Morgunblaðið - 09.10.1990, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 09.10.1990, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐED ÍÞRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990 B 3 KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ „Ætlum ekki að leggjast í vöm'* - sagði BoJohansson, landsliðsþjálfari Valur Jónatansson skrifar frá Spáni BO Johansson, landsliðsþjálf- ari, er bjartsýnn fyrir leikinn og segir að íslenska liðið geti vel staðið í því spænska á góð- um degi. „Við berum enga virð- ingu fyrir Spánverjum og get- um náð hagstæðum úrslitum ef allir gefa sig fullkomlega í leikinn. Við ætlum ekki að leggjast í vörn. Það þýðir þó ekki að við munum sækja stíft gegn Spánverjum, það væri ekki raunhæft. Við reynum að leika skynsamlega og sækja að þeim.“ Bo Johansson segir það mikið atriði að fá ekki á sig pressu í byrjun leiks eins og gegn Tékkum. „Við bökkuðum of mikið gegn Tékkum í fyrri hálf- leik í stað þess að koma framar og fá þannig meira rými á miðjunni. Spánverj- Mm FOLK ■ STEINAR Guðgeirsson, úr Fram, sem er með U-21 árs liðinu, meiddist á fyrstu æfingunni í Se- villa á laugardaginn. Hann fékk spark í kálfa og hefur verið haltur síðan. í gær var ekki reiknað með að hann gæti leikið með gegn Spán- verjum í kvöld. ■ LANDSLIÐUM íslands var boðið að fylgjast með leik Sevilla og Real Vallodolid í 1. deildinni á sunnudaginn. Heimaliðið Sevilla, sem er í 3. sæti í deildinni, sigraði með einu marki gegn engu og mátti þakka fyrir bæði stigin í heldur daufum leik. ■ RAFA Paz er eini leikmaðurinn frá Sevilla sem er í spænska lands- liðshópnum. Hann lék með liðinu gegn Valladolid en var skipt útaf snemma í síðari hálfleik. ■ LEIKUR íslands og Spánar fer fram á Benito Villamarin leik- vanginum í Sevilla. Völlurinn, sem tekur 45.000 áhorfendur í sæti, er heimavöllur Real Betis. Upphaf- lega átti að leika á heimavelli Se- villa, Sanchez Fizjuan-vellinum, sem tekur um 80.000 áhorfendur en hann var ekki talinn í nógu góðu ástandi. ■ LEIKUR A-liðanna fer fram kl. 20.30 að staðartíma eða kl. 19.30 að íslenskum tíma. Leikurinn fer að sjálfsögðu fram við flóðljós. ■ ALBERT Guðmundsson, sendiherra íslands í Frakklandi og á Sþáni, er kominn til Sevilla frá París til að vera viðstaddur leik- ina. ■ U-21 árs liðið leikur í Cadiz, sem er í um 120 km frá Sevilla. Leikurinn hefst kl. 21.00 að stað- artíma. ■ SIGURJÓN Sigurðsson, lækn- ir landsliðsins, hefur verið oftast hjá Einari Gíslasyni, sjúkraþjálf- ara landsliðsins í meðhöndlun. Sig- urjón fékk verk í bakið og hefur verið á láta nudda sig fyrir slaginn gegn Spánverjum annað kvöld. ■ ÍSLENSKA liðið hafði með sér drykkjarvatn frá íslandi til Spán- ar. íslenska Gvendarbrunnavatnið frá Sól hf hefur vakið athygli hér á Spáni, bæði fyrir smekklegar umbúðir og bragð. ar eru með mjög gott lið þar sem allir leikmenn liðsins ráða yfir mik- illi knatttækni og hraða, en það er það sem þeir hafa framyfir okkur. Nokkrir leikmenn íslenska liðsins hafa hraða og tækni en ekki allir eins og hjá Spánverjum. En við erum sterkari líkamlega og baráttu- glaðari og nýtum okkur það. Við verðum með einn frammi þegar við veijumst en í sóknaraðgerðum verð- um við með þijá frammi. Ég hef skoðað leik Spánveija gegn Brasilíu á myndbandi, sem þeir unnu með þremur mörkum gegn engu. Brasilíumenn voru ekki með sitt sterkasta lið, hálfgert ungl- ingalið og það vantaði einnig nokkra fastamenn í spænska liðið. Það er því ekki hægt að ákvarða styrk spænska liðsins út frá þeim leik. En ég þekki nokkuð vel til spænska liðsins og hef fylgst með því lengi. Við sýndum það í seinni hálfleik bæði gegn Frökkum og Tékkum að við getum gert ýmislegt ef hugarfarið er í lagi.