landshlutum þar syðra bjó við. Það er þetta sem hann skrifar um í „Dag sláttu drotcms, — en einn- ig um sorg, vonir og drauma þessa frumstæða fólks, sem hafði svo mikil óhrif á hann á uppvaxtarárunum. Nú hefur þó eftir allt sam t.n verið gerð kvikmynd eftir sögunni af þeim ágætu kvikmyndamönnum Anth- onyManz og Sidney Har- mon og hvernig þeim hefur tekist til er ekki gott að segja. Það er ekki svo ýkja erfitt að kvikmynda söguna ef undan er sleppt aðalein- kennum hennar, ástríðun- um, sem löngum hafa verið bannfærðar í bandarískum kvikmyndum. En hafi kvik- myndin ekki eitthvað af þessum grunntóni allrar sög unnar sannast það sem kvik myndamenn þar vestra hafa ávallt sagt, að ekki væri hægt að mynda Dagsláttu drottins. Sagan gerist í Georgíu- fylki á þrítugasta tug aldar- innar. Ty Ty Walden, sem leikinn er af Robert Ryan, gamli landneminn sem feng ið heíur þá flugu í höfuoið að gull sé í landareign hans. Hann grefur upp akra sína, eins og moldvarpa, hverja gryfjuna af annarri og neyð ir syni sína til að vinna með sér að þessu tilgangslausa verki. I byrjun sögunnar hefur hann þegar eytt 15 ár- um í þetta verk. Og meðan hann grefur og grefur svala konurnar í fjölskyldunni sínum heitu tilfinningum, hvað annað er h'ægt að gera á búgarði, scm allt er bundið hlekkjum fá- ránlegs vana- Þær verða að' berjast gegn einmanakennd inni og leiðindum. Elestir leikaranna eru áð ur. Htt þekktir. Caldwell hef myndarinnar og er því ekki ur sjálfur fylgst með gerð ólíklegt að andi lians svííi yfir verkinu. 43 ÁRA g'amall sölumað- ur frá Vín, Max Gorufler, hefur verið handtekinn og' ákærður fc'rir að hafa myrt 16 konúr. Hefur hann þegar játað morð á fjórum þeirra. -— Ég skil ekki í öllum látunum út af þessum morð um. Hugsið um allar millj- ónirnar sem voru drepnar í líeimsstyrjöldinni. Það komst upp um Grufer fyrir tilviljun. En hann hef ur allt frá árinu 1945 staðið í hjúskaparsvindli. Gegnum auglýsingar í dagblöðum komst hann í samband við einmana konur á miðjum aldri, sem höfðu lagt svo- litla peninga til hliðar. Eftir að hafa staðið í bréfasam- bandi við þær nokkurn tima stakk hanri upp á að þau skyldu hittast. Síðan reyndi hann að hafa peninga út úr þeim. En þegar konurnar fór að gruna hvers kyns var, drap hann þær einíaldlega. Síðasta fórnarlambið fékk illar bifur á honum fyrr en hann hafði gert ráð fyrir. Þegar hún í nokkra daga hafði hvorki séð eða heyrt til Gruflers eða 20 þúsund króna, sem hún hafði lánað honum, kærði hún til lög- reglunnar. Lögr.eglan fór þegar til heimilis Gruflers, í bænum St. Polten, sem er um 60 km. frá Vín, og gerði þar húsleit. Og þar fundu þeir sitt af hvoru, sem kom þeini á óvart. Ibúðin og kjallar- inn undir benni voru yfir- full af þjóffangi. Grufler var tekinn fastur þegar í stað. Jafnframt þjóf- fanginu, fannst ýmislegt, — sem lögreglan fékk strax á- huga fyrir. Meðal annars fundust 13 tannburstar, — sem allir höfðu tilheyrt kon um, einhver ósköp af kven- nærfatnaði og margar flösk ur með svefnlyfi,' sem ekki er til sölu í lyfjaverzlunum í Austurríki. Af 20 óleystum morðgátum í Vín upplýsti lögreglan hér 16 á einu bretíi, því munir þeir, sém fundust hjá Grufler til- hei/rðu 16 konum, sem allar höfðu horfið með dularfull- um hætti. Grufler neitaði öllu í lengstu lög. Jafnvel eftir að hafa játað, fæst lítið upp úr honum og hann hegðar sér rétt eins og hann hafi eng- an áhuga fyrir því sem hann hefur gert. .