Morgunblaðið - 05.02.1991, Page 8
fam
JHtvgnnÞIsifrife
SKIÐI / HEIMSMEISTARAMOTIÐ I ALPAGREINUM
Wiberg stal sigrin-
um í stórsvigi
„Skoplegt að ég hafi unnið gullverðlaun," sagði Pernilla Wiberg
SÆNSKA stúlkan Pernilla Wi-
berg sigraði mjög óvænt i
stórsvigi kvenna á heimsbikar-
mótinu í alpagreinum í Saal-
bach í Austurríki á laugardag-
inn. Það má segja að hún hafi
v stolið sigrinum því ekki var
búist við að hún blandaði sér
ítoppbaráttuna þar sem hún
var ekki einu sinni í fyrsta rás-
hóp. Hún varð þar með fyrst
sænskra kvenna til að vinna
heimsmeistaratitil í alpagrein-
um.
Wiberg, sem er aðeins tvítug
og byrjaði að keppa í heims-
bikarnum í fyrra, kom sjálfri sér
mest á óvart með því að sigra.
„Það er mjög skoplegt að ég hafi
unnið gTjJlverðlaun," sagði Wiberg
brosandi. „Ég átti hreinlega ekki
von á því.“
Wiberg náði sjöunda besta tíman-
um í fyrri umferð, en í síðari ferð-
inni náði hún frábærum tíma og
var 0,16 sek. á undan Ulriku Maier
frá Asturríki. Maier, sem varð
heimsmeistari í risasviginu, vár með
besta tímann í fyrri ferð, en keyrði
síðari ferðina af mikilli varfærni.
Traudl Haeeher vann fyrstu verð-
laun Þýskalands á mótinu með því
að ná í bronsverðlaunin.
Vreni Schneider frá Sviss náði
ekki að fylgja eftir sigrinum í svig-
inu. Hún var 1,70 sek. á eftir Maier
í fyrri ferð, en náði næstbesta
tímanum í síðari umferð og það
nægði henni aðeins í sjöunda sæti.
Maier var ekki óánægð með silf-
urverðlaunin. „Ég var mjög tauga-
óstyrk fyrir síðari umferðina og
gerði mistök í neðri hluta brautar-
innar. En þrátt fyrir ailt, er hægt
að vonast eftir meiru? Ég er mjög
sátt við gengi mitt á mótinu,“ sagði
Maier, sem varð fyrsta móðirin til
að vinna heimsmeistaratitil í alpa-
greinum er hún sigraði í risasviginu.
„Þetta er bara fyrsti sigurinn af
mörgum,“ sagði Jan Larsson, sem
skipuleggur mót og þjálfun Wi-
bergs. „Pemilla leggur mjög hart
að aér á æfingum - stundum verð-
. ur að stoppa hana af þar sem hún
leggur of hart af sér.“
Wiberg lærði á skíðum í brekkum
við heimabæ sinn, Nörrköpping, og
ætlaði sér snemma að verða skíða-
kona í fremstu röð. Fyrir tveimur
, árum varð hún að láta skera sig
upp vegna hnémeðsla og var frá
keppni að þeim sökum í heilt ár.
Hún hafði aðeins getað æft í nokkr-
ar vikur er hún varð þriðja og
fimmta í svigi heimsbikarsins, sem
fram fór í re og Vemdalen í Svíþjóð,
í fyrra. Svigið hefur verið hennar
aðalgrein, en draumur hennar er
« að verða alhliða skíðakona. Á sumr-
in hefur Wiberg unnið við að bera
út póst og heldur sér jafnframt í
æfingu með því að notað hjól. Hún
hjólar í fímm til sex tíma á dag til
að koma póstinum til viðtakanda.
llrslit / B7
Petra Kronberger.
ÍÞRÚmR
FOLX
■ PETRA Kronberger, skíða-
kona frá Austurríki sem hefur af-
gerandi forystu í heimsbikarnum,
verður frá keppni vegna meiðsla í
minnst þijár vikur. Hún sagðist
vonast til að geta keppt að nýju í
heimsbikarmótunum sem fram fara
í Japan um næstu mánaðarmót.
Kronberger varð fyrir meiðslum á
hné í risasviginu á heimsmeistara-
mótinu í Saalbach í síðustu viku.
■ A USTURRÍKI hlaut flest verð-
laun á Heimsmeistaramótinu sem
lauk í Saalbach á sunnudaginn.
Alls komu 11 verðlaun í hlut Aust-
urríkis og eru það besti árangur á
HM síðan 1962. Austurríkismenn
komust á verðlaunapall í öllu grein-
um nema bruni karla.
