Morgunblaðið - 04.12.1990, Page 3
MORGUNBLAÐE) IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990
B 3
KNATTSPYRNA / ENGLAND
SKOTLAND
Guðmundur
kinnbeins-
brotnaði
Leikurekki með St.
Mirren næstu 6-8
vikurnar
Guðmundur Torfason slas-
aðist ilta í leik St Mirren
gegn Dundee United. Hann
kinnbeinsbrotnaði og verður frá
keppni S 6-8 vikur. Atvikið átti
sér stað í fyrri hálfleik er hann
lenti í samstuði við Júgóslavann
Krivokatic. Guðmundur komst
að hliðarlínunni en missti með-
vitundog var fluttur á sjúkra-
hús. Hann verður þar í viku en
gerir svo ráð fyrir því að koma
heim til íslands og fara aftur
út um miðjan janúar.
Arsenal
fékkupp-
reisn æru
Skellti Liverpool, 3:0, á Highbury
ARSEN AL fékk upreisn æru
eftir stórtap fyrir Manchester
United ívikunni. Liðiðtók
meistara Liverpool íkennslu-
stund á Highbury og sigraði
3:0. Sigurinn var sannfærandi
og minnkar bilið á toppnum en
tap Liverpool var hið fyrsta í
23 leikjum.
Paul Merson skoraði með skalla
á 21. mínútu og Lee Dixon
gerði annað markið úr vítaspyrnu,
eftir að Andreas Limpar hafði verið
felldur. Alan Smith
gerði svo þriðja
markið tveimur
mínútum fyrir leiks-
lok. „Ég held að
flestir hafi viljað að við sigruð.um
til að halda spennu í deildinni,“
sagði George Graham, fram-
kvæmdastjóri Arsenal.
Lee Sharpe hefur gert það gott
í vikunni. Hann gerði þrjú mörk
fyrir United gegn Arsenal og bætti
fjórða markinu við gegn Everton
og tryggði United sigur. Hann miss-
ir reyndar af næsta leik vegna
meiðsla en má þó vel við una. Tony
Cottee skoraði fyrir Everton en
markið var dæmt af vegna brots á
Les Sealey, markverði United.
„Markverðir búa í vernduðu um-
hverfi. Dómurinn var útí bláinn og
markið var gott og gilt,“ sagði
Cottee.
Falin myndavél?
Tottenham tapaði fyrir Chelsea,
2:3, og leikurinn hófst tólf mínútum
íttémR
FOLK
of seint eftir að rúta Tottenham var
dregin í burtu af lögreglunni. Þegar
leikmenn liðsins komu út af hóteli
sínu og ætluðu að leggja af stað á
völlinn kom í ljós að rútan var far-
in. „Ég hélt að þetta væri falin
myndavél," sagði Terry Venables,
framkvæmdastjóri Tottenham. I
ljós kom að rútan hindraði umferð
og fimmtán milljóna punda lið Tott-
enham mætti til leiks í jakkafötun-
um. Kerry Dixon gerði fyrsta mark
Chelsea og John Bumstead bætti
öðru við fyrir leikhlé. Gascoigne
minnkaði muninn en Gordon Durie
gerði þriðja mark Chelsea. Til að
bæta gráu ofaní svart skaut Gary
Lineker yfir úr vítaspymu en náði
að bæta fyrir það með marki á lok-
amínútunum.
Wimbledon sigraði Norwich 4:0
á útivelli og kom það á óvart. Það
sem var þó undarlegasta við leikinn
var að Wimbledon lék vel! Liðið
hefur tekið miklum breytingum og
leikur nú þokkalega knattspyrnu.
„Áður var það svo í leikjum liðsins
að boltinn bað um skiptingu í hálf-
leik. Nú leikur liðið alvöru knatt-
spyrnu,“ sagði Jimmy Greaves, þul-
ur hjá ITV. John Fashanu geri tvö
mörk, það fyrra eftir 27 sekúndur.
Leeds komst í fimmta sæti með
sigri á Southampton, 2:1. Fairclo-
ugh og Shutt gerðu mörk Leeds
strax í byijun og eftir það áttu
gestirnir aldrei möguleika.
Niall Quinn gerði bæði mörk
Manchester City gegn QPR, sem
tapaði þar sjötta leik sínum í röð.
