Morgunblaðið - 15.08.1990, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990
33
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu .. .
Virðingarleysi gagnvart
íslenska fánanum
Sigrún hringdi:
„Ég var í jarðarför um daginn
og var íslenski fáninn yfir kist-
unni. Þegar svo kistan var borin
til grafar tók meðhjálparinn fán-
ann af kistunni og hélt ég að
hann myndi bijóta hann saman.
En hann tók fánann upp í miðj-
unni, vöðlaði honum saman og
stakk undir höndina og lagði fán-
ann stuttu síðar niður á jörðina,
samanvöðlaðan. Það voru margir
sem fylgdu til grafar undrandi á
þessum aðförúm með fánann. Er
þetta ekki óvirðing að fara svona
með hann? Eru ekki til reglur sem
segja að bera eigi virðingu fyrir
fánanum og að fáninn megi ekki
koma við jörðu?“
Vill komast í samband við
fólkið sem gróðursetti á
Vogastapa —
Helga Skaftfell hringdi:
„Ég var að lesa í Morgunblað-
inu sunnudaginn 12. ágúst um
fólk sem gróðursetti í moldarflög
á Vogastapa. Mig langar til að
komast í samband við þetta fólk
og bið það að hringja í mig í síma
23997 á kvöldin.“
Tapaði rauðum hjálm
Lítill drengur var að leika sér
á Víðivöllum í Hafnarfirði í
síðustu viku. Hann lagði frá sér
rauðan plasthjálm en þegar hann
ætlaði að ná í hann var hann
horfinn. Finnandi er beðinn að
hringja í Árna Pétur í síma 50245.
Tapaði giftingarhring
Giftingarhringur tapaðist
fimmtudaginn 9. ágúst. Finnandi
er vinsamlega beðinn að hringja
í síma 685925 eftir hádegi. Fund-
arlaunum heitið.
Kvengullúr tapaðist
Kvengullúr tapaðist við Borg-
arspítalann fimmtudaginn 2.
ágúst eða við Dunhaga. Finnandi
vinsamlega hringi í síma 16423.
Góð aðstaða fyrir fatlaða
í Baldri
Kona hringdi:
„Maður sem bundinn er hjóla-
stól fór fyrir stuttu með-flóabátn-
um Baldri til Flateyjar. Hann vill
þakka fyrir hve vel báturinn er
hannaður fyrir fatlaða og þá sér-
staklega hjólastóla. Þetta er
líklega eina feijan hér þar sem
hjólastólar geta farið svona auð-
veldlega um borð, þar er lyfta og
snyrtiaðstaða fyrir fatlaða. Og var
öll framkoma og viðmót um borð
einstaklega vinsamleg.“
Blár páfagaukur týndur
Blár karlpáfagaukur flaug frá
heimili sínu, Sæbólsbraut 28, fyr-
ir stuttu. Þeir sem vita um hann
eru beðnir að hringja í síma
44876.
Fress í óskilum
Gulbröndóttur hálfstálpaður
fresskettlingur er í óskilum í
Kóngsbakka 4. Eigendur geta
hringt í síma 76447.
Fann torfæruhjól
Torfæmhjól fannst á Bergþóru-
götunni. Eigandi getur hringt í
síma 74894.
Helst til tónelskir truboðar
Til Velvakanda.
Ástæða þess að ég skrifa þér
þetta bréf er að ég get ekki lengur
á mér setið. Undanfarnar vikur hef
ég líkt og aðrir sem starfa í miðbæ
Reykjavíkur hvað eftir annað orðið
fyrir barðinu á óhóflegri söngelsku
trúboða þessa lands og erlendra
samstarfsmanna þeirra.
Ég hef í sjálfu sér ekkert á móti
því að fólk boði öðrum trú sína og
ekki heldur því að lagvisst fólk
hefji upp raust sína endrum og sinn-’
um. Hins vegar þykir mér heldur
þreytandi þegar fólk sem ekki hefur
ástæðu til að flíka sönghæfileikum.
sínum heldur tónleika dag eftir dag
í næsta nágrenni við mig. Einkum
Sýnum hvert öðru nær-
gætni í umferðinni.
