Morgunblaðið - 21.06.1991, Qupperneq 12
AUKhf k10d61-232
12
MORGUNBllAÐIÐ FÖ&TUÐAGUÍR 21; -JÚNÍ 1991
BYKO HRINGBRAUT
Efri röð frá vinstri: Erlendur Pálsson, Helgi Veturliðason, Ólafur Jökull Herbertsson,
Grétar Þór Bergsson, Róbert Jónsson. Neðri röð frá vinstri: Þorvaldur Haraldsson, Gunnar Theodórsson,
Skæringur Baldursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir, Gylfi Þ. Sigurpálsson, Lilja Hallgrímsdóttir, Lilja Karlsdóttir, Viggó Jörgensson.
Á myndina vantar: Laufeyju Karlsdóttur og Erlend Ragnar Kristjánsson
Við bjóðum ykkur velkomin
Nýja BYKO verslunin við Hringbraut er í því húsi
sem margir þekkja sem Steindórshúsið og nú er
hægt að aka beint inn á bílastæði af Hringbraut-
inni. Staðarvalið er engin tilviljun. í nærliggjandi
hverfum í mið- og vesturborginni er mikið af
gömlum húsum sem eru mikil borgarprýði en
þurfa eðlilega sitt viðhald. Ennfremur hefur byggð
þést mjög á Seltjarnarnesi og víða í vestur-
borginni og enn eru menn að byggja á þessum
svæðum. Það verður því afar þægilegt, fyrir
eigendur gamalla sem nýrra húsa, að njóta
þjónustu BYKO í þessum bæjarhluta.
í nýju versluninni, líkt og í Breiddinni og
Hafnarfirði, mun BYKO kappkosta að hafa mikið
úrval byggingavöru á boðstólum. Þarverður
timbursala, lagnadeild, áhaldalega, almenn
byggingavörudeild, hreinlætistækja- og gólfefna-
deild auk heimilisvörudeildar. í deildinni Hólf &
gólf setjum við upp hreinlætistæki eða sýnum efni
á gólfum ellegar veggjum - svo fátt eitt sé nefnt - í
því skyni að auðvelda viðskiptavinum að finna
vöru við sitt hæfi.
Þótt verslunin sé ný er starfsfólkið engir
nýgræðingar. Það hefur hlotið þjálfun í öðrum
verslunum BYKO og mun miðla viðskiptavinum af
reynslu sinni og veita þeim persónulega þjónustu.
Verið velkomin í hina nýju verslun BYKO við
Hringbraut.
V ÖRUFLOKK AR
Arstíðavörur Járnvörur
Blöndunartæki Klæðningar
Festingar Ljós
I Gluggar Málning
Harðviður Parket
Heflaður panell Plötur
Heimilistæki Rafmagnsvörur
Heimilisvörur Sólbekkir
Hilluefni Timbur
Hreinlætistæki Verkfæri
Hurðir Þakefni
: Járn
Viggó Jörgensson
verslunarstjóri
Gylfi Þ. Sigurpálsson
aðstoðarverslunarstjóri