Morgunblaðið - 09.02.1991, Page 7

Morgunblaðið - 09.02.1991, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1991 B 7 ATLE NÆSS: I UPPHAFI VAR MYNDIN ÞÝDING: SIGURJÓN GUDJÓNSSON A ómkirkjan f Fiore var víð- M fræg. Þegar talað var um að rífa gömlu, lát- lausu kirkjuna og byggja nýja, sem betur hæfði stöðu og stærð borgaririnar, höfðu kirkjuyfirvöld gefið skýr lofoð um að hún yrði falleg og tilkomumikil. í engu skyldi sparað, beztu húsameistar- ar skyldu teikna hana, duglegir handverksmenn byggja hana og úrvalsefni iagt til hennar. Gamla kirkjan var annars ekki rifin. Þessi einfalda áttstrenda bygging sem þjónað hafði borg- inni í margar aldir fékk að standa, meira að segja varð hún sam- ræmdur hluti hinnar nýju kirkju- legu miðstöðvar. Að ytri einfald- leika stuðlaði hún mjög að því að vekja athygli á hinni nýju. Því kirkjan skyldi taka öllum öðrum fram, alveg sérstaklega skyldi hún gera kirkjuna í Marrone, ná- grannaborginni, að dvergkirkju. Það gerði hún. í hvítum, græn- um og rauðum marmara gnæfði hún upp yfir öll smáhýsin í miðri borginni, hún var meira en landa- merki, næstum eins og opinberun, þar sem hillti undir hana, óbifan- lega traust og um leið merkilega yndisfögur. Það var farið með þetta þunga efni af þeirri snilli að áhrifin urðu ekki íþyngjandi. Oddbogagluggarnir bentu upp, eggjuðu litlu mennina sem stóðu umhverfís að líta upp, horfa til himins. Sömu himinsæknu áhrifín sköpuðu tvö mest áberandi undir- stöðuatriðin við kirkjubygging- una. Hitt var grannur sérstæður klukkuturn, álíka hár og glæsileg- ur og ráðhústurninn. Ur fjarlægð virtist hann svo rólegur og stíl- hreinn að menn urðu forviða er þeir komu nær og sáu skreyting- arnar, nákvæmar skrautrendur lágmynda sem tóku við ein af annarri upp á við hæst í hæðun- um. Úr því hefði getað orðið ring- ulreið af órólegri skreytingu, eins og fleiri þekktir meistarar hefðu keppst við að skapa hið full- komna. En öll atriðin runnu sam- an í eitt tákn, eina ímynd, hvetj- andi vísifingur sem hreyfíngar- laus og ákveðið benti upp, benti beint til himins. Ennþá fegurri var tígulsteins- rauður kúpullinn. Hann sást alls- staðar.að úr borginni, meira að segja utan af ökrunum og frá þorpunum í kring. Þegar kvöldsól- in skein á hann, var eins og hann varpaði frá sér vörmu, mildu ljósi innan frá. Það var risavaxin bygg- ing, hún krýndi kirkjuhúsið með sigrí hrósandi djörfum bogum, með sinni fimamiklu spennu ögr- aði hún náttúrulögmálunum og hafði leitt að minnsta kosti einn húsmeistarann of snemma í gröf- ina, að því er sagt var. Hún var stolt tákn glæsilegrar borgar, sem engu að síður í guðrækni megn- aði að lyfta hugum manna og þrám upp úr hversdagsleikanum, hátt til hæða. Og efst á kúplinum, svo að all- ir gætu séð það, til þess að það gæti varpað geislum sinum yfir alla borgina, án þess að verða nokkurs staðar fyrir minnstu hindrun, var spengilegt krosslaga loftnet. Það var svæðissjónvarp Stöðvar M sem sendi út þaðan, afbragðs staðsetning miðað við útsendingartækni og um leið v áhrifamikið tákn um mikilvægi og orku félagsins. Það var engin launung að dómkirkjan var að nokkru leyti byggð fyrir fé frá Stöð M — jafnvel þungir auka- skattar sem ámm saman höfðu verið lagðir á til byggingarinnar nægðu ekki. Borgarsamfélagið eitt gat ekki greitt til fulls svo guðdómlega