Morgunblaðið - 04.08.1990, Page 4

Morgunblaðið - 04.08.1990, Page 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚÍ?T 1990 RÆTT V I Ð ÁSKEL MÁSSON TONSKÁLD til undirmeðvit- undarinnar. Tón- list er mynd af því sem við ekki sjáum. Því er um- fjöllunarefnið í tónlist oftast til- óperu í smíðum fínningalegs eðl- is.“ Ekki ætlar Áskeli Másson þó að sitja stöðugt við að semja á næstunni. Á Norr- þar svona fram úr. Hún var 11-12 ára gömul þegar hún missti heym- ina, sem hlýtur að hafa verið fyrir hljóðfæraleikara eins og að ganga inn í blindgötu. Það sem er erfíð- ast að skilja er að hún leikur jöfn- um höndum með hljómsveitum og einleik og ómögulegt að merkja að hún heyrir ekki. Á diskinum flytur hún bæði fræg verk og lög sem allir þekkja. Hún er alveg ákveðin í því að vinna slagverkinu sess í Bretlandi. Mitt verk hefur hún þegar flutt mjög víða. Og hún hefur í hyggju að fiytja önnur og stærri verk eftir mig í framhaldi af þessu,“ segir Áskell. Hann kvaðst ekkert hafa vitað um þetta fyrr en Evelyn skrifaði honum til íslands og spurði um fleiri verk. Áttu þau í nokkrum bréfaskriftum áður en hann fór utan. Eftir tón- leikana ræddu þau þetta verk og önnur. En hvaða stóra sinfóníska verk er þetta sem Áskell er nú að vinna að? „Ég hefi stöðugt verið að vinna að því síðan í mars. Þetta er heljarstór sinfónskur þríleikur. Verkið er skrifað fyrir 100 manna hljómsveit. Því er skipt í þijá þætti, sem bera heiti höfuðskepna og er umfjöllunarefni þeirra marg- þætt. Þættimir heita Hyr, sem þýðir eldur, Rá, sem er jarðar- kenning og Hvel þar sem fjallað er um upphiminslega hluti. Eg er að ljúka fyrsta þættinum, sem er um helmingur verksins." Þegar Áskell er spurður hvar þetta verk verði flutt, kveðst hann hafa sýnt það hljómsveitarstjóranum Petri Sakari, sem tók því vel og taldi hugsanlegan möguleika á að Sin- fóníuhljómsveitin gæti flutt það í lok starfsársins 1991-1992. En Sinfóníuhljómsveitin frumflutti básúnukonsert hans undir stjóm Sakaris í fyrra. „Til þess að flytja þetta verk þarf fjölda aukahljóð- færaleikara og aukahljóðfæri, sem þeir hafa ekki. Maður verður bara að sjá til,“ sagði Áskell. Þegar þessum stóra þríleik er lokið hefur Áskell hugsað sér að ljúka við óperuna, sem hann segir að sé mjög langt komin. Vonast til að geta lokið henni á næsta ári. Þessa ópem er hann að semja út frá bókinni Klakahöllin eftir norska rithöfundinn Taije Wesaas. „Ég las verkið og heillaðist af því. Allt í einu rann upp fyrir mér að bókin væri tilvalin í ópem. Ég fór því til ekkju rithöfundarins, skáldkonunnar Halldisar Moren, sem þá var 82ja ára gömul en samt eldhress á leið til Afríku. Hún gaf mér skriflegt leyfi til þess að nota textann. Síðan hefí ég unnið að þessu verki í ígripum, en hefí orðið að taka að mér önn- ur verkefni á milli til lífsviðurvær- is. Mest hefí ég unnið að ópemnni undanfarin þijú ár. Hannes Pét- ursson þýddi Klakahöllina á ís- lensku og við unnum saman text- ann að óperanni. Hún er í þremur þáttum og átta atriðum. Ég er búinn með tvo fyrstu þættina, en sá þriðji er stystur, aðeins tvö at- riði. Svo þetta er langt komið. Maður veit aldrei nákvæmlega hvernig verkin raðast," segir Það bar til tíðinda sunnudaginn 20. maí í vor að Evelyn Glennie flutti verkið Prim eftir Áskel Másson á tveimur stöðum í London sama daginn, í Royal Festival Hall sem hluta af hinum þekktu „Music for Life“-tónleikum og einnig á tónleikum í Wigmore Hall. Þetta verk er fyrir ásláttarhljóðfæri, sem er sérgrein þessarar dáðu, heyrnarlausu tónlistarkonu. Tónskáldið Áskell Másson var staddur í London, þar sem hann var í mánuð að vinna að geysistóru sinfónísku verki, sem hann er með í smíðum. Þegar við fórum eftir heimkomu hans að leita frétta af þessu, kom í ljós að hjá honum er margt á döfinni. M.a. ópera í smíðum, verk fyrir sjónvarp, pantað verk fyrir óbó og sembal fyrir tónleika í London o. fl. Hann hafði verið að vinna við tónsmíðar, eins og hann er vanur, frá því snemma um morguninn og fram yfir hádegið þegar hann gaf sér tíma til þess að ræða við blaðamann Mbl. Fyrst var hann spurður um tónleikana í London. Morgunblaðið/KGA Áskell Másson tónskáld með stóru sinfóníuna, þríleikinn sem hann er að vinna að. ara, „The Clarinet“. í þessu hefti þessa alþjóðlega blaðs er m.a. umsögn um tvo hljómdiska, en á öðmm eru eingöngu verk eftir Áskel Másson. Þar er Einar Jó- hannesson klarinettleikari í aðal hlutverki við flutning verkanna. Hann leikur m.a. Trío eftir Áskel. Eftir kynningu á tveimur verkum Áskels, honum sjálfum og Einari segir m.a. um verkið Trío: „Þetta er mjög áhugavert verk, sem gæti auðveldlega orðið hluti af sígildri efnisskrá klarinettleikara. Þessi hljóðfæraskipan hentar klarinett- inu mjög vel — hin óvenjulega samsetning með fíðlu og víólu veitir möguleika á að setja klari- nettið bæði í einleiks og kammer- hlutverk." Um klarinettkonsertinn á diskinum segir m.a.: „Þetta er frekar erfítt verk í flutningi. Skipt- ingar frá „nútímalegri“ tónsetn- ingu yfír í hefðbundnari, næstum impressionískan stíl em tíðar. Hljómsveitin er mjög vel nýtt í samsetningu hljóðfæra og vefn- aði.