Morgunblaðið - 16.01.1991, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.01.1991, Blaðsíða 3
B 3 [KCISI Állinn vó 33 kíló ■ STÆRSTI áll, sem nokkru sinni hefur veiðst í Kattegat, kom í fiskitroll í síðustu viku. Vó hann 33 kíló og var tveggja metra og sjö senti- metra langur. Fiskimaðurinn fengsæli heit- ir William Nilsson en hann hef- ur róið frá Styrsö skammt frá Gautaborgí 40 ár. Segirfrétta- ritari Morgunblaðsins í Stokk- hólmi, Erik Liden, að állinn hafi vakið mikla athygli þegar komið var með hann til hafnar enda sá langstærsti, sem sögur fara af á þessum slóðum. í Miðjarðarhafi og Austur-Atl- antshafí geta álar hins vegar orðið þetta stórir ogjafnvel stærri. ----*-*-<-- Óttast f rjálsa skráningu ■ DÖNSK stjórnvöld hafa sett fótinn fyrir samþykkt nýrra laga um frjálsa skrán- ingu flutningaskipa innan Evrópubandalagsins og bera því við, að enn sé ekki búið að ganga tryggilega frá nauðsynlegum ákvæðum um öryggis- og umhverfismál. Ríkisstjómir hinna 11 aðild- arríkja EB hafa samþykkt þessa nýskipan en samkvæmt henni má skrá kaupskipin hvar sem er innan bandalagsins og án þess tilkostnaðar, sem fylgt hefur slíkum tilfærslum hingað til. Christoffer Bo Bramsen ráðuneytisstjóri sagði, að Danir vildu, að fyrst yrði lokið við reglugerð um öryggis- og um- hverfísmál auk þess sem þeir vildu fá nokkurn tíma til að * átta sig á afleiðingum þessara nýju laga fyrir danska kaup- skipaútgerð. ----------- Verðjöfnun íjanúar ■ EKKI er gert ráð fyrir neinni útgreiðslu úr Verð- jöfnunarsjóði sjávarútvegs- ins i þessum mánuði og inn- greiðslur verða aðeins af fob- verðmæti unninna og óunn- inna botnfiskafurða og hörpudiski. Kemur þetta fram í tilkynningu frá sjóðn- um. Eru verðjöfnunarlilut- föllin þau, að inngreiðsla fyr- ir botnfiskafurðirnar er 4,5 en 1,0 fyrir hörpudiskinn. Er hún engin fyrir humar, mjöl og lýsi, rækju og síld. ----------- „Fishing ’91 “ í Glasgow ■ DAGANA 11.-13. aprU næstkomandi verður haldin sjávarútvegssýning í Glas- gow í Skotlandi, „Fishing ’91“, en hún hefur verið hald- in árlega frá 1986 og er lík- lega stærsta sýning sinnar tegundar. I raun er um að ræða tvær sýningar, „Fishing ’91“, sem snýst um veiðar og vinnslu, og „Seafood ’91“ um sjávarafurðir alls konar og er búist við, að um 400 fýrirtæki sýni þar framleiðslu sína. Auk breskra fyrirtækja má nefna íslensk, dönsk, norsk, hollensk og þýsk fyrirtæki ogeinnig sænsk, sem voru þó ekki með í fýrra. Segj- ast aðstandendur sýningarinn- ar búast við mikilli aðsókn að henni en í fyrra voru gestimir frá 40 þjóðlöndum alls. MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR Bremerhaven miðstöð frystra sjávarafurða AÐ undanförnu hefur átt sér stað mikil upp- bygging í höfninni í Bremerhaven í Þýska- landi og hefur verið var- ið til hennar rúmlega átta milljörðum ísl. kr. Hefur innra skipulagi hafnarstarfseminnar verið breytt verulega og aðstaða frystiiðnaðarins bætt mikið. Hefúr frystigeymslurými verið stóraukið með sameinað Þýskaland og innri markað Evrópu- bandalagsins í huga. Treystir stöðuna vegna sameinaðs Þýskalands og innri markaðarins Frá þessu var skýrt í síðasta mánuði þegar vígðar' voru nýjar frystigeymslur Nordstern AG í Bremerhaven en þær eru á mörgum hæðum og þær stærstu og full- komnustu í Evrópu. Dirk Ahlers, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, sagði, að kostnaðurinn við frysti- geymslurnar hefði verið um 1,3 milljarðar ísl. kr. og tilgangurinn sá að tryggja sterka stöðu fyrirtæk- isins og borgarinnar í Evrópu fram- tíðarinnar. Ársvelta Nordstern- samsteypunnar er nú um 10 milij- arðar ísl. kr. og er það meðal lang- stærstu fyrirtækja í Evrópu í fryst- um sjávarafurðum. Ahlers sagði, að miklar vonir væru bundnar við vaxandi markað í austurhluta Þýskaiands og tvö dótturfyrirtæki Nordstern, Schottke og Frosta, munu brátt hefja starfsemi þar. Það kom einnig fram hjá dr. Wolfgang von Geldern, landbúnaðar- og sjávarútvegsráð- herra, að hlutur frystrar vöru í físk- neyslunni hefði aukist verulega á síðustu árum og ætti vafalaust eft- ir að aukast mikið á næstunni. Þjóð- verjar flytja nú inn 80% þess fisks, sem neytt er í landinu, og hvatti von Geldern til aukins fijálsræðis í fískinnflutningi, ekki aðeins í Þýskalandi, heldur einnig í öðrum aðildarríkjum Evrópubandalagsins. Um. nýju frystigeymslurnar í Bremerhaven er annars það að segja, að áfastur vinnslusalur er 2.000 fermetrar en geymslurnar sjálfar 52.000 rúmmetrar. Þar er sjálfvirknin og tvölvuvæðingin al- ger og öllum hreyfingum inn og út eða innan geymslurýmisins stýrt frá einu stjórfiborði. Nú hleypur á snærið hjá útgerðar- ntönnum Ýmsar gerðir veiðarfæra, útgerðarvörur, olíur, sjófatnaður og márgt fleira verður þá selt af lager okkar á frábærum afslætti, Útgerðarmenn eru boðnir sérstaklega velkomnir mánudaginn 21. og þriðjudaginn 22. janúar. Útgerðarmenn geta líka orðið fengsælir í landi þegar markaðsdagar verða hjá Asiaco dagana 21.- 27. janúar. Komið og gerið góð kaup og fáið ykkur kaffi og kökur á lager okkar að Suðurströnd 2-4, Seltjarnarnesi. o Vesturgötu 2, 101 Reykjavík, sími 91-2 67 33f póstfax 91-62 36 96 Blýtóg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.