Morgunblaðið - 11.08.1991, Blaðsíða 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 1991
—F
Opið ídag kl. 13-15
2ja herb.
Flyðrugrandi. Sérl. glæsi-
leg 2ja-3ja herb. 65 fm íb. á 1. hæð
m/sórgarði í suður. Parket á gólfum og
vandaðar innr. Laus strax. Ákv. sala.
Hamraborg - Kóp.
Glæsil. 61 fm íb. á 5. hæö í lyftuh. Stór-
ar suöursvalir. Fallegt útsýni. Bílskýli.
Laus strax.
Ásbúð - Gbæ. Falleg
ca 75 fm íb. á jaröh. Sérinng. og sér-
garður. Sérþvottahús. Góð staösetn.
Áhv. 2,1 millj.
3ja herb.
Við Skúlagötu. 3ja-4ra
herb. 100 fm íb. á 1. hæð. Útsýni yfir
sjóöinn. Afh. tilb. u. trév. Áhv. Byggsj.
6,7 millj.
Eiðistorg. Glæsil. ca 90 fm
íb. í lyftuh. Góöar innr. Sólstofa og sér-
svalir í suður. Áhv. Byggingasj. 1,7
millj. Verð 8,2 millj.
Hafnarfjörður. 3ja-4ra
herb. íb. í nýju húsi við Lækjargötu.
Afh. tilb. u. trév. Lyklar og teikn. á
skrifst.
4ra—6 herb.
Unnarbraut. Góð ca 100
fm íb. á jaröhæð (aöeins niðurgr.).
Skiptist í: Forst., rúmg. eldh., geymslu
og þvhús, baðherb., 3 svefnh., hol og
stóra stofu. Verð 6,8 millj.
Dalsel. Vorum að fá í einkasölu
mjög fallega 101 fm nt. 4ra herb. íb. á
l. hæð. Sérbúr og þvherb. Suðursv.
Upphitaö bilskýli. Verð 7,2 millj.
Engjasel. Falleg 102 fm íb. á
3. hæð. Mjög rúmg. svefnherb. Sérþv-
herb. í íb. Suðursv. Gott útsýni. Bílskýli.
Verö 7,2 millj.
Álfheimar
Vorum að fá í einkasölu glæsil. 110 fm
íb. á jarðh. Ný endurn. eldh., eikarpark-
et á allri íb. Húsið er nýmálað og í góðu
ástandi. Verð 7,2 millj.
Melabraut. Góö 100 fm
efri sérhæð í tvíbh. ásamt stórum bílsk.
3 svefnherb. Suöursv. Áhv. byggsj. 2,7
millj. Verð 9,3 millj.
Seltjarnarnes. Góð 100
fm jarðh. í tvíbýlish. við fallega vist-
götu. Góður sérgaröur meö undirstöð-
um fyrir sólstofu. Bílskplata. Hús í góðu
ástandi. Áhv. 3,5 millj. Verð 8,5 millj.
Skólavörðustígur.
Nýl. falleg og björt 103 fm íb. á efstu
hæð. Fallegar innr. Parket. Suðursv.
Gott útsýni. Áhv. byggsj. 1,6 millj. Verð
7,9 millj.
Unnarbraut - Seltj.
Stórglæsil. 110 fm neðri sérh. í nýl.
tvíbýlish., ásamt 30 fm bílsk. íb. skiptist
m. a. í 3 herb., stofur og hol. Skjólsæll
og gróinn suðurgaröur. Húsið er nýmál-
að og í mjög góðu ástandi. Áhv. 3
millj. langtlán.
Stærri eignir
Valhúsabraut.
Lagl. ca
130 fm eldra einbhús á tveimur hæðum
ásamt nýl. 60 fm tvöf. bílsk. Húsið er
talsv. endurn. Stór og falleg eignarlóð.
Bollagarðar. Gott enda-
raöh. á tveimur hæðum ásamt baö-
stofulofti og innb. bílsk. alls um 215 fm.
Gott skipulag, parket á gólfum. Skjól-
sæll suðurgarður. Laust strax.
Víkurströnd. Glæsil. einb-
hús á einni hæð auk kj. u. hluta húss-
ins. Séríb. í kj. Rúmg. bílsk. Alls 280 fm.
Húsið byggt 1982. Verð 17,0 millj.
