Morgunblaðið - 08.06.1991, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 08.06.1991, Qupperneq 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MENNING USTIR LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991 BLAÐ Að baki TRÍÓ BOREALIS, sem samanstendur af píanói, klarinettu og sellói, heldur sína fyrstu tónleika af þrennum, hér á landi, í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju í dag. Næstu tónleikar tríósins verða í Samkomusal Frímúrara, ísafirði, á morgun, sunnudag, og næstkomandi þriðjudag verða svo tónleikar í Listasafni Sigurjóns í Reykjavík, klukkan 20.30. Tónleikarnir á Akureyri og ísafirði hefjast klukkan 17.00. eru Tríó Borealis Morgunblaðið/Einar Falur orðin mjög mótuð, bæði af kennara mínum og foreldrum. Þau vildu að ég færi í keppnina, ég var klædd upp og send fram á sviðið. Ekki þar fyrir, ég var þá þegar orðin svo ákveðin í því hyað ég vildi, að ég ætla ekki að reyna að halda því fram að ég hafi kvartað," segir Beth og hlær hjartanlega. „En það var beygur í mér á keppn- isdaginn. Ég man þegar ég vaknaði og það fyrsta sem ég sá var kjóllinn sem ég átti að vera í að ég hugsaði; „almáttugur, það er í dag.“ Og það var aðeins skjálfti í mér. En svo gerði ég mér grein fyrir að ég var mjög vel undirbúin og ég hafði ver- ið alveg til í þetta og þegar stundin rann upp, leið mér ágætlega. Þetta var nokkuð stór keppni og bestu nemendur í Fíladelfíu tóku þátt í henni. Ég fékk mjög góða og jákvæða gagnrýni og mikla upp- örvun. Þetta hjálpaði mér mjög mikið og sannfærði mig um að ég gæti látið draum minn rætast." — Þú varst nemandi Rudolfs Serkin. Fórstu til hans eftir þessa keppni? „Nei, það var eftir keppni sem var haldin fjórum árum seinna. Hún var fyrir eldri nemendur. Þá var ég að leita að framhaldsskóla. í kjölfar þeirrar keppni fór ég í Curtis-tónlistarháskólann og hóf nám hjá Serkin. Curtis er einstakur skóli. Það er fremur erfitt að komast inn í hann, en ef það tekst er allt frítt og skólinn gefur manni píanó,“ — Hvemig var Serkin? Beth situr hugsi, hlær svo og segir: „Það er erfitt að segja ... í inntökuprófinu var hann yndislegur. Hann hoppaði í sífellu upp af stólnum, eins og lítill álfur. A milli laga dró hann upp vasaklút og þurrk- aði af nótunum fyrir mann og sagði „fínt, fínt, þetta gengur allt vel“, og hann var svo elskulegur og lítil- látur að maður fékk það á tilfinninguna að maður væri að gera mjög vel. SJA NÆSTU SÍÐU. og mistök RÆTT VIÐ BANDARÍSKA PÍANÓ- LEIKARANN BETH IEVIN Tríó Reykjavíkur skipa þau Einar Jóhann- esson, fyrsti klarínettuleikari Sinfóníu- hljómsveitar íslands og félagi í Blásar- akvintett Reykjavíkur, Richard Talkowsky, sem leikur á selló með Sin- fóníuhljómsveit íslands, og Beth Levin, bandarískur píanóleikari, sem leikur nú í fyrsta sinn á íslandi. Beth Levin er búsett og starfandi í New York. Tóíf ára gömul lék hún einleik með Fíladelfíuhljóm- sveitinni og fáum árum seinna var hún valin, ein þriggja nemenda, til að læra hjá Rudolph Serkin við The Curtis Institute. Hún vann til verðlauna í alþjóð- legu píanókeppninni í Leeds árið 1978. Beth hefur leikið einleik með fjölda bandarískra sinfóníuhljóm- sveita og komið fram á tónlistarhátíðum þar vestra, svo sem Marlboro, Casals, Harvard, Amherst og Blue Hill-hátíðunum og leikið inn á hljómplötur fyr- ir „Columbia Masterworks“. En hvað dregur hana til íslands? „Við Richard höfum þekkst mjög lengi,“ svarar hún. „Kynni okkar hófust þegar við vorum enn í námi og við höfum margoft leikið saman. Svo kom hann hingað til að leika með Sinfóníuhljómsveitinni ykkar og kynntist Einari. Einn daginn hringdi Ric- hard og hvatti mig til að koma og sagði að hér væri alveg frábært að vera. Þetta hljómaði allt svo spennandi, þegar hann hringdi. Ég sá að við gætum leikið saman án teljandi vandræða og ákvað að slá til. Og ég sé ekki eftir því.“ — Hvemig hefur ykkur gengið að æfa saman? „Mjög vel. Við Richard erum vön að spila saman og þeir Einar líka. Við höfum mjög ólíkar æfíngaað- ferðir og byijuðum á því að rífa allt niður, en fórum síðan að raða rifrildunum saman aftur og í dag small allt saman.“ Beth segist hafa byijað að glamra á píanó þriggja ára gömul. „Það var píanó á heimilinu og það hafði mikið aðdráttarafl fyrir mig. Ég nauðaði í foreldrum mínum um að fá að læra og þegar ég var sex ára var ég komin í reglubundið nám. Beth vill fremur lítið gera úr velgengni sinni. Hún er hógvær og segir að píanóið hafí bara orðið alger þráhyggja hjá henni, strax í byijun. „Mér fannst það meira virði en allt annað í heiminum, þar til ég eignaðist ijölskyldu. En eftir að ég gifti mig og eign- aðist börnin mín tvö, sem eru tíu og fjögurra ára, eru þau númer eitt. Það er engu líkt að eiga börn ...,“ segir Beth og ræðir þau um stund af mikilli gleði. — Fannst þér þau ekki raska ferli þínum? „Nei. Þau gerðu það ekki. Ég tímdi hinsvegar ekki sjálf að fara langt frá þeim, þegar þau voru lítil. Eg tók aðeins verkefni sem ekki voru fjarri heimili mínu. Og það var allt í lagi, vegna þess að ég átti margt ólært og þurfti meiri skólun. En nú eru þau orðin svo stór að svigrúmið til ferðalaga er að aukast, smátt og smátt.“ — Hvað kom til að þú tókst þátt í tónlistarsam- keppni aðeins tólf ára gömul? „Þetta var skemmtileg keppni og ég veit að ég gleymi henni aldrei. En á þessum aldri var ég þegar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.