Morgunblaðið - 15.08.1990, Síða 19

Morgunblaðið - 15.08.1990, Síða 19
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Utgerð og olía að hefur áreiðanlega kom- ið mörgum á óvart, sem fram kom í Morgunblaðinu sl. sunnudag, að olíunotkun fiski- skipaflotans hefur tvöfaldazt frá árinu 1973. Eftir olíukreppu á því ári og undir lok þess ára- tugar lagði þjóðin í mikla fjár- festingu til þess að draga úr olíunotkun til húsahitunar. Sá árangur varð af þeirri fjárfest- ingu, að húsahitun með olíu er nú í algjöru lágmarki. En sá mikli sparnaður í olíuinnkaup- um, sem varð vegna hitaveitu- framkvæmda, hefur allur gufað upp vegna stóraukinnar olíu- notkunar fískiskipaflotans. Á þessu árabili hefur orðið mikil endurnýjun í fiskiskipa- flotanum. Ný og aflmeiri skip hafa komið til sögunnar og framan af þessu tímabili jókst fiskafli mjög enda stóð þjóðin á þessum árum í tveimur þorsk- astríðum, sem leiddu til þess, að nær engin erlend fiskiskip eru nú innan íslenzkrar fisk- veiðilögsögu. Frá því snemma á síðasta áratug hefur þorskafli farið stöðugt minnkandi, þegar á heildina er litið, og miklar sveiflur verið í öðrurn veiðum. Jafnframt hafa allar rannsókn- ir fiskifræðinga bent til þess, að ekki þyrfti að búast við umtalsverðri aflaaukningu í bráð. Smátt og smátt hefur skapazt nokkuð almenn sam- staða um það, að fækka þyrfti fiskiskipum enda væri hægt að sækja sama afla eða minni afla með færri skipum, minni til- kostnaði í ijárfestingu, olíu- notkun og mannahaldi. Raunar liggur í augum uppi, að aukin hagkvæmni í fiskveiðum, þ.e. minni kostnaður og meiri hagn- aður, eru ein helzta forsenda þess, að hægt verði að bæta lífskjör fólks í landinu. Af þessum sökum kemur það mönnum í opna skjöldu, að á síðustu 17 árum hefur olíunotk- un fískiskipa tvöfaldazt. Færa má rök fyrir því, að slíkt hafi ekki verið óeðlilegt framan af þessu tímabili vegna aukins afla í kjölfar sigurs í þorsk- astríðum en hitt hlýtur að telj- ast óeðlilegt með öllu, að þessi þróun hefur haldið stöðugt áfram allan síðasta áratug. Jafnvel þótt fyllstu sanngirni sé gætt og tillit tekið til þeirra upplýsinga Fiskifélagsins, sem einnig komu fram í Morgun- blaðinu sl. sunnudag, að afli mældur í botnfiskígildum hafi nær tvöfaldazt á sama tímabili og olíunotkun hefur tvöfaldazt, dugar það ekki til, sem rök- stuðningur fyrir þessari stór- auknu olíunotkun. Slíkir út- reikningar segja þá sögu, að það hafi nákvæmlega engin hagræðing orðið í olíunotkun miðað við botnfiskígildi á þessu tímabili. Vel má vera, að ein skýring þess, að útgerðarmenn hafi ekki gætt að sér í þessum efn- um sé sú, að olíuverð hefur lækkað mjög á undanförnum árum. En Iærðum við þá ekk- ert af reynslu fyrri ára? Olíu- kreppurnar 1973 og 1979 leiddu til óðaverðbólgu í landinu með öllum afleiðingum hennar. Voru útgerðarmenn búnir að gleyma því? Talsmenn núverandi kvóta- kerfís í fiskveiðum halda því fram, að þetta kerfi leiði óhjá- kvæmilega til fækkunar í fiski- skipaflotanum. Vonandi kemur í ljós, að þeir hafi rétt fyrir sér. Hitt er alveg ljóst, að það verður að snúa við þeirri þróun, sem verið hefur í útgerð á ís- landi undanfarna áratugi. Það er aðeins ein ástæða fyrir því, að útgerðarmenn hafa komizt upp með að stækka fiskiskipa- flotann langt umfram þarfir og þar með að tvöfalda olíunotkun við öflun sjávaraflans og hún