Seltjarnarnes. Glæsil.
vandað ca 240 fm hús á tveimur hæð-
um á sunnanverðu Nesinu. Vandaöar
innr. Stór sólstofa með nuddpotti. Stór
verönd. Gróin garður. Fallegt útsýni.
Ákv. sala. Verð 17,5 millj.
Vesturfold. 184 fm einbhús
á einni hæð m/innb. bílsk. Fullb. aö
utan, fokh. að innan. Til afh. strax. Verö
9,3 millj.
Áhaldaleiga . Rót-
gróið fyrirtæki sem er vel búið
tækjum. Traust viöskiptasamb.
RUNÓLFUR GUNNLAUGSS0N, rekstrarhagfr.
KRISTJÁN V. KRISTJÁNSSON, viðskiptafr.
Ilmsögn fagmanna um astand
fasteignar ættl á% allt
aö líggja lyrir viö söln
segir Árni Þór Árnason byggingatæknifrædingur
í ár hefur viðrað betur til viðgerða og viðhalds á húseignum utan-
húss en oft áður, enda gjarnan talað um þetta sem eitt mildasta og
sólrikasta sumar aldarinnar. Hvort sem það er vegna veðurblíðunn-
ar eða aukins skilnings hjá fólki á nauðsyn þess að halda eignum
sinum við, þá hafa framkvæmdir af þessu tagi verið meira áberandi
í ár en oft áður. Otrúlega víða má sjá menn í stigum eða á vinnu-
pöllum við verk af þessu tagi, allt frá einfaldri málun, er húseigend-
ur sinna gjarnan sjálfir og upp í meiriháttar viðgerðir þar sem kalla
verður til iðnaðarmenn eða verktaka, sem sérhæft hafa sig til slíkra
verka.
Einnig er hugsanlegt að mikil
umræða um þessi mál í fjöl-
miðlum hafi haft hér einhver áhrif.
Fjöldi nýrra fyrirtækja hefur líka
skotið upp kollinum á síðustu miss-
erum og bjóða fram þjónustu sína
á þessum sviði. Sum þeirra hafa
gefið út bæklinga,
sem dreift hefur
verið í hús, þar
sem þjónustan er
kynnt og lögð
áherzla á mikil-
vægi þess, að hús-
eignum sé vel við
haldið og viðgerð-
um sinnt áður en
í óefni er komið.
Ekki ósjaldan kemur það fyrir,
að eigandi húseignar eða íbúðar
þarf að grípa til meiri háttar við-
halds eða viðgerða á eign sinni,
enda þótt hann hafi aðeins átt hana
tiltölulega skamman tíma, kannski
eitt ár eða jafnvel skemur. Slíkt er
ávallt alvarlegt fjárhagslegt áfall
fyrir viðkomandi, því að flestum
reynist það ærinn baggi að fjár-
magna sjálf fasteignakaupin. Þeir
eru því yfirleitt engan veginn í
stakk búnir til að ráðast í kostnað-
arsamar viðgerðir kannski aðeins
hálfu ári eftir kaupin.
Mikilvægur en vanræktur
þáttur
— Þessum mikilvæga þætti fast-
eignaviðskipta er allt of lítill gaum-
ur gefinn, sagði Árni Þór Árnason,
byggingatæknifræðingur hjá bygg-
ingaþjónustunni Tóftir hf. í Kópa-
vogi, í viðtali við Morgunblaðið. —
Skýringin er auðvitað sú, að tækni-
legt og faglegt mat á ástandi og
gæðum fasteigna er alls ekki á
færi hvers sem er og mér er til
efs, að fasteignasölur almennt hafi
á að skipa sérmenntuðu fólki til
slíkra starfa, enda er þjónusta
þeirra fyrst og fremst viðskiptalegs
eðlis en ekki tæknileg.
Ámi Þór Árnason er fæddur
1947 og alinn upp í Reykjavík.
Hann lauk prófí frá Tækniskóla
íslands í ársbyijun 1977. Síðan
hélt hann til Svíþjóðar, þar sem
hann starfaði í um tvö ár. Eftir að
hann sneri heim, hefur hann einkum
unnið við eftirlit og stjórnun ýmissa
byggingaframkvæmda og má þar
nefna Járnblendiverksmiðjuna á
Grundartanga, háspennulínur í eigu
Landsvirkjunar, verzlunarmiðstöð-
ina Kringluna, verksmiðjubyggingu
í Portúgal o. fl.