■ ULRKA Maier, sem var fyrsta
móðirin til að vinna HM-titil og
landi hennar, Rudi Nierlich, voru
þau einu sem náðu að vera titilinn
frá HM 1989.
Rudi Nierlich á fullri ferð í brekkunni. Á litlu myndinni fyrir ofan er sænska
stúlkan Wiberg.
en
var kærður
Rudolf Nierlich vann fimmtu
gullverðlaun Austurríkis-
manna á heimsmeistaramótinu í
Saalbach á sunnudag, er hann sigr-
aði í síðustu keppnisgrein mótsins
— stórsvigi. ítalinn. Alberto Tomba
hafði forystu eftir fyrri ferð en
datt snemma í þeirri seinni.
Fulltrúar fimm þjóða kærðu Ni-
erlich strax eftir fyrri ferð; héldu
því fram að hann hefði verið í brun-
galla, sem er ólöglegt. Skv. reglum
verður að komast ákveðið loftmagn
inn í galla sem keppendur í stórs-
vigi klæðast og hinir níðþröngu
brunbúningar eru ekki meðal þeirra
sem standast slíka loftstaðla.
Nierlich varð að afhenda móts-
höldurum búninginn og verður hann
rannsakaður.
En Nierlich sigraði og fékk gull-
peninginn afhentan. Síðar kemur í
Ijós hvort hann fær að halda pen-
ingnum. „Það skiptir mig mestu
máli að hafa sigrað fyrir framan
40.000 landa mína. Sigurinn var
mikið meira virði en peningurinn,“
var haft eftir Austurríkismannin-
Alberto Tomba.
um, sem virtist allt eins eiga von á
því að verðlaunin yrðu tekin af
honum.
Austurríkismenn stóðu sig best
allra á þessu heimsmeistaramóti.
Hafa ekki náð jafn góðum árangri
síðan í Chamonix í Frakklandi 1962
er þeir fengu 6 gullverðlaun. Nú
hlutu þeir 5 gull, 3 silfur og 3 brons.
KORFUBOLTI
Frestað
vegna
veðurs
Ollum leilcjum úrvalsdeildar-
innar í körfuknattleik var
frestað á sunnudaginn. í gær
átti að reyna aftur með leik
Þórs og Hauka en það gekk
ekki vegna veðurs.
Valur og Njarðvík mætast að
Hlíðarenda í kvöld og laugadag-
inn 9. leika Tindastóll og KR á
Sauðárkróki. Fimmtudaginn 14.
febrúar verða svo tveir leikir;
Snæfell og Grindavík leika á
Stykkishólmi og ÍR og ÍBK í
Keflavík.
Snæfell og ÍR áttu að leika á
sunnudaginn í bikarkfeppní
kvenna, en leikurinn verður
fimmtudaginn 7. febrúar.
NBA-DEILDIN
Lakers með
15. sigur-
leikinn
i roð
Frá
Gunnari
Valgeirssyni
i Bandarikjunum
Magic Johnson rotaðist í leik LA
Lakers gegn Chicago.
Tveir stórleikir fóru fram í
NBA-deildinni í körfuknattleik
á sunnudag; LA Lakers fékk
Chicago Bulls í heimsókn og Phoen-
ix sótti Detroit
heim. Lakers hélt
áfram á sigurbraut
og lék 15. sigurleik-
inn í röð og Phoenix
átti ekki í erfiðleikum í Detroit.
Lakers hafði forystu lengst af,
en í lok þriðja leikhluta, þegar stað-
an var 76:74, fékk Magic Johnson
spark í höfuðið og rotaðist. Hann
rankaði við sér um það bil fimm
mínútum síðar, kvartaði um höfuð-
verk og minnisleysi og var fluttur
á sjúkrahús til öryggis, en reyndist
ekki slasaður.
Tony Smith, sem Lakers fékk í
2. umferð síðasta vals leikmanna
úr háskólum, tók stöðu Johnsons
og stjórnaði liði sínu til sigurs,
99.86. Hann lék mjög vel í fjórða
leikhluta og að auki var vöm Lakers
mjög góð — Chicago skoraði og
síðan ekki söguna þeir, þegar fjórar
og hálf mínúta voru til leiksloka.
Byron Scott var stigahæstur hjá
Lakers með 18 stig, en sex menn
liðsins voru með 10 stig eða fleiri.
Varamennirnir skoruðu samtals 36
stig, en „bekkurinn" hjá Chicago
var aðeins með fjögur stig.
Phoenix vann Detroit 112:97 o
gmunaði mestu um stórleik Kevins
Johnsons, sem skoraði 28 stig og
þar af 20 stig í fyrri hálfleik.
Urslit / B6
Staðan/ B6