Morgunblaðið - 08.06.1991, Qupperneq 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991
LISTAHÁTÍTIÐ HAFN'/
DAGSKRÁ
Frá l.júní — 14.júní.Alþjóðleg
vinnustofa í Straumi. Opin almenn-
ingi 17-21 á virkum dögum og um
helgar 14-19.
SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ. Tón-
leikar í Hafnarborg kl. 20.30. Efnis-
skrá eftir W.A. Mozart. Flutt verða
Krýningarmessan, Exultate jubilate
og íjórar mótettur. Flytjendur eru
hljómsveit og kór Hafnarfjarðar-
kirkju undir stjórn Helga Bragason-
ar. Einsöngvarar eru Sigríður Grönd-
al sópran, Guðný Ámadóttir mezzo-
sópran, Þorgeir Andrésson tenór og
Ragnar Davíðsson baritón.
FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ.
Kynning á listamönnum í Hafnarborg
kl. 20.30. Erlendir listamenn á lista-
hátíð segja frá sjálfum sér og kynna
verk sín.
SETNING LISTAHÁTÍÐAR f
H AFN ARFIRÐI LAUGARDAG-
INN 15. JÚNÍ KL. 14. Athöfnin fer
fram í Menningarmiðstöðinni í Hafn-
arborg. Heiðursgestur frú Vigdís
Finnbogadóttir forseti íslands. Ávörp
flytja Olafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra og Jóna Ósk Guðjóns-
dóttir forseti bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar og fulltrúi listahátíðamefnd-
ar. Kammersveit leikur og kór Öldu-
túnsskóla syngur.
LAUGARDAGUR KL. 16. Opnun
samsýningar málverka í Hafnarborg
eftir Einar Garibalda, Sigurð Örlygs-
son, Guðrúnu Kristjánsdóttur, Svein
Bjömsson og Vigni Jóhannsson.
Samtímis verður opnuð skúlptúrsýn-
ing á svæðinu umhverfis Hafnarborg.
SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ. Só-
nötukvöld í Hafnarborg kl. 20.30.
Flytjendur eru Ármann Helgason
klarinett, Guðrún Guðmundsdóttir
píanó, Gunnar Gunnarsson flauta,
Martin Frewer fiðla og David Know-
les píanó.
ROKKTÓNLEIKAR í KAPLA-
KRIKA KL. 12-24. Fram koma er-
lendar og íslenskar rokksveitir og
leika í hálfan sólarhring.
LEIÐSÖGN UM MYNDLISTAR-
SÝNINGAR. Áhugafólki gefst kpst-
ur á að skoða sýningamar á listahát-
íðinni í fylgd sérfróðra. Lagt verður
upp frá veitingahúsunum A. Hansen
og Fjömkránni kl. 20.30 dagana 20.
og 27. júní, og 4. og 11. júlí.
VÍGSLA HÖGGMYNDAGARÐS
FÖSTUDAG 21. JÚNÍ. Listamenn
vígja höggmyndagarð í Víðistaðatúni
með viðhöfn kl. 18.00. í garðinum
verða þau verk er unnin hafa verið
í vinnustofunni í Straumi 1.-14. júní.
SÖNGLJÓÐADAGSKRÁ
SUNNUDAG 23. JÚNÍ. Óperusmiðj-
an á Jónsmessu í Hafnarborg
kl.20.30.
TÓNLEIKAR SUNNUDAG 30.
JÚNÍ. Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleik-
ari og Þorsteinn Gauti Sigurðsson
píanóleikari í Hafnarborg kl. 20.30.
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ.
Formleg vígsla höggmyndagarðsins
á Víðistaðatúni kl. 14.
Listahátíð Hafnaríjarðar 1991 lýk-
ur með þessari athöfn.
Skúlptúrar
íöndvegi
Listahátíð Hafnarfjarðar hleypt af stokkunum
Fyrsta Listahátíð í Hafnarfirði hefst með formlegum hætti laugardag-
inn 15. júní. Til mánaðamótanna næstu verður margt dagskráratriða
í myndlist og tónlist en myndlistarsýningar á vegum hátiðarinnar
standa til 13. júlí. Helsta nýmæli á þessari listahátíð er alþjóðleg vinnu-
stofa skúlptúrista sem starfrækt hefur verið í vinnustofunum í Straumi
frá 1. júní, þar sem fjórtán myndlistarmenn, 10 erlendir og fjórir
íslenskir, vinna að útiskúlptúrum sem settir verða upp í nýskipulögðum
höggmyndagarði Hafnarfjarðar á Víðistaðatúni.
