Morgunblaðið - 15.08.1990, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990
7
Sumarlokanir á öldrunardeildum:
Sjúklingar sendir heim þó
þeir þurfí mikla umönnun
„FJÖLSKYLDUR hafa þurft
að breyta sumaráætlunum sínum
með það fyrir augum að vera hjá
öldruðum ættingjum sínum,“
sagði Sigurbjörg Siggeirsdóttir,
yfirmaður öldrunarþjónustu-
deildar félagsmálastofnunar í
samtali við Morgunblaðið. í sam-
talinu kom meðal annars fram
að um 60 rúmum hefur verið
lokað á öldrunardeildum sjúkra-
húsanna og sjúklingar, sem
margir hverjir þurfa á mikilli
umönnun að haida, hafa verið
sendir heim. Sigurbjörg sagði að
ástandið væri mun alvarlegra í
ár en í fyrra. Þá var öldrunar-
deildum einnig lokað í sparnað-
arskyni.
„Við erum að gera alls kyns ráð-
stafanir til að koma til móts við
þessa einstaklinga sem sendir hafa
verið heim og búa margir við mikið
óöryggi," sagði Sigurbjörg. „Við
erum í nánu sambandi við heima-
hjúkrunina og höfum aukið heim-
sendingarþjónustu á mat um 50%
prósent. Annars hefur hér greini-
íega farið yfir strikið. Heimaþjón-
ustan getur ekki séð um að aðstoða
fólk sem þarf á sólarhrings viðveru
starfsmanns að halda. Þegar um
slík tilfelli er að ræða er aðstoðin
orðin spurning um stofnanaþjón-
ustu.“
Sigurbjörg sagði að heimilisþjón-
ustan hefði átt gott samstarf við
ættingja hinna öldruðu. „Geysilega
margir hafa lagt mikið af mörkum
í þjónustu við aldraða ættingja
sína,“ sagði Sigurbjörg. „Á móti
hljóta þeir mikla ábyrgð og mikla
bindingu. Umönnun sjúklinganna
Alvarlega veikt fólk á göngiim sjúkrahúsa
Alvarlega veikir sjúklingar liggja nú á göngum sjúkrahúsa á
höfuðborgarsvæðinu vegna þess að deildum hefur verið lokað og
sjúkrahúsin silja uppi með langlegusjúklinga sem ekki eiga í ann-
an stað að venda. Þetta kom meðal annars fram í samtali við
Þórð Harðarson á lyfjadeild Landspítalans. Þórður sagði að mikið
álag á spítulunum gerði það að verkum að útskrifa yrði fólk sem
ekki væri fært um að sjá um sig sjálft. Hann sagði að álagið ykist
stöðugt og töluvert væri um að ættingjar gamals fólks, sem út-
skrifað hefur verið af öldrunardeildum vegna lokana, gæfist upp
við að sinna því heima.
„Skýringin á ástandinu er í raun
tvíþætt,“ sagði Þórður. „í fyrsta
lagi þurfum við að sinna jafn
mörgum sjúklingum og áður á
færri deildum og í öðru lagi þurf-
um við að taka á móti fólki af
öldrunardeildum sem hefði að öðr-
um kosti komið inn á langlegu-
deildir eða hjúkrunardeildir.
Ástandið er óþolandi enda höfum
við þurft að útskrifa fólk'heim sem
ekki er fært um að vera heima.
Heimahjúkrun, heimilishjálp og
ættingjar gera sitt til að aðstoða
sjúklingana en álagið eykst og
fólk gefst upp við að sinna farlama
skyldmennum sínum. Við erum
með fólk með hjartabilun, krans-
æðastíflu, lungnabólgu og fleiri
sjúkdóma á göngunum af því okk-
ur finnst það skárra en að senda
fólkið heim. Aftur á móti segir það
sig sjálft að hávaði, umgangur og
trekkur á göngunum gera veiku
fólki ekki gott.“
Þórður sagði misjafnt hve
margir sjúklingar væru á göngun-'
um enda færi það eftir því hvaða
spítali sinnti bráðavaktinni. Hann
lagði áherslu á að fagleg sjónar-
mið réðu of litlu um sparnað á
sjúkrahúsunum. Réttara væri að
ráðgast meira við heilbrigðisyfir-
völd og sjúkrahússtjórnir í því efni.
verður sífellt erfiðari og oft endar
þetta með því að einstaklingarnir
hreinlega kikna undan þessu.“
„Ég veit dæmi um það,“ sagði
Sigurbjörg, „að einstaklingur í
þjónustuíbúð veiktist um nótt en
var snúið við á neyðarvaktinni.
