Morgunblaðið - 31.08.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.08.1991, Blaðsíða 4
4 B______________MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1991_ m'ííiiiiiim.Miiiii.mmi. ð -....m. > ííít *»»i. mifi^ ^ 7 ' GRAFIKÞRIARI NORRÆNA HÚSINU Sýningartímabil Norræna hússins haustið 1991 hefst með sýningu á grafíkröðum norrænna listamanna. Á sýningunni er einn fulltrúi frá hverju Norðurlanda auk þess sem gestur sýningarinnar er Heien Frankenthaler frá Bandaríkjunum. Ein af myndum Sigurðar Guómundssonar etta er í annað sinn sem „grafíkþríár", eins og sýn- ingin nefnist, er á vegum Norræna hússins. Fyrsta norræna grafíkþríárið var haldið árið 1988 að frumkvæði Knuts Ödegárds þáverandi forstjóra nor- ræna hússins svo og dr. Ólafs Kvarns listráðunautar hússins, í samvinnu við félagið íslensk grafík. Það er athyglisvert við þessa sýn- ingu að enginn norrænu listamann- anna sem þar sýna hefur grafíkina sem aðaltjáningarform. Norræna húsið og félagið íslensk grafík vilja með þessum þriggja ára sýningum sýna íslenskum áhorfend- um hluta af því fjölmarga athyglis- verða sem er á seyði í norrænni grafík og um leið auka áhuga og skilning á grafík sem tjáningarformi í norrænni samtíðarlist. Á fyrra grafíkþríári völdust lista- menn sem þekktir voru aðallega á sviði grafíklistarinnar og þá var þemað „manneskjan" en í þetta sinn er um að ræða „abstrakt metafor" þar sem listamennimir leita í nátt- úruna á óhlutbundinn hátt. Gestur sýningarinnar er Helen Frankenthaler en hún er fædd árið 1928 í New York. Hún hefur numið hjá Horace Mann og Brearley, Dal- ton-skóla og í Bennington College. Síðan m.a. hjá Rufíno Tamayo, Paul Feeley, Wallace Harrison og Hans Hoffmann. Hún hefur kennt við ýmsa skóla og má þar nefna Yale University, Princeton University og Hunter College. Helen Frankenthal- er hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og haldið einkasýn- ingar frá árinu 1950 um allan heim. Hún var m.a. valin einn af fjórum fulltrúum Bandaríkjanna á 33. al- þjóðlegu listsýninguna í Feneyjum árið 1966. Einnig átti hún verk á sýningunni American Art Now á heimssýningunni í Montreal 1967. Fulltrúi Islendinga er Sigurður Guðmundsson. Sigurður er fæddur í Reykjavík árið 1942 og er án efa einn okkar fremsti og þekktasti myndlistarmaður. Hann nam við Myndlista: og handíðaskóla íslands 1960-63. í framhaldi af því fór hann til Hollands þar sem hann nam við Academi 63, Haarlem 1963 og við Ateliers 63, Haarlem 1970-71. Hann er einn af stofnendum Gall- erí SÚM, nýlistasafnsins í Reykjavík svo og IN-OUT-CENTER í Amster- dam. Sigurður hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir list sína og má þar nefna að árið 1980 hlaut hann PSI-styrk New York og 1985 Prins Eugene orðuna í Stokkhólmi. Hann hlaut Henrik-Steffens-verðlaunin 1989. Sigurður hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga. Hann hefur meðal ann- ars verið fulltrúi íslendinga á listsýn- ingunni í Feneyjum og á sýningunni „Scandinavia today“ í Guggenheim- safninu 1982-83. Hann var valinn á sýningu í Van Gogh Museum, Amst- erdam: „De Nederlandse identiteit in de kunst na 1945“. Fulltrúi Dana á sýningunni er Per Kirkeby en hann er fæddur árið 1938 í Kaupmannahöfn. Hann lauk cand. mag.