Morgunblaðið - 15.08.1990, Qupperneq 35
35
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990
ÚRSUT
Körfuknattleikur
Fyrstu leikirnir í 8-liða úrslitum (allir leika
við alla) heimsmeistarakeppninnar í körfu-
knattleik, sem stendur nú yfír í Argentínu:
Bandaríkin - Argentína......104:100
Júgóslavía - Brasilía.......105: 86
Sovétríkin - Grikkland...... 75: 57
Puerto Rico - Ástralía...... 89: 79
Knattspyrna
1. DEILD KVENNA:
Breiðablik - Valur .............2:0
Kristrún Lilja Daðadóttir, Rósa Dögg Jóns-
dóttir.
■Breiðablik stendur vel að vfgi eftir sigur^
inn í gær; er efst með 24 stig og á einn
leik eftir. ÍA er í öðru sæti með 15 stig og
á þijá leiki eftir — með sigri í öllum á liðið
möguleika á að ná Breiðablik að stigum en
til að ÍA eigi möguleika á titlinum verður
Kópavogsliðið að tapa fyrir KR næstkom-
andi mánudagskvöld.
3. DEILD KARLA:
Þróttur R. - Dalvík...............3:1
Sigurður Hallyarðsson 2 (lv) Óskar Óskars-
son - Birgir Össurarson
Haukar-TBR........................7:0
Gauti Marinósson 2, Valdimar Sveinbjörns-
son 2, Guðjón Guðmundsson, Siguijón Dag-
bjartsson, Ólafur Jóhannsson.
Þróttur N. - ÍK...................1:2
Ólafur Viggósson (v) - Hörður Magnússon,
Steindór Elíasson
BÍ - Einherji.....................4:0
Reynir Á. - Völsungur.............1:0
Páll Gíslason (v)
• Staða efstu liðanna er nú þessi:
Þróttur R........14 12 1 1 42:12 37
ÍK...............14 11 0 3 37:20 33
Haukar...........11 10 1 3 33:16 31
4. DEILD:
Léttir - Leiknir R................0:2
Þorsteinn Kristinsson, Atli Þór Þorvaldsson.
Handknattleikur
Aukakeppnin um tvö sæti f 1. deild karla:
Þór-Haukar.................12:15(3:7)
Jóhann Samúelsson 3, Ingólfur Samúelsson
3 - Peter Baumruk 6, Sveinberg Gislason
4, Sigurður Örn Arnarson 3.
HK-Grótta.................22:25(14:9)
Elvar Óskarsson 8, Rúnar Einarsson 7,
Róbert Haraldsson 5 - Halldór Ingólfsson
10, Páll Björnsson 5.
• Staðan:
Haukar.................3 3 0 0 74:41 6
Grótta.................3 3 0 0 68:52 6
HK.....................3 0 0 3 54:68 0
Þór....................3 0 0 3 39:74 0
í KVÖLD
■KNATTSPYRNA: Einn leikir verður
í 1. deild karla í kvöld. Víkingur fær KA í
heimsókn kl. 19. Á sama tíma verða leikn-
ir fjórir leikir í 4. deild: Austri - Sindri,
Umf. Stjarnan - KSH, Huginn - Leiftur F.
og Höttur - Valur Reyðarfirði.
■ HANDKNATTLEIKUR: Auka-
keppnin um sæti í 1. deild: Þór - HK,
Grótta - Haukar. Báðir leikirnir hefjast ki.
20.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KVENNA
Morgunblaðið/KGA
Tvœr af reyndustu knattspyrnukonum landsins kljást á Kópavogsvelli í gærkvöldi. Ásta María Reynisdóttir hefur
betur en Ragnheiður Víkingsdóttir að þessu sinni, einnig í leiknum og svo virðist sem það eigi einnig við um sumarið í
heild. íslandsbikarinn er að öllum líkindum á leið frá Hlíðarenda í Kópavog.
Bikarlnn
á leið í
Kópavog
BREIÐABLIKSSTÚLKUR eru
komnar með aðra hönd á ís-
landsmeistarabikarinn eftir 2:0
sigur á Val í gærkvöldi. Aðeins-
ÍA á möguleika á að ná Breiða-
bliki að stigum, en liðinu nægir
jafntefli gegn KR á mánudag
til þess að gulltryggja titilinn.
Breiðablik varð síðast íslands-
meistari 1983, en það var
reyndar fimmta árið í röð sem liðið
vann titilinn. Þess má og geta að
þjálfari liðsins þá
Katrin var Sigurður Hann-
Frióriksen esson, sem tók ein-
skrífar mitt við stjórn þess
að nýju fyrir þetta
keppnistímabil.
