Morgunblaðið - 27.07.1990, Síða 7

Morgunblaðið - 27.07.1990, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1990 C 7 Steypibaö f stað kerbaðs. Með því að fara í steypibað í stað kerbaðs er hægt að spara um 100 lítra vatns hverju sinni. Árlega er því hægt að spara álitlegar fjárhæðir sem annars færu í hitaveitukostnað. SUbUÞVoTTQfL ( Si/BVirAT)? — Suðuþvottur óþarfur. Oftast nægir að þvo þvottinn í 60 gráðu heitu vatni. Með því má spara rafmagn og komast hjá of mikilli froðumyndun. Slá í stað þess að eitra. Skordýraeitur er skaðlegt mönnum. Ef notkun flugnaeiturs er óhjákvæmilegt verður að gæta þess að lofta vel út á eftir. Snúrur í stað þurrkara. Rafmagnsnotkun fyrir fimm kíló af hálfþurr- um þvotti þurrkuðum í vél, er hin sama og fyrir þvott sem þveginn er á suðu í þvottavél. Glerílát f stað blikkdósa. Árlega lenda blikkdósir í tugþúsundatali 4]F^> (E>©0 á sorphaugum þrátt fyrir nýtilkomna endurvinnslu þeirra. Glerílát má hins vegar nota aftur og aftur. Net, töskur og körfur í stað plastpoka. Þaðþarfiao lítra af olíu til að framleiða 3 þúsund plastpoka. Með sama magni af hráolíu mætti t.d. hita upp 4ra herbergja íbúð í sjö daga í frostlausu veðri. í sumum verslunum fara allt að 2 til 3 þúsund plastpokar yfir búðarborðið daglega. ingu til að fá ýstru þar sem þeir hafa virkari alpha viðtaka í fitunni á kviðnum og er ástæðan sögð vera kyntengd. Þegar alpha viðtaki er örvaður, kemur það í veg fyrir að fitan losnar og getur fruman orðið feitari en áður. Þegar aftur á móti beta viðtaki verður fyrir örvun, myndast ífrumunni efna- hvati (lipasi) sem brýtur niðurfit- una. Alpha og beta virkni er að öðru leyti sögð vera svipuð hjá báðum kynjum. Leibel segir að ef til væri aðferð við að losna við hæfilega mikið fitu- magn af kviðnum til að viðhalda góðri heilsu, þá væri ekki um neitt vandamál að ræða, en aðferðir liggja ekki á lausu. Niðurstöður þykja ekki bjartar fyrir þá sem vilja losna við „keppi" hér og „keppi" þar. Það kom í Ijós við rannsóknir á 18 konum, sem fóru í megrun með hjálp matar- kúrs, að líkamshlutföllin breyttust ekki á meðan þessir alpha og beta viðtakar juku virkni sína ífitufrum- unum. Hlutföll breyttust ekki við 10% þyngdarmissi, aðalbreytingar sem komu fram á störfum viðtak- anna voru þó aðallega á líkams- svæðum við læri og kvið. Vísinda- menn hafa enga skýringu fundið á því hversvegna þessir mikilvægu hormóna viðtakar virðast lítil áhrif hafa á líkamsvöxtinn. M. Þorv. Asperín og hjartasjúkdomar Aundanförnum árum hefur mikið verið rætt og ritað um áhrifamátt asperíns eða magnyls til að draga úr hjarta- sjúkdómum. Hér eru síðustu frétt- ir. Heilbrigðir karlar 50 ára og eldri eru sagðir geta dregið um helming úr áhættu á sínu fyrsta hjartaáfalli með því að taka inn asperín annan hvern dag, segir í skýrslu sem birt var í „Physician’a study". Niður- staðan er ekki í samræmi við eldri niðurstöður um að asperín inntaka komi ungum körlum á sama hátt til góða. Rannsóknarhópur Harvard læknaskólans og Brighams og Women’s sjúkrahússins í Boston komust að þeirrifmiðurstöðu að læknar sem tóku inn 325 gr af asperíni annan hvarn dag, gátu dregið úr áhættu á hjartaáfaíli um sem svarar 44% miðað við viðmið- unarhóp sem tók inn óvirkt efni. Rannsókninni var hætt áður en vísindamenn gátu ákveðið hvort asperinmeðhöndlun nái að draga úr fjölda dauðsfalla af völdum hjartaáfalla. Einn meðlimur rannsóknarhóps- ins, Julie E. Burling, sagði að trú- lega hefði þurft að halda þessum rannsóknum áfram til ársins 2000 til að geta ákveðið hvort asperínið geti í raun bjargað mannslífum. Hún. hefur bent á, að þó að í rannsókninni, sem stóð yfir í 6 ár, hafi verið fleiri en 22 þúsund lækn- ar á aldrinum 40-80 ára, þar a meðal 9.000 karlar á milli fertugs og fimmtugs, þá væri hópurinn samt of fámennur til að hægt sé að sýna fram á svo óyggjandi sé, að asperín g0ti komið í veg fyrir eða dregið úr hættu á hjartaáfalli hjá körlum innan við fimmtugt. Burling segir að þrátt fyrir niður- stoður rannsóknanna á læknunum þá ættu læknar að takmarka fyrir- byggjandi asperínmeðhöndlun við karla yfir fertugt þar sem hætta gæti verið á hjartaáfalli. Fram kom að minna hafi verið um hjartaáföll hjá þeim sem tóku asperínið eða 139 en viðmiðunar- hópnum sem tók óvirkt efni eða 239. Áhrif asperíns við að draga úr hjartaáföllum eru sögð geta haft víðtækari þýðingu en sem svarar prósentuhlutfallinu. En 44% fækkun er sögð samsvara því að hjartaáföllum megi fækka um fjögurá hverja 1.000 íbúa á ári. Aukaverkanir eru þættir, sem taka verður tillit til, og geta komið fram í aukningu á blæðingum og magasóri. Marc Cohen, sem einn- ig er höfundur að asperínskýrsl- unni, segir að þessa þætti verði að vega og meta þar sem ekki sé réttlætanlegt að láta 20.000 manns taka áhættu á magasári til að auka lífsmöguleika fjögurra manna. Hann er hlynntur þvi að asperínmeðferðin verði notuð þeg- ar um er að ræða fólk í áhættu- hópi. Julie L. Burling hefur látið uppi að hennar rannsóknarhópur hafi ákveðið að framkvæma svipaða asperinrannsókn á konum - að þessu sinni á 44.000 hjúkrunar- fræðingum! M. Þorv.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.