Morgunblaðið - 15.08.1990, Page 16

Morgunblaðið - 15.08.1990, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990 Sri Lanka: Fjöldamorð framin í bæj- um múslíma og Tamíla Eravur. Reuter. Uppreisnarmenn úr röðum Tamíla hafa myrt 187 múslima, þar á konur og börn, á grimmdarlegan hátt i þremur þorpum á Sri Lanka frá því um helgina. Ráðist var á þorp Tamíla í gær, líklega til að hefna fjöldamorðanna, og biðu 85 manns bana í árásinni. „Um fimmtán menn, vopnaðir byssum, réðust inn í húsið okkar og skipuðu okkur að fara út. Síðan hófu þeir skothríðina. Eg datt á milli líkanna og beið þar til þeir fóru. Það var blóð út um allt,“ sagði fimmtán ára unglingur sem komst lífs af. Öll fjölskylda hans, foreldrar og fjögur systkini, þar á meðal fimm mánaða systir, var drepin. Bretland: Vatnsskortur kann að leiða til verðhækkunar St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. kvæmt mæli. Það hefur leitt til þess, að vatnsnotkun hefur minnk- að um 15-20%. En garðeigendur á eyjunni eru ekki hrifnir af þessari nýjung og kostnaðinum við að koma í veg fyrir, að garðar skrælni. 18 milljónum Breta er nú bann- að að sprauta vatni úr garðslöng- um. Þurrkurinn í sumar kann að leiða til hækkunar á vatnsverði. Veður hefur lengi haldist hlýtt á Bretlandi nú í sumar og hefur orðið hlýjast 37 gráður. Úrkoma hefur verið lítil. Breskar vatnsveitur, en hlutabréf í þeim voru seld á almenn- um markaði á síðasta ári, hafa því orðið að grípa til þess ráðs að banna fólki að sprauta úr garðslöngum í mörgum héruðum í Englandi. Ástandið er verst í Kent, en þar hefur verið bannað að sprauta úr garðslöngum síðan í byrjun maí. Nú er einnig búið að banna að vökva almenningsgarða og golfvelli og að þrífa langferðabíla með vatni. Þetta er í fjórða sinn síðan 1976, að orðið hefur að grípa til víðtækra bannaðgerða til að koma í veg fyr- ir þrot á vatni. Breskar vatnsveitur eru að leita nýrra leiða til að afla sér vatns, en þær hafa gert ráð fyrir langvarandi þurrkum á 50 ára fresti í áætlunum sínum. Talsmenn breskra vatnsveitna segja, að þörf sé á aukinni fjárfest- ingu vegna nýrrar vatnsöfiunar, ef þurrkinum linnir ekki. Það þýði hærra verð á vatni til neytenda. Tilraun hefur staðið yfir á eyj- unni Wight með að selja vatn sam- 13 ára drengur sagði með tárin í augunum að foreldrar hans og fjórtán systkini hefðu verið myrt. Um þijátíu manns voru drepin í þorpinu Saddam Hussein, sem nefnt var eftir forseta íraks fyrir nokkr- um árum. í því eru hundrað hús, moska og félagsmiðstöð sem hann gaf þorpsbúum. „Þeir komu úr öll- um áttum, við gátum ekki komist undan,“ sagði kennari. „Ef dyrum var lokað brutu þeir hurðina. Þeir drápu jafnvel móður sem var að gefa barni sínu brjóst," bætti hann við. Þorpsbúarnir sögðust vera óvopnaðir og varnarlausir gagnvart árásarmönnunum. Hartnær 400 múslimar hafa ver- ið drepnir í landinu á undanförnum þrettán dögum. Tígrarnir beijast fyrir sjálfstæðu ríki Tamíla í norð- ur- og austurhluta landsins. Hópur manna fór inn í þorp Tamíla í gær og réðst á íbúa þess með hnífum. 