Morgunblaðið - 15.08.1990, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.08.1990, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990 JSeat Iseli framkvæmdastjór i Saga Reisen: Munum reyna að lengja ferðamanna- tímann smám saman BEAT Iseli, framkvæmdastjóri svissnesku ferðaskrifstofunnar Saga Réisen, segist vera mjög ánægður með hvernig til tókst með beint flug á milli Akureyrar og Sviss. Sérstaklega sé hann ánægður með 4>ær viðtökur sem hann hafi fengið af hálfu heimamanna, ekki síst bæjaryfírvalda. A þessu ári komu hingað 700 Svisslendingar og 100 Akureyringar flugu út. Næsta sumar sagðist hann telja það raun- hæft markmið að 1.400 Svisslendingar kæmu og að um 300 Akur- eyringar færu til Sviss. Iseli var hinn ánægðasti þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær og virtist fullur bjartsýni um fram- haldið. Lét hann meðal annars í ijós von um að smám saman væri hægt að koma hlutum þannig fyrir að bæjarfélögin í kring um Akureyri myndu einnig njóta góðs af ferða- mannastraumnum. Til lengri tíma litið væri ætlunin að reyna að lengja ferðamannatímann í samvinnu við bæjaryfirvöld þannig að hann myndi ná frá maí tii september. ■‘•dsland sagði hann eiga gífurlega möguleika sem ferðamannaland og nefndi sem dæmi að ekki einu sinni eitt prósent svissnesku þjóðarinnar hefði enn komið hingað. Islendingar yrðu þó að gera sér grein fyrir því að það sem þeir hefðu upp á að bjóða væri hrein og ómenguð nátt- úra. Hana yrðum við að fara vel með. Taldi hann nauðsyn á hugar- farsbreytingu meðal Islendinga til umhverfismála og væri til dæmis sorglegt að sjá hve margir létu vél- ^ina ganga áfram þó bílar þeirra væru kyrrstæðir í langan tíma. Hin ómengaða náttúra væri það sem ferðamenn sæktu í og ef hún væri ekki lengur til staðar þá hefði landið ekki nærri því sama aðdráttarafl. Veðrið skipti aftur á móti engu máli. í gær hitti Beat Iseli atvinnu- málanefnd Akureyrarbæjar og var þar m.a. rætt um hugsanlega sam- vinnu bæjarins við Saga Reisen til dæmis varðandi kynningu. Var vilji til staðar af beggja hálfu að svo mætti verða og taldi atvinnumála- nefndin að peningum til kynningar væri best varið í tengslum við aðila sem þekktu inn á markaðinn. Þorleifur Þór Jónsson, ferða- málafulltrúi hjá Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar, hefur áætlað þær tekj- ur sem heimamenn hafa haft vegna ferðamanna á vegum Saga Reisen í sumar. Segir hann að reikna megi með að um 50 milijónir króna hafi bæst við í veltu fyrirtækja á Akur- eyri vegna þessara ferðamanna. Aðallega séu það hótei, gististaðir, veitingastaðir og bílaleigur sem hafi fengið aukin viðskipti en ekki megi heldur gleyma því að ýmis önnur fyrirtæki, svo sem dekkja- verkstæði og verslanir, sem venju- lega telja sig ekki vera í ferða- mannaiðnaði, hljóti aukin viðskipti í kjölfar fleiri ferðamanna. Þorleifur sagðist álíta að ferðaþjónusta á Norðurlandi eystra velti um 1,2 milljarði árlega og væru þá einung- is teknir með inní dæmið þeir ferða- menn sem dvelja á hótelum eða gististöðum en ekki þeir sem dvelja hjá vinum og vandamönnum. Skinnaiðnaður Sambandsins Akureyri Nýtt símanúmer 96-21710 Hér með tilkynnist að Iðnaðardeild Sambandsins, skinnaiðnaður, mun frá og með miðvikudeginum 15. ágústtaka upp nýtt símanúmer, 96-21710. Gamli Hólabærinn er siðasti torfbærinn sem eft- ir stendur í Eyjafirðinum. Eins og sjá má á myndinni var fremsti skálinn að hruni kominn. A innfelldu myndinni eru smiðirnir og Hólabræð- ur. Frá