Morgunblaðið - 16.01.1991, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ AFLABROGÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR
B 5
Ómaklega vegið að
útgerð frystitogara
OGURVIK er útgerð, sem byggir afkomu sína á siglingum með ísaðan
fisk og frystingu um borð. Töluvert hefur verið vegið að slíkri útgerð
að undanförnu. Framkvæmdastjóri Ögurvíkur er Gísli Jón Hermanns-
son og telur hann í meira lagi ómaklega að sér vegið. „Við erum eng-
ir þjófar. Við göngum um fiskimiðin með sömu virðingu og aðrir og
förum eftir settum lögum og reglum. Um borð í frystiskipunum vinnum
við beztu afurðirnar fyrir hæsta verðið og með minnstum tilkostnaði.
I siglingunum fáum við hærra verð með því að strá ís yfir fiskinn
óunninn en fæst fyrir hann unninn og frystan. Fyrir þetta erum við
bæði öfundaðir og skammaðir,“ segir Gísli Jón Hermannsson.'
Ögurvík gerir út togarana Ögra
og Vigra og hefur afkoma þeirra
frá upphafi byggzt á siglingum
meða aflann á erlenda markaði og
síðar bættist frystitogarinn Freri
við útgerðina. „Það er verst með
okkur, þessa meintu glæpamenn,
að ásakanir á hendur okkur eru
hreinar dylgjur," segir Gísli Jón.
„Ekkert fæst staðfest um glæpinn,
menn hafa bara heyrt eitthvað,
halda eitthvað eða grunar eitthvað.
Það er svo sem ekkert nýtt, en
maður hrekkur við, þegar maður
er beinlínis þjófkenndur í jafnvirtu
blaði og Morgunblaðinu. Mér virðist
að sem þeir, sem miður standa sig,
telji sig knúna til að gera okkur
hina að blórabögglum fyrir eigið
getuleysi.' Þegar við siglum með
ísaðan fisk, þarf að mínusa kvótann
um allt að 20%. Hann spýtir frá sér
þvílíkum ókjörum af vatni segja
þeir. Þetta vatn frystum við með
fiskinum um borð í frystitogurunum
og notum því minna fískhold í kvót-
ann, en fyrir það erum við sagðir
þjófar. Svona áróðri verður að linna
og þeir, sem' hafa skýlt sér bak við
nafnleynd með ýmsu móti, verða
að koma sjálfir fram og rökstyðja
fullyrðingar sínar.
Á að neyða fólk til
að vinna ífiski?
Þá rísa upp af og til alls konar
spámenn, sem telja sig vita alla
hluti betur en aðrir. og opinberir
starfsmenn, sem þurfa að sanna
fyrir yfirboðurum sínum að þeir séu
að vinna, skamma okkur fyrir að
henda verðmætum í sjóinn. Eitt
lausnarorðið hjá þeim var melta.
Við reyndum þetta á Frera, lögðum
út í mikinn kostnað og vinnu við
að þróa og koma upp búnaði fyrir
meltuvinnslu um borð. Það tókst
ágætlega og við fengum þessa fínu
meltu. Gallinn var bara sá, að fyrir
meltuna fengum við minna en við
þurftum að borga fyrir maurasýr-
una í hana. Fín búbót það.
Pólitíkin virðist vera á móti okk-
ur fyrir það að flytja vinnu út á sjó
og selja fiskinn ísaðan til útlanda.
Stjórnmálamennirnir virðast telja
að allur fiskur skuli unninn í landi,
að hafi menn einhvern tíman unnið
í fiski, eigi þeit' að gera það um
aldur og ævi og sömuleiðis allir
Við erum líka skammaðir fyrir að
flytja fiskinn óunninn úr landi og
erum sagðir hinir verstu menn af
því við fáum meira fyrir fiskinn
með þvf að dreifa ís á hann heilan
(og óslægðan karfa) en SH fær
fyrir hann flakaðan og frystan.
Þeir vilja líklega taka af mér kvót-
ann til að geta selt fiskinn á lægra
verði og pínt eitthvert fólk til að
vinna hann fyrir sig á sultarlaunum.
Þessi áróður í okkar garð er illskilj-
anlegur og aðstoð Morjgunblaðsins
við hann ekki síðut'. Eg hélt það
væri vinstri mönnum fremur tamt
en þeim, sem telja sig til hægri,
að agnúast út í þá, sem betur gera
en aðrir.
Gísli Jón Hermannsson
framkvæmdastjóri Ögnrvíkur
lægra verð
fyrir fiskinn
en ella.
Stærstu sölu-
samtökin okk-
ar ættu að
vera fær um
að að gera að
minnsta kosti
jafnvel og aðrir og ekki þurfa á
handleiðslu hinna smærri að halda.
