Morgunblaðið - 09.10.1990, Síða 5

Morgunblaðið - 09.10.1990, Síða 5
MORGUNBIAÐIÐ IÞROTTIR ÞRRMUDAGUR 9. OKTOBER 1990 KNATTSPYRNA / ENGLAND Erfiðara að sigra með hverjum leik“ - sagði Peter Beardsley, besti mað- ur Liverpool í 2:0 sigri gegn Derby LIVERPOOL átti í meiri erf ið- leikum með að sigra Derby en f lestir gerðu ráð fyrir — Peter Beardsley innsiglaði 2:0 sigur fimm mínútum fyrir leikslok. fatim FOLK ■ ERIC Cantona, sem gerði síðara mark Frakklands gegn ís- landi á Laugardalsvelli í haust, skoraði tvívegis fyrir Marseille í 3:1 sigri gegn St. Etienne á laug- ardag — á fyrstu mín. hvors hálf- leiks. ■ MARSEILLE hefur 20 stig en Auxerre , sem tapaði óvænt stigi í Nice, hefur 17. ■ LYON náði þriggja marka for- skoti gegn Montpellier, en gestirn- ir jöfnuðu, 3:3, á síðustu 15 mín. Varnarmaðurinn Laurent Blanc skaust fram í sóknina og skoraði á 88. og 89. mín.! ■ BORDEAUX náði sér loks á strik; sigraði París SG 3:0 með mörkum Ferreris, Dugarrys og Deschamps. Það virðist ljóst að Gerard Gili, fyrrum þjálfari Marseille, sé strax að gera góðu hluti hjá Bordeaux. ■ PATXI Salinas, fyrirliði Bilbao, gerði tvö sjálfsmörk er Barcelona sigraði lið hans, 4:1, I spönsku 1. deildinni á laugardag- inn. Barcelona hefur því sigrað í sex fyrstu leikjum vetrarins; og er það besta byijun liðsins í deildinni í 61 ár. ■ DANSKI framheijinn Michael Laudrup, sem virðist í frábærri æfingu þrátt fyrir að hafa ekki leik- ið síðustu þijár vikur vegna meiðsli, Serði hin tvö mörkin. I ERNESTO Valverde, sem var í herbúðum Barcelona í fyrra en fékk aldrei tækifæri, gerði eina mark Bilbao. ■ ATLETICO Madrid verður áfram með í spönsku 1. deildinni í knattspymu. Jesus Gil y Gil, for- seti félagsins, hótaði um fyrri helgi að draga liðið úr kepþni, þar sem dómarar væru svo mikið á móti því! En meira en 1.000 áhangendur liðsins greiddu atkvæði um hug- mynd forsetans um helgina, og meirihlutinn vildi halda áfram. ■ BRASILÍUMAÐ URINN Baltazar hefur verið rekinn frá Atletico Madrid. Bernd Sehuster, sem hefur ekki komist í lið Real Madrid, mun að öllum líkindum taka stöðu hans. ■ MARCO van Basten gerði bæði mörk AC Milan í 2:0 sigri gegn Cagliary í ítölsku deildinni. Italir héldu vart vatni yfir fyrra markinu og sjálfur Pele, sem var á vellinum, sagði að þetta væri ekki knattspyrna, heldur tónlist. ■ HENRIK Andresen, sem Köln keypti frá Anderlecht, vermir nú bekkinn hjá Köln. Anderson er dýrasti leikmaðurinn sem Köln hef- ur keypt, en félagið borgaði 3,5 millj. marka fyrir hann. Sérfræð- ingar segja að enn einu sinni hafi forráðamenn félagsins kastað pen- ingum út um gluggan í sambandi við kaup á leikmönnum, sem nýtt- ust ekki. Frá Bob Hennessy í Englandi „Það er erfiðara að sigra með hverjum leik," sagði Beardsley, sem var kjörinn maður leiksins. Beardsley lagðu upp lyrra mark- ið, sem Ray Houghton skor- aði. „Hann var frábær og það er ekki veijanlegt að halda honum utan við enska landsliðið,“ sagði Mick Harford, mið- herji Derby. Þetta var áttundi sigur meistaranna í jafn mörgum leikjum, en Kenny Dalglish sagði að liðið hefði verið frá sínu besta og Hough- ton bætti við að vindurinn hefði sett strik í reikninginn. Paul Davis hetja Arsenal Paul Davis, sem hefur átt við meiðsl að striða undanfarin tvö ár, var í byijunarliði Arsenal, gerði bæði mörkin í 2:0 sigri gegn Nor- wich, fór ekki 'eftir skipunum þjálf- arans og var nálægt því að bæta þriðja markinu við. „Ég sagði hon- um hvað eftir annað að koma aftur til að loka svæði, en hann hélt sig inni í teignum,“ sagði George Gra- ham. Sigurður Jónsson lék allan leikinn og fékk 7 í einkunn. Guðni út Guðni Bergsson var ekki í leik- mannahópi Tottenham, sem gerði markalaust jafntefli við QPR. Paul Walsh kom inn í lið Spurs, en her- bragðið heppnaðist ekki. Tony Ro- berts, markvörður QPR, var maður leiksins. „Hann átti frábæran leik, en því miður verður hann að víkja í næsta leik,“ sagði Don Howe, sem hefur keypt tékkneska markvörðinn Jan Stejskal frá Sparta Prag. Crystal Palace varð að sætta sig við 1:1 jafntefli gegn Leeds. Ian SVIÞJOÐ Paul Davis var hetja Arsenal gegn Norwich — skoraði bæði mörk liðsins. Wright óð í fænim, en lánið lék