Alþýðublaðið - 10.01.1959, Side 12
ngur jafnf yfir
SAMNINGAB ríkisstjórn-
arinnar við bátaútvegsmenn
'um |sá vertíð, sem hafin er,
byggjast allir ó þeirri for-
Kendu, að kaupgjalclsvísitala
veirði ut vertíðina 185. Ef
þessi . tala breytis, breytast
einnig þau kjör, sem útgerS-
armenn búa við.
Þcssi böfuðstaðreynd trygg
ir algerlega, að bátasjómenn
verði ekki látnir bera neinar
byrðar, scm útvegsmenn ekki
bera að sama skapi. Hefur
þess misskilnings gœtt nokk-
uð í umræðum um fiskverðs-
samninga sjómanna, að ætl-
unin ’væri að leggja byrðar á
þá en engar á útgerðina. Þetta
er að sjálfsögðu hinn herfi-
legasti misskilningur.
Það er algerlega nýtt í sögu
sjómannastéttarinnar, að ver-
tíðarsamningar skuli vera
tengdir vísitölu, í stað þess
að kjör sjómanna hafa hingað
til verið óbreytt út vertíðina,
hvað sem leið vísitölu. Nú
bregður svo við, að kommún-
istar berjast hatramlega gegn
]>essu atriði, eins og fleirum,
sem þeir áður fylgdu. Þeir
hafa snarsnúizt í þessu eins
og öðru.
Slkákinótið í Hollandi :
Friðrik vann íyrsly skákina
SiKÁKIVIÓTIÐ í Beverbejk í
ífoliandi hófst í gær, en í fyrra
Æag var dregið um röð kepp-
enda í flokkunum. Teflt er í
, 10 flokkum og ent keppendur
alls um 200 talsins.
í fyrstu umferð í efsta flokki
urðu úrslit þessi; FriSrik Ólafs-
son vann Barendregt, en jafn-
tefíi vavð hjá öllum öðrum;
Toran við Eliskases, Donner
við O’Kelley, Van der Berg við
Langeweg og Van Sheltinga
við Bent Larsen. — Er Friðrik
því efstur með 1 vinning eftir
fyrstu umferð.
EÖÐLN í EFSTA FLOKKI.
1 Skákröðin í efsta flokki er
þessi: 1. Toran, Spáni. 2. Bonn-
er, Kollandi. 3. Van d«r Berg,
Hollándi, 4. Friðrik Ólafsson,
fslandi. 5. Van Sheltinga, Hol-
iandi. 6. Bent Larsen, Dan-
mðrk. 7. Barendregt, Hollandi-.
8. Langeweg, Hollandi. 9. O’
Kelly, Belgíu. 10. Eliskases,
Argentínu.
TAIPEH; Talsmaður land-
vamaráðuneytisins sagði í dag;
að' kínverskir feommúnistar
hefðu aukið svo lið sitt á landi,
sjó og í lofti við ströndina, að
þeir gætu hvenær sem væri
gert árás á Quemoy og Matsu.
Friðrik Ólafsson.
§ær hófu brezkir foprar
andhelginni á ný
2 út af Ingólfshöfða og 3 við
Vestrahorm.
SVO SEM greint feefur verið
frá í tilkynningum lamdhelg-
isgæzlunnar eftir útfærslu fisk-
velðiiakniarkanna í 12 sjómil-
«ir, þá hafa brezkir togarar
stuindað ólöglegar veiðar undir
h trsklpavernd nær stöðugt áti-
fyrir Vestfjörðuin á tímabilinu
ftá 1. september til 3. desem-
ber sl., en síðan feafa engir
brezkir togarar verið þar að
veifhim, hvorki iiman fiskveiði
takmarkanna né utan.
Eftir að brezkir togarar
hættu ólöglegum veiðum fyrir
Vesturlandi hafa þeir einvörð-
nngu veitt við Austurland.
Fyrrihluta desembermánaðar
voru oftast einhverjir brezkir
togarar að veiðum irman fisk-
veiðitakmarkanna þar, en þó
fór þeim fækkandi þegar leið
á mánuðinn. T.d. hafa aðeins
tveir brezkir togarar veitt inn-
an 12 sjómílna markanna á
Framfeald á 2. síðu.
Hariur áreksf'
urá Lauga-
veginum
UMFERÐASLYS varð í fvrri-
nótt rétt fyrir kl. 2 á Lauga-
veginum.
Áreksturinn'vildi þannig til,
að leigubifreið kom akandi nið-
ur Laugaveginn. Nam hún stað
ar til þess að taka upp vegfar-
anda, sem hafði veifað.
Einkabifreið kom einnig ak-
andi niður Laugaveginn. Þrátt
fyrir það, að engin bifreið væri
á hægri vegarkanti, rakst. hún
aftan á leigubifreiðina mjög
harkalega.
Kona, sem var farþegi í einka
bifreiðinni, slasaðist á höfðj og
var flutt á slysavarðstofuna.
Báðar bifreiðarnar stór-
skemmdust. Grunur er um, að
bifreiðarstjóri einkabifi’eiðar-
innar hafi Verið undir áhrifum
áfengis.
40. árg. — Laugardagur 10. jan. 1959 —.7. tbl.
Kosoingabaráttan aö hefjast ;
ýðufiokksfélagið í Rvik
MADRID, 9. jan. (REUTER.