v instri: Sverrir Meldal, Kristján Péturs- son, Sverrir Hermannsson, Rafn Jónsson og Olaf- ur Jónsson. Hundurinn heitir Vaskur Bárðdal. Endurreisn síðasta torf- bæjarins í Eyjafírði hafin VINNA við endurreisn gamla Hólabæjarins innst í Eyjafirði hófst fyrir skömmu. Hólabærinn er eini torfbærinn sem eftir er í firðinum og er talið að elsti skálinn sé frá árinu 1730. Enginn veit þó nákvæm- lega hvenær fyrst var byggt á jörðinni. Að Hólum búa nú bræðurn- ir Rafn og Ólafur Jónssynir og segja þeir að búið hafi verið í gamla torfiuenum til 1946 og hann síðan áfram notaður eitthvað allt fram til ársins 1952. Enn er hann að hluta notaður sem geymsla. Það eru smiðirnir Sverrir Her- mannsson, Sverrir Meldal og Krist- ján Pétursson, sem vinna að upp- byggingu Hólabæjarins. Var hann nýlega friðaður af Þjóðminjasafninu og mun það kosta endurbygging- una. Er ætlunin að byggja bæinn upp í áföngum á næstu árum. Hófst vinna nú síðsumars við þann skála sem verst er farinn. Sagði Sverrir Hermannsson að skálinn hefði verið orðinn það lélegur að hann hefði verið að hruni kominn. Stafninn að framan hefði hallast um einn metra fram yfir sig. Það hefði einungis verið ein skástífa inní tóftinni sem þeir Hólabræður settu í fyrir nokkru sem hefði haldið bænum uppi síðustu árin. Ef þessi stífa hefði ekki verið væri bærinn farinn. Sverrir sagði verkið vera rétt að byija. Búið væri að rífa torfið ofan af þekjunum. Væri ætlunin að reyna að klára þennan fyrsta skála í haust en alls mætti gera ráð fyrir að verkið myndi taka um fimm ár. Efnið sem notað verður kemur frá Vestfjörðum en það er maður á Bolungarvík sem vinnur það úr rekaviðartijám. Það yrði þó gert við allt sem hægt væri að gera við aiveg sama þó spýturnar væru arfafúnar. Sagði Sverrir að fellt yrði inní þær með ýmsum kúnstum og svo ætti hann gamalt efni úr Snorrahúsi sem hefði verið rifið fyrir nokkrum árum. Það efni myndi hann nota til að gera við stoðir og þverborð í húsgrind- inni. Á mörgum bitum og sillum eru strik sem þarf að gera upp á nýtt þegar gert er við spýturnar þar sem ætlunin er að hafa allt í upprunalegri mynd. Þyrfti því að búa til sérstaka hefla fyrir þessi strik. Sagðist Sverrir eiga mikið af gömlum tréheflum sem hann gæti breytt. Sverrir Hermannsson er alvanur því að gera upp gömul hús. Hann segist hafa unnið við smíðar í 45 ár og hafi helmingur þess tíma far- ið í endurgerð eldri húsa. Þeir félag- arnir væru alls með um tuttugu hús í takinu sem þeir sæju um uppbygg- ingu á sem og eftirlit og viðhald. Luku þeir til dæmis fyrir skömmu viðgerð á Möðruvallakirkju ytri. Hólabæinn segir Sverrir aftur á móti vera fyrsta torfbæinn sem þeir fáist við. Sunnan við bæinn stendur svo Hólakirkja sem reist var árið 1853. Er hún mjög illa farin að neðan og fótstykki og klæðning orðin fúin. Er ætlunin að ráðast í viðgerð á henni í haust á meðan hleðslumenn vinna við torf- bæinn. Fundur um missi í fjölskyldu SAMTOK um sorg og sorgarvið- burði halda fund í safnaðarheim- ili Akureyrarkirkju á fimmtu- daginn klukkan 20.30. A fundinum mun Nanna Sigurð- ardóttir, félagsráðgjafi, flytja erindi um missi í flölskyldu á ýmum ævi- skeiðum. Kveðjuorð: Jón G. Benediktsson Fæddur 13. september 1952 Dáinn 4. ágúst 1990 Hetja er fallin í valinn. Hetja sem stóð meðan stætt var, og varð mörgum aðdáunarefni í baráttu sem var bæði ójöfn og óvægin. Jón Gestur varð ekki gamall að árum, en þó búinn að afreka svo margt. Hann var yfirleitt búinn að framkvæma í gær það sem við hin ætluðum að gera á morgun. Hann var aðeins 16 ára gamall er hann stofnaði eigin hárgreiðslu- stofu með aðstoð móður sinnar, ‘Auðar. 