Það er eins með álla, sem þjónustu
veita, hún verður að vera í lagi,
annars fá þeir ekki viðskipti. Hags-
munir framleiðendanna hljóta að
ráða því, hvetja þeir fá til að selja
fyrir sig. Þegar stóru samtökin
kvarta undan því að eiga engan
ÖGRI í BREMERHAVEN
afkomendur þeirra. Við frystitog-
aramenn erum með beztu afurðirn-
ar og fáum hæsta verðið með lægst-
um tilkostnaði. Ef það er ekki þjóð-
hagslega hagkvæmt veit ég ekki
hvað hagkvæmni er. Við erum líka
að losa fólkið undan þeirri áþján
sem fiskvinnslan er. Það vill enginn
lengur vinna í fiski og því þurfum
við að flytja útlendinga inn í stórum
stfl til að vinna fiskinn.
Við hendum ekki fiski í sjóinn
Við hendum ekki fiski í sjóinn.
Heilfrysting á smáfiski er mjög
arðbær og stóru flökin koma líka
upp úr þessum skipum. Við fáum
einfaldlega of mikið fyrir fiskinn til
þess að vera svo vitlausir að vera
að fleygja honum, þegar við erum
búnir að leggja í mikinn kostnað
við veiðarnar. Við nennum ekki að
vera að margveiða sama fiskinn.
Þeir stóru ættu ekki að
þurfa handleiðslu hinna
smærri
Sölumiðstöðvarmenn segjast
duglegir við að selja fisk og fá
hæsta verðið fyrir hann. Svo ein-
kennilega vill hins vegar til, að í
Bretlandi eru þeir stærstu kaupend-
urnir að eigin fiski og hrósa sér af
því að rekstur verksmiðjunnar þar
skili miklum hagnaði. Þá getur hver
sem vill trúað .því að þeir séu að
selja sjálfum sér á hæsta mögulega
verðinu. Ég trúi því ekki. Við söl-
una í Bretlandi er einn regin munur
á SH og öðrum seljendum. SH selur
sjálfum sér en hinir ekki. Því eru
það aðrir seljendur, sem hafa haft
forystu um verðhækkanir og SH
hefur neyðzt til að-fylgja í kjölfar-
ið. Ég er sannfærður um það, að
væru aðrir seljendur ekki á þessum
markaði, aðeins SH, fengjum við
Morgunblaðið/HG
lager, gleymist sú staðreynd, að það
eru framleiðendur, sem eiga lager-
inn. A þeim hvíla afurðalánin og
því eru lagerar og langur greiðslu-
tími okkur hinn versti þyrnir í aug-
um. Svona hluti verða menn að
skilja.
Útgerð ríkis og sveitarfélaga
Kvótinn er fyrirkomulag við
stjórnun veiðanna, sem margir hafa
tjáð sig um. Til dæmis skrifa ein-
hvetjir nafnleysingjar oft í sunnu-
dagsblað Moggans um að ríkið eigi
að selja útgerðinni kvótann. Eg
treysti mér alveg út í samkeppni
um fiskinn með því móti, geti nafn-
leysingjarnir tryggt að öllum verði
seldur kvótinn og á sama verði. Að
allir sætu við sama borð. Ég er
hins vegar sannfærður um að það
geta þeir ekki. Pólitíkusarnir myndu
umsvifalaust grípa þar inn í og út-
vega ódýran kvóta hinum og þess-
um innan kjördæma sinna, sem
ekki geta staðið sig hjálparlaust.
Þá verður stutt í útgerð ríkis og
sveitarfélaga og sjálfstæðar útgerð-
ar látnar borga herkostnaðinn og
drepnar að því loknu. Það gæti orð-
ið dagblöðunum erfitt, þyrftu þau
í upphaft árs að bjóða í áskrifendur
fyrir árið og hreinlega kaupa að-'
gang að þeim. Ætli þau þyrftu þá
ekki hærri ríkisstyrk. Það virðist
öllum fínnast sjálfsagt að útgerðar-
menn og sjómenn verði skattlagðir
með þessum hætti, að kaupa sér
eins konar atvinnuleyfi. Mér er sem
ég sæi kennara kaupa sér stöðu við
skóla landsins. Það er alveg með
ólíkindum hvernig skynsömum
mönnum dettur í hug að svona vit-
leysa geti gengið. Þeim ætti að
vera ljóst hvernig Atvinnutrygg-
ingasjóður og Hlutafjársjóður voru
notaðir. Það vita líka allir að það
fæst ekki einu sinni helmingurinn
af þessu fé greiddur til baka, megn-
ið verður í raun styrkir til þeirra
sem pólitíkin hefur haft velþóknun
á.
