Morgunblaðið - 15.08.1990, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 15.08.1990, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990 17 STRIÐSASTAND VIÐ PERSAFLOA írakar hóta hefndum verði hafnbanni komið á Washington, Varsjá, Dubai, Lundúnum, Róm, MÁLGAGN ríkisstjórnar Saddams Husseins íraksforseta, Al- Joumbouriya., lýsti yfir því í gær að sérhverri tilraun vestrænna ríkja til að koma hafnbanni á írak yrði hefnt grimmilega. Bretar hófu í gær að hafa afskipti af ferð- um skipa á Persaflóa og í fréttum bandarísku sjónvarpsstöðarinnar NBC á mánudagskvöld sagði að herskip Bandaríkjamanna myndu hugsanlega á næstu tveimur sólar- hringum þurfa að stöðva íraskt skip, sem hefði vopn og skotfæri innanborðs. í málgagni írösku ríkisstjórnarinn- ar sagði að herliðs Bandaríkjamanna í Saudi-Arabíu biði „ekkert annað en dauðinn" reyndu bandarísk her- skip að hindra birgðaflutninga sjó- leiðina til íraks og olíuútflutning landsmanna. Bandaríkjamenn kveð- ast vera reiðubúnir að beita hervaldi til að tryggja að viðskiptabann það sem Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti gagnvart írökum haldi. Bretar hafa einnig lýst yfir því að skip verði stöðvuð reynist þau hafa ólöglegan varning innanborðs. I gær höfðu Bretar í fyrsta skipti radíósam- band við olíuskip sem var á siglingu skammt undan Dubai og var áhöfnin látin gera grein fyrir ferðum skipsins og farmi þess. Skipið reyndist vera á leið til hafnar eftir að hafa farið í klössun. . Reuter, The Daily Telegraph. HERSVEITIR TIL VARNAR SAUDI-ARÖBUM Bandaríkin Saudi- Arabía Frakkland Bretland Ástralia Kanada Marokko Egyptaland Sovét- rfkln iii 50.000 65.700 3.500 1.000 3.500 3.000 4 1 -JUUr 40 8 6 6 3 2+ 2 450* 180 29 36 í fæst ekki gefið upp 20 42 í fæst ekki gefið upp 550 fæst ekki gefið upp 450 f1 ^ 4 >- -Jj N ný*«**- ’. ■*-’ í « ...» . , i % .. „ *•- fe * Meira en 300 á flugmóðurskipum auk a.m.k. 100 F-1 og 48 F-16-orrustuþotna og A-10-árásarþotna. í Incirlik í Tyrklandi eru F-16 orrustuþotur auk a.m.k. 14 F-111 orrustuþotna. Heimildir: Institute of Strategic Studies, Jane's Fighting Ships og Reuters Skip á siglingu á Persaflóa voru í gær vöruð við því að tundurdufl kynnu að vera á reki á flóanum. Þrír breskir tundurduflaslæðarar héldu á mánudag frá Skotlandi áleið- is til Miðjarðarhafsins. Utanríkisráð- herra Ítalíu skýrði frá því í gær að stjórnvöld í Vestur-Þýskalandi og Belgíu og á Spáni og Ítalíu væru reiðubúin að senda herskip inn á AÐDRATTARLEIÐIR TIL BAGDAD Miðjaröar- haf .1 ' BagM Bandarískar flugvélar lenda í Saudi-Arabíu á 10 mínútna fresti Persaflóa. Boðaði hann að ákvörðun í þá veru yrði tekin á fundi utanríkis- ráðherra Vestur-Evrópusambandsins síðar í þessum mánuði. Ráðherrann kvað Helmut Kohl, kanslara Vestur- Þýskalands, hafa skýrt frá því að Þjóðveijar væru tilbúnir til að senda tundurduflaslæðara inn á Persaflóa óskuðu önnur aðildarríki Vestur-Evr- ópusambandsins eftir því. Hins vegar segir í stjórnarskrá Vestur-Þýska- lands að Þjóðveijar megi ekki taka þátt í hernaðaraðgerðum utan skil- greinds varnarsvæðis Atlantshafs- bandalagsins (NATO). Persaflói telst REUTER utan varnarsvæðisins en á hinn bóg- inn liggur fyrir að vestur-þýsk skip munu taka við eftirlitshlutverki bandarískra herskipa á Miðjarðar- hafi. Vopn og skotfæri frá Póllandi? Fréttamenn bandarísku sjónvarps- stöðvarinnar NBC kváðust á mánu- dagskvöld hafa heimildir fyrir því að til tíðinda kynni að draga á næstu 48 klukkustundunum. Sögðu þeir að svo