Morgunblaðið - 27.07.1991, Side 1
MENNING
LISTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 1991_BLAÐ 13
Bestu Ustamemiirnir
fá alltaf tækifæri
Morgunblaðið/Einar Falur
— segir Garðar Cortes
óperusöngvari, óperustjóri og
skólastjóri Söngshólans i Reykjavik
Garðar Cortes
óperusöngvari og stjórnandi
Islensku óperunnar er á
förum til Gautaborgar í
Svíþjóð þar sem hann tekur
við stjórn
Gautaborgaróperunnar.
Garðar er ráðinn til þriggja
ára og segist þegar búinn að
ákveða að koma aftur til
íslands og íslensku
óperunnar 1. janúar 1995.
Starf óperustjóra í
Gautaborg er mikið og fyrir
Garðar Cortes er þessi staða
mikil viðurkenning á starfi
hans hér heima við Islensku
óperuna. Óperan í Gautaborg
er mikilla umsvifa, 12-17
frumsýningar á hverju
leikári, þar er auk þess rekin
barnaópera og fyrir dyrum
stendur að óperan flytjist í
nýtt óperuhús sem verið er
að byggja. Starf Garðars
verður því að stjórna þessum
tveimur óperuhúsum og hefja
rekstur
Gautaborgaróperunnar í nýju
óperuhúsi.
Engum blöðum er um það
að fletta að Garðar er sá
maður sem mest áhrif hefur
haft á þróun sönglistarinnar
á íslandi síðastliðna tvo
áratugi, allt frá stofnun
Söngskóians í Reykjavík
1973. Hann hefur ráðið því
hversu margir og jafnvel
hverjir útskrifuðust sem
söngvarar frá Söngskólanum.
Hann hefur ráðið því hverjir
syngja við íslensku óperuna,
hann hefur ráðið því hvaða
óperur hafaverið teknar til
sýninga við íslensku óperuna
og um leið fylgir í kjölfarið
að hann hefur ráðið því hvað
væri ekki gert og hverjir
væru ekki starfandi við
óperuna. Einhveijum kann ef
til vill að finnast fulldjúpt í
árinni tekið og vissulega eru
fleiri sem koma við sögu, en
þeir sem til þekkja segja
einfaldlega: Garðar ræður
því sem hann vill ráða.