Morgunblaðið - 08.03.1991, Blaðsíða 1
VIKUNA 9. — 15. MARZ.
MORGUNBLAÐSINS
FOSTUDAGUR 8. MARZ 1991
BLAÐ
Cassidy
Astralska framhaldsmyndin Cassidy er á dagskrá Stöðvar 2
á sunnudag- og mánudag. Charlie Cassidy er aðlaðandi
ungur lögfræðingur frá Ástralíu sem býr í London og starfar hjá
virtri lögfræðistofu. Hún er metnaðargjörn og sýnir dug og hörku
í starfi. Faðir hennar er gjörspilltur stjórnmálamaður í Astralíu
og hafa þau ekki talast við eftir að Charlie flutti að heiman eftir
deilu við hann. Óvænt birtist faðirinn, Charles Parnell Cassidy á
heimili dóttur sinna og er honum mikið í mun að sættast við
hana og fá að sjá dótturson sinn, Joshua. Eftir harða deilu sætt-
ast þau feðginin en daginn eftir fær hún þau tíðindi að faðir henn-
ar sé látinn. Þegar Charlie er í þann mund að fara til Ástralíu
með lík föðurs síns berst henni myndbandssnælda, þar sem fað-
ir hennar tilkynnir henni að hún erfi auðævi hans og viðskipta-
veldi að honum látnum. Charlie neyðist til að gera upp við sig
hvort hún á að fylgja samvisku sinni eða taka að sér að stjórna
viðskiptaveldi föðurs síns sem byggir á eiturlyfjasölu, vændi og
rekstri spilavíta.
Ef dagur rís
HHyndaflokkur í sex þáttum, Ef dagur rís (If Tomorrow co-
mes), hefur göngu sína íSjónvarpinu nk. sunnu dags
kvöld. Myndin er byggð á samnefndri bók bandaríska rithöfund-
arins Sidney Sheldon, sem hefur notið vinsælda um heim allan
þrátt fyrir að ritverk hans séu sannkallaðir doðrantar að vöxt-
um. Myndaflokkurinn fjallar um unga stúlku, Tracy Whitney, sem
hefur allt til brunns að bera er eina snót má prýða; fegurð,
gáfur, velgengni í starfi og efnispilt fyrir unnusta. En undir yfir-
borði velgengninnar spinna þó örlaganornirnar vef sinn og fyrr
en varir verða óvæntir atburðir til að hrinda T racy út á aðrar
og hálari brautir en til stóð.
Með aðalhlutverk fara Madolyn Smith, Tom Berenger, David
Keith, JackWeston og Richard Kileg.
Ólafur Jóhann Sigurðsson.
„BRUIMI“
I eikrit vikunar á Rás 1, „BRUNI“, er byggt á sam-
™ nefndri smásögu eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson. Þar
segirfrá Pétri Pámasyni kaupmanni, sem hefurþungar
áhyggjur af stöðu mála í þjóðfélaginu, - ekkert nema
tap og skuldir, ábyrgðartilfinning manna rokin út í verð-
ur og vind. Þó tekur út yfir allan þjófabálk þegar menn
eru hættir að bregaðst við þegar kviknar í húsi nágrann-
ans.
Hlín Agnarsdóttir bjó söguna til leikflutnings í útvarpi
og er hún jafnframt leikstjóri. Leikendur eru: Róbert
Arnfinnsson, Sigurveig Jónsdóttir, Valdimar Flygenring,
Sigurður Skúlason, Steinn Ármann Magnússon og Andr-
és Sigurvinsson. Hljóðritun leikritsins önnuðust Friðrik
Stefánsson og Hallgrímur Gröndal. Leikritið er á dag-
skrá Rásar 1 nk. fimmtudag.
Sjónvarpsdagskrá bls. 2-8
Útvarpsdagskrá bls. 2-8
Hvað er að gerast? bls. 3-5
Myndbönd bls. 5
Bíóin í borginni bls. 6
Vinsælustu myndböndin 8
r.iacl'ioH'oluoómi'jnnivte-wo írnai'j .in—|----;-----------------———.ðiv loo )----------uuini evi! Mavianij'a'iii-i;
-Hoftlq-neiiotlute hieb-faie' idð
-,i- doicj lup'iib gsisunniv-ðiHiM