“ Er í blaðinu borið lof bæði á verk tónskáldsins og flutning Ein- ars Jóhannessonar á því. Þennan klarinettkonsert ætlar Einar Jóhannesson að flytja með Sinfóníuhljómsveitinni í Dublin 7. september næstkomandi og verður honum sjónvarpað beint. Og leikur hann síðan aftur í Jönköbing 16. desember. „Á næsta ári er ég að vonast til að geta samið fyrir Ein- ar stórt einleiksverk, sem ég hefi gert drög að. Það á að heita Drama. Og eins og nafnið bendir til er þetta leikrit í tónum, þar sem klarinettið leikur öll hlutverkin," útskýrir Áskell. „Ég ætla þó ekki að fara að segja sögu. Ég set upp persónur, sem hittast og hlutir gerast þegar ólíkar persónur mæt- ast. Tónlistin höfðar svo mikið Evelyn Glennie, heyrnarlausi hljóðfæraleikarinn frægi, sem nýlega flutti ásláttarverk Áskels Mássonar í Royai Festival Hall. Áskell. „Ég er semsagt hálfnaður með þríleikinn. Og ætla eftir það að semja verk fyrir óbó og semb- al, sem búið er að panta hjá mér og á að flytja í Purcell Room í London í janúar á næsta ári. Það getur orðið viss hvíld frá þessum stóm verkum, áður en ég tek til við ópemna aftur. Sama verður með samstarfsverkefni fyrir sjón- varp, sem er í deiglunni." Þegar spurt er nánar út í það, segir Áskell að hann, Thor Vil- hjálmsson rithöfundur og Örn Þor- steinsson myndlistarmaður séu að vinna saman verkefni fyrir Sjón- varpið. Þetta verk er einhvers kon- ar ljóð á kvikmyndavísu (poéme cinematographique), þar sem tón- list er fullvirkur þáttur heildarinn- ar. _ Á borðinu fyrir framan okkur liggur helsta fagblað klarinettleik- ænum músíkdög- um í Helsinki 19.-24. október í haust verður flutt sonata eftir hann og ætlar höfund- urinn að vera þar viðstaddur. „Ti- mothy Ferchen leikur þetta verk, sem er samið fyrir gríðarmikið slag- verk. Leikið á nær 70 hljóðfæri. Svið- ið er fullt af hljóð- færam og Ferchen verður með fjóra segla í gangi allan tímann,“ útskýrir hann sposkur, þegar hann sér undranarsvipinn á blaðamanni. Þetta sama verk verður líka flutt af sænskum slagverksleikara, sem heitir Roger Carlsson, í Gautaborg í október. Hann er þegar búinn að leika verkið inn á geisladisk. Og sami maður mun fmmflytja marimbukonsert Áskels Mássonar í Gautaborg í ágúst á næsta ári. Þennan Marimbukonsert hefur Evelyn Glennie líka mikinn hug á að flytja, en hún hefur sérhæft sig á marimbu. „Ég næ engan veginn að vinna jafn hratt úr hugmyndunum og þær koma til mín“, sagði Áskell Másson að lokum, þegar haft var á orði við hann að hann sæti sýni- lega ekki auðum höndum.„Nú þegar á ég skissur og efnivið í ýmis verkefni sem tæki mig lík- lega um áratug að vinna úr.“ Viðtal: Elín Pálmadóttir Það kemur í ljós að Prim er frekar óvenjulegt verk, samið fyrir eina trommu. Eitt af örf- áum verkum af þeirri gerð sem samið er fyr- ir ein leikstónleika. Þetta verk Áskels er víða kennt sem lokaverkefni til einleikara- prófs í tónlistarskólum, m.a. í kon- unglegu skólunum í Danmörku og Svíþjóð. Það var samið sérstaklega 1984 fyrir danska slagverksleikar- , ann Gert Mortensen, sem bað Áskel um það og flutti það skömmu seinna á miklu tónleika- ferðalagi um Norðurlönd. Fram- flutti það í Berwald-höllinni í Stokkhólmi og var því útvarpað beint_ til hinna landanna. Sjálfur gat Áskell því hlustað á það þar sem hann var staddur í Jónshúsi í Kaupmannahöfn, að vinna að ópem sinni Klakahöllinni. Síðan hefur Gert Mortensen flutt það víða og aðrir líka. Og nú mun Evelyn Glennie halda áfram að flytja það. Evelyn Glennie er mjög vinsæl og dáð í Bretlandi. Hún er ekki nema 24ra ára gömul, en samt var nýlega gefin út ævisaga henn- ar „Good Vibrations", svo og ný- kominn út hljómdiskur með flutn- ingi hennar á ýmsum verkum. Sagði Áskell Másson að plakat með henni væri að sjá um alla London. „En það er ástæða fyrir ævisögu þessarar ungu konu. Eve- lyn Glennie er heymarlaus. Og alveg furðulegt að hún skuli geta leikið á hljóðfæri, hvað þá skarað Með sinfóníu og

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.