er sú, að þeir hafa jafnan getað komið til stjórnvalda og sagt: útgerðin er rekin með tapi og það verður að gera ráðstafanir til að stöðva þann taprekstur. Stjórnvöld hafa brugðizt við, ýmist með gengisfellingum eða millifærslum, eins og núverandi ríkisstjórn. Hvor leiðin, sem farin er þýðir kjaraskerðingu fyrir almenning í þessu landi. Þess vegna verður sú krafa stöðugt háværari — ekki sízt eftir að upplýsingar koma fram um tvöföldun á olíunotkun fiskiskipanna — að raunhæfar ráðstafanir verði gerðar til stórfelldrar hagræðingar í út- gerð. Það ætti að vera metnað- armál útgerðarmanna sjálfra að hafa forgöngu um það í stað þess að stjórnvöld knýi þá til þess. Og alla vega er ljóst, miðað við þær upplýsingar, sem fyrir liggja, að útgerðarmenn geta ekki komið til stjórnvalda á næstu mánuðum, ef hækkun á olíu verður til einhverrar frambúðar og sagt, að þeir þurfi fiskverðshækkun eða aðr- ar ráðstafanir til þess að reka útgerðina taplaust. Á þeim vettvangi er bersýnilega mikið svigrúm til hagræðingar til þess að mæta þessari útgjalda- aukningu. Lög’in leikin grátt eftir Pál Magnússon Fyrir skemmstu ritaði Markús Örn Antonsson, ríkisútvarpsstjóri, tvær greinar í Morgunblaðið — báðar upp- fullar af slíkum endemum, að manni súrnar í augun. Fyrst er til að taka þvílíka van- kunnáttu um eðli og tilgang fjárlaga ríkisins, að ekki verður hjá því kom- ist að freista þess að leiða höfundinn út úr villunni. Ríkisforstjórinn segir (Mbl. 26.7.90): „Reyndar gera þau (fjár- lögin) ráð fyrir rúmlega_200 milljóna króna halla (rekstur RÚV) á árinu, sem ekki er öfundsverð niðurstaða, en þó viðráðanleg í bili, ef betra tæki við.“ I þessum tilvitnuðu orðum opin- berast grundvallarmisskilningur Markúsar Arnar á hlutverki hans, sem forstöðumanns ríkisstofnunar. Það er nefnilega ekkert til í fjárlög- um, sem heitir fyrirhugaður halli á rekstri RÚV. Jafnvel þótt RÚV njóti risavaxinna forréttinda á íjölmiðla- markaði, verður stofnunin að sæta því einfalda lögmáli, að það eru tekj- urnar sem ráða útgjöldunum — en ekki öfugt. _Ef mismunurinn á fjárhagsáætlun RÚV og samþykktri tekjuöflun fjár- veitingavaldsins er 200 milljónir, þýðir það ekki að reka eigi RÚV með halla sem því nemur — RÚV á einfaldlega að skera útgjöldin niður um 200 milljónir. (Reyndar gæti RÚV hugsanlega brúað þetta bil með því að auka auglýsingatekur um þessa upphæð, en þá yrði stofnunin væntanlega að hætta að undirbjóða auglýsingaverð annarra fjölmiðla og það stendur ábyggilega ekki til.) Til að vera viss um að þessi skiln- ingur minn á fjárlögunum væri rétt- ur, bar ég hann undir formann fjár- veitinganefndar Alþingis, Sighvat Björgvinsson, og það er skemmst frá því að segja að hann staðfesti þetta allt. Ef Markús Örn stendur við það fyrirheit sitt, að reka RÚV með 200 milljóna króna halla, er hann einfald- lega að bijóta fjárlögin, og formaður fjárveitinganefndar segir, að það geti aðeins þýtt eitt: stofnunin verður sett í löggæslu fjárveitingavaldsins. Við skulum vona, að það eigi ekki fyrir Markúsi Emi að liggja, að sæta slíkri meðferð, en hitt er auðvitað í meira lagi undarlegt, að það skuli þurfa mann úti í bæ, til að benda ríkisforstjóra á þessar einföldu stað- reyndir fjárlagaa. Alltaf, þegar talið berst að full- komlega óeðlilegum fométtindum RÚV, upphefur Markús Örn gamla mærðarvælið um þær „skyldur", sem stofnunin hefur umfram aðra fjöl- miðla. Með þessu hefur honum tekist að spinna svo þéttan blekkingarvef, að jafnvel fjárveitingavaldið hefur aldrei séð til sólar. Það er einkum tvennt, sem Mark- ús Örn nefnir til sögu: I fyrsta lagi dreifikerfið, sem þarf að ná til innstu dala, ystu annesja og sjómanna á hafi úti. Þetta á allt saman að vera svo dýrt að það réttlæti öll forrétt- indi og nauðungargjöld RÚV. En hverjar eru staðreyndir málsins? Markús Örn segir sjálfur, að rekst- ur þessa kerfis kosti um 100 milljón- ir króna á ári. Þetta eru innan við 5% af áætluðum heildarútgjöldum RÚV á þessu ári, og réttlætir auðvit- að engin forréttindi — hvað þá nauð- ungargjaldahækkanir langt umfram verðlagsþróun. í öðru lagi klifar Markús Örn á skyldu RÚV til að framleiða „menn- ingarefni". En hverjareru staðreynd- ir þessa máls? Stórfelld útgjaldaaukning RÚV á síðustu árum hefur ekki falist í auk- inni áherslu á efni af þessu tagi — þvert á móti: RÚV hefur notað peningana til aukinnar framleiðslu á innlendu af- þreyingarefni — til að yfirbjóða Stöð 2 á mörkuðum fyrir erlent afþreying- arefni — til að undirbjóða einkareknu stöðvarnar í auglýsingamarkaði til að eyðileggja með undirboðum þá tekjulind Stöðvar 2, sem felst í kost- un ýmissa aðila á margvíslegu dag- skrárefni, og síðast en ekki síst, til að auglýsa fyrir stórfé eigið ágæti. Dæmi um ofangreint eru svo mörg, að þau rúmast ekki í þessu greinarkorni, en verða tilgreind síðar. Ég get heldur ekki látið hjá líða, að nefna kátbroslega sjálfumgleði Páll Magnússon „Þetta fé hefur RÚV síðan purkunarlaust notað, til að freista þess með öllum ráðum, að drepa af sér þá sam- keppni, sem Alþingi ætlaðist þó til, að væri fyrir hendi.“ Markúsar Amar yfir því, að nauð- ungargjöldin skuli innheinitast sæmi- lega. Sterkasta vopn RÚV, við inn- heimtu gjaldanna, er nefnilega tilvist Stöðvar 2! Samkvæmt Gallup-könnun myndu fleiri kjósa Stöð 2 en RÚV, ef fólk þyrfti að velja á milli stöðvanna. En þetta sama fólk getur bara alls ekki valið. Ef menn vilja ekki borga RÚV, þá er Stöð 2 tekin af þeim og mynd- bandstækið líka! Þetta er í eðli sínu nákvæmlega það sama, og ef ríkið myndi skylda fólk til að gerast áskrifendur að Lög- birtingarblaðinu, sem ríkið gefur út, og ef menn neituðu að borga yrði Mogginn tekinn af þeim líka — og Þórir S. Gröndal skrifar frá Flórída: BOUGAINVILLAEAU Einu sinni voru íslenzk hjón, sem reistu sér bú í Flórída, vestur í henni Ameríku. Þeim þótti gaman að vinna í garðinum, og að geta ræktað öll fallegu blómin, sem þau höfðu áður átt í vasaútgáfum í pottum í glugga- kistum uppi á íslandi. Einn góðan veðurdag sagði konan: „Eigum við ekki að kaupa litla Bougainvillaeau?" „Jú, það væri gaman,“ sagði maður- inn. Þau fóru á markað og keyptu litla plöntu, ekki hærri en 20 sm. Garð- yrkjumaðurinn sagði, að planta þyrfti þessari litlu Bougainvillaeau þar sem hún gæti vafið sig upp vegg eða grind. Hjónin fóru kát heim og settu litlu plöntuna niður við háa girðingu. Hún tók fljótt við sér og byijaði að teygja sig upp grindverkið. Von bráð- ar blómstraði hún og voru blómin vínrauð og undur fögur. Konan sagði: „Ertu ekki ánægður með Bo- ugainvillaeauna okkar?" „Jú, það er ég,“ sagði maðurinn. Eftir ár eða svo var plantan orðin svo stór, að hjónin mátti leggja til atlögu og klippa hana til. Þau sáu