Morgunblaðið - 05.02.1991, Side 3
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1991
B 3
Svíþjóð:
„Besti
leikur-
inn
minn“
- sagðiGunnar.
Gunnarsson eftir fjórða
sigur Ystad í röð
Gunnar Gunnarsson átti mjög
góðan leik og gerði sex mörk,
þegar Ystad vann Skövde 25:20 á
útivelli í úrslitakeppni sænsku úr-
valsdeildarinnar í handknattleik um
helgina. Þetta var fjórði sigur Ystad
í röð og er liðið í fjórða sæti með
26 stig. Síðustu leikimir í fyrri
umferð úrslitakeppninnar fara fram
annað kvöld og mætir Ystad þá
Redbergslid, sem vann Sávehof
23:22 á útivelli og er í 6. sæti með
22 stig. Söder, sem er í áttunda
og neðsta sæti með 19 stig, vann
efsta liðið, Drott, sem er með 37
stig, mjög óvænt, 27:23, og gerðu
heimamenn síðustu fimm mörkin.
Lugi er með 29 stig eftir 22:17 sig-
ur gegn Irsta, sem er í 2. sæti með
30 stig.
„Við höfum verið á góðri siglingu
að undanfömu og þetta var senni-
lega besti leikurinn minn í vetur,“
sagði Gunnar við Morgunblaðið.
„Það gekk nánast allt upp, við vor-
um 12:6 yfir í hálfleik og komumst
í 16:8, þannig að sigurinn var aldr-
ei í hættu.“
Mjög þétt er leikið í úrslitakeppn-
inni, en í seinni umferðinni, sem
hefst um næstu helgi, snýst leikja-
röðin við og mætast því Ystad og
Redbergslid í tveimur leikjum í röð.
Sex efstu liðin halda áfram í keppn-
inni.
Frakkland:
Júlíus
með sex
mörk
JÚLÍUS Jónasson gerði sex
mörk er hann og félagar ■ Paris
Asnieres sigruðu Strassbourg,
25:22, í frönsku 1. deildinni á
sunnudagskvöldið.
Venessiux og Nimes eru í efstu
sætunum, hafa skorið sig
nokkuð úr að sögn Júlíusar, og
beijast um titilinn. „Síðan koma
nokkur lið í hnút, þar á meðal við.
Við eigum fræðilega möguleika á
þriðja sætinu en til þess þurfum við
helst að vinna alla þá leiki sem eft-
ir eru,“ sagði Júlíus.
Eftirsóttur
Eins og komið hefur fram í Morg-
unblaðinu hafa þýska félagið Gross-
wallstadt og Bidasoa á Spáni bæði
sýnt áhuga á að fá Júlíus fyrir
næsta keppnistímabil en samningur
hans í Frakklandi rennur út í vor.
Hann fékk formlegt tilboð frá þýska
liðinu en hafnaði því og á von á
að heyra í forráðamönnum Bidasoa
á næstunni.
Þýska 2. deildarliðið Dankersen
hefur nú bæst í hópinn, en Júlíus
sagðist ekki reikna með að fara
þangað þó hann ræddi við menn frá
félaginu. Taldi mestar líkur á að
fara til Bidasoa ef hann færði sig
um set — en ætti allt eins von á
að vera áfram hjá Asnieres. v
FRJALSIÞROTTIR
StórmótSI
í Hafnarfirdi
Hið árlega Stórmót Samtaka
íþróttafréttamanna og Adidas
fer fram í kvöld og að þessu sinni
verður keppt í íþróttahúsinu í
Kaplakrika í Hafnarfirði. Keppnis-
fyrirkomulag verður nú með öðrum
hætti en á fyrri mótum — fjórum
liðum hefur verið boðið til keppni
og leika allir við alla.
Liðin s^m taka þátt í mótinu eru
Fram, nýbakaður íslandsmeistari í
innanhússknattspymu, KR, Valur
og FH. Þá mætast Stjörnulið Óm-
ars Ragnarssonar og lið íþrótta-
fréttamanna á mótinu. í liði Ómars
verða m. a. Laddi, Magnús Ólafs-
son, Jón Ragnarsson og Ingi Björn
Albertsson.
Keppni hefst kl. 19.30. Leikirnir
verða í þessari röð:
19.30 ..............FH-Fram
19.52 .............KR-Valur
20.14 .............. FH-KR
20.36 ...........Fram-Valur
21.00 .....Stjörn ulið Ómars - SÍ
21.18 .............FH-Valur
21.40 ..............Fram-KR
22.00........Verðlaunaafhending
Þórdís Gísladóttir.
bronsverðlaun
íCosford
Þórdís Gísladóttir náði sér ekki á
strik á enska meistaramótinu í
fijálsíþróttum innanhúss, sem fram
fór í Cosford á sunnudag. Hún stökk
1,80 metra.
BHI Þórdís fékk brons-
Melwille verðlaun, stökk jafn
skrifar langt og Julie Major.
Sigurvegari varð
enska stúlkan Debbi Marti, sem fór
yfir 1,94 m.