“ Bo sagði að þetta yrði mjög erfið- ur leikur. Hann sagðist ekki velja byijunarliðið fyrr en á leikdag. „Ég hef lagt það upp í vana minn að velja liðið ekki fyrr en rétt fyrir leik því ég á eftir að sjá hvernig leikmennirnir komast frá æfíngun- um fram að leik,“ sagði Johansson. Johansson hefur fimm sinnum áður verið á Spáni, sem leikmaður eða þjálfari. Hann var hér í æfinga- búðum með Kamar í Torremolinos 1970 og síðan hefur hann komið fjórum sinnum með sænska lands- liðinu. „Það er mjög gott að æfa hér á Spáni því maður getur verið öruggur með veðrið-. Strákarnir hafa haft mjög gott af því að vera hér þessa daga og aðlagast hitanum fyrir leikinn." Spánverjar hafa aldrei tapað í Sevilla Spánveijar leika alla sína mikilvægustu leiki hér i Sevilla þar sem áhorfendur eru sagðir þeir bestu í Iandinu. Spánveijar hafa aldrei tapað f' Sevilla og stæra borgarbúar sig mjög af því. Fólk á fömum vegi sem veit að við erum Islendingar réttir upp fjóra til fingur til merkis um það hve mörg mörk Spánveijar skora gegn íslendingum á morgun. Sigurður Jónsson og Atli Eðvaldsson beijast um knöttinn í landsleik gegn Austurríki. /erð bara að b líða og s já“ - sagði Guðni Bergsson, sem var ekki í leikmannahópi Tottenham gegn QPR GUÐNI Bergsson var ekki í liði Tottenham gegn QPR um helg- ina. „Terry Venables ákvað að breyta leikaðferðinni eftir leik- inn gegn Aston Villa og leika 3-5-2 þannig að ég datt út.“ Guðni var ekki á varamanna- bekknum og'því ekki sáttur við hlutskipti sitt. Paul Walsh kom inn í liðið fyrir Guðna. „Mér finnst þessi breyting skjóta skökku við. Liðinu gekk mjög vel í fyrstu leikj- unum. Þegar leið á leikinn gegn QPR var Paul Allen farinn að detta aftur í mína stöðu. Nú verð ég bara að bíða og sjá.“ Guðni var spurður að því hvort það hafi haft áhrif að hann lék landsleikinn gegn Tékkum og varð því að gefa sæti sitt eftir í bikar- leik Tottenham, sem fram fór sama dag. „Nei, það held ég ekki. Hann hefði alveg eins getað gert þetta þó ég hefði leikið með í bikarleikn- um.“ „Mjög erfiður leikur“ - segir Marteinn Geirsson, þjálfari 21 árs landsliðsins „STRÁKARNIR eru kvíðnir, en ákveðnir að láta martröðina frá Tékkóslóvakíu ekki endur- taka sig,“ sagði Marteinn Geirsson, þjálfari 21 ára landsliðsins, sem leikur gegn Spáni í Cadiz í kvöld kl. 20. „Spánverjar vita um úrsiitin í Tékkóslóvakíu og reyna þeir eflaust að keyra yf ir okkur í byrjun." Það verður tekið vel á móti þeim. Við munum leika vam- arleik og freista þess að skjótast fram í skyndisóknir þegar við á,“ sagði Marteinn. „Strákarnir verða að halda knettinum betur en í Tékkóslókavíu og vamarmenn verða að vera fljótir fram þegar við náum knettinum." Ólafur Pétursson, markvörður frá Keflavík, meiddist á æfíngu í gær og er óvíst hvort að hann og Steinar Guðgeirsson geti leikið, en það kemur í ljós í kvöld. Byijunarlið marteins verður þannig skipað að öllu óbreyttu. Ólafur Pétursson, Þormóður Eg- ilsson, Kristján Halldórsson, Helgi Björgvinsson, Bjarni Benedikts- son, Steinar Adolfsson, Anton Björn Markússon, Valdimar Kri- stófersson og Ríkharður Daðason. Ef Ólafur getur ekki leikið fer Kristján Finnbogason í markið og ef Steinar Guðgeirsson getur ekki leikið mun Þórmóður Egilsson taka stöðu hans, en Jóhann Lapas fer þá í stöðu bakvarðar.' Mm FOLK ■ GUÐMUNDUR Pétursson, formaður landsliðsnefndar, sem er með liðinu hér í Sevilla, stóð í marki íslendinga í fyrsta landsleik þjóðanna 1967, sem endaði með jafntefli 1:1. Hann lék einnig í markinu í Madrid, þar sem ísland tapaði, 3:5. ■ SKIPULAGNING Spánverja hefur ekki verið upp á það allra besta. Tveimur æfingum, liðanna hefur verið klúðrað. A-landsliðið átti að æfa á stórum velli skammt frá Sevilla á laugardag en er liðið mætti var völlurinn harð læstur og ekkert varð úr æfíngu. U-21 árs liðið varð einnig af æfingu á laugar- dag. Þá var þvi boðið að æfa á malarvelli, en Marteinn Geirsson, þjálfari sagði nei takk! ■ VEÐRIÐ hér á Spáni hefur verið eins og það gerist best um hásumarið, 25 til 30 stiga hiti og sól. íslensku strákarnir láta vel af dvölinni hér. ■ FRAMARARNIR í íslenska A-landsliðinu hafa verið töluvert í sviðsljósinu hér og eru spænskir íþróttafréttamenn mjög áhugasam- ir um hagi þeirra. Viðtöl hafa verið tekin viðþá og mikið spurt og spek- úlerað. Astæðan er sú að Fram dróst gegn spænsku bikarmeistur- unum frá Barcelona í 2. umferð í Evrópukeppni bikarhafa. ■ BJARNI Sigurðsson, lands- liðsmarkvörður fann til í nára eftir æfinguna í gærmorgun. Sigurjón, læknir liðsins, sagðist þó ekki eiga von á þvi að þetta mundi há Bjarna og morgun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.