Ölmusa til óþurftar
Allir eru sammála um að fækka
þurfi í flotanum, en menn greinir á
um leiðir til þess. Sumir vilja aota
auðlindaskattinn til að þess að
kaupa upp skip til úreldingar. Held-
ur einhver heilvita maður að lands-
byggðarskipin verði keypt og þau
úrelt? Varla meðan pólitíkusarnir
telja það heilaga köllun sína að
halda fólki nauðugu á hvaða
krummaskuði sem er og láta það
vinna í fiski, hvort sem það vill eða
ekki. Auðvitað verða það Reykja-
víkur- og Hafnarfjarðarskipin, sem
verða úrelt og þá kemur væntan-
lega fyrst að Ogurvíkurskipunum
og Grandaskipunum. Að mínu mati
er eina leiðin til að fækka í flotanum
sú, að útgerðin geri það sjálf með
eigin fé, en opinberir aðilar og ölm-
usa þeirra komi þar hvergi nærri,
segrr Gísli.“
TOGARAR
Nafn Stærð Afll Upplat. afla Úthd. Löndunarst.
1 RUNÖLFUR SH 135 312 130 Karfi/ýsa 4 Grundarfj.
SÖLVIBJARNASON BA 65 404 18,6 Þorskur Bíldudalur
I STÁLVlK Sl 1 364 48 Þorskur Siqlufiörður
BIRTINGUR NK 119 453 53 Þorskur/ýsa 4 Neskaupsstaður
I BJARTUR NK 121 461 49 Þorskur/ýsa 5 Neskaupsstaður |
HÓLMANESSU 1 451 48 Þorskur/ýsa 5 Eskifjörður
I TÁLKNFIRÐINGUR BA 325 351 15,2 Þorskur 3 Tálknafiörður
GISSURÁR6 315 60 Þorlákshöfn
I ÓLAFURJÓNSSONGK404 488 40 Karfi 4 Keflavík
ARNARNESSI 70 372 25,6 Þorskur Reykjavik
I STURL. BÖOVARSS. AK fo 431 187 Karfi Akranes
KROSSVlK AK 300 296 100 Karfi Akranes
I HÖFÐAVÍKAK200 499 120 Karfi Akranes
SLÉTTANES ÍS 808 472 16,5 Þorskur/ýsa 4 Þingeyri
| FRAMNESIS70B 407 65 Þor8kur 5 Þinqeyri
UTFLUTNINGUR 4. VIKA
Bretland Þýskaland Önnur lönd
Áætlaðar landanir V Þorsk. Ýsa Ufsi Karfi
ÖGRI RE 72 20 200
VÍÐIR HF201 20 180
BALDUR EA108 80 20
HEGRANES SK 2 20 130
GJAFAR VE600 60 20
DALA RAFN VE508 • 50 20
Áætlaðar landanir samtals 190 60 60 510
Sótt vtir um útfl. í gáumum á 871 470 256 289
Heimilaður útflutn. i gámunt 421 229 129 198
Áætlaður útfl.samtals 611 289 189 708
LOÐNUSKIP
Nafn Stærð Aftl SióUrðlr Löndunarst.
1 BÖRKURNK-122 711 1342 1 Neskaupst.
HILMIR SU-171 642 1339 1 Neskaupst.
I HÚLMABORG SU-11 937 1307 1 Eskifjörður |
SILDARBA TAR
Nafn Stærð Afll Sjófarðlr Löndunarst.
I GUBRÚN ÞÖRKELS. SU-211 365 290 2 Eskifjörður l
ÞÚRSHAMAR GK-75 326 148 2 Fáskrúðsfj.
I FRÍYR 105 141,8 2 Höfn
LYNGEY 146 201,8 2 Höfn
I STÍINUNN 116 207,3 2 Höfn , |
GAUKURGK 660 181 283 2 Grindavík
I SIGURÐUR ÞORLEIFS. GK 10 167 138 2 Grindavík ]
GUDMUNDUR VE 29 486 292 2 Vestm.eyjar
SILDARBA TAR
Nafn Stærð Afll Sjófarðlr Löndunarst.
I STYRMIR VEB2 190 230 2 Vestm.eyjar ]
KAPIIVE4 349 136 2 Vestm.eyjar
RÆKJUBA TAR
Nafn Stærð Afll SJófarðir Löndunarst.
I GRUNDFIRÐINGUR SH12 103 18,8 3 Grundarfjörður |
SÓLEYSH 15 0 63 11,6 2 Grundarfjörður
1 JÖN FREYRSH 115 102 31.2 4 Stykkishólmur l
SVANUR SH 11 88 16,4 3 Stykkishólmur
I GRETTJR SH 104 148 34,3 4 Stykkishólmur I
ÁRNISH262 17 13 3 Stykkishólmur
1 GiSLI GUNNARS SH85 18 12.2 3 Stvkkishólmur l
ARNARSH 157 16 26,1 5 Stykkishólmur
I SIGURVON SH 121 88 15,4 3 Stykkishólmur i
HÖFRUNGUR BA 60 4,7 Bíldudalur
I PILOTBA 6 20 3,8 Bildudalur l