Þórdís þurfti þijár tilraunir til að
komast yfir byijunarhæð sína, 1,75
m, og kostaði það hana silfurverðlaun-
in. Hún komst hins vegar strax í
fyrstu tilraun yfir 1,80 m. Henni mi-
stókst svo þrívegis að komast yfir 1,85
■ ATLIHilmarsson lék á ný með
Granollers eftir að hafa verið frá
í þijá mánuði vegna meiðsla. Atli
skoraði þijú mörk í leik gegn
Valencia.
I SÆNSKI landsliðsmaðurinn
Erik Hajas hefur gengið til liðs við
Tres de Mayo og mun leika með
því út keppnistímabilið. Með liðinu
leikur Finninn Jan Rönneberg.
■ NÝJA Ólympíuhöllin í Granoll-
ers, þar sem handknattleikskeppnin
fer fram á ÓL í Barcelona 1992,
verður vígð 18. júlí í sumar með
landsleik Spánar og Frakklands.
Höllin tekur 5.500 áhorfendur í
sæti.
■ MJÖG öflugt mót fer síðan
fram í höllinni 23. til 28. júlí, þar
sem átta efstu þjóðimasr í HM í
Tékkóslóvakíu mæta til leiks. Búið
er að draga í riðla. A-riðill: Sov-
étríkin, Spánn, Rúmenía og
Þýskaland. B-riðill: Júgóslavía,
Svíþjóð, Tékkóslóvakía og Ung-
verjaland.
SIGURÐUR Sveinsson er hreint
óstöðvandi þessa dagana.
Hann á hvern stórleikinn á
fætur öðrum með Atletico
Madrid og réðu leikmenn
Barcelona ekkert við hann þeg-
ar úrslitakeppnin á Spáni hófst
um helgina. Sigurður skoraði
sex mörk gegn Barcelona - öll
með þrumufleygum í seinni
hálfleik, þegar Atletico vann
Barcelona, 19:18, íæsispenn-
andi leik.
Sigurður lék vel og þá varði
sænski markvörðurinn Thom-
as Svensson eins og berserkur.
Cabanas skoraði fjögur mörk fyrir
Barcelona. Júgó-
FráAtla slavinn Vujovic
Hilmarssyni skoraði 9/4 mörk
áSpáni fyrir. Landi hans
Portner náði sér
ekki á skrik og skoraði aðeins eitt
mark.
Alfreð Gíslason var einnig í ham
þegar Bidasoa vann Alecante,
24:21. Hann skoraði 8 mörk, en
Pólveijinn Bogdan Wenta lér sér
nægja þijú mörk.
Kristján Arason skoraði tvö mörk
þegar Teka vann Arrate, 22:23.
Cabanas skoraði flest mörk, eða
sex.
Geir Sveinsson lék sem útispilari
þegar Granollers tapaði, 24:29, fyr-
ir Valencia. Mikið er um meiðsli í
Morgunblaðið/Einar Falur
Sigurður Sveinsson.
herbúðum Granollers og var Geir
því látinn leika fyrir utan. Hann
náði ekki að skora.
Caja Madrid vann Mapamsa
24:19.
iÞRÚmR
FOLK
Gunnar Gunnarsson lék vel með Ystad.
Barátta um 1. deildarsæti í Þýskaland:
Hédinn Gilsson og
félagar í efsta sæti
Héðinn Gilsson og samheijar
í Dusseldorf eru efstir í riðli
sínum í þýsku 2. deildinni í hand-
bolta. Eru með 31 stig og hafa
WMRtRRRtk aðeins tapað
Frá þremur stigum.
JóniHalldóri Hameln hefur tap-
Garðarssyni ag jafn fáum en á
/ Þyskalandi ,eik innj Hefur 2g
stig.
Héðinn lék vel og gerði 5 mörk
um fyrri helgi er Diisseldorf sigr-
aði Spándau Berlin á útivelli,
22:17, en var slakur, að eigin
sögn, um helgina er lið hans vann
Wuppeital 21:13. Héðinn lék ein-
ungis í vöminni í síðari hálfleik.
Hameln og Diisseldorf mætast
um næstu helgi á heimavelli þess
fyrmefnda og er það úrslitaleikur
um það hvort liðið fer beint upp
í l..deild. Lið númer tvö í riðlinum
mætir svo liði úr hinum riðlinum
í keppni um 1. deildarsæti.
■ Andreas Thiel, fyrrum mark-
vörður v-þýska landsliðsins, verð-
ur með Dormagen næsta tíinabil.
Thiel hefur verið í marki Gum-
mersbach í mörg ár.
Petr Ivanescu hefur ráðinn
tæknilegur ráðunautur hjá meist-
araliði Tusem Essen, en hann er
þó enn þjálfari hjá Niederwurz-
bach, sem er næst neðst í 1. deild!
Ivanescu þjálfaði Essen í nokkur
ár á sínum tíma, og lék Alfreð
Gíslason m.a. undir hans stjóm.
Forráðamenn Essen-liðsins em
. ekki ánægðir með frammistöðu
liðsins undanfarið. Sovétmaðurinn
Tútskjín, sem márgir telja besta
handboltamann heims, hefur til
dæmis verið frekar slakur með
Essen í undanfömum leikjum.
KNATTSPYRNA INNANHÚSS
Úrslitakeppnin á Spáni:
Sigurður lék
Barcelona-
menn grátt
Alfreð Gíslason skoraði áttá mörkfyrir Bidasoa