85 biðu bana í árás- inni og um hundrað særðust. Einn- ig var kveikt í nokkrum húsum. ■ Reuter Elio Erriquez flaug til Genfar í gær með sérstakri flugvél Alþjóða Rauða krossins. Hér er hann ásamt móður sinni við komuna til Genfar og veifar hópi fólks sem tók fagnandi á móti honum. Svissneskum gísl- um sleppt í Líbanon Beirút. Reuter. PALESTÍNSKIR mannræningj- ar tilkynntu á gær að þeir myndu láta lausan Elio Erriquez, sviss- neskan starfsmann Alþjóða rauða krossins, eftir að hafa haft hann í haldi í 10 mánuði. Erriqu- V estur-Þýskaland: Kanna hvort austur-þýskum flóttamanni var byrlað eitur Braunschweig. Reuter. LÍK Lutz Eigendorfs, austur-þýsks knattspyrnumanns, sem flýði frá Austur-Þýskalandi, verður hugsanlega grafið upp til að ákvarða hvort útsendarar kommúnistastjórnarinnar í Austur-Þýskalandi hafi byrlað honum eitur. Hann fórst í bílslysi fyrir sjö árum. Talsmenn saksókn- ara í Braunschweig í Vestur-Þýskalandi skýrðu frá þessu i gær. ERLENT Skýrslur um að morðsveitir hafí drepið fjölda mikilsmetinna flótta- manna á Vesturlöndum á síðustu 10 árum eru nú kannaðar í Vestur- Þýskalandi. Talsmaður saksóknara í Braunschweig sagði að réttarrann- sóknarmenn væru að rannsaka hvort hægt væri að finna eiturleifar í líki Eigendorfs, sjö árum eftir dauða hans. Ef það reynist mögu- legt þá verður líkið grafið upp. Vestur-þýska tímaritið Bunte greindi frá því í þessari viku að þótt Eigendorf hafi farist í bílslysi þá hafi útsendarar austur-þýsku öryggislögreglunnar, STASI, eitrað fyrir honum. í tímaritinu sagði að útsendarar STASI hefðu myrt fjöl- marga flóttamenn samkvæmt skip- unum frá Eric Mielke, fyrrverandi öryggismálaráðherra Austur- Þýskalands. Sumum hefði verið byrlað eitur og sjálfsmorð og bílslys hefðu verið sviðsett til að koma öðrum fyrir kattarnef. Talsmaður vestur-þýska inn- anríkisráðuneytisins, Roland Bac- hmeier, sagði á blaðamannafundi að vestur-þýsku ríkisstjórninni hefðu borist leynilegar upplýsingar þessa efnis og þeim hefði verið kom- ið til réttra yfirvalda til frekari rann- sóknar. Reuter Havel heimsækir Nicaragua Violeta Chamorro, forseti Nicaragua, heilsar Vaclav Havel, forseta Tékkóslóvakíu, er hann kom í eins dags heimsókn til Managua í gær. Á milli þeirra er sendiherra Tékkóslóvakíu í Nicaragua, Zdenek Dlesk. Refsiaðgerðir gegn Suður-Afríku: Nelson Mandela ljær máls á tilslökunum Jóhannesarborg. Reuter. NELSON Mandela, leiðtogi Afríska þjóðarráðsins (ANC), helstu hreyfingar blökkumanna í Suður-Afríku, sagði í sjónvarps- viðtali á sunnudagskvöld að svo gæti farið að hreyfingin féllist á tilslakanir varðandi afnám efna- hagslegra refsiaðge rða gegn Suður-Afríku. Mandela sagði að hreyfingin gæti ef til vill sætt sig við viljayfir- lýsingu frá F.W. de Klerk, forseta landsins, um að sett yrði stjórnar- skrá sem tryggði jafnrétti kynþátta, í stað þess að bíða eftir því að hún tæki gildi. Slík stefnubreyting gæti aðeins orðið ef trúnaðartraust skap- aðist á milli ANC og stjómvalda þegar formlegar viðræður um af- nám lögbundins kynþáttaaðskilnað- ar hefjast. Refsiaðgerðimar hafa verið helsta tromp ANC í viðræðunum við stjóm hvíta minnihlutans. í fyrri viku ákvað hreyfíngin að falla frá baráttu með vopnum. Sú ákvörðun ■ SÓFÍA - Dobri Djúrov, varnarmálaráðherra Búlgaríu, hef- ur látið