Morgunblaðið - 15.08.1990, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 15.08.1990, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990 9 Eitt símtal og þú ert áskrif andi að spariskírteinum ríkissjóðs Askriftar- og þjónustusímar: 91-62 60 40 og 91-69 96 00 slahV ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Þjónustumiðstöð ríkisveröbréfia, Hvcrfisgötu 6, 2. hæð. Sími 91-62 60 40 Ófagurt Þetta kemur fram _ í grein, sem Matthias Á. Mathiesen, alþingismaö- ur, ritaði nýlega í Voga, blað sjálfstæðismanna í Kópavogi. Matthías segir m.a. í grein sinni: „Það blasir ekki við fögur sjón þegar skyggnst er yfir svið ísfenskra stjórmnála nú um stundir. I landinu er við völd stefnulaus „vinstri stjóm" sem er sjálfri sér sundurþykk og innan stj órnarflokkanna • er hver höndin upp á móti annarri, líkt og störf ríkisstjómarinnar bera glöggt vitni um. Við hverju er raunar að búast þegar forysta ríkisstjórnarinnar er í höndum manna, sem hvorki virðast skilja eðli þeirra starfa sem þeir hafa tekist á hendur né þær skyldur sem lýðræð- isþjóðskipulagið leggur á herðar forystumönnum ftamkvæmdavaldsins." Hrossakaup „í stað stefnumörkun- ar og almennra aðgerða sem miða að því að allir hafi sama rétt og allir sömu tækifæri hafa hvers kyns hrossakaup ráðherra við stuðnings- menn ríkisstjómarimiar einkennt stjómarfarið og framvinda mála á Al- þingi hefúr verið háð slikum vinnubrögðum frá degi til dags. Allur hefúr þessi at- gangur miðað að þvi að kaupa ríkisstjóminni fylgi i sölum alþingis en stjómarherramir kært sig kollótta um stuðning eða álit almennings á málunum. Nærtækustu dæmin era afgreiðsla jafn þýðingarmikilla mála og stjómun fisk- veiða og umhverfísmála þrátt fyrir mikinn ágrehiing innan stuðn- ingsliðs ríkisstjómarinn- ar um afgreiðslu þeirra mála. í upphafí beitti forsæt- isráðherra sér fyrir pólitísku sjóðakerfí og aukinni miðstýringu og hinn margnefitdi „Stef- ánssjóður" leit dagsins Úr Reykjaneskjördæmi — sundlaug í Hafnarfirði. Ríkisstjórninni ber að víkja Glundroði og stefnuleysi einkenna störf ríkisstjórnarinnar, svo og hvers kyns hrossakaup. Stjórnarherrarnir kæra sig kollótta um stuðning eða álit almennings. Krafan er því, að ríkisstjórnin víki og efnt verði til kosninga hið fyrsta. Ijós. Sá sjóður einn hefur lagt um 8 milljarða ábyrgðir á ríkissjóð en það bíður næstu ríkis- stjómar að ákveða með hvaða hætti þau vanda- mál sem af störfúm hans hafa leitt verða leyst. Eftir því sem liðið hef- ur á feril ríkisstjómar- innar hafa fleiri sjóðir af þessu tagi bæst við, fyrst Hlutfjársjóður og nú síðast Hagræðingar- sjóður.“ Stjómlyndi Þá segir í grein Matt- híasar: „Á sama tíma og marg- ar Austur-Evrópuþjóðir varpa af sér oki fáteekt- arstefnu kommúnismans og lýsa yfir vilja sínum til að draga úr skatt- heimtu og ríkisrekstri en auka í stað þess frelsi í hagkerfínu, ræður aftur- hald og stjómlyndi fjár- málastjóm Islands. Þrátt fyrir aukna skattheimtu um marga milijarða, auknar erlend- ar lántökur sem nálgast nú hættumörk er stöðug- ur og gífúrlegur halli á ríkissjóði. Að auki era þýðingarmiklar opinber- ar framkvæmdir með sérmerkta tekjustofna, eins og t.d. vegagerð, stórlega skertar, en tekj- umar nýttar til rekstrar- gjalda rikissjóðs." Abyrgðir I lok greinjir sinnar segir Matthias Á. Mat- hiesen: Kosningar „Þeir eiga það sameig- inlegt forsætisráðherr- ann og umhverfisráð- herrann að vifja fóma miklu fyrir ráðherra- dóminn. Það ber raunar enginn eins mikla ábyrgð á þeim glundroða og stefnuleysi sem einkennir störf rikis- stjómarinnar og forsæt- isráðherrann og það hvemig hann hefúr rækt skyldur sínar við þing og þjóð. I efnahagsmálum tóku aðilar vinnumarkaðarins málið i sinar hendur og mörkuðu stefúu i at- vinnumálum sem þeir nú standa að og hafa haft til þess stuðning stjómar- andstöðunnar. Varla er unnt að ímynda sér meiri eymd, úrræða- og metnaðar- Ieysi þess aðila sem form- lega séð þó á að hafa með höndum forystu- hlutverk í ríkisstjóm. í lýðfrjálsu landi eins og íslandi á þjarta sljóm- kerfisins að slá í þinginu. Þjóðin hefur kosið fúll- trúa á þing til þess að ráða máliun sínum þar, en ekki til þess að afsala sér völdum til ríkis- stjóma eða einstakra ráðherra sem leysa málin með það eitt í huga að halda ráðherradómi. Það er skoðmi min, og styðst ég þar við þó nokkra reynslu, að nú- verandi ríkisstjóm og stjómarflokkar hafi oft á tíðum gleymt því hvert sé hlutverk alþingis og skyldum sínum gagnvart því. Góður sigur Sjálfstæð- ismanna í sveitarstjóm- arkosningfunum styrkir þá kröfú að núverandi ríkisstjórn láti af völdum og að efnt verði til al- þingiskosninga svo fljótt sem verða má. Því fyrr sem þessi ríkisstjóra fer frá og Sjálfstæðisflokkurinn tekur við forystu þjóð- mála því betra. Þá hefst nýtt framfaraskeið l\já islensku þjóðinni.“ VERÐBREF.I ASKRIFT Við sem l lottóinu unniim ekki getum líka Það tekur að vísu dálítið lengri tíma, en með reglulegum sparnaði má líka safna digrum fjársjóði. Verðbréf í áskrift hjá VIB er þjónusta fyrir þá sem vilja leggja fyrir reglulega á þægilegan hátt og fá góða ávöxtun á sparifé sitt. Til dæmis verða 10.000 kr. á mánuði í 20 ár að 5 milljónum ef vextir haldast 7%. Verið velkomin í VIB. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 108 Reykjavik. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Símsvari 68 16 25.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.