ekki við enska landsliðsmanninn. Wimbledon vann Sheffield United 2:1, en sigurinn féll í skugg- ann vegna brottreksturs Johns Gay- les. „Það er alveg sama hvað ég geri — mín verður ávallt minnst sem mannsins, sem byggði upp „ófreskj- ur“ Wimbledon," sagði Dave Bassett hjá Sheffield, sem var áður við stjórnvölinn hjá Wimbledon. John Fashanu innsiglaði sigurinn með glæsilegu skoti utan teigs. „Ef John Barnes hefði gert þetta mark, hefði það verið sýnt í sjónvarpinu í allan vetur,“ sagði Ray Harford. Urslit/B9 Frá Bob Hennessy i Englandi íÞfúm FOLK ■ GUÐMUNDUR Torfason lék á ný með ST. Mirren um helgina, en liðið mátti þola 1:0 tap gegn Hibernian. Guðmundur var greinilega ekki í leikæfingu, en skap- aði engu að síður mestu hættuna. Hann átti skot beint úr aukaspyrnu, sem fór rétt yfir markið og skalla í slá. I PAUL Davis kom, sá og sigr- aði hjá Arsenal um helgina. „Eg hef misst úr tvö ár og það er ekki gott á þessum aldri,“ sagði Davis, sem verður 29 ára í desember. Hann var átta sinnum í byijunarlið- inu í fyrra, en byggði sig upp í rólegheitum í sumar og lék með Eskilstuna í 2. deild í Sviþjóð. ■ PAÚL Gascoigne fékk fyrstu áminningu sína á keppnistímabilinu á laugardag. ■ KENNY Dalglish var kjörinn þjálfari síðasta mánaðar. Þetta er í 10. sinn á fimm árum, sem Dalglish er valinn þjálfari tnánað- arins, en þrisvar hefur hann verið kjörinn þjálfari ársins. ■ TOTTENHAM lék 11 sigur- leiki í röð keppnistímabilið 1960 til 1961. Liverpool hefur nú unnið átta leiki í röð, en mætir næst' Norwich, síðan Chelsea og svo Tottenham. „Við hugsum ekki um að slá metið,“ sagði Peter Beards- ley. ■ JOHN Gayle hefur staðlð í ströngu í lekjum Wimbledon að' undanfömu. Hann hefur fimm sinn- um verið bókaður og einu sinni fengið rauða spjaldið í sjö leikjum. ■ STEVE Arcibald er laus allra mála hjá spænska félaginu Espan- ol og gengur sennilega til liðs við Dundee United. ■ THEO Snelders, markvörður Aberdeen, lenti í samstuði við Ally McCoist hjá Rangers og var borinn meðvitundarlaus af velli. Hann kinnbeinsbrotnaði og verður frá í þijá mánuði. ■ DUNDEE United var 2:1 yfir gegn Dunfermline, þegar dómar- inn sleit leiknum, en þá voru 64 mínútur liðnar. Mikil rigning var í Skotlandi og völlurinn var líkari sundlaug en knattspyrnuvelli. IFK Gautaborg deildarmeistarí Leikurtil úrslita um meistaratitilinn ásamt Norrköping, Örebro og Öster | FK Gautaborg, Norrköping, Þorsteinn Gunnqrsson skrifarfrá Svíþjóð Örebro og Öster taka þátt í úr- slitakeppninni um sænska meist- aratitilinn í knattspyrnu. í síðustu umferðinni í deildar- keppninni á sunnu- daginn tryggði IFK Gautaborg sér sigur í deildinni, með 1:0 sigri á Norrköping og verður full- trúi Svía í Evrópukeppni meistara- liða næsta vetur. Uppgjörið um sjálfan meistaratitilinn er þó eftir, þar sem fjögur efstu liðin í deildar- keppnni leika með útsláttarfyrir- komulagi. í undanúrslitunum mætast ann- arsvegar IFK Gautaborg og Örebro og hinsvegar Norrköping og Öster. Fyrir síðustu umferðina stóð bar- átta milli Öster og Djurgárden um fjórða og síðasta úrslitasætið. Öster tryggði sér úrslitasætið með sigri á GAIS á meðan Djurgarden gerði jafntefli 2:2 gegn Malmö. Brage, Örgryte og Hammarby falla í 1. deild en aðeins eitt lið kemur upp í úrvalsdeildina í ár, þarsem fækka á i deildinni úr 12 liðum í 10 og breyta fyrirkomulag- inu í efstu deildunum. Nýja fyrir- komulagið er býsna flókið en til- gangurinn er að lokka fleiri á völl- inn, en undanfarin ár hefur áhorf- endum fækkað verulega. Með athygliverðustu nýjungun- um í þessu fyrirkomulagi er að sig- urvegarinn í 2. deild getur farið beint upp í úrvalsdeildina á einu keppnistímabili'og hoppað yfir 1. deildina. Hácken, ljð Gunnars Gíslasonar, stendur með pálmann í höndunum fyrir síðustu umferðina í 1. deild- inni. Liðið sigraði Gunnilse 2:0 um helgina en Helsingborg, sem er í öðru sæti, tapaði óvænt fyrir Odde- volt. Hacken er í efsta sæti með 50 stig en Helsingborg með 49. Sigurvegarinn í þessum riðli mætir GIF Sundsvall í tveimur leikjum um sæti í úrvalsdeildinni. Liðspeysur |j| Ítalíu-og mmjF manna utiuf Glæsibæ - Sími 82922

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.