Morgunblaðið - 15.08.1990, Page 4
4
%
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990
Morgunblaðið/Einar Falur
Fremst sést heillegusta hleðslan, sem fundizt hefur í rústunum hingað til, líkast til frá byrjun klaustur-
halds í Viðey. Átta manns vinna nú að uppgreftrinum.
Fundinn ofn frá því fyr-
irtíma Viðeyjarklausturs
LEIFAR af ofni frá því fyrir
stofnun Viðeyjarklausturs árið
1226 og heilleg steinhleðsla frá
upphafi klausturhalds í eynni eru
á meðal þess, sem fundizt hefur
við uppgröftinn norðan við Við-
eyjarstofu á síðustu vikum.
Margrét Hallgrímsdóttir, forn-
leifafræðingur og borgarminja-
vörður, segir að fullsannað sé að
byggð hafi verið í eynni áður en
þar kom klaustur.
VEÐURHORFUR í DAG, 1B. ÁGÚST
YFIRLIT í GÆR: Fyrir norðnorðaustart land er 994 mb. lægð sem
þokast norðaustur. Á norðanveröu Grænlandshafi er smá lægð sem
þokast austur.
SPÁ: Hæg suö-austan eða breytileg átt og skúrir á Suðaustur- og
Austuriandi en norðaustan gola eða kaldi í öðrum landshlutum.
Súld eða skúrir við norðurströndina en léttskýjað á Suðvestur- og
Vesturlandi. Hiti viðast á bilinu 7-11 stig norðanlands en 11-16
stig sunnan til á landinu.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Norðanátt, skýjað og
skúrír eða súld norðanlands en léttskýjað sunnanlands og vestan.
Svalt norðanlands en 10-16 stiga hiti syðra.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V El
— Þoka
— Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
[T Þrumuveður
H
VEÐUR VlBA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hitl veöur
Akureyri 9 suld
Reykjavik 12 skúr
Bergen 14 skúr
Helsinkl 22 téttskýjað
Kaupmannahöfn 24 þokumóða
Narssarssuaq 9 skýjað
Nuuk 8 þoka
Ósló 18 skýjað
Stokkhóimur 22 þokumóða
Þórshöfn 12 skýjað
Algarve vantar
Amsterdam 23 léttskýjað
Barcetona 28 léttskýjað
Berlfn 27 skýjað
Chicago 12 téttskýjað
Feneyjar léttskýjað
Frankfurt 19 þrumuveður
Qlasgow 18 úrkomaígr.
Hsmborg 24 skýjað
la8 Palmas 24 skýjað
London 22 skýjað
LosAngeles 19 aiskýjað
Utxemborg 20 skýjað
Madríd 31 iéttskýjað
Malaga 29 mlstur
Mallorca 32 léttskýjað
Montreal 16 rigning
NewYork 22 léttskýjað
Orlando vantar
P8rfs 28 léttskýjað
RÓm 28 hélfskýjað
Vin 30 skýjað
Washington 22 skúr
Wlnnipeg 12 léttskýjað
Margrét Hallgrímsdóttir bendir á móöskulag frá 10. eða 11. öld, úr
ofni sem verið hefur eldri en sá sem sést hægra megin á myndinni
og staðið dýpra. Hér sést í „bakið“ á ofninum, en rústir hússins sem
hann hefur hitað upp eru órannsakaðar inn af honum. Á myndinni
sést glöggt hversu djúpt fornleifafræðingarnir hafa grafið á fjórum
sumrum rannsókna í Viðey - með múrskeiðum.
Að sögn Margrétar er staðfest
að stóri miðaldaskálinn, sem unnið
er við að grafa upp, var minnkaður
er leið á miðaldir, og kemur það
heim og saman við kenningar um
þróun húsagerðar á íslandi. Híbýlin
hafa verið minnkuð vegna skorts á
timbri og kólnandi veðurfars, til
þess að auðveldara væri að hita þau
upp.
Hleðslan, sem er nýfundin, er
mjög heilleg og er hún elzta hleðsl-
an, sem fundin er úr skálanum,
líklega frá byrjun 13. aldar. Frá
svipuðum tíma er eldstæði sem
nýlega var grafið upp, en í því fund-
ust brot úr stórri klébergsgrýtu.
