Morgunblaðið - 14.07.1991, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.07.1991, Blaðsíða 8
i8 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1991 Yfirlitsmynd frá sýningunni á Kjarvalsstöðum. Yfirlitsmynd frá sýningunni í listasafni ASÍ. Gjöf Ragnars í Smára Myndlist BragiÁsgeirsson Á þessu ári eru þrjátíu ár frá því að Ragnar Jónsson í Smára gaf meginhluta safns síns Alþýðu- sambands ísiands. Það mun hafa átt nokkurn að- . draganda, en meginhugsunin hjá Ragnari mun fyrst og fremst hafa verið sú, jið koma þessum myndum á framfæri við þjóðina með ein- hverjum hætti, og mun hann áður hafa boðið borgarstjóra safnið ef borgin byggði yfir það, en því verið hafnað. Að gefa borgum söfn sín orkar oftar en ekki tvímælis og eru um það mörg dæmi, t.d. gaf hinn mikli listaverkasafnari og vinur Edvards Munchs, Rolf Stenersen, Óslóborg allt sitt viðamikla og merkilega listaverkasafn með þeim skilyrðum að borgin byggði yfir það. En nú meira en hálfri öld seinna, er húsið að ég best veit óreist! Auk þess eru slík einkasöfn oftar en ekki þunglamalegar byggingar og njóta lítillar aðsókn- ar almennings. Og hvernig sem á allt er litið, er það gríðarlega vandasamt að reka einkasöfn, því þau eru svo séreðlis, og á seinni tímum hefur verið gripið til þeirra ráða að halda einnig uppi í þeim annarri sýning- arstarfsemi til að gera þau for- vitnilegri. Ég var viðstaddur þá eftir- minnilegu stund, er sýnishorni úr safni Ragnars í Smára var komið fyrir í Listamannaskálanum gamla við Kirkjustræti og safnið afhent Alþýðusambandinu, og er hún mér í fersku minni. Þá voru fljótlega uppi miklar bollaleggingar um framtíðarhús- næði yfir gjöfína og ætlaði margur það létt verk af stærstu samtökum þjóðarinnar að byggja yfir hana. En svo sem oft vill verða í slíkum tilvikum, hefur þróunin orðið önnur en menn ætluðu í upphafi, og þannig hefur gjöfin í langan tíma verið varðveitt í ein- hvers konar geymslu og leigu- stofnun á listaverkum, samkvæmt erlendri fyrirmynd stærri þjóðar- heilda, en á allt öðrum forsendum, því að í þessu litla landi verða verkin þá að beinum samkeppnis- aðila við starfandi listamenn, sem síst af öllu mun hafa verið ætlun Ragnars. Þvert á móti mun það hafa ver- ið ætlun Ragnars, að vekja áhuga alls almennings á lifandi myndlist og gera gjöfina að vítamínsprautu iðkunar myndlistar á landinu. Segja skal hveija sögu eins og er, en ekki nota safnið til sjálfs- hyllingar og áróðurs svo sem gert hefur verið í einu dagblaðanna. Listasafn ASÍ hefur aldrei kom- ist í eigið húsnæði, og vistarverur T’- T' ' ' ■ '*** '' ''' ' Mynd Kjarvals af Ragnari. þess í dag eru alls ófullnægjandi, þótt sýningarsalirnir séu ágætir, og átti víst ekki að vera til fram- búðar, enda var safnið svo til kom- ið á götuna fyrir fáum árum að því að mér var tjáð. Sem betur fer þá hefur starf- semi þess tekið fjörkipp á síðstliðnum árum, en þó er mikið verk framundan við að byggja upp jafna og almenna aðsókn og verð- ur ekki gert nema með mikilli út- sjónarsemi og brögðum listar. — í tilefni þessara tímamóta eru nú tvær sýningar í gangi í höfuð- borginni, annarsvegar í eystri sal Kjarvalsstaða og hins vegar í húsakynnum safnsins. Á Kjarvalsstöðum hefur verið komið fyrir myndum eldri kyn- slóða og skipa elstu listamenn þjóðarinnar, með brautryðjend- urna Ásgrím, Jón Stefánsson og Kjarval, heiðurssess ásamt nokkr- um þekktustu málurum eftirstríðs- áranna. En í sölum listasafns ASÍ er uppi sýning sem nefnist „Ungir listamenn“. Þessi skipting er kannski ágæt út af fyrir sig, en gefur þó ekki rétta hugmynd af Ragnari. Víst hélt hann hinum elstu stíft fram og gaf út í félagi við Kristján Jóns- son í Kiddabúð nokkrar lista- verkabækur um brautryðjend- urna, sem í þann tíma var ein- stakt afrek í íslenskri menningar- sögu. En Ragnar í Smára bar hag allrar íslenskrar myndlistar fyrir bijósti eins og annarra listgreina og dró ekki listamenn í dilka eftir aldri. Fengi hann áhuga á lista- manni festi hann sér einfaldlega verk hans án tillits til aldurs eða listastefnu. Hann hélt sem sagt fram ferskri og lifandi list — ungri list eftir listamenn á öllum aldri. Naumast var til markaður né pen- ingar til bókaútgáfu um verk yngri listamanna, en í þess stað virkjaði hann þá á annan hátt með því að gefa þeim ýmis verkefni t.d. við gerð bókakápa og myndlýsinga í bækur. Ragnar var þannig maður allra kynslóða og alls þess sem honum fannst vel gert og vakti áhuga hans. Er hann var gripinn af myndlistarverkum festi hann sér þau oft án þess að hann ætti hand- bært fé fyrir þeim, en greiddi þau alltaf einhvern