Leikurinn í gærkvöldi var jafn
framan af og bæði lið áttu ágætis
sóknir og marktækifæri í fyrri hálf-
ieik þrátt fyrir að mörkin létu á sér
standa. Þjóðhildur Þórðardóttir
komst einna næst því að skora þeg-
ar gott skot hennar beint úr auka-
spyrnu small í þverslá Valsmarks-
ins.
Síðari hálfleikur var nýhafinn
þegar Kristrún Lilja Daðadóttir
náði forystunni fyrir Breiðablik.
Hún slapp inn fyrir vörn Vals og
renndi boltanum framhjá Guð-
björgu í markinu sem var frekar
sein að átta sig. Nokkrum mínútum
síðar fengu Valsstúlkur besta
marktækifæri sitt í leiknum þegar
Ingibjöi’g Jónsdóttir komst með
boltann upp að endalínu alveg við
markstöngina. Hún gaf fyrir mark-
ið en laust skot Heru Ármanns-
dóttur fór í varnarmann á marklínu.
Kristrún Lilja átti heiðurinn af
síðara marki UBK. Hún lék boltan-
um upp að markteig og í stað þess
að skjóta sjálf í góðu færi renndi
hún boltanum fyrir markið. Þar var
Rósa Dögg Jónsdóttir alveg á auð-
um sjó eftir varnarmistök Vals-
stúlkna og var eftirleikurinn auð-
veldur fyrir hana.
Að hengja dómara fyrir Fram
eftirHeimi
Bergmann
Fyrir nokkru fór fram leikur
milli Vals og Fram í mjólkurbikar-
keppni KSÍ. Þessi leikur hefur dreg-
ið nokkum dilk á eftir sér. Eftir
að leiknum lauk missti fyrirliði
Fram gersamlega stjórn á skapi
sínu, hafði í hótunum við starfs-
menn vallarins og hótaði dómara
leiksins lífláti, hvorki meira né
minna. Dómarinn sendi sérstaka
skýrslu um atvikið til Aganefndar
KSÍ, en Aganefnd vísaði málinu frá
vegna formgalla.
I 6. gr. reglugerðar KSÍ um
knattspyrnumót segir í þriðju máls-
grein: „Að leik loknum gengur dóm-
ari frá Ieikskýrslu og skal hann rita
á skýrsluna hverjir hafi gerst brot-
legir við starfsreglur Aganefndar.
Ennfremur segir í 13. gr. sömu
reglugerðar, að dómarar skuli nota
eyðublöð Aganefndar þegar þeir
áminna eða vísa leikmönnum af
velli. Dómarinn ritaði ekkert á leik-
skýrsluna né heldur sendi hann
kæru sín á eyðublaði Aganefndar.
Hvers vegna ekki?
1. Dómarinn áminnti leikmann-
inn ekki (gult) né beitti hann útilok-
un (rautt). Atvikið var alvarlegra
en svo.
2. í starfsreglum Aganefndar er
ekki getið um svo alvarleg atvik
sem þetta.
3. Það var ekkert pláss eftir á
leikskýrslunni (þar eru einungis
tvær línur fyrir athugasemdir og
þessar línur voru útskrifaðar).
4. Hann notaði ekki eyðublöð
Aganefndar vegna þess að hann
hafði hvorki áminnt eða beitt útilok-
un og mátti þar af leiðandi ekki
nota þessi eyðublöð.
Eftirlitsmanni KSÍ var kunnugt
um atvikið. Hann sendi líka inn
skýrslu en allt kom fyrir ekki. Því
er við að bæta að þarna eru á ferð-
inni formsatriði sem mjög margir
dómarar hafa ekki fylgt eftir. Það
hefur þó ekki komið í veg fyrir að
Aganefnd taki á málum enda eru
leikskýrslur sjaldnast til staðar þeg-
ar Aganefnd úrskurðar því þær
berast oft bæði seint og illa.
Skýrslu sína sendi dómarinn með
hraðpósti. Aganefnd tók málið fyrir
11 dögum síðar og vísaði því frá.
Gott og vel. En þarna finnst mér
Aganefnd hafa brugðist eða látið
undan þrýstingi. í 4. gr. starfs-
reglna Áganefndar segir: „Úrskurði
Aganefndar verður ekki áfiýjað.“
Og þar með átti málinu að vera
lokið. En stjórn KSÍ tók málið engu
að síður upp á næsta fundi sínum,
ásamt öðru sem Aganefnd hafði
vísað frá. Hitt málið sem stjórnin
tók upp var vegna atviks í leik Ein-
herja og Þróttar Neskaupstað. Liðs-
stjóri Einheija hafði skv. lögreglu-
skýrslu rófubeinsbrotið leikmann
Þróttar meðan á leik stóð. Þetta
höfðu bæði dómari leiksins og línu-
verðir látið framhjá sér fara. Stjórn
KSÍ dæmdi liðsstjórann í 4 leikja
bann. Síðar kom í ljós að leikmaður-
inn var ekki rófubeinsbrotinn enda
lék hann næsta leik eins og ekkert
\
Heimir Bergmann.