Crystal Palace sigraði Coventry
í fyrsta sinn í 27 ár og liðið er nú
komið í 3. sæti. David Speedie var
rekinn útaf eftir að hafa blótað
öðrum línuverðinum í sand og ösku.
Ekki í fyrsta sinn sem hann fer í
sturtu á undan hinum.
Frá Bob
Hennessy
í Englandi
Þróttarar stóðu í Stúdentum
Víkinsstúlkur gerðu góða ferð norður
Þrír leikir fóru fram í 1. deild
karla í blaki um helgina. Þrótt-
ur frá Neskaupstað lék tvo leiki í
Reykjavík, gegn ÍS og HK og tap-
aði báðum og KA
Guðmundur vann Fram auðveld-
Þorsteinsson lega fyrir norðan,
skrifar 3:0. I 1. deild
kvenna voru fjórir
leikir á dagskrá. Neskaupstaðar-
stúlkur töpuðu fyrir ÍS en náðu að
sigra HK í hörkuleik. Víkingur vann
Völsung á Húsavík og KA á Akur-
eyri.
1. deild karla
Þróttur Neskaupstað byijaði vel
gegn stúdentum og komust í 2:0,
en þá vöknuðu leikmenn ÍS til lífsins
og unnu þriðju hrinuna, 15:9 og
fjórðu 15:7. Fimmta hrinan var eign
Stúdenta, sem unnu 15:12 eftir að
hafa komist yfir, 8:2. Leikurinn var
köflóttur, en Stúdentar geta verið
ánægðir með að hafa hirt bæði stig-
in þrátt fyrir slakan leik.
HK hleypti Þrótti Nes. aldrei inní
leikinn, sem fram fór á sunnudag.
Fyrstu hrinuna vann HK, 15:13,
eftir að hafa leitt allan leikinn.
Þróttarar náðu sér aldrei á strik í
þeirri næstu og töpuðu, 15:10.
Þriðja hrinan var spennandi og
höfðu Þróttarar yfir 13:14, en náðu
ekki að fylgja því eftir og töpuðu,
16:14. Bestu leikmenn HK voru
Karl Sigurðsson, en hjá Þrótti var
Sigfinnur Viggósson bestur.
KA átti ekki í nokkrum vandræð-
um með Fram og sigraði, 3:0
(15:11, 15:6 og 15:7). KA hafði
yfirhöndina í öllum hrinunum og
átti Fram aldrei möguleika, enda
KA-menn erfiðir heim að sækja.
1. deild kvenna:
Víkingsstúlkur gerðu góða ferð
norður í land. Á föstudag léku þær
við Völsungsstúlkur og unnu, 1:3
(13:15, 8:15, 16:14 og 10:15). Það
var ^ðeins í þriðju hrinunni sem
Völsungur náði að sýna klærnar er
þær unnu 16:14 eftir mikla baráttu.
Á laugardag héldu Víkingsstúlk-
ur til Akureyrar og unnu KA, 0:3
(4:15, 7:15 og 13:15). Yfirburðir
Víkinga voru miklir. Það var eins
og KA bæri of mikla virðingu fyrir
gestunum og kann það ekki góðri
lukku að stýra. Leikurinn stóð yfir
f aðeins 63 mínútur.
íslandsmeistarar ÍS náðu að
bæta tveimur stigum í safnið eftir
sigur á Þrótti Nes., 3:0 (15:13,
15:13 og 15:10). Hávörn ÍS-stúlkna
átti auðvelt með að lesa sóknarleik
gestanna og náði oft góðri hávörn
á miðjunni, en þar eru sterkustu
vopn Þróttar, Jóna Harpa Viggós-
dóttir og Petra Jónsdóttir.
Leikur HK og Þróttar Nes. var
ágætlega leikinn á köflum. í fjórðu
hrinu þegar Þróttur hafði yfir, 2:1
og staðan var 14:5 þeim í hag, greip
Heiðbjört Gylfadóttir í HK til sinna
ráða. Hún gaf upp ellefu sinnum í
röð og tryggði HK úrslitahrinu.
Fimmtu hrinuna unnu Neskaup-
staðarstúlkur og fóru margar upp-
gjafir forgörðum hjá HK, sem ætl-
aði að leika sama leikinn og í fyrri
hrinu. En allt kom fyrir ekki.