brátt, að ekki voru það aðeins stór og falleg blóm, sem á þessari fögru jurt uxu, heldur líka stórir og beittu þyrnar. „Engin er rós án þyma,“ sagði maðurinn með spekingssvip. Upp frá þessu varð klippingin á Bo- ugainvillaeaunni árlegur hluti af garðvinnunni, og venjulega fram- kvæmd snemma árs. Þetta var þó nokkurt vej'k, því klippa varð grein- arnar í mátulegar lengdir og binda í búnt. Öðru vísi vildu öskukallarnir ekki taka þær. Þyrnamir voru mjög til baga, og eftir klippingar-helgi voru hjónin oft rifin og rispuð á hönd- um og handleggjum, eins og þau hefðu verið að baða köttinn. Snemma á þessu ári, sem endra- nær, fékk klifuijurtin með vínrauðu blómin sína árlegu snyrtingu. Þegar greinarnar, alsettar þyrnunum beittu, voru klipptar og búntaðar, datt lítill bútur niður í grasið. Þetta sáu hjónin ekki. Hann lá þama falinn og á næstu helgum-keyrði maðurinn líklega sláttuvélin yfir hann og þrýsti honum niður í svörðinn. En einn stór og hárbeittur þyrnir var enn á hlið- inni, sem upp vísaði. Hann lá þarna í felum og beið. Síðasta laugardaginn í apríl voi-u hjónin að dunda í kringum húsið. Maðurinn var að hafa sig til að fara að slá grasið, en það þarf að gera um næstum hveija helgi, árið um kring, í Flórída. Þegar hann var að fara í gömlu, slitnu garðyrkjuskóna, sagði hann: „Nei sko; það er komið smá gat á sólann.!“ „Blessaður, farðu í aðra skó,“ sagði konan, „nóg áttu af þeim og það er óþarfi að vera í verkunum í ónýtum skóm.“ „Ég nota þá í sláttinn í síðasta sinn, en hendi þeim síðan,“ sagði maðurinn. Hann gangsetti sláttuvélina og byrjaði að slá grasið sitt, léttur í lund. Sólin stafaði heitum geislum, gróðurinn ilmaði, fuglarnir sungu. „Dagur fag- ur prýðir veröld alla,“ muldraði mað- urinn. Hann nálgaðist grindverkið, þar sem skartaði hin dáða Bougainvill- aea. í grasinu þar rétt hjá leyndist greinarbúturinn með þyrninum hár- beitta. Maðurinn steig þétt til jarðar, ítandi sláttuvélinni á undan sér. Ilann mundaði hægri fótinn, sem á var skórinn með litla gatinu á sólan- um, og sté fast niður á þyrnann. Beint í mark! Hann stökk næstum hæð sína í loft upp, þegar þyrninn stakkst í gegnum gatið á sólanum og á kaf í fótinn. Síðan skakklappað- ist hann inn, fór úr skónum og henti þeim í öskutunnuna. Joð var borið á stunguna og síðan farið í næstu „gömlu" skóna, sem biðu eftir garð- vinnu. Maðurinn var mjög feginn, að konan skyldi ekki segja: „Þú hefð- ir átt að fara í hina skóna, eins og ég stakk upp á.“ Um kvöldið fór fóturinn að bólgna og morguninn eftir talaði konan manninn inn á fara á slysavarðstofu og láta líta á útliminn. Hann mald- aði í móinn og tuldraði: „Það er nú varla nauðsynlegt að fara að láta lækna líta á smá þyrna-stungu.“ Tekin var röntgenmynd af fætinum, lyfjum sprautað í handlegg manns- ins, hann látinn fá hækjur, og sagt að koma aftur eftir þrjá daga. Fóturinn var skyndilega orðinn þungamiðjan í lífi hjónanna í Flórída. Hann virtist taka lítið mark á því, þótt eigandi hans gerði lítið úr „smá þyrna-stungunni“. Ef til vill ætluðu máttarvöldin að sýna manninum, að oft getur lítil þúfa velt þungu hlassi í mannsbarnanna lífi. Löppin hunzaði meðul og sprautur. Hún bólgnaði enn meira og i hana kom slæmur verk- ur, sem hélt vöku fyrir manninum. Aftur var farið á slysavarðstofuna og þá vildu læknar leggja manninn ------------------------------------j. gott ef ekki ritvélin, þar sem hún er til. Ef Markúsi finnst þetta eðlilegt ástand, er hann kominn æði langt frá uppruna sínum. Að öllu samanlögðu má ljóst vera, að_ eins og málum er nú háttað, er RÚV ekki einungis að ganga á svig við fjárlög ríkisins, heldur að vinna gegn anda útvarpslaganna, og mark- miðum Alþingis með setningu þeirra. Hversu lengi stofnuninni helst þetta uppi er á valdi hinna ýmsu greina ríkisvaldsins. Fjárveitingavaldið mætti byija á því að fá svör við eftirfarandi spurn- ingum: 1. Hve mikið hafa afnotagjöld RÚV hækkað á síðustu 5 árum, umfram almenna verðlagsþróun í landinu? 2. Hver er hækkun raunverulegra auglýsingataxta RÚV á sama tíma? 3. Hver er raunhækkun á rekstrar- kostnaði RÚV á þessum 5 árum, samanborið við almenna verðlags- þróun? 4. Hve mikið hefur ,-tarfsmönnum RÚV fjölgað á þessum tíma? 5. Hvað eru margar stöður mannað- ar hjá RÚV núna, sem engin heimild er fyrir? 6. Hver hefur orðið þróun launa- kostnaðar hjá RÚV á þessum tíma? Ef Ijárveitingavaldið fær svör við þessum spurningum, myndu þau gefa vísbendingu um þá niðurstöðu, sem öllum, sem til þekkja, er fullkom- lega ljós: Ríkisútvarpið hefur í kjölfar nýrra útvarpslaga fitnað eins og púkinn á ijósbitanum. Með tilvísun í skyldur, sem það ýmist sinnir ekki, eða kostar sára- lítið að uppfylla, hefur það slegið ryki í augu fjárveitingavaldsins, og blekkt út úr því miklu meiri nauðung- argjaldahækkanir, en svokallaðar skyldur þess gefa tilefni til, hvað þá heldur almenn verðlagsþróun á landinu. ' Þétta fé hefur RÚV síðan purkun- arlaust notað, til að freista þess með öllum ráðum, að drepa af sér þá samkeppni, sem Aiþingi ætlaðist þó til, að væri fyrir hendi. Fyrr en síðar verða þessar stað- reyndir öllum ljósar, og breytir þar engu þótt Markús Örn skrifi þúsund greinar í Morgunblaðið — ef stofnun hans, með manni mús, verður þá ekki fyrir löngu komin á „gjörgæslu" þeirra manna, sem eiga að gæta fjár- muna almennings í landinu. Höfundur er framkvæmdastjóri framleiðslusviðs Stöðvar 2. inn á spítala. En hjá því var þó kom- ist, þegar heimilislæknirinn var til kvaddur. Hann skar í stunguna á læknastofu sinni og hreinsaði sárið. Gaf hann manninum kvalastillandi lyf og sagði honum að vera í rúminu í þijá daga. Þar svaf hann mest og mókti. Fannst honum það vel sloppið samanborið við Þyrnirósu, sem sofið hafði í 100 ár eftir að hafa stungið sig á snældunni, eins og allir muna. En allt kom fyrir ekki og spítala- vist varð ekki umflúin. Þrátt fyrir skurðinn og feikn af sýkladrepandi lyljum, komst ígerðin alla leið inn í bein. Nú dugði ekkert minna en svæfing og alvöru uppskurður. Þetta var mikil upplifun fyrir manninn, sem ekki hafði legið á sjúkrahúsi síðan hann fæddist á Landspítalanum end- ur fyrir löngu. Eftir 10 daga vist var honum hleypt heim, en þar skyldi læknismeðferðinni haldið áfram. í þijár vikur þurfti hann að fá sýkladrepandi lyf í æð á átta tíma fresti. Hjúkrunarmaður heimsótti hann daglega til að hafa auga með honum og stinga í hann nálum. Brátt gat maðurinn byijað að fara til vinnu. Fyrst ók konan honum, en svo fór hann að aka sjálfur. Hann hældi sér af því, að hann gæti aðeins stigið á bensínpetalann með veika fætinum, en ekki á bremsuna! Hægt og sígandi greri sárið og fóturinn lagaðist. Maðurinn eyddi miklum tíma í að argast í tryggingar- félaginu, sem greiða átti mestan hluta læknisreikninganna, sem voru svimandi háir. Þegar öll kurl voru komin til grafar, hafði þyrninn kost- að kerfið og hjónin í Flórída um 25.000 dali! Maðurinn leit á fótinn með virðingarsvip og sagði ekkert, en konan sagði: „Dýr myndi Þórir allur!“ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990 ia Ríkið eignast meirihluta í Islenskum aðalverktökum Morgunblaðið/Árni Sæberg Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, kynnti samkomulag um breytta eignaraðild að íslenskum aðalverktökum á blaðamanna- fundi í gær. Ásamt ráðherra eru á myndinni (frá vinstri): Valur Franklín, endurskoðandi, Guðmundur Karl Jónsson, forstjóri Fríhafnar- innar á Keflavíkurflugvelli, Stefán Friðfinnsson, aðstoðarmaður ráðherra og stjórnarformaður íslenskra aðalverktaka, og Sighvatur Björgvinsson, formaður Ijárveitinganefndar Alþingis. Þessir menn voru fulltrúar ríkisins í viðræðum um hina breyttu eignaraðild. Sameinaðir verktakar og Reginn taka út eignir umfram úttekt ríkisins Samkvæmt samkomulagi því, sem undirritað hefur verið, verður úttekt Regins hf. á eign í fyrirtæk- inu samtals að upphæð kr. 670.166.517. Sú upphæð skiptist þannig, að úttekinn eignarhluti er að upphæð kr. 502.667.956 og viðbótarúttekt kr. 67.498.561, að viðbættri 100.000.000 kr. úttekt frá_síðasta ári. Úttekin eignarhluti Sameinaðra verktaka hf. verður kr. 1.005.335.912 og viðbótarúttekt kr. 134.991.721, að viðbættum kr. 200.000.000, sem er óhafin úttekt frá því fyrra. Samtals verður út- tekt Sameinaðra verktaka því kr. 1.340.327.633. Samtals nemur úttekt ríkissjóðs kr. 400.177.675 og skiptist upp- hæðin þannig, að úttekinn eignar- hluti er kr. 300.177.675 og óhafin úttekt frá fyrra ári kr. 100.000.000. Útektirnar munu fara fram með bankabréfum til fimm ára, sam- kvæmt nánara samkomulagi við viðskiptabanka félagsins. í samþykktum um úttektir og viðbótarúttektir eigenda er gengið út frá ársreikningum félagsins frá síðustu áramótum, en endanlegt mat verður miðað við reikninga félagsins frá 31. júlí síðastliðnum. í frétt frá utanríkisráðuneytinu segir, að ekki hafi verið fram- kvæmt mat á raunvirði fastafjár- muna, heldur byggist eignamat samkomulagsins á bókfærðu verði eigna með áorðnum afskriftum. 1 frétt ráðuneytisins segir einn- ig, að fasteignum, sem fyrirtækið þurfi ekki á að halda vegna starf- semi sinnar, þ.e. Höfðabakka 9 í Reykjavík og Tjarnargötu 12 í Keflavík, verði skipt milli eigenda í samræmi við núverandi eignarað- ild. Aðilar muni hver um sig til- nefna einn fulltrúa til að gera til- lögu að þessum skiptum og stefnt skuli að því að þeim ljúki eigi síðar en í lok þessa árs. Vegna úttekta eigenda félags- ins á hluta eignar sinnar og sölu fasteigna er gert ráð fyrir að eig- ið fé þess minnki úr kr. 3.404.008.000 í kr. 1.048.241.000. Er þá miðað við að bankainnistæður minnki úr kr. 3.836.235.000 í kr. 1.825.563 og að verð fasteignanna sé kr. Utanríkisráðherra segir, að ís- lenskir aðalverktakar hafi sætt gagnrýni á umliðnum árum. Meðal annars liafi gagnrýnin beinst að eignaraðild í fyrirtækinu og að arðurinn af rekstri þess hafi ekki skilað sér til ríkisins, eða almenn- ings. Ráðherra segir að hann hafi, um leið og hann hafi tekið við embættinu, farið að kanna hvernig breyta mætti fyrirkomulagi varn- 344.995.000. í frétt