Að sögn Þorgeirs Ólafssonar ritara
undirbúningsnefndar má rekja upp-
haf þessarar fyrstu Listahátíðar
Hafnarfjarðar til þátttöku Sverris
Ólafssonar í alþjóðlegri vinnustofu
myndlistarmanna í Mexíkó á síðasta
ári. Það var síðan fyrir tilverknað
Sverris að vinnustofan fengi inni í
Straumi í Hafnarfirði á þessu ári og
í framhaldi af því þróaðist hugmynd-
in að Listahátíð Hafnarfjarðar. Þor-
geir sagði að hugmyndin væri að
Listahátíð Hafnaríjarðar yrði haldin
reglulega á tveggja ára fresti og
hverju sinni yrði megináherslan lögð
á einhverja eina grein listar með
þeim hætti sem nú væri, að skúlptúr-
verk og vinnustofa myndlistarmann-
anna í Straumi væri eins konar þema
hátíðarinnar.
„Það má síðan hugsa sér að næst
yrði tónlistin í öndvegi og á sama
hátt og alþjóðlega vinnustofan star-
far nú yrðu tónlistarmennimir með
opnar æfingar og svokallaða meist-
arakennslu (masterclass) þar sem
almenningi gæfist kostur að fylgjast
með undirbúningi og kynnast vinnu
listamannanna," sögðu þeir Þorgeir
og Gunnar Gunnarsson sem hefur
umsjón með tónlistarþætti hátíðar-
innar.
Það eru myndlistarmenn frá 8
löndum sem taka þátt í alþjóðlegu
vinnustofunni; Barbara Tiaho og
Timo Solin frá Finnlandi, Sonia Ren-
ard frá Frakklandi, Atsushi Shikata
frá Japan, Sebastian og Rowena
Morales frá Mexíkó, Ake Lagerborg
frá Svíþjóð, Jurg Altherr frá Sviss,
Volker Schönwart frá Þýskalandi og
íslendingarnir Kristján Guðmunds-
son, Brynhildur Þorgeirsdóttir,
Magnús Kjartansson, Steinunn Þór-
arinsdóttir og Vignir Jóhannsson.
Fyrirkomulag vinnustofunnar er
með þeim hætti að listamennirnir
fjórtán fengu ákveðinn ramma að
starfa eftir; beðið var um verk sem
væru ekki meira en 3x3 metrar að
stærð. Þeir sendu inn líkön af vænt-
anlegum verkum svo hægt væri að
meta tíma og kostnað við gerð þeirra
og frá 1. júní hefur verið unnið hörð-
um höndum af iðnaðarmönnum við
að koma verkunum í endanlegan
búning. Vinnustofurnar í Straumi
eru opnar almenningi og getur fólk
komið og litið á vinnubrögðin og
rætt við listamennina á staðnum um
verkin þeirra og annað sem vekur
forvitni. Flest verkanna eru nú langt
komin og í fyrstu verða þau til sýnis
á svæðinu umhverfis listamiðstöðina
Hafnarborg áður en þau verða flutt
á endanlegan stað í nýja höggmynda-
garðinn á Víðistaðatúni.
Það er Hafnaríjarðarbær sem
kostar gerð listaverkanna en lista-
mennirnir gefa verkin og vinnu sína
og er það ekki lítið sem í því felst,
því samanlagt andvirði verkanna
fjórtán er metið á 200-250 milljónir
króna, en að sögn Þorgeirs er kostn-
Morgunblaðið/Einar Falur
Listamenn og aðstandendur Listahátíðar Hafnarfjarðar við vinnu-
stofurnar í Straumi.
aður við gerð þeirra innan við fimm
milljónir. Hann sagði að það hefði
ekki verið sjálfsagður hlutur að lista-
mennirnir gæfu verkin enda eru í
þeim hópi sem að ofan er talinn
heimsþekktir listamenn, s.s. Sebast-
ian, Shikata og Altherr sem að öllum
jafnaði selja verk sín á milljónir
króna.
