Morgunblaðið - 15.08.1990, Síða 1

Morgunblaðið - 15.08.1990, Síða 1
40 SIÐUR B/ STOFNAÐ 1913 182. tbl. 78. árg. MIÐVIKUDAGUR 15. AGUST 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins * Israel: Hrifning vegna boð- skapar Iraksforseta veldur áhyggjum Jerúsalem. Frá Jóhönnu Kristjónsdóttur, blaöamanni Morgunblaðsins. GASGRIMUÆÐIÐ sem var hér í Israel fyrstu dagana eftir að hersveitir Saddams Husseins Ir- aksforseta réðust inn í Kúvæt virðist í rénun og nú eru grímur ekki fáanlegar nema sérstakt leyfi sé veitt. Almenn skelfing greip um sig vegna hugsanlegrar efnavopnaárásar íraka en ísr- aelsk stjórnvöld virðast ekki síður hafa áhyggjur af þeirri hrifningu sem boðskapur Sadd- ams hefur vakið í röðum ísra- elskra araba. Einn yfirmanna blaðamanna- miðstöðvarinnar hér í Jerúsalem sagði í samtali við Morgunblaðið í gærmorgun að þessa dagana stæði stjórnvöldum ólíkt meiri ógn af því að ísraelskir arabar virtust fylkja sér um hugmyndir Saddams íraks- forseta. „Það var blásið upp í fjöl- miðlum að allir væru að ærast af hræðslu við hugsanlega efnavopna- árás en við erum alvarlega hugs- andi vegna þess að ísraelsku ara- barnir, sem hafa haft hægt um sig frá því uppreisn Palestínumanna hófst, virðast nú gleypa hráar hug- myndir Saddams um „lausn Pal- estínuvandans,“ sagði hann og var einkar áhyggjufullur. I ræðu sem íraksforseti flutti á sunnudag sagð- ist hann m.a. vera tilbúinn til að semja um hernám Kúvæts gegn því að Israelar kölluðu her sinn heim af landsvæðum Palestínumanna. Boðað hefur verið til verkfalls í arabískum byggðum á Vesturbakk- anum i dag, miðvikudag, og það sem er sérstætt við það er að efnt er til þess til að ítreka stuðning við íraksforseta en ekki er verið að mótmæla almennt hernámi ísraela. í gær voru írösk flögg hengd á veggi í Nazaret þar sem meirihluti arabanna er kristinn og víða mátti sjá myndir af Saddam Hussein. Israelskir hermenn fjarlægðu þetta en almenningi finnst greinilega sjálfsagt að lýsa yfir stuðningi við hugmyndir íraka. Mustafa Abden teppasölumaður sagði að flestum fyndist það í sjálfu sér rangt að eitt arabaríki réðist á annað. „En Flóa-arabar hafa aldrei sýnt skilning á málefnum Palestínu- manna svo að þetta er eiginlega bara gott á þá.“ Einmitt þessi beiskja í garð Kúvæta og annarra ríkja við Persaflóa er mjög áber- andi hvort sem er hér í Israel eða í Jórdaníu. Reuter Kúvæsk stúlka fagnar því að vera komin til Jórdaníu eftir langa ferð frá hersetnu heimalandi sínu gegnuin írak. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna: Ágreiningur um réttmæti flotaaðgerða við Persaflóa Hussein Jórdaníukonungur hafði viðdvöl í Keflavík á leið til Bandaríkjanna Washinjrton. Reuter. BOÐAÐ var til fundar fastafulltrúa Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í gær til að ræða ágreining um hvað viðskiptabann ráðsins gagnvart Irak feli í sér. Bæði er deilt um umfang bannsins og þær aðferðir sem leyfilegar eru til að framfylgja því. Bandaríkjamenn og Bretar virðast staðráðnir í að framfylgja banninu með hervaldi ef þörf krefur. Breska dagblaðið The Daily Telegraph hefur hins vegar eftir heimildum hjá Sameinuðu þjóðunum að fulltrúar Sovétríkjanna, Frakklands. Kanada og Malaysíu hafi gagnrýnt beitingu hervalds á lokuðum fundi Öryggis- ráðsins í fyrradag. Þeir telji að flotanum sem nú er stefnt til Persa- flóa og Rauðahafs sé ætlað að fylgjast með viðskiptabanninu fremur en koma á hafnbanni. Hussein Jórdaníukonungur hélt í gær til Banda- ríkjanna til viðræðna við George Bush Bandaríkjaforseta. I gærkvöldi millilenti flugvél konungsins á Keflavíkurflugvelli. Brésk og bandarísk stjórnvöld hafa lýst því yfir að þau áskilji sér rétt til að fara um borð í hvert skip sem grunað er um að bijóta gegn viðskiptabanninu. William Wal- degrave, aðstoðarutanríkisráðherra Bretlands, segir að þessi ákvörðun hafi verið tekin eftir að útlagastjórn Kúvæts fór fram á það við Breta að þeir framfylgdu viðskiptabanninu gagnvart írak. Þar með sé kominn lagalegur grundvöllur fyrir flotaað- gerðunum í krafti