Pottar voru tálgaðir úr klébergi þar
sem það er mjúkt og meðfærilegt
og leiðir vel hita. Slíkir gripir hafa
líkast til verið fluttir inn frá Nor-
egi. Margrét segir að grýtan, sem
fannst í eldstæðinu, sé líklega sú
stærsta, sem fundizt hafi hér á
landi.
Ofninn sem nýlega kom í ljós er
nyrzt í uppgreftrinum og virðist að
sögn Margrétar tilheyra húsi, sem
staðið hefur norðan svæðisins, sem
hingað til hefur verið grafið í, og
er ófundið. Ofninn hefur líkast til
hitað upp einhvers konar baðstofu
eða jarðhýsi, og í honum hefur ver-
ið brenndur mór, sem sést af rauðri
móösku í jarðveginum.
Þá hefur fundizt torfhleðsla, sem
kom gröfurum nokkuð á óvart að
sögn Margrétar, þar sem hún virð-
ist ekki hluti af stóra miðaldaskál-
anum. Af öskulögum í torfinu má
merkja að það hafi verið skorið um
1000, en ekki er ljóst hvers konar
mannvirki hleðslan hefur tilheyrt.
Margrét segir að gjóskulög séu
skýr í jarðveginum í Viðey og hjálpi
fornleifafræðingum mikið við ald-
ursgreiningu rústanna.
Breiðholtsvagnar í
beinu sambandi við
íjarskipti lögreglu
Á FUNDI stjórnenda SVR og lögreglunnar í Reykjavík í gær var,
að sögn Sveins Andra Sveinssonar sljórnarformanns SVR, ákveðið
að strætisvagnar í síðustu ferðum um Breiðholtshverfi föstudags-
og laugardagskvöld verði fyrst um sinn í beinu sambandi við fjar-
skiptamiðstöð lögreglunnar.
Jafnframt munu eftirlitsbílar
lögreglunnar í Breiðholtshverfi
haga ferðum sínum á þeim tíma
með þeim hætti að skjótt verði
unnt að bregðast við beiðni um
aðstoð frá strætisvögnum. Að sögn
Sveins Andra verður jafnframt
unnið að því að finna varanlegar
lausnir sem aukið geti öryggi
vagnstjóra en ekki verður ráðist í
sérstakar fjárfestingar vegna þess
komi ekki til sérstakur stuðningur
borgarráðs.
Lögreglan hefur nú yfirheyrt
þau ungmenni sem kærð voru að
fyrir hafa veist að strætisvagna-
stjóra sem ók leið 12 frá endastöð
í Eddufelli að lokinni síðustu ferð
aðfaranótt síðastliðins sunnudags
og veitt honum áverka. Að sögn
lögreglu er búist við að fleiri vitni
verði yfirheyrð. Talsvert mun bera
á milli frásagna strætisvagnastjór-
ans og hinna kærðu um aðdrag-
anda málsins. Ungmennin sem um
ræðir eru ekki búsett í Breiðholts-
hverfi. Þau munu hafa sótt tónleika
Rykkrokks við Fellaskóla og vildu
að vagnstjórinn, sem lokið hafði
síðustu ferð í Fellahverfi og var á
leið að geymslustæði strætisvagna
við Kirkjusand, æki þeim til síns
heima í önnur borgarhverfi.
Bruggaði
landa í
Breiðholti
RANNSÓKNADEILD lögregl-
unnar í Reykjavík lagði í fyrra-
dag hald á bruggtæki í íbúð í
Breiðholti.
íbúi þar hefur gengist við að
hafa notað tækin til að eima landa
sem hann hafi síðan selt, Á staðnum
fannst aðeins lítilsháttar landi og í
tækjunum var eitthvað af óeimuð-
um legi.
Brotist var inn í kirkju
BROTIST var inn í Seltjarnarnesskirkju aðfaranótt sunnudagsins.
Farið var inn í kirkjuna og hurð fyrir dyrum að skrifstofu prests
var brotin upp en aðrar skemmdir ekki unnar og engra verðmæta
er saknað, að sögn Kristínar Friðbjarnardóttur, formanns sóknar-
nefndar.
Að sögn Kristínar var greinilegt á ferð náð til helgimuna kirkjunnar
að farið hafði verið víða um kirkj- né annarra verðmæta. .„Enda er
una en hvorki hafði sá sem þar var ekkert að hafa þarna,“ sagði hún.