„Það var hugmyndin að stofnun
höggmyndagarðsins sem gerði okkur
kleift að fara fram á þetta við lista-
mennina og þeir tóku allir mjög vel
í hugmyndina, enda er ég hræddur
um að reynst hefði erfitt að finna
íslenska kaupendur að dýrustu verk-
unum ef slíkt hefði staðið til,“ sagði
Þorgeir og bætti því við að bæjaryfir-
völd í Hafnarfirði hefðu strax tekið
mjög vel í hugmyndina og skipulags-
stjóri bæjarins hefði reynst þeim
sannkallaður haukur í horni við fram-
gang hugmyndarinnar og skipulag
garðsins.
Segja má að höggmyndagarðurinn
verði vígður tvisvar, því fyrst ætla
listamennirnir að vígja hann með
táknrænum og vafalaust myndræn-
um hætti föstudaginn 21. júní klukk-
an 18, en formleg vígsla fer fram
13. júlí þegar Listahátíð Hafnarijarð-
ar lýkur.
Fjölbreyttir tónleikar
Menningarmiðstöðin í Hafnarborg
verður eins konar miðpunktur lista-
hátíðarinnar, því þar verða einir fern-
ir tónleikar auk samsýningar Ijög-
urra myndlistarmanna. Gunnar
Gunnarsson skólastjóri Tónlistar-
skóla Hafnaríjarðar hefur umsjón
með tónlistarþætti hátíðarinnar og
sagði hann að tónleikamir væru fjöl-
breyttir, hinir fyrstu eru Mozarttón-
íeikar kórs Hafnarfjarðarkirkju
ásamt hljómsveit og sex einsöngvur-
um undir stjórn Helga Bragasonar,
þá verður haldið sónötukvöld þar sem
kvartett skipaður valinkunnum tón-
listarmönnum leikur sónötur eftir
ýmsa meistara tónlistarsögunnar,
Óperusmiðjan stendur fyrir ljóða-
söngdagskrá og lokatónleikar lista-
hátíðarinnar verða þann 30. júní er
Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari og
Þorsteinn Gauti Sigurðsson leika
saman.
Samsýning þeirra Einars Gari-
balda, Sigurðar Örlygssonar, Guð-
rúnar Kristjánsdóttur og Sveins
Bjömssonar verður opnuð í Hafnar-
borg 15. júní og Vignir Jóhannsson
mun sýna rýmisverk utan við Hafn-
arborg í tengslum við þá sýningu.
hs
Síminn er verk frönsku listakonunna
Myndl:
f
Það er ekki á hverjum degi sem
tækifæri gefst hér upp á Islandi
til að líta augum fjórtán ný skúlpt-
úrverk, öll í fullri stærð, og eftir
jafnmarga listamenn frá átta
þjóðlöndum, allir vel þekktir
heima fyrir og sumir heimsþekkt-
ir.
BARBARA TIEAHO er finnsk
og vel þekkt í sínu heimalandi. Hún
er einkum þekkt fyrir steinskúlptúra
sína en hefur undanfarið unnið verk
sín í járn. Hún er nú búsett í Banda-
ríkjunum þar sem hún nýtur vaxandi
athygli.
TIMO SOLIN er einnig frá Finn-
landi en hefur verið búsettur í Svíþjóð
um 20 ára skeið. Verk hans eru eink-
um fígúratív og efniviður hans er
einkum járn. Hann er í hópi þekkt-
ustu skúlptúrista starfandi í Svíþjóð
um þessar mundir.
SONIA RENARD er frönsk en býr
í Þýskalandi. Hún hefur getið sér
gott orð á heimaslóðum fyrir expres-
síonísk verk sín og hún vinnur jöfnum
höndum sem málari og myndhöggv-
ari.
ATSUSHI SHIKATA er einn af
þekktustu listamönnum Japans af
yngri kynslóðinni. Hann stundaði
myndlistarnám sitt í Japan og síðar
Mexíkó sem er óvenjulegt fyrir Jap-
ana því þeir fara ógjarnan erlendis
til náms. Shikata er óðum að öðlast
«
al
ai
sí
°l
Þ'
H
Þ'
h
fi
h
a:
sl
n
r:
u
e:
á
Að baki eru...
