Morgunblaðið - 15.08.1990, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. AGUST 1990
27
Minninff:
Axel Blöndal læknir
Fæddur 31. október 1904
Dáinn 6.ágúst 1990
Hingað berst mér hljómur skær
heyri ég nú hvað klukkan slær.
Dagleiðinni er dauðinn nær
í dag heldur en hann var í gær.
(Höf. ókunnur.)
Þungur tregahljómur kvað mér í
eyrum er ég hinn 6. þ.m. frétti
andlát vinar míns, Axels Blöndals
læknis.
Þegar nánir vinir hverfa og dag-
leið^eirra er lokið, finnst oss vera
snert við opinni kviku og dimmir
skuggar færast yfir. Axel Blöndal
hafði að vísu átt við mikla van-
Minninff:
Martha
Stefáns-
dóttir
Frænka mín, Martha Stefáns-
dóttir, lést 8. þ.m., 91 árs að aldri.
Hún fæddist 7. ágúst 1899 á
Ystabæ í Hrísey.
Foreldrar hennar voru Snjólaug
Jónsdóttir, fædd á Hofi í Svarfað-
ardal, og Stefán Þorsteinsson frá
Stóru-Hámundarstöðum í sömu
sveit. Hún var eina barn foreldra
sinna.
Marta fór ung stúlka til Vest-
mannaeyja og vann þar við ýmis
störf í nokkur ár. Þá lagði hún land
undir fót og fór til Danmerkur og
var þar við hússtjórnar- og verslun-
arnám. Eftir 5 ára dvöl í Danmörku
sneri hún heim til íslands og vann
sleitulaust að verslunarstörfum svo
lengi sem aldur leyfði.
Eg kynntist Mörthu þegar ég
flutti á Rauðarárstíginn fyrir 26
árum. Bjó hún þar í lítilli íbúð í
kjallaranum, sem var bæði vinaleg
og hlýleg, þó ekki hafi hún átt mik-
ið. Það var gott að koma til Mörthu,
ég man t.d. aldrei eftir henni öðru-
vísi en brosandi í dyrunum. Martha
var einstök manngerð, hún var ein
af þeim allrajákvæðustu manneskj-
um sem ég hef þekkt. Það voru
ekki ófá skipti sem ég bankaði upp
á hjá henni Mörthu frænku og átt-
um við margar skemmtilegar stund-
ir saman. Því miður urðu strjálli
heimsóknir mínar til hennar eftir
því sem árin liðu vegna dvalar
minnar í útlöndum, en í hvert skipti
sem við hittumst urðu fagnaðar-
fundir.
Ég get ekki látið hjá líða að minn-
ast snyrtimennsku og fegurðar-
skyns Mörthu. Það var sama hve-
nær og á hvaða tíma maður hitti
hana, hún var alltaf uppábúin og
vel snyrt og má segja frá því hér
að rétt fyrir andlátið, eða nánar
tiltekið á dánardaginn, bað hún
hjúkrunarfólk að koma sér í bað,
snyrtingu og lagningu, því hún var
viss um að hennar lífdagar væru á
enda. Ég sakna vinkonu minnar og
frænku og óska henni alls hins
besta.
Guðný Aðalsteinsdóttir
heilsu að stríða síðastliðin tvö ár,
en hafði þó lengst af nokkra fóta-
vist og verið hress í máli, svo að
andlát hans kom mér og öðrum á
óvart, eins og löngum vill verða
þegar hinn þögli gestur er á ferð.
Axel Blöndai fæddist í Winnipeg
í Kanada 31. okt. 1904 en fluttist
hingað heim með foreldrum sínum
árið 1907. Faðir hans var Hannes
Blöndal bankaritari og skáld, Gunn-
laugsson Blöndals, sýslumanns í
Barðastrandarsýslu. Móðir Hannes-
ar var Sigríður Sveinbjarnardóttir,
skálds og rektors Egilssonar á
Bessastöðum. Móðir Axels Blöndals
var Soffía Jónatansdóttir, bónda í
Hjörsey, hins merkasta manns.