Frá Bob
Hennessy
í Englandi
ÍÞR&fflR
FOLK
PETER Beardsley var ekki í
liði Liverpool gegn Arsenal og
kom það mjög á óvart. Hann sat
uppí blaðamannastúku og ræddi við
sjónvarpsmenn ITV
um leikinn. Skammt
frá honum sat
Norðmaður með
gleraugu. í ljós kom
að þar var á ferð Erik Thorstvedt,
markvörður Tottenham sem fjall-
aði um leikinn fyrir norska sjón-
varpið.
■ JOHN Major, hinn nýi forsæt-
isréðherra Bretlands, mætti ekki á
leik Chelsea en hann hefur verið
einn dyggasti stuðningsmaður liðs-
ins. Bobby Campell, framkvæmda-
stjóri Chelsea, sagði að það hefði
ekki skipt máii. „Varnarmálaráð-
herra minn, Andy Townsend, átti
frábæran leik.“
MITCHELL Thomas, bak-
vörður Tottenham er líklega á leið
til Sheffield Wednesday. Hann var
ekki í liðinu um helgina en David
Tuttle, ungur nýliði fékk tækifæri
en var tekinn útaf í hálfleik. Ef
Thomas fer aukast líkurnar á því
að Guðni Bergsson komist aftur í
liðið en Terry Venables hefur ver-
ið að prófa sig áfram síðustu vikur.
■ GRAEME Souness, fram-
kvæmdastjóri Glasgow Rangers,
er enn eiriu sinni kominn með seðla-
veskið á loft. Nú leitar hann að
manni í stað Ólegs Kúznetsovs
sem verður frá keppni næstu mán-
uðina vegna meiðsla.
■ EF marka má ensku blöðin
ætla ítölsk félög að fylgja fordæmi
íslendinga og fara í verslunarferð-
ir til Englands fyrir jólin. Talað
er um að AS Róma vilji fá mark-
vörð Everton, Neville Southall og
tveir leikmenn Forest séu á förum;
Des Walker til Juventus og Franz
Carr til Genóa.
Vinnie Jones gerði fyrsta mark
Sheffield United í 669 mínútur. Það
hafði lítið að segja því David Platt
jafnaði og bakvörðurinn Chris Price
tryggði Aston Villa sigur.
Lars Elstrup átti frábæran leik
er Luton gerði jafntefli við Notting-
ham Forest, 2:2. Hann gerði bæði
mörk Luton en Franz Carr og Nig-
el Clough skoruðu fyrir Forest.
Peter Shilton átti stórleik fyrir
Derby er liðið sigraði Sunderland á
útivelli, 2:1. Dean Saunders og
Mick Harford gerðu mörk Derby.
Paul Merson kom Arsenal á bragð-
ið gegn Liverpool.
John Fashanu skoraði tvö mörk
fyrir Wimbledon - það fyrra eftir 27
sek.
■ KJARTAN Einarsson, mið-
heiji KA í knattspyrnu, hefur
ákveðið að ganga á ný til liðs við
Keflavíkurliðið og leika með því í
2. deild í sumar.
■ KA hefur misst nokkra snjalla
leikmenn að undanförnu. Bjarni
Jónsson er farinn til Stjörnunnar,
Þórður Guðjónsson til Akraness,
Kjartan til Keflavík og þá hefur
Steingrímur Birgisson tilkynnt að
hann ætli að skipta um félag.
■ JÓHANN INGI Gunnarsson
hefur þjálfað 1. deildarlið Fram í
handknattleik að undanfömu. Hann
tók við af Þorbergi Aðalsteins-
syni, landsliðsþjálfara, sem stjórn-
aði Fram í síðustu þremur leikjum
liðsins.
■ RAGNHEIÐUR Runólfsdóttir
náði ekki lágmörkum fyrir heims-
meistarakeppnina í sundi, sem fer
fram í Ástraliu, í janúar. Ragn-
heiður reyndi við lágmörk í Alab-
ama.
í kvöld
HANDKNATTLEIKUR:
Einn leikur verður leikinn í
1. deild karla í kvöld. Fram
og KA mætast í Laugardals-
höllinni kl. 20.
BLAK / ISLANDSMOTIÐ