Rúmlega 150 manns er salcnað
og fjöidi annarra særður, eftir
að stífla brast í dag, svo að
vatnið úr tveggja mílna löngu
vatni flæddi með ofsahraða
yfir þorp og vinnubúðir verka-
manna nálægt landamærum
Portúgal. Stíflan, er nefnist
Vega de Tera, er í byggingu
við vatnið Sanabria um 150
mílur fyrir norð-vestan Madrid
og hrundi hún kl. 4 í nótt eftir
staðartíma, og fórnarlömbin
voru enn í fastasvefni. er
straunikastið færði þorpið Ri-
vadelago í kaf.
Óstaðfestar fregnir hermdu,
að um 250 manns úr þorpinu
hefði verið bjargað fram að
þessu. A.m.k. 14 lík hafa fund-
izt. Björgunarliðar störfuðu í
kvöld á flekum og bátum und-
ir stjórn sýslumannsins í Za-
mora-héraði. Mikið af húsbún-
aði og braki var á floti í vatn-
inu.
Fréttir frá þorpinu eru af
skornum skammti, þar eð veg-
urinn þangað rofnaði við flóð
og þar er enginn sími. Björg-
unarsveitir Rauða krossins,
hersins og lögreglunnar lögðu
Framhald á 2. síðu.
Emil Jónsson forsætisráðherra og
Gylfi Þ. GísSason menntamálaráð'
her.ra flytja framsöguræðnr.
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR heldirr
f.yrsta fund sinn á árinu næstkomandi þriðjudag, 13. þ m.
klukkan 8,30 síðdegis í Iðnó, niðri.
Á fundinum mun verða rætt um stjórnmalaviðliorf-
ið og efnahagsmálin. — Framsögumenn verða : Emil .Tóns-
son forsætisráðherra, formaður Alþýðuflokksins, og Gylfi
Þ. Gíslason menntamálaráðherra, ritari flokksins.
Með fundi þessum hefst kosningabarátta flokksins í
Reykjavík, þar sem fullvíst er ú, að kosið verður í vor.
Allt Alþýðuflokksfólk er velkomið á fundinn og er
þess fastlega vænzt, að sem flestir flokksmenn mæti og
geri bennan fyrsta fund kosningabaráttunhar sem glæsi-
legastan.
Áburðarframl
minm ve
Pressumenn óshast
vakfavinna
Prentsmiðja AIJ>ýðubIaðsins
FRAMLEIÐSLA Áburðarverk-
smiðjunnar h.f. árið 1958 var
17i650 lestir af Kjarnaábnrði.
Hefur framleiðslan minnkað
frá því á árinu 1957, en þá var
: framleiðsla 19.970 lestir af
í Kjarnaáburði.
j Framkvæmdastjórn verk-
smiðjunnar þótti sýnt á árinu
11957, að afköst verksmiðjunn-
I ár færu minnkandi vegna raf-
magnsskorts, og var því tekið
fyrir útflutning á áburðinum
á því ári. Þetta reyndist líka
rétt, því að framleiðsla verk-
smiðjunnar á Kjarna var árið
: 1956 21,230 lestir, 1957 var hún
19,970 lestir og árið 1958 var
hún 17.650 lestir.
i
FRAMLEIÐSLAN EKKI
NÆGILEG FYRIR INNAN-
LANDSNOTKUN.
Ekki hefði verið hægt að full
nægja eftirspurninni innan-
lands, hefði stjórn verksmiðj-
unnar ekki verið svo forsjál að
taka fyrir útflutninginn. Vegna
þeirra birgða, sem safnazt
höfðu frá 1957, var hægt að
fullnægja eftirspurn árið 1958,
og sést hin minnkandi fram-
leiðsla bezt á því, að salan það
ár var meiri en framleiðslan.
Sýnt þykir, að framleiðslan
árið 1959 muni ekki fullnægja
eftirspurninni.
MINNKANDI AFKÖST
VEGNA RAFMAGNS-
SKORTS.
Ástæðan fyrir hinni minnk-
andi framleiðslu er rafmagns
skorturinn. Hin almenna •
kun á rafmagni fer stöðugt
andi með fólksfjölgunin
bænum, auk þess sem’ alls 1:
ar iðnaður fer vaxandi.
Forráðamenn Áþurðarv
smiðjunnar vonast til að fr
leiðslan aukist aftur nr
vetur, en þá er búizt við
að hægt verði að fá meira
magn frá nýju Sogsvirk
inni.
ot-
í
zn-
k-
;.i-
~
.fsf-
un-
LONDON: Sir Winstcn
Churehill fer á mánudaginn
flugleiðis til Marrakesh í Mar-
okkó í flugvéþsem gríski skipa
eigandinn Onassis hefur fengið
honum til ferðarinnar. Flugvéi-
in er frá gríska flugfélaginu,
sem Onassis á.
s
unnudags
BLADID
sem kemur út um þessa helgi,
flytur meðal annars þetta
efni: Bóknfenntirnar og sam-
tíðin, eftir Stefán Júlíusson,
formann Félags ísl. rithöf-
unda, Þrjú ljóð, eftir Gísla
Indriðason, Nótt í dalnum,
smásögu eftir Þorl. B. Þor-
grímsson, „Hugsjónamanns
minnst“, eftir Gretar Fells.
Þýdda grein er nefnist „Ég
fann mér dóttur", smásöguna
„Eiginmaðurinn frjáls“ og ný
spennandi framhaldssaga
hefst í þessu tölublaði er nefn
ist „Gift ríkum manni“. Þá
er í blaðinu þættirnir Hitt og
þetta, Vér brosum og fleira.