Morgunblaðið - 09.02.1991, Qupperneq 1
JRo reattft Jft&iíí
MENNING
LISTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1991_BLAÐ
REYKJAVÍKUR-
KVARTETTINN
FYRSTU tónleikar hins nýstofnaða Reykjavíkurkvartetts
verða haldnir í dag á vegum Myrkra músíkdaga og hefjast
þeir í Áskirkju kl. 17:00. Kvartettinn skipa þau Rut Ingólfs-
dóttir fiðluleikari, Zbigniew Dubik fiðluleikari, Guðmundur
Kristmundsson lágfiðluleikari og Inga Rós Ingólfsdóttir
sellóleikari. Á efnisskrá tónleikanna í dag eru einungis
verk eftir íslensk tónskáld og verður eitt verk frumflutt,
Sjö smámunir fyrir strengjakvartett, eftir Atla Heimi
Sveinsson.
ey kj avíkurkvartettinn
var stofnaður í haust
í kjölfar þess að
Reykj avíkurborg
styrkti starfrækslu
kvartetts.
„Kammersveit Reykjavíkur og
Félag íslenskra tónlistarmanna
höfðu um árabil farið þess á leit
við Reykjavíkurborg að hún styrkti
fjóra tónlistarmenn til að sinna
starfi strengjakvartetts. Kammer-
sveitin hefur í gegnum árin reynt
að hafa strengjakvartett á sínum
snærum en það hefur hins vegar
ekki gengið til lengdar. Ástæðan
fyrir því er sú að strengjakvartettar
eru álitnir erfíðasta samspilsformið
og þá er ómögulegt að starfrækja
nema með samfelldu starfí og reglu-
legum æfíngum. Á síðasta ári bár-
ust svo þau gleðitíðindi að
Reykjavíkurborg hefði samþykkt
að styrkja strengjakvartett og fyrir
það erum.við og vonandi allir tón-
listarunnendur ákaflega þakklát,"
sagði Rut Ingólfsdóttir fíðluleikari,
í samtali við Morgunblaðið.
Reykjavíkurkvartettinn hefur
komið fram á nokkrum stöðum frá
því í haust, en tónleikarnir í Ás-
kirkju í dag eru fyrstu eiginlegu
kvartetttónleikar hans. Á tónleik-
unum verða fluttir fjórir kvartettar
eftir þau Atla Heimi Sveinsson,
Karólínu Eiríksdóttur, Þorkel Sig-
urbjömsson og Jón Leifs. Eitt verk,
Sjö smámunir fyrir strengjakvartett
eftir Atla Heimi Sveinsson, verður
frumflutt en verkið var samið árið
1960 og hefur höfundur gert á því
nokkrar breytingar síðan.
Reykjavíkurkvartettinn mun jafn-
framt leika Sex lög fyrir strengja-
kvartett eftir Karólínu Eríksdóttur
en þau voru samin árið 1983 fyrir
Berwald strengjakvartettinn að
beiðni sænsku ríkiskonsertanna.
Verkið var frumflutt; Svíþjóð sama
ár og skömmu seinna á tónleikum
Musica Nova í Reykjavík. Háss-
elby-kvartettinn eftir Þorkel Sigur-
björnsson sem fluttur verður á tón-
leikunum var saminn árið 1968 að
beiðni Menningarstofnunar nor-
rænu höfuðborganna. Loks mun
kvartettinn spila Vita et Mors eftir
Jón Leifs en þann kvartett samdi
Jón í minningu um dóttur sína Líf
sem lést af slysförum árið 1947.
Verkið er samið á árunum 1947 til
1951.
Að sögn Rutar verður það eitt
helsta verkefni Reykjavíkurkvart-
ettsins að æfa, flytja og taka upp
á geisladiska kvartetta Jóns Leifs
en hann samdi þijá strengjakvart-
etta og hafa tveir þeirra ekki verið
spilaðir í tugi ára.
„Fólk er að vakna til vitundar
um hið mikilvæga hlutverk Jóns
Leifs í tónlistarsögu okkar. Verk
hans eru óhemjuerfið og hafa mjög
lítið verið flutt en nú hefur áhugi
aukist á því að kynna þau og koma
þeim á plötur og það verður okkar
meginverkefni næstu árin. Einnig
er ætlunin að endurnýja upptökur
á öðrum íslenskum kvartettum fyr-
ir Ríkisútvarpið sem margir hverjir
eru ekki til nema í mjög gömlum
upptökum með kvartett Björns
Ólafssonar. Við vonumst jafnframt
eftir því að stofnun strengjakvart-
ettsins verði hvatning fyrir tónskáld
að semja verk fyrir strengjakvart-
ett og okkur fari að berast ný verk
innan skamms, því eðlilega hefur
lítið verið samið af slíkum verkum
þar sem enginn hefur verið til að
spila þau,“ sagði Rut.
„Að mínu mati er sá skilningur
sem Reykjavíkurborg sýndi með þvf
að viðurkenna mikilvægi starf-
rækslu kvartetts fyrir íslenskt tón-
listarlíf merkur áfangi og mikið
gleðiefni og við munum svo sannar-
lega reyna að gera okkar besta í
þessu starfí," sagði Rut að lokum.
STARFRÆKSLA
KVARTETTS MIKILVÆGUR
ÁFANGIFYRIR ÍSLENSKT
TÓNLISTARLÍF