— Það er alls ekki ætlun mín
að draga einhvern ákveðinn hóp til
ábyrgðar í þessu efni, segir Árni
Þór ennfremur. — Ég vil miklu
fremur freista þess að benda á leið
til úrbóta. Með því að láta kunnáttu-
menn skoða hveija eign, sem er að
fara í sölu og gefa umsögn sína
um hana, mætti draga stórlega úr
óvæntum og þungbærum atvikum
af þessu tagi.
Þegar fasteign er seld, þá koma
þar yfirleitt við sögu svo sem kunn-
ugt er seljandi, fasteignasali og svo
kaupandi. Eðli málsins samkvæmt
hefur kaupandi mestan áhuga þess-
ara þriggja á ástandi og gæðum
þeirrar eignar, er um ræðir hverju
sinn, þó svo að hina tvo skipti það
einnig miklu máli, að allt komi fram,
er máli skiptir um ástand eignarinn-
ar.
Flestir sem keypt hafa fasteign,
kannast við svofellt ákvæði í kaup-
samningnum: “Eignin er seld í því
ástandi, sem hún er í og kaupandi
hefur kynnt sér við skoðun og sætt
sig við að öllu leyti.“ — Skoðunin
felst þá gjarnan í einni eða tveimur
heimsóknum kaupandans sjálfs, þar
sem gengið er úr skugga um, að
almennt ástand eignarinnar sé við-
unandi svo sem að eldhús og bað
séu á sínum stað og þokkalega útlít-
andi, gler í gluggum í lagi o. s.
frv., segir Árni Þór.
— Iðulega.kemur það svo fyrir,
að væntanlegur kaupandi lætur
hrífast af atriðum, sem snerta gæði
og ástand sjálfrar húseignarinnar
sáralítið, heldur Árni Þór áfram. —
Þar má nefna fagurt útsýni, falleg-
an garð eða jafnvel glæsilegt innbú
seljandans. Þetta er auðvitað síður
en svo regla. Stundum eiga kunn-
áttumenn í hlut eða viðkomandi er
svo heppinn að þekkja eða hafa
aðgang að kunnáttumanni, sem
svarað getur spumingum um þau
fjöimörgu byggingartæknilegu at-
riði, er máli_ skipta.
Að áliti Árna Þórs er venjulegt
íbúðarhúsnæði í sjálfu sér ekki ýkja
flókið byggingarlega séð, að
minnsta kosti ekki í augum fag-
manna og sjaldnast leiðir hinn al-
menni húseigandi hugann að þeim
þætti, að minnsta kosti á meðan
húsnæðið virðist vera í góðu lagi.
— Staðreyndin er hins vegar sú,
að flestir alvarlegir byggingagallar
og skemmdir eru þess eðlis, að er-
fitt getur verið að greina slíkt, sérs-
taklega á byijunarstigi og þá er það
alls ekki á færi annarra en kunn-
áttumanna, segir Árni Þór.
Árni Þór Árnason
Reglunbundin skoðun
nauðsynleg
Víða erlendis t. d. í Bandaríkjun-
um er það svo, að ferill fasteignar,
sem á að selja, er rannsakaður,
áður en til sölu kemur. Þá er fagað-
ili, sem er óháður viðkomandi fas-
eignasölu, fenginn til að skoða eign-
ina og gefa síðan álit sitt á henni,
þar á meðal hvort hún sé haldin
einhveijum göllum.
— Þetta eykur að sjálfsögðu
öryggi í fasteignaviðskiptum, segir
Árni Þór. — Kaupandinn fær þá
strax að vita, hvort eitthvað sé að
eigninni og hvað það er og þá er
ekki heldur hægt að væna seljand-
ann um, að hann hafi vanrækt upp-
lýsingaskyldu sína. Sá kostnaður,
sem hlýzt af þessu, sparast annars
staðar. Málaferlum vegna galla í
fasteignakaupum myndi fækka
stórlega en þau eru ekki bara kostn-
aðarsöm heldur einnig tímafrek og
reyna oft mjög á aðilana.