„Afgreiðsla sú sem þetta
leiðindamál fékk stenst
hvorki samkvæmt túlkun
reglugerðar KSÍ, UEFA eða
FIFA. Þetta mál var borið
undir ráðstefnu eftirlits-
manna sem haldin var í
Finnlandi. Þar voru saman-
komnir eftirlitsmenn frá
Norðurlöndunum og Eng-
landi. Þeir voru sammála
málsmeðferð dómarans
og sögðu að Aganefnd
bæri að taka á svona mál-
um.“
hefði í skorist.
Þarna er stjórn KSÍ ekki sam-
kvæm sjálfri sér. Hún dæmir iiðs-
stjórann í bann samkv. vafasamri
lögregluskýrslu og ávítir dómarann
fyrir að fá líflátshótun.
Stjórn KSÍ fól Dómaranefnd að
ávíta dómarann og þáttur Dómara-
nefndar er kostulegur.
Dómaranefnd skipa 5 menn, þrír
eru kosnir af stjórn KSÍ en tveir
af stjórn knattspyrnudómarasam-
bands íslands. Af þessum þremur
frá stjórn KSÍ eru tveir Framarar
og þeir tóku málið fyrir án þess að
dómarasambandsmennirnir væru
boðaðir. Dómaranefnd, þ.e. þessir
tveir sem voru mættir, ræddu málið
við dómara leiksins og gagmýndu
hann. Dómarinn mótmælti og þegar
líða tók á fundinn mætti formaður
nefndarinnar. Hann var í veiga-
miklum atriðum samnefndarmönn-
um sínum ósammála en áminnti
dómarann engu að síðu en neitaði
að gefa nokkuð skijflegt um málið.
Dómarinn fór af fundi án þess að
fá botn í hvort hann hafði brugðist
og þá hvar. Við þetta er litlu að
bæta og þó. í vetur dæmdi einn
okkar besti dómari (milliríkjadóm-
ari) úrslitaleik milli Fram og KR
innanhúss. KR vann. Eftir leikinn
hafði einn stjórnarmaður Fram í
flimtingum að hann skyldi sjá til
þess að þessi dómari dæmdi ekki
oftar hjá Fram. Fyrir gráglettni
örlaganna og Framarans í dómara-
og niðurröðunarnefnd hefur þessum
dómára ekki verið raðað á leik hjá
Fram í sumar. Þrátt fyrir yfirlýsta
stefnu Dómaranefndar að láta
milliríkjadómara dæma sem mest
hjá toppliðunum. Og meira. Okkar
fremsti milliríkjadómari í gegnum
árin vísaði fyrr í sumar Framara
af velli í leik Þórs og Fram. Aga-
nefnd dæmdi leikmanninn í tveggja
leikja bann. Framarar áfrýjuðu, þó
að það sé ekki hægt, en Áganefnd
staðfesti úrskurð sinn. Dómarinn
varð fyrir aðkasti. Hann hefur nú
ákveðið að leggja skóna á hilluna.
Er þetta Framþróun? Nú má enginn
skilja mig sem svo að Framarar séu
öðrum verri. Þeir hafa á að skipa
einhveiju besta liði sem ég hef séð
hérlendis. En með þessari fram-
komu eru „velunnarar" félagsins
ásamt fákunnandi stjórn KSI að
eyðileggja fyrir félaginu og um leið
fyrir knattspyrnunni í landinu.
Lokaorð
Afgreiðsla sú sem þetta leiðinda-
mál fékk stenst hvorki samkvæmt
túlkun reglugerðar KSÍ, UEFA eða
FIFA. Þetta mál var borið undir
ráðstefnu eftirlitsmanna sem haldin
var í Finnlandi. Þar voru saman-
komnir eftirlitsmenn frá Norður-
löndunum og Englandi. Þeir voru
sammála málsmeðferð dómarans
og sögðu að Aganefnd bæri að taka
á svona málum.
Ilöfundur er fyrrverandi formaður
Knattspyrnudómarasambands Is-
lands, fyrrverandi dómaranefndar-
maðiir og leiðbeinandi í knatt-
spynntdónmrafræðum.