-prófi í náttúrufræði árið 1964 frá Kaupmannahafnarháskóla. Per Kirkeby er sjálfmenntaður á myndlistarsviðinu. Hann tengdist Den Experimenterende Kunstskole frá árinu 1962, hélt sína fyrstu eink- asýningu árið 1965 og fékk upp úr rþví þriggja ára ríkisstyrk til listiðk- unar. Hann var félagi í Trækvogn 13 og kvikmyndahópnum ABCinema og Ijölþjóðahópnum Fluxus. Kirkeby er einnig mikilvirkhr rithöfundur og greinahöfundur. Árið 1982 varð hann félagi í Dönsku akademíunni og 1988 var hann ráðinn prófessor við Staatliche Hochschule fiir Bild- ende Kunste í Frankfurt. Olav Cristopher Jenssen er fulltrúi Norðmanna. Hann er fæddur í Sortl- andi árið 1954 en býr nú og starfar í Berlín. Á árunum 1973-76 nam hann við Handíða- og listiðnaðarskóla ríkisins í Ósló. Var við nám í Norsku lista- akademíunni 1980-81. Hann hefur haldið margar einkasýningar og tek- ið þátt í fjölmörgum samsýningum. Fulltrúi Svía er Max Book en hann er fæddur árið 1953 í Láng- sele. Hann er mikilvirkur málari, búsettur í Stokkhólmi. Getrud Sandqvist listfræðingur segir í sýn- ingarskrá: „Max Book hefur áhuga á árekstrum og lymskulegum gildr- um milli mismunandi myndhefða samtímans, því sem hann kallar „hlaup“. Sem gagnrýninn áhorfandi, svo að segja bakdyramegin, gerir hann samsettar myndir sem líta út fyrir að vera „réttar" og bendir þannig allan tímann á muninn milli sannleika og sennileika." Hann hef- ur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið einkasýningar frá árinu 1979. Fulltrúi Finna er Jukka Makela en hann er fæddur í Jyváskylá árið 1949 en býr og starfar í Helsing- fors. Hann nam á árunum 1967-68 við Listiðnaðarskólann í Helsingfors. Árið 1968-72 nam hann við skóla fínnsku listaakademíunnar í Hels- ingfors. Hann hefur verið valinn sem full- trúi fínnskrar nútímamálaralistar á margar samsýningar á Norðurlönd- um svo og sýningar í Frakklandi, Póllandi, Japan, Bandaríkjunum, ísrael, Austurríki og Þýskalandi. Verk hans er að finna í helstu söfn- um Norðurlanda og víðar. Dr. Ólafur Kvaran, Edda Jóns- dóttir frá félaginu íslensk grafík og Lars Áke Engblom forstjóri Norr- æna hússins völdu listamenn og verk á sýninguna. Að þessu sinni var ákveðið að velja þekkta nútímalista- menn sem nota grafík sem miðil til að víkka út listsvið sitt. Einar Örn Gunnarsson Eitt af verkum Per Kirkeby. TÓNLEIKAR Í SEPTEMBER 1991 Laugardaginn 31. ágúst íslenska óperan, kl. 17.00. Andreas Schmidt, bariton. Rudolf Jansen, píanó. Ljóðasöngvar eftir Schumann, m.a. Dichterliebe. Sunnudaginn 1. september íslenska óperan, kl. 17.00. Andreas Schmidt, bariton. Rudolf Jansen, píanó. Lóðasöngvar eftir Schumann, m.a. Dichterliebe. Þriðjudaginn 3. september Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, kl. 20.30. Bjöm Árnason, fagott. Hrefna Eggertsdóttir, píanó. Verk eftir Devienne, Spohr, Piemé, Neumann og Tansmann. Selfosskirkja kl. 20.30. Orgeltónleikar. Orthulf