Morgunblaðið - 02.11.1990, Side 34
34
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Tafir verða á viðskiptum sem þú
stendur í núna. Þú hefur mikið
aðdráttarafl um þessar mundir
og vekur aðdáun og rómantískar
tilfinningar. Hjón ákveða að
leggja út í fjárfestingu sem þau
hafa verið að hugsa um undan-
farið.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þetta verður skínandi dagur á
margan hátt. Það ætti að verða
blússandi hamingja í rómantísku
deildinni og sumir einhleypingar
ákveða að binda trúss sitt við
ástina. Ráðgjafi veldur þér þó
vonbrigðum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) iBt
Þér sinnast við vin þinn og þú
ættir að halda þig sem mest út
af fyrir þig. Það gengur allt eins
og í sögu í vinnunni hjá þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú skynjar hindranir á alla vegu
í dag. Það verður erfitt fyrir þig
að halda áhuganum vakandi
núna. En það er tilvaiið fyrir þig
að fara á stefnumót og sinna
málefnum ástarinnar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það verða einhver vandræði í
sambandi við ferðaiag sem þú
hefur fyrirhugað. Bjóddu til þín
gestum. Samkomulagið í fjöl-
skyldunni er með ágætum.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) &£
í dag er tilvalið fyrir þig að fara
í stutta skemmtiferð með fjöl-
skyldunni. Óvæntur kostnaður
getur skotið upp kollinum vegna
bamsins þíns. Sýndu þolinmæði
og þrautseigju.
(23. sept. - 22. október)
Áhyggjur af málefnum fjölskyld-
unnar kunna að draga nokkuð
úr þér kjarkinn núna. Reyndu að
dreifa huganum og gera þér glatt
í geði.
Sporðdreki
(23. okt. — 21. nóvember) Gjfj0
Þú hressir upp á útlitið í dag.
Staða þín krefst þess af þér að
þú eigir samvinnu við aðra núna,
en hún gengur ekki eins greiðlega
og þú hefðir kosið.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Hjón ættú að vera ein saman
núna fremur en að fara út að
skemmta sér með öðrum.í dag
er tilvalið að byija á nýju verki
eða velja sér nýtt hugðarefni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Vandamál heima fyrir geta valdið
þér hugarangri núna. Hvort sem
það er lekur vatnskrani eða mót-
þróafullur unglingur ættir þú að
leita ásjár og uppörvunar hjá vin-
um þínum.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þú ert með of mörgjárn í eldinum
núna og tjáskipti þín við annað
fólk líða fyrir það. Þó miðar öllu
í rétta átt hjá þér í vinnunni og
þú átt von á stöðuhækkun.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) ’TSj
Vinir og peningar fara ekki vel
saman í dag. Fundur með ráð-
gjafa gæti skilað árangri. Þú ferð
í skemmtiiegt ferðalag.
AFMÆLISBARNIÐ er sjálfstætt
og gæti náð langt á viðskiptasvið-
inu. Það ætti að fara sínar eigin
leiðir í lífinu, enda kýs það sér
oftlega skapandi starf þar sem
það getur tjáð einstaklingseðli
sitt. Það er ákaft og kraftmikið,
en lærir að kimnigáfan getur
komið miklu áleiðis þegar um það
ep að ræða að fá aðra til sam-
starfs. Það er oftlega gætt hæfi-
leikum til ritstarfa, en getur allt
að einu valið læknisfræði eða lög-
fræði sem lífsstarf sitt.
Stj'órnuspána á aó lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vtsindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1990
DYRAGLENS
MAÐUjZtfJU /IdfMfiJ
Fggeve&ANFX'
SA65Ð/ þAE> Lfk’A.
W/
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
VEzr ec*o ao reuFCA /yuG--
É6 þAQFAÐ T/HTA /VWCtLM'ÆGA
'/ÍÆ-t/rÍert / ,*/ / /----
þAÐ ee. tSOTTAÐ 1/tTA />B>
/iGte s/cot-t G/otJAsr
'AKl/GÐ/t/ /MOS.t
taían--
GeR! þAÐ.
F/st/Anme
GEZté&f
1 IÁOI/A
—c LJUoKA
FERDINAND
ífrffi
V I f / \ \ f N \ I // X / /
SMAFOLK
Mamma segir að þú eigir
að slökkva á sjónvarpinu
og fara í bólið.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Evrópumót yngri spilara (25
ára og yngri) fór fram í 12. sinn
í Þýskalandi sl. júlí. 22 þjóðir
sendu sveitir mótið, þar á meðal
Sovétríkin í fyrsta sinn og Tékk-
ar voru nú aftur með eftir hlé
frá vorinu í Prag, 1968. Breyttur
tíðarandi endurspeglast hvað
best í íþróttum. Sveit íslands
stóð sig prýðilega, var í barátt-
unni um efstu sætin í upphafi
móts, en hafnaði að lokum í 9.
sæti. Sveitina skipuðu: Matthías
Þorvaldsson og Hrannar Erl-
ingsson, Steingrímur Gautur
Pétursson og Sveinn Eiriksson,
og bræðumir ungu frá Siglu-
fírði, Steinar og Ólafur Jónssyn-
ir. Næstu pistlar verða helgaðir
þessu móti. ísland vann Aust-
urríki 25—5 í 2. umferð og 11
IMpar í þeim sigri fengust í
þessu spili:
Suður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ D102
V10432
♦ KG64
*Á5
Vestur Austur
47653 ii.i ♦ ÁKG
♦ D765 ♦ 98
♦ 53 IMI ♦ 10
♦ K72 ♦ DG10964
Suður
♦ 984
VÁKG
♦ ÁD9872
♦ 8
Opni salur. NS: Matthías og
Hrannar.
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 tfgull
Pass 1 þjarta 3 lauf Dobl
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Lokaður salur. AV: Óli og
Steinar.
Vestur Norður Austur Suður
— — 1 tfgull
Pass 1 grand 4 lauf 4 tíglar
Pass 5 tíglar Pass Pass
Pass
Sigur í sögnum á báðum borð-
um. Það fást nákvæmlega 9
slagir, hvort heldur í gröndum
eða tíglum, svo ísland fékk 400
í opna salnum og 160 í þeim
lokaða.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á argentíska meistaramótinu í
ár kom þessi staða upp í skák
hins gamalreynda stórmeistara
Oscar Panno (2.430), sem hafði
hvítt og átti leik, og alþjóðameist-
arans Soppe (2.390).
21. Bxf7+! - Hxf7, 22. De6 -
Bh2+, 23. Khl og svartur gafst
upp, því liann getur ekki svarað
báðum liótunum hvíts, 24. Dxf7+
og 24. Hd7. Þrátt fyrir þetta varð
Soppe efstur á mótinu ásamt öðr-
um ungum skákmanni, Tempone,
og munu þeir tefla einvígi um titil-
inn, en Panno varð að sætta sig
við þriðja sætið eftir að hafa Ieitt
mótið fram í næstsíðustu umferð.