13. september 1988, daginn sem hann sjálfur varð 36 ára, hélt hann upp á 20 ára starfsafmæli hár- greiðslustofunnar Byigjunnar. Þá eins og oft endranær gerði hann sér og vinum sínum eftirminnilega glaðan dag. Það eru örugglega margir við- skiptavinir hans og þeirra hjóna sem þessa dagana rifj'a upp glaðar stundir í Bylgjunni, og ótrúlega margir urðu það persónulegir, að heimili þeirra Jóns og Heiðu varð viðkomustaður. Það hefur líka sýnt sig í hans erfiðu veikindum sl. ár hve margir hafa fylgst með og tek- ið þátt í hetjulegri og bjartsýnni baráttu sem við vonuðum svo lengi að sigur ynnist á. Hann var tæplega þrítugur þegar þau Heiða rugluðu saman reytum og síðan þá, í 18 ár, hefur Nonni og Heiða verið þeirra samheiti — þau voru ótrúlega samtaka í öilum sínum gerðum. Þau eyddu svo sann- ariega saman dögunum og það kom vinum þeirra hjóna ekki á óvart þegar Heiða tók þá ákvörðun að Jón færi ekki á sjúkrahús þegar endalokin nálguðust, heldur dveldi heima með hjálp heimahlynningar Krabbameinsfélagsins, góðrar fjöl- skyldu og vina. Það er því notalegt að geta yljað sér við minningamar þegar staðið er frammi fyrir þeirrr ísköldu staðreynd að okkar góði vinur er nú nár. Minning sem lýsir Jóni Gesti Benediktssyni hvað best að okkar mati er orðin býsna gömul. Það var á fyrstu árum hans með Heiðu og hennar fjölskyldu að honum datt í hug að Birna, yngri systir Heiðu, sem er hreyfíhömluð frá fæðingu og bundin við hjólastól, hefði gaman af, eins og við hin, að taka þátt í jólaundirbúningi með því að fara í bæinn á Þorláksmessukvöld. Og þá vár bara drifið í því. Þó við værum hvorug viðstödd, þá sjáum við okk- ar mann fyrir okkur hlæjandi drösla hjólastólnum inn og út úr búðunum. Kannski hafa þau í leiðinni kíkt í danshús, því Jón sá það í hendi sér að Birna hefði sömu langanir og annað ungt fólk, þótt hún væri bundin við hjólastólinn. Já, hann Jón var maður gleðinn- ar og gáskans en um leið ábyrgur í öllum sínum ákafa. Gpður drengur er genginn sem við í hópi margra munum ætíð sakna. Blessuð sé minning hans. Harpa og Hrefna Nú er hann horfinn vinurinn, Jón Gestur Benediktsson og hefur loks fengið hvíld eftir löng og ströng veikindi. Minningarnar sækja á okkur og hlýja okkur um hjartaræt- ur, þær lýsa sem perlur í myrkri. Við erum svo lánsöm að hafa átt vlðskipti við Jón og Heiðu í mörg ár. Alltaf var jafn gott að koma til þeirra í Bylgjuna. Jón tók á móti okkur með bros á vör og kímnin var aldrei langt undan. Þá gerðu Jón og Heiða nýjársdag að sérstök- um hátíðardegi í okkar augum, degi sem við hlökkuðum til allt árið. Þá fórum við saman nokkur hjón út að borða og dansa. Dagurinn hófst alltaf á því að Jón greiddi okkur öllum, og við það skapaðist alveg sérstök stemmning. Um kvöldið sá Jón svo til þess að allir skemmtu sér vel. Þá voru mat- reiðslunámskeiðin sem sami hópur fór á hjá Rannveigu í Sigtúninu einnig ógleymanleg. Þar var Jón í essinu sínu og í sérstöku uppá- haldi. Hann var sá eini sem nýr réttur var skírður í höfuðið á, og allir vildu heita Jón til fá auka skammt. Nú vonum við að Jón hafi fundið frið á nýjum slóðum. Blessuð sé minningin um góðan, kátan og lífsglaðan dreng. Elsku Heiða, við vottum þér og börnum ykkar og öðrum ættingjum og vinum okkar dýpstu samúð. Guð veri með ykkut'. Sólrún og Guðmundur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.