byggingu, fjármunir kirkjunnar sjálfrar voru að visu miklir en til svo stórkostlegs verk- efnis nægðu ekki einu sinni þeir. Fyrir ofan aðalinnganginn var stór flötur í hvítum marmara með greypta áletran í fagurrauðum marmarabókstöfum: «1 upphafi var myndin.» takendur geta bjargað sér í hita baráttunnar. Mikilvægast er nota- gildi málsins sem skemmtiatriðis. I borginni Fiore eru nefnilega kosningabaráttur og spurninga- þættir eins vinsælar á skjánum og aftökur og kynmakasamkeppni. Bókin lýsir því hvernig sjón- varpið braskar með draumóra og angist fólks og telur því trú um að «í upphafi var myndin». Einnig fjallar hún um möguleika mennta- og listamanna til að sporna á móti þessari þróun og um skilyrði ástarinnar í þvílíku «klámkenndu» samfélagi. Meginhugmynd hennar eru samskipti á milli valds, miðlun- ar, listar og ástar. Höfundur sviðsetur þannig í borginni Fiore það sem í raun gerist í samfélagi okkar. í borg- inni mætast menn og skoðanir. Þar fæðast nýjar hugmyndir og borgin verður því vettvangur sam- fylkingar og einhugs. En þegar fjölmiðlar ná völdum grafa þeir undan einhugnum, því að menn einbeita sér hver um sig að því sem gerist á skjánum. . Meðal hátindanna í bókinni er lýsingin á glæsilegum byggingum, veitingahúsum, verslunum, mjóum götum og tignarlegum torgum borgarinnar Fiore. Hún gefur frá- sögninni líf og ber vott um menn- ingarsögulega þekkingu og innlif- un höfundarins í framandi and- rúmsloft. Fyrirmyndin er Flórens, þar sem dómkirkjan með hvolfþak- ið og klukknaturninn, torgin og gamla brúin með gullsmiðabúðirn- ar era umhverfi atburðanna. Hér ríkir iðandi mannlíf: þjórandi námsmenn, iðnir verkamenn, stressaðir og glæsilegir kaupsýslu- menn, virðulegir klerkar, kátir lausingjar, götusalar, mangarar og vændiskonur setja svip sinn á götulífið. «Borgin var grundvöllur- inn, upphafið en frásögnin þurfti að ná yfir miklu meira,» fullyrðir Dan. «Frásögnin átti að rísa úr orðum eins og dómkirkja rís hægt og bít- andi úr glundroða ósléttra steina og steypublöndu, þar sem enginn nema byggingameistarinn kemur auga á skipulag og samhengi.» En við fáum einnig að vita að skammt frá þessari miðaldaborg er tilraunastöð fyrir þróun kjarna- vopna, en þar starfar útlaginn Dan sem upplýsingafulltrúi um skeið. Frásögnin sem hér er getið, er endurminningabókin sem Dan er að semja í útlegðinni. Hún á að fjalla um hvaða áhrif orðin hafa á tilfinningarnar og raunveruleik- ann sem þau tjá, og hvað gerist þegar ástríða og ákafi verða skáld- skapur. En mikið er einnig fjallað um vanmátt listarinnar og van- hæfni orðanna: er yfirleitt hægt að blása nýju lífi í glataða ást með því að snúa henni í ljóð? Dan metur þó orðið myndinni æðra, lögmál valdsins eru þar með undir- gefin listinni. Að hans mati er verkefni bókmenntanna að skera upp herör gegn vanmætti tungu- málsins með því að endurskipu- leggja það, taka það i sundur og setja það aftur saman «í nýjar, stórar frásagnir». «Frásögn hans þurfti að vera nógu öflug til að halda Bea(trice) fastri, henni sem lá þarna inni á spítalanum og svitnaði síðasta lífsmarkinu um svitaholurnar opnar af hitasótt- inni. Einnig átti hún að verða raft- ur sem rofíð gæti múrinn umhverf- is heimaborgina og hleypt honum inn aftur.» Frásögn Dans «fjallaði stöðugt um vald orðsins, um menn sem beittu vilja