utanríkisráðu- neytisins segir, að fyllstu varfærni hafi verið gætt við mat á því, hve mikið væri óhætt að taka út úr félaginu og hliðsjón hafi verið höfð af nauðsyn þess, að það hefði áfram trausta eiginfjárstöðu. Þannig hafi, við mat á handbæru fé félagsins, það er bankainni- stæðum og verðbréfum, verið búið að draga frá allar skuldbindingar, svo sem vegna lífeyrisgreiðslna til starfsmanna, ógreiddra skatta og verkefna í vinnslu. Samkvæmt heimildum Morgun- arliðsframkvæmdanna og færa það í nútímalegra horf, með það að markmiði, að arðurinn af þeim skilaði sér til þjóðarinnar og starfsöryggi starfsmanna yrði tryggt. Kannaðar hafi verið leiðir eins og að leggja Islenska aðal- verktaka niður og bjóða fram- kvæmdirnar út á almennum mark- aði. Niðurstaðan væri sú að þáð væri flókið, gæti skaðað hagsmuni íslendinga í samskiptum við verk- blaðsins, munu breytingar á eignaraðild að íslenskum aðal- verktökum hafa í för með sér þá breytingu á stjórn fyrirtækisins, að þar sitji tveir fulltrúar Samei- naðra verktaka, þrír fulltrúar ríkisins og einn fulltrúi Regins. Stjórnarformaður verði tilnefndur af ríkinu og ráði atkvæði hans úrslitum, ef atkvæði falli jöfn í stjórninni. Nú sitja fimm í stjórn Islenskra aðalverktaka; tveir frá Sameinuðum verktökum, tveir frá ríkinu og einn fulltrúi Regins. kaupa og engin trygging væri fyr- ir því áð arðurinn skilaði sér til almennings. Það virtist því ekki fær leið. Sú leið sem hins vegar hefði verið valin tryggði ríkinu meirihluta og gæfi möguleika á að breyta fyrirtækinu í almenn- ingshlutafélag. Utanríkisráðherra segist hafa ákveðið að veita íslenskum aðal- verktökum starfsleyfi til 5 ára. Sá tími verði notaður til þess að breyta fyrirtækinu í almennings- hlutafélag í samræmi við viljayfir- lýsingu eigenda. Markmiðið sé að koma í veg fyrir að eignaraðild í fyrirtækinu safnist á of fáar hend- ur og veiting þessa fimm ára starfsleyfis se nauðsynleg til að tryggja að almenningur sjái sér hag í því að kaupa hlut í því. Markmiðið að gera fyrirtæk- ið að almenningshlutafélagi - segir utanríkisráðherra UTANRÍKISRÁÐHERRA, Jón Baldvin Hannibalsson, segir að samkoinulag eigenda íslenskra aðalverktaka um breytta eignar- aðild sé hagstætt fyrir ríkissjóð. Hér sé um að ræða fyrsta skrefið í þá átt að gera fyrirtækið að almenningshlutafélagi með dreifða eignaraðild og til þess að tryggja að af því verði þurfi ríkið sterka stöðu þar. RÍKISSJÓÐUR íslands hefur eignast meirihluta í íslenskum aðal- verktökum. Eignarhlutur ríkisins í fyrirtækinu er nu 52%, Sam- einaðir verktakar hf. eiga 32% og Reginn hf. 16%. Áður skiptist eignaraðild í fyrirtækinu þannig, að Sameinaðir verktakar áttu 50%, ríkið 25% og Reginn 25%. EignarhlutföIIunum er breytt með þeim hætti, að eigendur fyrirtækisins taka út hluta eigna sinna í fyrirtækinu. Taka Sameinaðir verktakar og Reginn út eignir umfram úttektir ríkisins, þannig að eignarhlutur þess eykst. Fulltrúar eigenda fyrirtækisins undirrituðu samkomulag um þetta í fyrradag og undirrituðu þeir þá einnig viljayfírlýs- ingu um aðíslenskum aðalverktökum verði breytt í almennings- hlutafélag með dreifðri eignaraðild. Utanríkisráðherra hefur jafnframt tilnefnt fyrirtækið til að annast framkvæmdir fyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelli til 5 ára.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.