Ástandið er orðið svoleiðis að gamla
fólkið fær varla þjónustu sem hinn
almenni borgari á rétt á,“ sagði
Sigurbjörg meðal annars. Þá minnt-
ist hún á samdrátt í hvíldarinnlögn-
um fyrir aldraða einstaklinga þar
sem þeir hafa notið umönnunar á
sjúkrastofum um nokkurra vikna
skeið á meðan aðstandendur hafa
fengið sumarleyfi og hvíld frá oft
erfiðu og vandasömu starfi.
Bárbel Ingólfsson, félagsfræð-
ingur á öldrunardeildinni í Hátúni,
tók í sama streng og Sigurbjörg
og sagði að oft lenti það á 12 til
13 ára unglingum að hugsa um
aldraða ættingja sína.
Sjúklingar í rúmum sínum á gangi hjartadeildar Landspítalans í gærmorgun.
Morgunblaðið/Einar Falur
&
íA
í Reiðhöllinni 8. september
PARÍSARFERÐ FYRIR TVO
Dregið verður úr miðanúmerum allra sem kaupa miða á Risarokkið, laugardaginn
8. september. Miðana þarf aðeins að kaupa fyrir sunnudaginn 26. ágúst.
1 .»21» weréfawns 3.-7. verélaun: 8.-50. verólaun:
Fjögurra daga ferð á Kvöldverður fyrir tvo á Litlar og stórar plötur
Monsters of Rock hljóm- veitingastaðnum og geisladiskarmeð
leikana ÍParis3. sept. L.A. Café, Whitesnake og
Whitesnake verður þar aðalhljómsveitin. Einnig leika þar Aerosmith, Poison og Vixen. Laugavegi 45. JLjái') C A F E — Quireboys.
Athugið! Aðeins verður dregið úr miðum á laugardagsrisarokkið. Kaupið miða í síðasta lagi 25.
••
FORSALA AÐGONGUMIÐA
Reykjavík: Skífan, Kringlunni og Laugavegi 33, Hljóðfærahús Reykjavíkur, Laugavegi 96, Stein-
ar, Austurstræti, Álfabakka 14, Glæsibæ, Laugavegi 24, Rauðarárstíg 16 og Eiðistorgi, Mynd-
bandaleigur Steina, Plötubúðin Laugavegi 20. Hafnarfjörður: Steinar, Strandgötu 37. Akranes:
Bókaskemman. Borgarnes: Kaupfélag Borgfirðinga. ísafjörður: Hljómborg. Sauðárkrókur: Kaupfé-
lag Skagflrðinga. Akureyri: KEA. HúsavíkrBókaverslun Þórarins Stefánssonar. Neskaupstaður:
Tónspil. Höfn: KASK. Vestmannaeyjar: Adam og Eva. Selfoss: Ösp. Keflavík: Hljómval.
Einnig er hægt að panta miða i síma 91 -667 556. Gíróseðinn verður sendur og er hann hefur verið
greiddur verða miðarnir sendir um hæl. Munið að greiða strax.
Flugleiðir veita 35% afslátt af verði
flugferða gegn framvísun aðgöngumiða
að risarokktónleikunum.
Beint þotuflug til Akureyrar nóttina
FLUGLEIDIR
ATHUGID
Enn eru nokkrir miðar eftir á tónleika
Whitesnake og Quireboys í Reiðhöllinni
föstudaginn 7. september.
VISA*
EUROCARD