að því liggja að Búlgarir gætu haft áhuga á að ganga í Atl- antshafsbandalagið (NATO) að sögn dagblaðsins Otetsjestven Front í gær. Aðspurður um það hvort Búlgaría, sem er í Varsjár- bandalaginu, myndi nokkurn tíma ganga í NATO, sagði Djúrov að slökun í samskiptum þjóða Vestur- ez var fluttur til Damaskus og afhentur sendiherra Sviss í Sýr- Iandi 19 klukkustundum eftir að tilkynningin barst. Skæruliða- samtökin Byltingarhópur Pal- estinumanna slepptu Emanuel Christen, svissneskum starfs- bróður Erriquez, úr haldi sl. miðvikudag, en þeir voru hand- teknir samtímis. Tilkynning um lausn Erriquez barst dagblaðinu An-Nahar í Vestur-Beirút snemma á mánu- dagsmorgun. „Til að fylgja eftir frumkvæðinu um að binda endi á svissneska gíslamálið tilkynnir Byltingarhópur Palestínumanna lausn annars svissneska gíslsins, Elio Erriquez," sagði í tilkynning- unni. Dagblað í Beirút tilkynnti í gær að fjögurra manna belgísk fjöl- skylda, sem Byltingarhópur Pa- lestínumanna hefur haft í haldi síðan í nóvember 1987, yrði sleppt innan sólarhrings ef gengið yrði að kröfum þeirra um að láta lausan palestínskan hryðjuverkamann, sem verið hefur í fangelsi í Belgíu fýrir að sprengjutilræði við gyð- ingaböm fyrir 10 árum. Eitt barn dó í tilræðinu. Talsmaður Byltingar- hóps Palestínumanna í Líbanon, Walid Khaled, sagðist ekki vita til þess að láta ætti Belgana lausa en fréttamenn fíeuters-fréttastofunn- ar segjast hafa heimildir stjórnarer- indreka í Belgíu fyrir því að um* ræddur Palestínumaður, Nasses Said, yrði látinn laus úr fangelsi. Fyrir utan Erriquez er 13 Vestur- landabúa saknað í Líbanon. Þeir eru taldir vera í gíslingu hjá öfgahópum hliðhollum íran. Nelseon Mandela ruddi úr vegi síðustu hindruninni iyrir formlegum viðræðum. Mand- ela sagði að ANC hefði nú myndað nokkurs konar bandalag með stjórninni um viðræðurnar en öll stjórnmálaöfl landsins myndu síðan taka þátt i þeim. og Austur-Evrópu gæti gefíð tilefni til þess. Hann bætti því við að hann teldi að auðveldara yrði að ákvarða hernaðarlega stöðu Búlgaríu í framtíðinni eftir viðræður milli Austur- og Vestur-Evrópuþjóða í Vín um fækkun vopna. Hann minnt- ist þó ekkert á áætlanir Búlgara um að ganga úr Varsjárbandalag- Grænland: Prestar fást ekki til starfa Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, frétta- ritara Morgunblaðsins. GRÆNLENDINGAR eiga sífellt erfiðara með að iðka trúarlíf sitt þar sem skortur á prestum virð- ist landlægur. Nú eru átta stöður lausar til umsóknar á Grænlandi og flest bendir til þess að vígðum mönnum eigi eftir að fækka þar enn frekar á næstunni. Á Grænlandi eru nú starfandi 26 prestar en engar umsóknir hafa borist um átta stöður sem auglýstar 'nafa verið lausar. Ef fram fer sem horfir verða 12 brauð ósetin árið 1992 og ekki bætir úr skák að ungir Grænlendingar sýna guð- fræðinámi engan áhuga. Formaður prestafélagsins, Magnus Larsen prófastur, sagði í viðtali við græn- lenska útvarpið að þetta ófremdar- ástand mætti rekja til skipulagning- ar guðfræðinámsins. Það væri of fræðilegt og of mikil áhersla væri lögð á hinar heimspekilegu hliðar kristinnar trúar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.