- KOMUM HEIL HEIM -
HEILRÆÐI
V
í
og sér í lagi líkar mér flutningurinn
illa þegar álíka lagvissir hljóðfæra-
leikarar spila undir og hávaðinn er
magnaður upp með kraftmiklum
hljómflutningstækjum. Ekki bætir
úr skák ef tónsmíðarnar eru sjaldn-
ast björgulegar og lagavalið með
eindæmum einhæft. . ' *
Fyrir nokkrum árum var nokkuð
um það að fólk kvartaði undan
hávaða frá hljómplötubúðum. Þær
hafa nú að því er ég best veit lagt
af þann sið að plaga þá sem eiga
leið framhjá búðunum eða vinna í
næsta nágrenni með því að útvarpa
í sífellu sýnishornum af söluvöru
sinni. Þykir mér því skjóta skökku
við að guðsmennirnir taki við þar
sem poppiðnaðurinn hætti og mengi
stræti Reykjavíkur með misfögrum
tónum. Þykir mér enda fullvíst að
þessi trúboðsaðferð sé ekki árang-
ursrík, að minnsta kosti gefur fjöldi
þeirra sem hlustar á boðskapinn af
fúsum og fijálsum vilja ekki tilefni
til að ætla það.
Skora ég því hér með í fullri vin-
semd á þá trúboða þessa lands sem
beitt hafa söngli og hljóðfæraspili
til að ná athygli fólks að þeir velji
sér aðrar og hljóðlátari aðferðir í
framtíðinni.
Tónelskur
•IÝTT SÍMANÚMER
AUa?SINGADBlDÆ
GARÐASTÁL
Á þök og veggi
= HEÐINN =
STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000
NY SENDING AF:
□ Orkusteinum - stórbrotið úrval.
□ Hálskeðjum og hálsmenum.
□ Reykelsum. "
□ Bókum - úrvalið eykst stöðugt.
EINNIG:
□ Rúnir - pendúlar.
□ Veggspjöld - gjafakort.
□ Stjörnukort.
□ Nýaldarspólur - gott úrval.
□ O.m.fl.
Það er staðreynd - þau virka!
Tvær milljónir Evrópubúa
nota nú Mondial daglega.
Virkni MONDIAL armbandsins felst í pólunum, sem eru hlaðnir
6 millivolta spennu, og talið er að hafi áhrif á plús- og mínusorku
líkamans í átt til jafnvægis og eykur þannig vellíðan.
Ummæli nokkurra ánægðra notenda Mondial armbandsins:
• „Ég hef ekki sofið eins vel í mörg ár síðan ég eignaðist MONDIAL arm-
bandið."
• „Ég er búin að eiga MONDIAL armbandið í viku og ég hef ekki fengið
mígrenikast síðan ég setti það upp.“
• „Eftir að ég eignaðist MONDIAL armbandið er ég í meira andlegu jafn-
vægi en ég hef fundiö fyrir lengi."
• „Ég er svo miklu betri af astmanum, eftir að þafa gengið með MONDIAL
armbandið í nokkra mánuði, að ég hef getaö sleppt meðulunum."
• „Ég tók allt i einu eftir því, eftir nokkra vikna notkun á MONDIAL arm-
þandinu, að sviðinn í axlarvöðvunum var alveg horfinn."
Mondial armbandið
fæst í 5 stærðum
XS - 13-14 cm ummál
S - 14-16 cm ummál
M - 17-18 cm ummál
L - 19-20 cm ummál
XL - 21-22 cm ummál
VERÐIÐ
ER HAGSTÆTT
Silfur......kr. 2.590,-
Silfur/gull
Gull ......
....kr. 2.590,-
....kr. 3.690,-
beuR/MT
Laugavegi 66
101 Reykjavik
símar 623336 og 626265
Póstkröfuþjónusta -
Greiðslukortaþjónusta
Pantanasímar:
(91)62 33 36 og 62 62 65
Ný sending frá
ESCADA 1 TÍZKAN Laugavegi 71 II hæð Simi 10770 Fyrst og fremst einstök gæði