Þegar ég var svo orðin nemandi
hjá honum, var annað upp á teningn-
um. Hann átti það til að umhverfast
og við, nemendur hans, áttum það
til að vehp dauðhrædd við hann. Það
kom fyrir að við köstuðum upp áður
en við fórum í tíma hjá Serkin. En
hann var frábær kennari.
Kennsluaðferðir hans voru dálítið
sérstakar. Tónlistin var honum trúar-
brögð og hljóðfæraleikarar aðeins
verkfæri til að koma verkum stóru
meistaranna til skila á sem áhrifa-
ríkastan hátt. Hann talaði af mikilli
lotningu um tónskáldin; um ævi
þeirra, sigra og sorgir, jafnt sem
verk þeirra. Og Serkin var alveg
hafsjór af fróðleik. í hvert sinn sem
hann settist niður til að segja fáein
orð, fólst í þeim viska og fróðleikur
á við marga fyrirlestra.
Serkin var ekki smámunasamur
og ég mundi segja að hann hafi frem-
ur verið þjálfari en kennari. Hann
krafðist mikils af okkur en vænti lít-
ils. Hann kenndi mér í þijú ár í
Curtis, og seinna var ég í skóla hans
í Marlboro í þrjú ár. En samband
okkar varð ekkert sérlega náið. Ég
var ekki sá nemandi sem stóð honum
næst. Ég gat aldrei sagt mikið í
návist hans og samband okkar varð
mikið í ósögðum orðum. Hann fyllti
mig alltaf innblæstri og áhuga og
var mér mikil hvatning. En það er
svo skrítið, með tilliti til þess að sam-
skipti okkar voru án mikilla ræðu-
halda, að eftir að ég lauk námi, fór
hann að skrifa mér bréf og hann
gerði það allt þar til hann dó fyrir
stuttu. Og þessi bréf voru alltaf til
að hvetja mig áfram.
Serkin vísaði mér í kennslu til
Leonards Shore, sem er annar frá-
bær kennari, meðan ég var í Curtis
og síðar til Dorothy Taubman, í New
York. Hjá henni hef ég verið meir
og minna þar til fyrir ári, í einkatím-
um. Hann bar hag minn alltaf fyrír
brjósti og vísaði mér til kennara sem
hann vissi að gætu hjálpað mér. Og
Leonard og Dorothy eru einstakir
kennarar."
— Og hvernig hefur ferill þinn
þróast?
„Hann hefur verið fullur af sigrum
— og fullur af mistökum. Þegar ég
hafði loksins útskrifast úr öllum skól-
um og var á þrítugsaldrinum, tók
ég þátt í hverri samkeppninni á fæt-
ur annarri, en komst ekkert áfram.
Mér leið alveg hræðilega. Jú, jú, það
var talað um mig sem áhugaverðan
píanóleikara, en ekkert meira. Ég
gerði mér grein fyrir að eitthvað
væri að tækninni hjá mér. Ég gerði
mér líka grein fyrir að þrátt fyrir
námið, var fullt af hlutum sem ég
skildi ekki. Þá fór ég í einkatíma hjá
Dorothy. Hún hjálpaði mér með
ýmis tæknileg vandamál og ég á
henni mikið að þakka.
Það er bara eitt ár síðan ég debut-
eraði í New York, en ég fékk mjög
góða dóma og í kjölfarið fékk ég
umboðsmann.“
— Er ekki erfitt fyrir píanóleikara
að fá umboðsmann?
„Jú, biddu fyrir þér. Mig dreymdi
aldrei um að ég ætti eftir að hafa
umboðsmann. En veistu, það er bæði
gott og vont. Þeir eru dálítið hættu-
iegir, því þeir hugsa kannski meira
um peningana en feril manns. Maður
verður því að vera nokkuð varkár í
samskiptum við þá og koma þeim í
skilning um hvað maður vill. En ég
er þokkalega ánægð’ með útlitið
næsta árið. Framtíðarhorfur mínar
eru ágætar ...
... það er sagt að á bak við hvern
þann sem nær langt í tónlistinni, sé
langur, langur ferill af mistökum,"
segir Beth og hlær og bætir við í
lokin: „Kannski næ ég bara langt."
Viðtal/Súsanna Svavarsdóttir