— Það er synd að ekki skuli vera dauðadómur í í Austurríki. Þá gætug þið hengt mig, sagði hann í yí- irneyrsiu. En þá hefði ég tekið svo mörg leyndarmál með mér í gröfina ao lög- reglan yrði að sætta sig við að glíma við margar óleyst- ar morðgátur. Ennþá hefur Grufler ekki játað nema fjögur morð. En sama aðferðin hefur verið notuð við þau 16, sem hann er grunaður um. í öllum til- felluimm hefur glas af blóð- lituðum Iíkjör komið mjög við sögu. Það var blanöað mjög sterku svefnmeðali, sem gerði fórnarlömbin með vitundarlaus. Þegar konurnar voru sofn aðar, henti hann þeim í fljót sem rennur skammt frá bænum. Síð'an ók hann heim til fórnarlambanna og rændi þar öllu, sem var einhvers virði. Þetta komst ekki upp, þrátt fyrir að fengurinn væri oft mikill fyrirferðar. Við yfirheyrslunrnar hef- ur Grufler oft gert lögregl- u.nni dráttinn erfiðan. Hann talar ekki nema þegar hon- um þóknast. •— Fái ég ekki betra rúm, þá segi ég ekki orð. — Fái ég ekki betri mat, þegi ég. — Fái ég ekki betri skó KIRSISiaNdill einnig komið við þ að minnsta kosti e velta fyrir sér no upplýstum morðu aldra konum, sen hafa verið á nái sama hátt og önn l'ömb Guflers. Þegar Gufler e um ferðalög sín ' lands, hl'ær hann — Viðskipti. — í raun og ve það ekki miklu r Gufler játar fleiri ekki, Hann verð lega dæmdur í lífs elsi. Samt sem á 'sakar lögreglan 2 morð sem álitið e hafi framið. — Ég sé að l að reyna að ger f jöldamorðingja, er. En fyrst verðu það á mig. Sjálfi ekki meira en n Ef ég kærði mig i sagt nokkrar s< kæmu liárinu til höfðum reynduíst gerðustu lögreglr Gufler rrjiin v rétti þessa dagan u re&iupu Og þannig hefur hann dregið yfirheyrslurnar mjög á langinn. í þau fjörutíu ár, sem ég hef starfað í sakamálalög- reglunni hef ég aldrei feng- ist víð morðingja sem stend- ur eins mikið á sama um það sem harm hefu.r gert, sagði dr. Farmanek., yfirmaður morðdeildarinanr. Það er ekki aðeins austurríska lög- reglan, sem er í vandræð- um með að fá Gulfer til að tala, heldur grunar þýzku Iögregluna að hann hafi SAMVIZKL lögregluþjónn, se ur í Bandaríkjun' mælalaust Jack IV cago. — Hann skömmu aö elta b auðsjáanlega ók um hr,aða. Skynd hann því eftirtek var sjálfur farinr löglegum hraða. stanzaði, sté hva1 skrifaði niður nad er lögreglubifreii Að því búnu sel sjálían sig um t En samvizkuserr mennska í starfi hávegum höfð ni — Þegar vesalii skýrði skilmerkil irsjón sinni, var inn á stundinni fj ekki, að lögreglui heimil-t að aka ei þeim sýnist. Frar.s tekst að vísu að Iosna úr heljargreipum mannsins, en fyrir bragðið lendir vélin nokkuð harka- lega annað hjólið brotnar af, vélin tekur ógurlegan rykk til hægri og fellur úl fyrir brautina ofan í þurra gryfju. iliSP-'stnr^ Frans stekkur sér hann ao dyn angursgeymslunr brotnað af og nol anna höfðu oltic nóg með það —höfðu einnig sur L L 6 10. jan. 1959 — Aljþýðubíaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.