sínum í því skyni að lýsa og skilja, til þess að brýna sljó vopn tungunnar, tilviljana- kenndar og klunnalegar afurðir amsturs kynslóðanna, og beita þeim í ofsalegum bardaga í heil- agri særingu einhvers miklu stærra, í harðri baráttu gegn fá- tækt og volæði, fyrir daglegu brauði, oliu og víni». Aflið sem hrærír er ekki síst bók um útlegð í fyllstu merkingu þess orðs og um þrá eftir glataðri sælu. Fyrir Dante var ástin á «ímyndinni Beatrice* driffjöðrin, en hún endurspeglar eiginlega «aflið sem hrærir», þ.e.a.s. Guð. Atle Næss breytir þessu í almenna mannlega löngun eftir samskipt- um við hverfula hluti, sem okkur er öllum áskapað að missa. Bókin segir frá því hvernig hægt er að komast yfír aðskilnaðinn með því að leita uppi annars konar sam- stöðu, t.a.m. með því að fást við listir eða vísindi. Þetta er reyndar lausnin fyrir Dan Pellegrini eins vel og fyrir Dante Alighieri. Stílsamruni og afnám rökréttr- ar söguþróunar einkenna skáld- sögu Atla Næss, og hún er ef til vill besta póstmóderníska bókin sem hefur verið skrifuð í Noregi á 9. áratugnum. Önnur öndvegis- verk af þessu tagi eins og Homo Falsus (1984) eftir Jan Kjærstad og Det 7. klima (198<j>) eftir Kjart- an Flegstad fjalla með svipuðum. hætti um hultverk orðs og tungu á öld myndmálsins, en Aflið sem hrærir sker sig úr með því að vera meira hrífandi, samþjappaðri og síðast en ekki sist mun auðlesn- ari. Þetta er sennilega mikilvæg- asta skáldverk sem kom út í Nor- egi árið 1990. Höfundur er sendikennari ínorsku við Háskóla Islands. Leikið á liti og hljóðfæri - á sýningu Rutar Rebekku Sigurjónsdóttur í Hafnarborg í HAFNARBORG í Hafnarfirði er allt fullt af hljómlistarmönnum. Þeir sitja og standa, stakir eða í hópum; með fiðlurnar sínar, sellóin og hörpur. Ekkert vantar nema tónlistina sjálfa. Reyndar hvein vind- urinn í þaki hússins fyrr í vikunni og listakonan sló taktinn með hamrinum þar sem hún var að hengja upp þessi litskrúðugu mál- verk. Af hljóðfæraleikurum. Rut Rebekka Sigurjónsdóttir opnar í dag sýningu á þessu samspili lita, hljóðfæra og manna. Og við opnunina verður leikin tónlist. Rut Rebekka segist hafa verið sein af stað í listinni. „Ég gerði að vísu nokkrar til raunir til að byija að læra en gafst alltaf upp. Fór svo í Hjúk- runarskólann, gifti mig og eignaðist þijú börn. En löngunin í listina var alltaf til staðar, ég held ég hafi bara alltaf verið hrædd við verkefnið. Þeg- ar börnin vora komin, og maður hafði þroskast, þá fór ég kannski að hafa meiri trú á sjálfa mig. Eftir að þriðja barnið fæddist sagði ég upp vinnunni og fór að mála, án þess að hafa lært nokkuð. Upp úr því byij- aði ég að fara á námskeið, í Myndlist- askóla Reykjavíkur, og að lokum í Myndlistar- og handíðaskólann. Þá var ég orðin alveg ákveðin í að gera þetta að mínu starfi. Ég útskrifaðist úr málaradeildinni 1982, og kom mér strax upp vinnu- stofu. Hef unnið óslitið síðan - þetta er mín áttunda einkasýning.