Að mati Árna Þórs verður aldrei
bent nægilega rækilega á þá stað-
reynd, að skemmdir og galla á fas-
teignum er bezt að uppræta þegar
í upphafí bæði eignanna vegna og
eins til að halda viðhaldskostnaði í
lágmarki. — Byggingaskemmdir og
gallar eru gjarnan þess eðlis, að
hvort tveggja magnast í öfugu hlut-
falli við tímann, sem líður, án þess
að nokkuð sé gert til þess að vinna
gegn þeim, segir hann. — Sem
dæmi má nefna, þegar fólk fær
^yitneskju um steypuskemmdir en
ákveður að skjóta öllum viðgerðum
á frest í eitt eða tvö ár vegna slæms
árferðis. Þá vaknar það oft upp við
þann vonda draum, að skemmdirnar
hafa tvöfaldazt frá því, sem var.
Bezt væri að koma á reglubund-
inni skoðun fasteigna, t. d. á 4- 5
ára fresti eftir atvikum. Með því
móti myndi hinn almenni hús- og
íbúðareigandi fírra sig alvarlegum
áföllum og stórum ijárútlátum. —
Þetta þykir ekki aðeins sjálfsagt
hvað snertir bflana okkar, heldur
er það hreinlega lögbundið, segir
Árni Þór. — Það er áberandi, að
fólk hér skipar hlutum í vissa röð.
Fyrstur kemur bfllinn, síðan húsið
og loks heilsan. Þegar grannt er
skoðað, sjá allir, að það er lítið vit
í þessu. Auðvitað ætti röðin að vera
önnur.
Þá telur Árni Þór, að sá sem
kaupir íbúð í blokk, eigi að geta
snúið sér til stjómar húsfélagsins
þar og fengið hjá henni upplýsingar
um ástand húseignarinnar að utan
og sameignarinnar yfírleitt. — Ef
þetta væri reglan, yrðu stjórnir
húsfélaganna í blokkum sér örugg-
lega enn frekar meðvitandi um
nauðsyn þess að halda sameigninni
í góðu ástandi, segir Ámi Þór.
Að mati hans er mikil nauðsyn
á því, að fyrirtæki í viðgerðaþjón-
ustu og byggingariðnaði taki að sér
í ríkara mæli en hér hefur tíðkazt
að skoða og gefa rökstutt álit á
fasteignum . — Slík fyrirtæki em
vissulega til hér, segir hann. — Þau
hafa þó einkum unnið að faglegri
úttekt á opinbemm byggingum og
stærri blokkum. Það hefur hins
vegar ekki verið venja, að seljendur
eða kaupendur jafnt á einstökum
íbúðum í blokk eða raðhúsum og
einbýlishúsum snúi sér til slíkra
aðila. Úr þessu þarf að bæta.
— Hér má skjóta^ því inn, að
íbúðarhúsnæði okkar íslendinga er
tiltölulega ungt að árum, segir Árni
Þór. — Það hefur því ekki kallað á
viðhald í sama mæli og tíðkazt víða
erlendis, þar sem íbúðarhúsnæðið
er eldra. Á næstu ámm má hins
vegar gera ráð fyrir, að aldur hús-
eigna hér fari að segja meira til sín
en verið hefur. Það er því enn frek-
ari nauðsyn á því en verið hefur,
að kaupendur á eldra húsnæði gæti
að sér.
Skoðunin skiptist í þijú þrep
Hugmynd Árna Þórs og félaga
hans er sú, að það verði reglan, að
fagmenn skoði fasteignir, áður en
þær fara í sölu. — Slíkri skoðun
mætti skipta í þijú þrep eftir ástæð-
um hveiju sinni, segir hann. —
Fyrsta þrepið fæli í sér grunnskoð-
un. Þar yrði fyrst og fremst um
sjónmat að ræða, en t. d. ekki far-
ið út í brot eða rif af neinu tagi.
Slíkri grunnskoðun myndi fylgja
skrifleg skýrsla og ef til vill ljós-
myndir. Hugmyndin er sú að staðla
eitthvert skoðunarform gegn föstu
verði, sem væri hnitmiðað en jafn-
framt ódýrt.
Með slíka umsögn í höndunum
ættu hlutaðeigandi aðilar að vera
miklu betur í stakk búnir til að
meta raunverulegt verðgildi eignar-
innar og hættan á deilum og mála-
ferlum síðar myndi stórlega
minnka. Ég hef líka trú á því, að
með tímanum nái menn slíku valdi
á grunnskoðuninni, að frekari skoð-
í þessu húsi voru miklar rakaskemmdir, sem ókleift var fyrir leik-
mann að sjá. Skoðun og umsögn kunnáttumanns hefði leitt kaupand-
ann í allan sannleika um ástand eignarinnar.
eftir Magnús
Sigurðsson