réttar Kúvæts til sjálfsvarnar. Bretar og Bandaríkja- menn varast að lýsa aðgerðum flota sinna sem hafnbanni því það er stríðsaðgerð samkvæmt alþjóðalög- um. í yfirlýsingu franska utanríkis- ráðuneytisins er gefið til kynna að Bretar og Bandaríkjamenn hafi farið út fyrir ramma samþykktar Öryggisráðsins með því að fyrirskipa Stríðið í Líberíu: Leiðtogi klofningshóps upp- reisnarmanna sagður hafa fallið Freetown, Abitöan. Reuter. UPPREISNARMENN í Líberíu undir stjórn Charles Taylors sögð- ust í gær hafa fellt Prince Yormie Johnson, leiðtoga annars upp- reisnarhóps, í gærmorgun. Þetta hefur ekki verið staðfest og reynd- ar hringdi maður í breska útvarpið BBC í gær, sagðist heita Prince Johnson og vera öldungis bráðlifandi. Johnson stjórnaði klofningshópi á meðal uppreisnarmannanna, sem stefndi að því að steypa Samuel Doe, forseta landsins, og koma í veg fyrir að Charles Taylor, sem hóf uppreisnina fyrir átta mánuð- um, hrifsaði til sín völdin. Talsmað- ur Taylors sagði að Johnson hefði fallið eftir árás úr launsátri á Bushrodey, norðan við höfuðborg landsins, Monróvíu. Johnson hefði verið á flótta úr borginni þar sem hann hefði misst flesta af fylgis- mönnum sínum í bardögum við stjórnarherinn. „Dauði Johnsons merkir að við getum nú barist að nýju við Doe og erlendar hersveitir hans,“ sagði talsmaðurinn og bætti við að hermenn frá Gíneu berðust fyrir forsetann. Meira en hundrað útlendingar voru fluttir með bandarískum þyrl- um frá landinu til nágrannaríkisins Sierra Leone. Þeir sögðu að ógnar- öld ríkti á því litla svæði sem stjórn- arherinn hefði enn á valdi sínu í miðborg Monróvíu. Hermenn hefðu gengið um rænandi og ruplandi og drepið óbreytta borgara að ástæðu- lausu. Lík 600 flóttamanna, sem drepnir voru í lúterskri kirkju, lægju enn óhreyfð í kirkjunni. Hermenn Does ráða yfir litlu svæði umhverfis forsetahöllina í Monróvíu. Fylgismenn Johnsons hafa haft úthverfi <í norðurhluta borgarinnar á sínu valdi en afgang- urinn af landinu er að mestu á valdi uppreisnarmanna Taylors. Nokkrir flóttamannanna í Sierra Leone sögðu næsta öruggt að upp- reisnarmenn Taylors myndu beij- Prince Johnson - lífs eða lið- inn? ast við herlið Vestur-Afríkuríkja, sem fara á inn í landið á næstu dögum til að stilla þar til friðar. Sveitunum er ætlað að koma á bráðabirgðastjórn án aðildar leið- toga hinna stríðandi fylkinga. herskipum sínum að stöðva skip sem flytja varning til og frá írak. Frönsk stjórnvöld hafa lagt áherslu á lausn deilunnar í Miðausturlöndum með hjálp samningaviðræðna. Einnig er talið að Frakkar vilji láta arabaríki um að leysa málið. Frönsk stjórnvöld hafa sent stjórnarerindreka til 24 arabaríkja og óháðra ríkja til að út- skýra stefnu sína. Að sögn bandarískra embættis- manna hafa Sovétrpenn stungið upp á því að hermálanefnd Sameinuðu þjóðanna verði falin umsjón með hernaðaraðgerðum ýmissa ríkja gagnvart írak. Nefndin' hefur það hlutverk samkvæmt sáttmála Sam- einuðu þjóðanna að veita Öryggisráð- inu hernaðarlega ráðgjöf en lítið hef- ur farið fyrir starfi hennar. Ef af verður þá eiga sæti í nefndinni for- setar hermálaráða þeirra fimm ríkja sem eiga fastafulltrúa í Öryggisráð- inu. Fréttaskýrendur segja að þótt. Sovétmenn og Bandaríkjamenn hafi sýnt einstaka samstöðu í þessu máli þá hafi hinir fyrrnefndu haft nokkrar áhyggjur af hernaðaruppbyggingu Bandaríkjamanna í Saudi-Arabíu og nágrenni og viljað að Sameinuðu þjóðirnar hefðu yfirumsjón með að- gerðum. Hussein Jórdaníukonungur hittir Bush Bandaríkjaforseta að máli á morgun á sumardvalarstað forsetans í Maine-ríki. Bandarískir embættis- menn segja að Hussein ætli að leggja fram tillögur um hvernig koma megi í veg fyrir sríð við Persaflóa. Jórd- aníukonungur fór til Bagdad og hitti Saddam Hussein, forseta íraks, á mánudagskvöld. Breska útvarpið BBC segir að konungur hafi bréf meðferðis til Bush frá íraksforseta þar sem meðal annars sé rætt um tilslakanir varðandi Vesturlandabúa í írak og Kúvæt. Sjá fréttir á bls. 17.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.