Morgunblaðið - 15.08.1990, Síða 13

Morgunblaðið - 15.08.1990, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990 13 Ódýr og raunhæf byggðasteftia eftir Halldór Jónsson Staðarval 200 þúsund tonna álvers er mikilvægasta ákvörðun, sem íslensk stjórnvöld hafa staðið frammi fyrir lengi, og sú afdri- faríkasta að því er varðar byggða- þróun á íslandi. Það er flestum ljóst, að verði álverið byggt á Suð- vesturlandi mun það auka búferla- flutninga til höfuðborgarsvæðisins umfram þann straum sem nú er. Verði það reist í Eyjafirði, styrkir það þann byggðakjarna mjög verulega og snýr vöm landsbyggð- arinnar í sókn. Staðsetning álvers^ hefur mikil efnahagsleg áhrif á Islandi, hvar sem það kemur. Það hefur hins vegar mun jafnari áhrif á atvinnu- uppbyggingu á landinu, ef það er staðsett utan Suðvesturlands. Ef verksmiðjan rís á Keilisnesi, verða öll margfeldisáhrif hennar á höf- uðborgarsvæðinu. Atvinnuupp- bygging verður aðeins bundin við það svæði. Rísi verksmiðjan í Eyja- firði, munu um 640 manns vinna í iðjuverinu sjálfu; að níunda hundrað afleidd störf verða til á Eyjafjarðarsvæðinu, en að líkind- um munu á fimmta hundrað störf skapast annars staðar á landinu, einkum á höfuðborgarsvæðinu. Hér stendur því valið milli atvinnu- uppbyggingar, sem takmarkast við höfuðborgarsvæðið, og fólks- flótta frá landsbyggðinni annars vegar og jafnrar uppbyggingar og raunhæfrar byggðastefnu hins vegar. Það ætti því ekki að vefjast fyrir stjórnvöldum að velja milli þessara kosta. Það hafa margir, ekki síst þeir sem búa á Suðurnesjum, miklar áhyggjur af því, að álver í Eyja- firði spilli góðu landbúnaðarhér- aði. Eru menn - búnir að gleyma darraðardansinum, sem varð út af járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga? Þar létu margir hátt, sem nú láta lítið fara fyrir sér. í umræðum um álver er það áberandi að þeir, sem mestar áhyggjur hafa, móta skoðanir sínar á áliðnaði og næra tor- tryggni sína á fortíðinni. Til að varpa ljósi á þá öru þróun í meng- unarvörnum áliðnaðar, sem átt hefur sér stað síðastliðin 30 ár, má geta þess að norskur áliðnaður sleppti út úr verksmiðjum sínum að meðaltali 5,4 kg af flúor á hvert tonn, sem framleitt var af álið árið 1960. Á árinu 1988 var þetta meðaltal komið niður í 1,05 kg á hvert tonn. Hér er að sjálf- sögðu um meðaltal að ræða. Það þýðir að inni í myndinni eru göm- ul álver, sem hækka meðaltalið verulega. Nýjustu álverin eru því vel undir 1 kg markinu, og þau fyrirtæki sem nú er verið að ræða við, ráða yfir tækni, sem gerir þeim kleift að minnka flúormagnið niður í 0,3-0,4 kg á hvert áltonn. í þeim viðmiðunum, sem NILU notaði fyrir dreifingarspá í Eyja- firði, er reiknað með 1 kg af flúor á hvert tonn af áli. Má sjá af þessu að öryggismörkin eru mjög rúm og raunveruleikinn er langt innan þeirra. Það er rétt að geta þess einnig að nú er verið að semja um 200 þúsund tonna álver. Stækkunar- möguleikar álversins eru einkum fólgnir i því að á lóð þeirri, sem undir álverið er ætluð, verður rými fyrir helmingi stærri verksmiðju. Ef til stækkunar kemur, þarf hins vegar að sækja um starfsleyfi fyr- ir slíka verksmiðju. Leyfið yrði að sjálfsögðu háð því að umhverfis- áhrif 400 þúsund tonna álvers yrðu ásættanleg. Þá yrði tekið til- lit til þeirrar reynslu, sem fengist hefði af rekstri og umhverfisáhrif- um 200 þúsund tonna álvers. Það er mikils vert að íbúar Eyja- fjarðar geri sér vel grein fyrir því hve mikið er í húfi fyrir þá í þessu máli og standi saman um það. Það er einnig mikils vert, vegna þess hve málið hefur mikil áhrif á byggðaþróun á landinu, að stjórn- völd leggi sig fram um að veita eins glöggar upplýsingar um um- hverfisáhrif og mögulegt er. Þá er ekki aðeins átt við dreifing- arspá, heldur einnig um áhrif 200 þúsund tonna álvers á gróður og dýralíf í næsta nágreni við verk- smiðjuna. Því lengur sem dregst að veita þessar upplýsingar, því hættara er við að tortryggni skap- ist innan héraðs. Héraðsráð Eyjafjarðar, sem undirritaður er formaður fyrir, mun leggja sig í líma við að veita allar þær upplýsingar um málið, sem því er unnt, til þess að af- staða héraðsbúa til þessa mikil- væga framfaramáls megi verða byggð á eins raunhæfu mati og hugsast getur. Höfundur er bæjarstjóri á Akureyri og formaður héraðsráðs Eyjafjarðar. Halldór Jónsson „Það er mikils vert að íbúar Eyjafjarðar geri sér vel grein fyrir því hve mikið er í húfi fyr- ir þá.“ I iÝMI! Q 15%-20% atsláttur FJALLAHJOL SLATTUVELAR stgr. 10 gíra-Krl6.99íP T3.593 12 gíra-Kr. 18i5G0a5* 1 4.797stgr 18 gíra-Kr. ítíJjMi (052)-Kr. 14.161 w O.iohnson & Kaaberhf SÍMI: 91 -24000 ...ekki bara kaffi Þú svalar lestrarþörf dagsins GAP G.Á. Pétursson hf Nútíðinni Faxafeni 14, sími 68 55 80 (P420)-Kr. 36.8#' 29.479stg, E“ Raðgreiðslur Enginn útborgun, greiðist á 4-6 mánuðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.