Stóðu því að Axel víðkunnir ætt-
stofnar í báðar ættir. Axel settist
í Menntaskóla Reykjavíkur og lauk
stúdentsprófi vorið 1926 og kandíd-
atsprófi í læknisfræði frá Háskóla
íslands 1932. Eftir framhaldsnám
erlendis, bæði í Vínarborg og Kaup-
mannahöfn hlaut hann sérfræði-
réttindi í kvensjúkdómum og fæð-
ingarhjálp. Að því loknu hóf hann
störf hér heima sem sjúkrasamlags-
og heimilislæknir. Fullyrða má að
Axel reyndist í hvívetna hinn ágæt-
asti Iæknir, enda var hann virtur
og dáður af sjúklingum sínum.
Ljúfmennska, háttvísi, glaðværð
og skyldurækni var honum í blóð
borin. Þurfti hann iðulega að fara
um bæinn endilangan til að sinna
þörfum sjúklinga sinna. Það þekkja
flestir að hlýhugur, nærgætni og
„léttur húmor“ hjá lækni geta oft
reynst sem læknandi lyf. En þetta
ljúfa viðmót, þessa eðliskosti átti
Axel í ríkum mæli.
Árið 1932 kvæntist hann Sigrúnu
Jónatansdóttur, kaupmanns Þor-
steinssonar, hinni ágætusu konu,
sem staðið hefur eins og bjarg við
hlið eiginmanns síns í blíðu og
stríðu. Sigrún er fjölmenntuð kona
og hafsjór af fróðleik og minningum
um menn og málefni. Sköpuðu þau
sér hlýtt og fagurt heimili að
Drápuhlíð 11, þar sem alúð og hlýja
mætti gestum og góðvinum. Var
þar oft slegið á létta strengi með
græskulausum gamanmálum.
Þeim hjónum var tveggja barna
auðið, eru það þau: Hannes Blöndal
prófessor við Háskólannn, kvæntur
Ester Kaldalóns og eiga þau þijú
börn, og Guðrún Blöndal gift Hauki
Þorsteinssyni tannlækni og eiga
þau einnig þijú börn. Eru þessi
frændsystkini öll vel menntuð og
gjörvileg ungmenni sem hafa aukið
birtu og gleði í hjörtum afa og
ömmu.
Axel Blöndal var prúður maður,
háttvís, hjartahlýr og orðvar, og því
vægur í dómum um menn og mál-
efni. Öll mannúðarmál áttu hjá hon-
um öruggan og traustan liðsmann.
í góðra vina hópi var Axel manna
glaðastur. Hann hafði einnig frá
mörgu að segja frá stúdentsárum
sínum og starfsævi og ferðalögum
þeirra hjóna bæði austan hafs og
vestan. Þá var hann mikill bókaunn-
andi, átti gott bókasafn og las mik-
ið sérstaklega eftir að hann hætti
læknisstörfum. Segja mátti að alla
ævi væri Axel hinn fróðleiksþyrsti
stúdent sem naut þess að auka
þekkingu sína og víðsýni á sem
flestum sviðum.
Við hjónin þökkum þessum
elskulegu hjónum Axel og Sigrúnu
fyrir ástúðlega vináttu og tryggð
sem við höfum notið af þeirra hálfu
frá fyrstu kynnum.
Elsku Sigrún mín. Ég bið Guð
að leiða þig og styrkja í söknuði
þínum og reynslu.
Um leið og ég kveð látinn vin,
þakka ég honum fyrir hugljúfa
kynningu og margar ógleymanlegar
samverustundir. Guð fylgi mínum
látna vini til sóllanda fegri, þar sem
sérhver rún er ráðin og þar sem
miskunn Guðs og kærleikur þroskar
og glæðir sérhvern 'ljóselskan þátt
sem í eðli voru er falinn.
Nánum ættingjum og vinum
sendi ég einlægar samúðarkveðjur.
Þorsteinn Jóhannesson
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRARINN ÁRNASON
frá Stóra Hrauni,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
17. ágúst kl. 15.00.
Blóm og kransar afbeðnir, en þeim, sem vildu minnast hans, er
bent á líknarsjóði.