“ - Myndefnið vekur strax athygli, allir þessir hljóðfæraleikarar. Þig hefur kannski dreymt líka um að spila á hljóðfæri? „Jú, þegar ég var lítil stelpa dreymdi mig um að verða söngkona. Ég ætlaði nú líka að verða leikkona - og lærði að spila á píanó. En í öllu þessu, og myndlistinnþ einnig; þarf að aga sjálfan sig. Árangur næst ekki nema með töluvert mikilli vinnu. Sem unglingur og ung kona held ég að ég hafi ekki haft mögu- leika eða getu til að gera það. Eftir þrítugt var lífið orðið öruggara og maður sjálfsagt eitthvað þroskaðri." - Þú málar tónlist. „Núna já. Ég byijaði ekki strax á því. Ég var, og er, alltaf að leita. Var að leita að formi fyrir litinn. Liturinn höfðar mjög sterkt til mín, og þó þetta séu fígúratívar myndir, þá era þær byggðar á litnum fyrst og fremst. Manneskja og hljóðfæri hafa rnér alltaf þótt mjög falleg sam- an. Ég hef alltaf sótt tónleika, og hrífst af því hvað manneskjan er ein- læg þegar hún er að spila; öllu er kastað burtu til að þjóna tónlistinni. Þetta er skylt vinnu málarans: hann verður að kasta öllu öðru burtu með- an hann málar - má varla hugsa. Þarf að kafa inn a við, bijóta sér leið inn í verkið. Ég byija kannski með hugmynd að formi, eða á einum lit, en eftir það kallar framhaldið á önnur viðbrögð. Myndin sjálf tekur völdin. Og maður heldur áfram, þangað til dæmið gengur upp.“ - Þú vinnur ekki bara í olíuliti, ert líka með vatnsliti og grafík. „Það eru oft skyssur að málverk- unum. Myndefnið þróast áfram í þessum miðlum, en hver þeirra kallar á ólíkar áherslur. Þótt fígúran sé sú sama kallar efnið á mismunandi túlk- un.“ ^ - í málverkunum eru sterkir og stórir litfletir. Þú ert ekkert smeyk við að tefla öllum þessum litum sam- an? „Nei, eg elska það! - Og þú leikur þér mikið með að flétta saman línum mannslíkamans og hinum mjúku formum hljóðfær- anna. „ Ég hef líka málað píanóleikara og söngvara, en það er alltaf skemmtilegra þegar hljóðfærið er í fangi þess sem spilar á það. Þessi hljóðfæri eru svo einstaklega falleg í laginu. Þegar tónlistarfólk spilar tekur maður eftir því að það er mismun- andi hvað hljóðfærið er stór hluti af því. Stundur virðast þau óaðskilj- anleg. Þau eru kannski búin að þróa sig saman í mörg ár og líf þeirra er ein heild." - Ferðu og skyssar tónlistarfólk á æfingum og tónleikum? „Já, já. Eg er oft með blað með inér og skyssa. Ég var nú með fastan miða í Sinfóníunni í mörg ár og sat alltaf á sama staðnum, með sömu Rut Rebekka Sigurjónsdóttir kariana við hliðina á mér. Það var mjög gott, þeir voru orðnir vanir þessu. Margar myndanna nú á sýn- ingunni eru einmitt unnar eftir skyss- um sem ég gerði úr þessu sæti. Mig var farið að vanta myndir af hörpuleikara; harpan er svo afskap- lega tígulegt hljóðfæri þar sem hún stendur upp úr hljómsveitinni. En hún er alltaf svo aðþrengd á tónleik- um að ég hef aldrei getað teiknað hana almennilega. Svo sá ég í haust ljósmynd af Kammersveit Reykjavík- ur, og þar var hörpuleikari með. Ég hringdi strax í hana og-spurði hvort ég mætti koma að teikna og þá var ein æfing eftir. Það var sjálfsagt mál og ég mætti og teiknaði eins og ég gat; fímm skyssur af hörpuleikar- anum einum. Síðan fór ég heim og málaði fullt af málverkum og gerði grafíkmyndir!" - Þetta eru ekki portrett, myndir af tónlistarmönnunum sem einstakl- ingum. „Alls ekki. Ég forðast það eins og ég get. Ég vona að það sé frekar partur af mér í þessum myndum en einhveijum öðram.“ - Þú heyrir ekkert í hljóðfæraleik- urunum þegar þú málar þessar myndir? „Nei, sumir þykjast nú heyra eitt- hvað slíkt, en þegar ég er að mála þá sökkvi ég mér bara í verkefnið, og lokast inni í því.“ -efi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.