Prunner leikur öll orgelverk Mozarts. Föstudaginn 6. september Hafnarborg kl. 20.00. Tríó Reykjavíkur og Julius Baker, flauta og Leon Spierer, fíðla. Verk eftir Martinu, Mozart og Brahms. Laugardaginn 7. september Seltjarnarneskirkja kl. 15.00. Strengjasveit Sinfóníuhljómsveitar íslands. Stj. Leon Spierer. Serenade e. Dvorák, Menúettar og tríó e. Schubert o.fl. Mánudaginn 9. september Hafnarborg kl. 20.30. Hulda Guðrún Geirsdóttir, sópran. Jón Rúnar Arason, tenór. Hólmfríður Sigurðardóttir, píanó. Aríur og dúettar e. Lehár, Puccini o.fl. Þriðjudaginn 10. september Selfosskirkja kl. 20.30. Orgeltónleikar. Karen De Pastel frá Vín leikur orgelverk frá 18. öld. Fimmtudaginn 12. september Kirkjubæjarklaustri. Sinfóníuhljómsveit íslands. Stj. Guðmundur Óli Gunnarsson. Föstudaginn 13. september Laugalandi í Holtum. Sinfóníuhljómsveit íslands. Stj. Guðmundur Óli Gunnarsson. Laugardaginn 14. september Þorlákshöfn. Sinfóníuhljómsveit íslands. Stj. Guðmundur Óli Gunnarsson. Sunnudaginn 15. september Vestmannaeyjar. Sinfóníuhljómsveit íslands. Stj. Guðmundur Óli Gunnarsson. Mánudaginn 16. september íslenska óperan kl. 20.30. EPTA-píanótónleikar. Nína Margrét Grímsdóttir. Þriðjudaginn 17. september Selfosskirkja kl. 20.30. Orgeltónleikar. Bjöm Sólbergsson leikur vinsæl orgelverk frægra höfunda frá J.S. Bach fram til 20. aldar. Laugardaginn 16. september Kirkjuhvoli kl. 17.00. EPTA-píanótónleikar. Nína Margrét Grímsdóttir. Ehnmtudaginn 19. septemb- Háskólabíó kl. 20.00. Sinfóníuhljómsveit Islands — kynn- ingartónleikar. Stj. Petri Sakari. Þættir úr verkum sem verða á efnis- skrám vetrarins. Sunnudaginn 22. september Bústaðakirkja kl. 16.00. 10 ára afmælistónleikar íslensku hljómsveitarinnar. Innlend verk sem hljómsveitin hefur frumflutt. Þriðjudaginn 24. september Selfosskirkja kl. 20.30. Orgeltónleikar. Staffan Holm frá Svíþjóð leikur bar- okktónlist. Fimmtudaginn 26. september Háskólabíó kl. 20.00. Sinfóníuhljómsveit íslands' (Chan- dos-tónleikar). Stj. Petri Sakari. Haust, forl. op. 11, Gömul norsk rómansa op. 51 e. Grieg, Sinfónína nr. 3 e. Madetoja. Sunnudaginn 29. september Listasafn íslands kl. 20.30. Blásarakvintett Reykjavíkur, Guðný Guðmundsdóttir, fiðla, Gunnar Kvaran, selló, Helga Ingólfsdóttir, semball, Pétur Jónasson, gítar, Kol- beinn Bjarnason, flauta. Tónlist eftir Hafliða Hallgrímsson; Blásarakvintett (frumfl.), Nýtt verk tileinkað Karli Kvaran (frumfl.) f. einleiksfiðlu, Solitaire, f. einleikss- elló, Strönd f. sembal, Jakobsstigi f. gítar og Flug íkarusar f. flautu. Tónleikaskrá þessi er unnin á skrifstofu Samtaka um byggingu tónlistarhúss og byggist á upplýsing- um sem berast í tæka tíð, bréflega eða í síma 29107. Auk þess sem skráin birtist hér, er henni einnig dreift víðar, m.a. til annarra fjölm- iðla og aðila sem starfa að ferðamál- um. Tónlistardeild Ríkisútvarpsins hefur óskað eftir að fram komi, að lesið er beint upp úr þessari skrá í útvarpsþáttum deildarinnar. Skráin er birt með fyrirvara um breytingar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.