Kristín Þórarinsdóttir,
Lára Þórarinsdóttir Beck,
Elísabet Þórarinsdóttir,
Elín Þórarinsdóttir,
Inga Þórarinsdóttir,
Gyða Þórarinsdóttir,
Einar Nikulásson,
Halldór Beck,
Stefán Gíslason,
Hans Gústafsson,
Ólafur G. Eyjólfsson,
Hafliði Guðjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Til greinahöfunda
Minningarorð
Það eru eindregin tilmæli rit-
stjóra Morgunblaðsins til þeirra,
sem rita minningar- og afmælis-
greinar í blaðið, að reynt verði
að forðast endurtekningar eins og
kostur er, þegar tvær eða fleiri
greinar eru skrifaðar um sama
einstakling. Þá verða aðeins leyfð-
ar stuttar tilvitnanir í áður birt
ljóð inni í textanum. Ef mikill
fjöldi greina berst blaðinu um
sama einstakling mega höfundar
og aðstandendur eiga von á því
að greinar verði látnar bíða fram
á næsta daga eða næstu daga.
Að undanförnu hefur það færst
mjög í vöxt, að minningargreinar
berast til birtingar eftir útfarar-
dag og stundum löngu eftir jarð-
arför. Morgunblaðið áskilur sér
rétt til að birta ekki minningar-
greinar sem berast því eftir að
útför hefur farið fram.
Morgunblaðið hefur ekki birt
ný minningarkvæði um látið fólk,
en leyft tilvitnanir í gömul, áður
prentuð kvæði. Blaðið áskilur sér
rétt til að stytta þessar tilvitnanir
eða fella þær niður, ef þær-eru
sífellt endurteknar í blaðinu. Þá
mun Morgunblaðið ekki birta heil
kvæði, áður birt, en stundum
fylgja óskir um það.
Ritstj.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð vegna andláts
KRISTÍNAR Þ. ÁSGEIRSDÓTTUR
frá Fróðá.
Útför hennar fór fram 8. ágúst í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Einar Stefánsson, Halla Jónatansdóttir,
Soffía Stefánsdóttir Carlander, Folke Carlander,
Ólafur Stefánsson, Vilhelmína Baldvinsdóttir,
börn og barnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð vegna andláts móðursystur
okkar,
ÖNNU SIGURJÓNSDÓTTUR,
Suðurgötu 41,
Hafnarfirði.
Sigurdór Hermundarson,
Bjarni Hermundarson,
Sigurður Hermundarson
og fjölskyldur.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför elsku móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
VALNÝAR BENEDIKTSDÓTTUR,
Álfaskeiði 64.
Ástheiður Guðmundsdóttir,
Friðgeir Guðmundsson, Ester Óskarsdóttir,
Bragi Guðmundsson, Jóhanna Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug, blóm, kransa
og skeyti við andlát og útför
VALGERÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Ijósmóður,
Hvammi í Kjós.
Fyrir hönd systkina hennar og annarra ættingja,
Karl Karlsson,
Erla Jónsdóttir,
Guðbjörn Jónsson.
+
Alúðarþakkir til allra þeirra fjölmörgu, sem sýndu okkur samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginmanns mins, föður,
tengdaföður, afa og langaafa,
KARLS B. ÁRNASONAR
glerskurðarmeistara,
Stigahlíð 39.
Einnig viljum við færa starfsfólki og læknum á deild A-7, Borg-
arspítalanum, sérstakar þakkir.
Fyrir hönd vandamanna,
Margrét N. Eyjólfsdóttir.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við fráfall og útför
STEFÁNS REYKJALÍNS
byggingameistara
á Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki lyflækningadeildar F.S.A
fyrir frábæra umönnun.
Bjarni Reykjalín, Svava Aradóttir,
Guðmundur Reykjalín, Guðrún Jónsdóttir
og barnabörn hins látna.
Lokað
Vegna jarðarfarar SIGRÚNAR Á. EIRÍKSDÓTTUR
verða skrifstofur okkar lokaðar eftir hádegi í da'g.
Bræðurnir Ormson hf.
Lokað
í dag, miðvikudag, frá kl. 13.00-15.00 vegna jarð-
arfarar FRÚ SIGRÚNAR EIRÍKSDÓTTUR.
Verslunin Sér,
Laugavegi 95.