kynni að fara að fylgdarskip bandaríska flugmóðurskipsins Eisen- hower stöðvuðu íraskt flutningaskip Reuter Bresk herskip á siglingu á Persa- flóa. á Rauðahafi sem væri á leið til hafn- arborgarinnar Aqaba í Jórdaníu. Fréttinni fylgdi að skipið væri á leið frá Póllandi og hefði bæði vopn og skotfæri innanborðs. Jan Majewski, aðstoðarutanríkisráðherra Póllands, sagði á fundi með fréttamönnum í Varsjá í gærdag að það væri hugsan- lega rétt að skotfærum og vopnum hefði verið skipað um borð í flutn- ingaskipið í Póllandi. Hann lagði hins vegar áherslu á að skipið hefði hald- ið frá Póllandi eigi síðar en fyrsta ágúst og því væri ekki um brot gegn samþykktum Öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna að ræða. Stjórnvöld í Póllandi skýrðu frá því þann þriðja þessa mánaðar að samþykkt Örygg- isráðsins_ um algjört bann við vopna- sölu til íraks yrði virt en Pólveijar seldu írökum mikið af vopnum í stríðinu við írani. Sífellt fjölgar í herliði Bandaríkja- manna í Saudi-Arabíu og heimildir í gær hermdu að allt að 10.000 manna herlið frá Egyptalandi og Marokkó myndi innan tíðar taka sér stöðu á landamærum Saudi-Arabíu og Kúvæt. Þá sögðu heimildarmenn The Daily Telegraph að von væri á 100 hermönnum frá Sýrlandi. Þá kváðust stjórnvöld í Pakistan hafa fullan hug á því að koma Saudi-Aröb- um til varnar. Refsiaðgerðir SÞ: J órdaní ukonungur milli steins og sleggju Ruwayshid í Jórdaníu, Amman, Tel Aviv. Reuter, Daily Telegraph. JORDÖNUM liggur ekki á að framfylgja efnahagslegum refsiaðgerðum Sameinuðu þjóðanna gegn írökuin ef marka má umferðina í Ruways- hid-héraði við landamærin að írak. Vöruflutningabifreiðar með ýmis- konar farma, matvæli, byggingar- vörur, vélahluta og fleira, aka þaðan til íraks á meðan tankbílar með hrá- olíu frá Irak streyma yfír landamær- in í átt til hafnarbæjarins Aqaba. Jórdönsk stjórnvöld hafa lýst því yfír opinberlega að þeim beri skylda til að virða ályktun Sameinuðu þjóð- anna um viðskiptabann gegn Irökum og segja að þau séu að kanna hvern- ig hægt verði að framfylgja henni. Svo virðist sem þessi könnun sé gerð með vísindalegri nákvæmni. Landa- mæralögregan í Ruwayshid sagði á sunnudag að vöruflutningar yfir landamærin hefðu ekki minnkað. Viðskiptabannið er sérlega við- kvæmt mál fyrir jórdönsk stjórnvöld. Þótt vöruflutningar yfir landamærin myndu stöðvast kæmi það sér ekki mjög illa fyrir íraka. Hins vegar gæti það skapað erfiðleika í sam- skiptum Jórdana við Saddam Hus- sein, forseta íraks, og með því að framfylgja viðskiptabanninu myndu þeir skaða mjög eigin efnahag. í rit- stjómargrein jórdanska dagblaðsins Jordan Times ef varpað fram þeirri spurningu hvort Jórdanir þyldu slíkar aðgerðir, þar sem þær bitnuðu eink- um á þeim sjálfum. Jórdanir lifa á útflutningi. 53% af framleiðslu þeirra voru flutt út í fyrra og þeir telja viðskiptin við íraka mjög mikilvæg. 23% af öllum vöruút- flutningi Jórdana fór til íraks, 40% af landbúnaðarframleiðslunni. Þá fá Jórdanir 90% af þeirri olíu, sem þeir flytja inn, frá írak. Jordan Times varar við því að stöðvun þessara viðskipta geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir efnahag- inn, sem sé ekki burðugur fyrir vegna mikils atvinnuleysis, mikilla erlendra skulda og gífurlegs fjárlagahalla. Atvinnuleysið geti aukist úr 12,4% í meira en 16%, þótt ekki sé gert ráð fyrir jórdönskum borgurum í Kúvæt, sem hafa margir hveijir flúið heim eftir innrás íraka í landið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.