veginn upp. Fyrir þessa eiginleika hans á síður að skipta Iistamönnum í það sem menn nefna að árum unga listamenn og svo eldri listamenn eins og þessi kynslóðaskipti séu afgerandi um ferskleika myndlist- arverkanna. En það er hárrétt að hann bar hag ungra listamanna fyrir bijósti og vildi veg þeirra sem mestan og þann eiginleika hans ber vita- skuld að heiðra. Hins vegar hefði verið æði for- vitnilegt að sjá þverskurð af lista- verkaeign hans og verk hinna ungu innanum, sem safnið festi sér að sjálfsögðu um leið. Sýningin á Kjarvalsstöðum er mjög falleg og áhugaverð og eink- um munu hinar ungu kynslóðir hafa gott af að skoða hana því að sjaldan sést viðlíka úrval íslenskrar listar á einum stað. Sýningin er þannig haldin á röngum tíma því hún á svo sannar- lega erindi til skólafólks, bæði í almennum skólum svo og lista- skólum. Ný kynslóð er vaxin úr grasi, sem þekkir lítið til þessara manna og jafnvel nýútskrifaðir listsögu- fræðingar úr erlendum skólastofn- unum standa hér á gati að því er sagt er. Þetta fólk heimtar þó allt nýtt og ferskt bióð inn í íslenzka myndlist, en án þess þó að þekkja hana! Nýja blóðið er það sem við- komandi hafa séð í erlendum tíma- ritum eða hafa lært ytra. Eins og staðið er að sýningun- um tveim, er þess ekki að vænta að þær hljóti þá aðsókn sem æski- legt væri og er hér ekki hægt að kenna góðviðrinu einu um. — Þegar sýningin á Kjarvals- stöðum er skoðuð í kjölinn kemur í ljós hve næma tilfinningu Ragn- ar hafði fyrir málverkum, því hon- um hefur í mörgum tilvikum tek- ist að festa sér mjög einkennandi lykilverk á ferli einstakra lista- manna og eru sum þeirra á þess- ari sýningu. Þar er margt málverka sem eld- ast ekki frekar en öll góð list, en það er alveg víst að hæfileikinn til að upplifa sömu myndina á ný í hvert skipti sem hún er skoðuð, hefur lengi verið á undanhaldi á þessum tímum hraða og vægðar- lausrar kröfu um endurnýjun. Sú krafa er löngu úrelt því hið nýja er jafnan gamalt vín á nýjum belgjum og þannig gerðu Assírísk- ir snillingar verk í stein fyrir þrem þúsundum ára, sem myndu falla inn í hið nýjasta í nútímalist, auk þess, sem að baki myndverkanna var mögnuð háspeki og djúp heim- speki. Eitthvað hafa menn verið úti að aka við gerð sýningarskrár, því annarsvegar er um að ræða af- langa óhandhæga skrá með mynd- um af listaverkum úr eigu safnsins sem fæst eiai á sjálfri sýningunni, og hins sama er að segja um myndirnar frá sýningu ungra lista- manna í minningu Ragnars. Slík vinnubrögð eru mjög séríslensk og sjást yfirleitt ekki annars stað- ar. Nafnaskráin er svo ljósritaður einblöðungur, sem fer fram hjá flestum, en miðarnir sem eru fest- ir við hlið myndanna gefa ekki allar upplýsingar t.d. vantar ártöl. Smámunasemi munu einhveijir hugsa, en þetta sér maður einmitt hvergi í marktækum listhúsum ytra. Sýning ungu myndlistarmann- anna er séstæð fyrir það, að erfitt er að komast að því eftir hvern listaverkin eru enda eru þau öll ónúmeruð! Þetta vildu listamennirnir sjálfir og er í þessu formi ófrumlegur kjánaskapur, sem fælir fólk frá sýningum. Manni þykir um og ó að þurfa að hnýta á þennan hátt í sýningar hér heima, en hjá því verður ekki komist og ansi er þetta klént frá hálfu fólks sem vill vera með í því nýjasta að utan. Og hví þá ekki einnig hvað framkvæmdir sýninga snertir? Sýning ungu listamannanna telst nokkuð á eftir tímanum, þrátt fyrir að auðsjáanlega geri þeir sér mikið far um að vera með á nótun- um. Slíkri sýningu þarf að fylgja heimspeki og hún þarf að vera skýrlega fram borin, og þótt hér megi sjá athyglisverðar tilraunir gerir form sýningarinnar og sér- viska í kringum hana framkvæmd- ina hálfvandræðalega. Einmitt sú staðreynd að minn- ingu Ragnars í Smára ber að halda á lofti með sem mestum ágætum, gerir miklar kröfur til vinnubragða við framkvæmd sýninga af þess- ari gerð. Og þótt sýningin á Kjarv- alsstöðum sé mjög áhugaverð og stórbrotin verk innan um uppfyllir hún ekki ströngustu kröfur. í ganginum eru til sýnis for- lagsbækur og sitthvað fleira af athafnasemi Ragnars og er það lífleg viðbót en hefði mátt vera enn fyllri. Stórhugur Ragnars Jónssonar í Smára er einstakt fyrirbæri í menningarsögu tuttugustu aldar- innar hér á landi, og við höfum engan slíkan eignast síðan hann féll frá, þótt viðgangur íslenskra lista á seinni timum kalli á marga slíka. Hann hafði vilja til fram- kvæmda og miklar hugsjónir, sem leiðir hugann til hinna miklu list- höfðingja endurreisnartímabilsins, og var um leið líkastur loftvog á hræringar samtímans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.